Fréttablaðið - 27.10.2012, Blaðsíða 67
KYNNING − AUGLÝSING Vöruflutningar27. OKTÓBER 2012 LAUGARDAGUR 3
Flugfragtin hjá Flugfélagi Íslands gegnir mikilvægu hlutverki fyrir bæði f lug-
félagið og viðskiptavini þess.
„Sérstaða okkar í f lutningum
er hraðinn og tíðnin. Við bjóð-
um sem dæmi allt að tólf ferð-
ir til Akureyrar á hverjum degi
og fimm á Egilsstaði,“ segir Vig-
fús Vigfússon, deildarstjóri f lug-
fragtar Flugfélags Íslands.
„Það kemur fólki líka oft mjög
á óvart hversu ódýrt það er að
senda hluti með flugi. Verðskráin
hjá okkur er á svipuðu róli og hún
er hjá landflutningsfyrirtækjun-
um. Við teljum okkur vera mjög
samkeppnishæfa á þessu sviði.“
Vigfús segir fólk senda allt
milli himins og jarðar í fraktflugi
Flugfélagsins. „Þetta er mest
blöð, brauð og fersk matvara. Svo
er líka verið að senda blóm, reið-
hjól og alls kyns varahluti, bæði
í vélar og bíla. Við erum í raun að
f lytja allt sem fólki dettur í hug
að senda. Hér fyllist allt klukkan
sex á morgnana af vörum. Fyrstu
vörur eru farnar héðan kort-
er í sjö og lentar klukkan átta á
Akureyri. Í þeirri vél er til dæmis
brauð og vörur sem halda áfram
til Vopnafjarðar og Þórshafnar í
f lugi. Hraðinn er það mikill hjá
okkur að f latkökurnar eru enn
þá volgar þegar þær koma á Þórs-
höfn,“ segir Vigfús og hlær.
Fyrirtækið hefur frysti- og
kæligeymslur til að f lytja við-
kvæmar vörur. „Við f lytjum til
dæmis mikið af sýnum fyrir
landbúnaðinn, matvælaiðnað-
inn og fiskiðnaðinn. Þetta er þá
oft viðkvæm vara sem þarf að
vera í kæli eða frysti.“
„Til að viðskiptavinir okkar
nái hámarksárangri bjóðum
við upp á að sækja sendingar til
viðkomandi fyrirtækis og koma
henni beint til viðtakanda. Allt
sem þarf að gera er að hringja,
við komum þá og sækjum, fljúg-
um með fragtina og sendum til
viðskiptavinarins. Þannig getum
við tryggt f ljóta og örugga þjón-
ustu með fragtsendingar frá upp-
hafi til enda. Við bjóðum einnig
upp á það að fragtin sé flutt með
rútu til nærliggjandi staða,“ segir
Vigfús.
Hraðinn og tíðnin helstu kostirnir
Á tímum samkeppni í verslun og þjónustu byggist góður árangur æ meir á því að vera fyrstur á markaðinn með vörur sínar og
þjónustu. Flugfrakt Flugfélags Íslands er því ákjósanlegasti kosturinn þegar tryggja þarf aukið forskot á markaðnum.
Vigfús Vigfússon, deildarstjóri flugfragtar Flugfélags Íslands, segir fólk senda allt milli himins og jarðar með flugi. MYND/GVA
Flugfélag Íslands býður upp á frakt til bæði Færeyja og Grænlands.
„Flutningsþörfin til þessara landa hefur farið stigvaxandi undan-
farið og þá sérstaklega til Grænlands. Við fljúgum til fimm staða á
Grænlandi en það eru fleiri áfangastaðir en hér á landi. Við finnum
fyrir auknum áhuga á landinu úti í heimi,“ segir Vigfús Vigfússon,
deildarstjóri flugfragtar Flugfélags Íslands.
„Við erum að fljúga með alls kyns vörur til Grænlands; matvæli,
varahluti, byggingarefni, póst, vélsleða og fjórhjól svo eitthvað sé
nefnt. Við notum bæði Fokker 50 vélar og svo Dash 8-200 sem henta
vel til fraktflutninga. Þær eru með stórar vörudyr þannig að það er
hægt að hlaða þær með lyftara og flytja til dæmis þung vörubretti.
Það er í raun ekkert sem stoppar okkur í að vera með þungavöru í
flutningum.“
Í byrjun næstu viku verður haldin í Nuuk á Grænlandi kaupstefna
á vegum Íslandsstofu í samstarfi við Flugfélag Íslands. „Við héldum
svona kaupstefnu í fyrsta sinn fyrir þremur árum og það heppnaðist
mjög vel. Íslensk fyrirtæki kynna þá vörur sína og þjónustu á Græn-
landi. Við höfðum frumkvæði að þessu í byrjun en nú hefur Íslands-
stofa tekið við framkvæmdinni. Það hefur verið aukin áhersla á flug
til Grænlands undanfarið og við sjáum ekki annað en að það aukist
í framtíðinni,“ segir Vigfús.
Aukin eftirspurn eftir
fragtferðum til Grænlands
FLOTTIR FLUGSENDLAR - SÍMI 570 3400
Það er ekki furða að fólk líti upp til okkar hjá Flugfrakt Flugfélags Íslands. Annað er hreinlega ekki
hægt þegar við tökumst á loft með pakkann þinn á milli landshluta áður en þú getur sagt tíu hjóla
vöruflutningabifreið með aftanívagni fyrir utan vegasjoppu. Við erum ávallt til taks þegar þú þarft að
koma mikilvægri sendingu til skila.
VIÐ KOMUM ÞÍNU TIL SKILA
FLUGFRAKT
FLUGFELAG.IS
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.IS
/F
LU
6
15
77
1
0/
12
AA
FARSÍMAVEFUR: m.flugfelag.is VINGUMST: facebook.com/flugfelag.islands