Fréttablaðið - 27.10.2012, Page 48
27. október 2012 LAUGARDAGUR6
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar um forsendur ráðningar er að finna á heimasíðu Landspítala.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Vinna á legu-, dag- og göngudeild ásamt vaktþjónustu
» Vinna í Heimahlynningu LSH
» Vinna við samráðskvaðningar á aðrar deildir LSH
» Þátttaka í kennslu og vísindavinnu í samvinnu við yfirlækna
Hæfnikröfur
» Sérfræðiviðurkenning á Íslandi í almennum lyflækningum eða skyldum
greinum
» Áhugi og þekking á líknarlækningum og krabbameinslækningum
» Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 10.11.2012
» Upplýsingar veita: Valgerður Sigurðardóttir, yfirlæknir netfang
valgersi@landspitali.is, sími 543-1000 og Halla Skúladóttir, yfirlæknir
netfang hallasku@landspitali.is, sími 543-1000
» Umsókn skulu fylgja vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu af
kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum ásamt sérprentun eða ljósriti
af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað.
» Umsóknargögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast, í tvíriti,
Valgerði Sigurðardóttur, yfirlækni líknardeildar, Landspítala Kópavogi
og Höllu Skúladóttur, yfirlækni, krabbameinslækninga, Landspítala
Hringbraut.
» Mat stöðunefndar læknaráðs Landspítala byggist á innsendum
umsóknargögnum. Viðtöl verða við umsækjendur og ákvörðun um
ráðningu í starfið byggir einnig á þeim.
» Fullt starf (100%) er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. yfirlýsingu
LSH vegna kjarasamnings sjúkrahúslækna dags. 2. maí 2002, sbr.
breytingu 5. mars 2006.
Sérfræðilæknir í lyflækningum
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í lyflækningum á líknardeild og
lyflækningum krabbameina. Um er að ræða 100% starf sem skiptist milli
eininganna eftir nánara samkomulagi. Starfið veitist frá 1. desember 2012
eða eftir samkomulagi. Einnig kemur til greina að ráða sérfræðilækni í
skyldum sérgreinum ef viðkomandi hefur reynslu af lyflækningum.
Sérfræðingur
við fuglarannsóknir
Náttúrufræðistofnun Íslands auglýsir eftir sérfræðingi
til starfa við stofnunina í Garðabæ við mat á fugla-
stofnum og kortlagningu á útbreiðslu og búsvæðum
þeirra. Ráðningartími er til tveggja ára með mögu-
leika á framlengingu starfs.
Starfið felur í sér:
• Vinnu við samantekt upplýsinga
• Skipulagningu og vistun gagna
• Fuglatalningar
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í líffræði
• Þekking og reynsla af fuglarannsóknum, úrvinnslu
og vistun gagna
• Kunnátta í notkun gagnagrunna og landfræðilegra
upplýsingkerfa er æskileg
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veita
Borgþór Magnússon, forstöðumaður vistfræðideild-
ar (borgthor@ni.is) og Kristinn H. Skarphéðinsson,
verkefnisstjóri (kristinn@ni.is).
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynn-
ingarbréf og óskast sendar til Náttúrufræðistofnunar
Íslands á netfangið mariafb@ni.is eða á heimilisfang
Náttúrufræðistofnunar Íslands, Urriðaholtsstræti 6-8,
210 Garðabær.
Umsóknarfrestur er til 5. nóvember 2012.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamnigum stéttar-
félaga opinberra starfsmanna við fjármálaráðuneytið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar í störf
hjá Náttúrufræðistofnun Íslands er tekið mið af
jafnréttis stefnu stofnunarinnar.
Helstu verkefni eru:
• Rekstur landupplýsingakerfis (gagnagrunnur, miðlarar/
biðlarar, þjónustur o.s.frv.)
• Vefforritun (gagnadrifin, Oracle, Django, GeoServer)
• Hugbúnaðarþróun (ráðgjöf/verkefnastjórnun með
aðkeyptri hugbúnaðarvinnu)
• Gagnavinnsla og þróun reiknirita (PL/SQL) með
landupplýsingar
• Sérvinnsla upplýsinga og þjónusta við viðskiptavini
• Aðkoma að rekstri tölvukerfis starfsstöðvar Þjóðskrár
Íslands á Akureyri
Hæfniskröfur:
• Nám í forritun eða góð reynsla í Python,
JavaScript, CSS, XML, PL/SQL
• Kostur að þekkja til GeoServer, Django, ExtJS/GeoExt og
Apache vefþjóna
• Almennur áhugi á kortagerð og íslenskri landafræði er kostur
• Frumkvæði í starfi og góðir samskipta- og skipulagshæfileikar
• Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hópi
• Góð íslensku- og enskukunnátta
Hjá Þjóðskrá Íslands starfa yfir 100 starfsmenn. Verkefni stofnunarinnar eru mjög fjölbreytt og heldur stofnunin m.a. fasteignaskrá og þjóðskrá, gefur út
fasteignamat og brunabótamat, rekur vefinn island.is og sér um útgáfu vegabréfa. Þjóðskrá Íslands leggur metnað sinn í að sinna verkefnum sínum af
fagmennsku og áreiðanleika. Stofnunin hefur það að leiðarljósi að starfsmönnum líði vel í starfi og leggur áherslu á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn.
Gildi stofnunarinnar eru virðing, sköpunargleði og áreiðanleiki.
Þjóðskrá Íslands óskar eftir að ráða sjálfstæðan og öflugan forritara til starfa á
landupplýsingadeild stofnunarinnar á Akureyri.
Forritari á landupplýsingadeild Þjóðskrár Íslands
Um er að ræða fullt starf og þarf umsækjandi
að geta hafið störf sem fyrst. Launakjör eru
samkvæmt kjarasamningum ríkisstarfsmanna.
Umsóknarfrestur er til og með
12. nóvember 2012.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Sigurbjörg J. Helgadóttir mannauðsstjóri hjá
Þjóðskrá Íslands á netfanginu sjh@skra.is.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar starfsferilskrár
og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni
viðkomandi í starfið. Umsóknir óskast sendar á
netfangið sjh@skra.is.
www.skra.is
www.island.is
Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að
umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.