Fréttablaðið - 27.10.2012, Blaðsíða 34
27. október 2012 LAUGARDAGUR34
ARMSTRONG Í TÖLUM
Lance Armstrong, sem á sínum tíma var einn tekjuhæsti íþrótta-
maður veraldar, þarf nú að sjá á eftir verðlaunafé og tekjum vegna
auglýsingasaminga.
1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012
Lið: U.S. Postal
KORTÍSÓN
TESTÓSTERÓN
RAUÐKORNAVAKI
Hættur Astana HætturRadioShack
BLÓÐGJÖF
VAXTARHORMÓN
Blóðgjöf
Allt að hálfum lítra af blóði
er tekið úr íþróttamann-
inum og geymt í 3-8 vikur.
Blóðinu er sprautað aftur
í líkamann 1-7 dögum
fyrir keppni. Eykur magn
rauðra blóðkorna og þar
með þol.
Rauðkornavaki
(EPO)
Sykurprótein sem
framleitt er í nýrum.
Örvar myndun rauðra
blóðkorna. Eykur súr-
efnisflutningsgetu og
þar með þol.
Vaxtarhormón
(HGH)
Eykur vöðvavöxt
og eykur fitu-
brennslu.
Testósterón
Eykur vöðva-
stærð, dregur úr
þreytu.
Kortísón-
sterar
Hafa m.a.
áhrif á niður-
brot kolvetna
og fitu.
Tour de France
Tour de France: sýni frá
1999 prófuð aftur
Tour de France: Niðurstöður
prófa benda til lyfjamisnotkunar.
Tour of Switzerland
JÁKVÆÐ LYFJAPRÓF SEM VAR HYLMT YFIR5
1
2 3
4 5
AÐFERÐIRNAR SEM ARMSTRONG BEITTI VIÐ LYFJAMISNOTKUN
H
EIM
ILD
: G
R
A
PH
IC N
EW
S
Forsvarsmenn frönsku hjólreiðakeppninnar, Tour de France,
krefjast endurgreiðslu á verðlaunafénu sem Armstrong vann sér
inn á árunum 1999-2005. Alls 640 milljónir kr. 640
1,4
2,3
MILLJÓNIR
MILLJARÐAR
MILLJARÐAR
Bandaríska tryggingafyrirtækið SCA krefst 1,4 milljarða kr. í
endurgreiðslu vegna „tryggingasvika“.
Samstarfsaðilar á flótta: Samtals 2,3 milljarðar kr.
Nike (1,5 milljarðar kr.)
Trek
Giro
Oakley
Anheuser-Busch
Í
mynd hjólreiðaíþróttarinnar og
trúverðug leiki hefur snúist á ógnar-
hraða í niðurfallinu að undanförnu eftir
að upp komst um óhreina mjölið í poka-
horni Lance Armstrong. Bandaríski gull-
drengurinn, sem stóð efstur á palli sjö
ár í röð í frönsku hjólreiðakeppninni Tour de
France, virtist með allt á hreinu. Hann var dáður
og virtur þar sem hann hafði komist í fremstu
röð eftir harðvítuga baráttu gegn illvígum sjúk-
dómi. Armstrong greindist með krabbamein í
eista árið 1996 en hann sigraði í Tour de France
árið 1999 eftir erfið veikindi. Armstrong fór
í skurðaðgerðir þar sem mein voru fjarlægð í
lunga og heila, og hann vakti heimsathygli fyrir
árangur sinn eftir allt sem á undan var gengið.
Í dag er það staðreynd að hann var stútfullur
af ólöglegum efnum og lyfjum á meðan hann
baðaði sig í frægðarljómanum og rakaði inn pen-
ingum. Armstrong hafði rangt við og hann mót-
mælti því varla þegar upp komst um svikin. Og
það verður á brattann að sækja fyrir Armstrong
að endurheimta virðingu og traust á ný.
Rauði þráðurinn í skýrslu bandaríska lyfja-
eftirlitsstofnunarinnar (USADA) um lyfjamál
Lance Armstrong er þessi: „Íþróttasagan hefur
aldrei áður séð eins vel heppnað og háþróað
lyfjasvindl.“ Það eru stór orð.
USADA tekur djúpt í árinni í 200 bls. skýrslu
um Armstrong. Þar stendur meðal annars:
„Hann var launþegi hjá dópsölum, og hafði
aðgang að læknateymi sem útvegaði það sem
til þurfti. Hann stjórnaði sjálfur hvaða lyf hann
notaði og hann stjórnaði því einnig hvaða lyf liðs-
félagar hans fengu. Forsvarsmenn keppnisliðs
Armstrong vissu alltaf hvar og hvenær von væri
á lyfjaeftirliti.“
Hjólreiðar verða áfram á ÓL
„Þetta er áfall,“ sagði Jacques Rogge, forseti
Alþjóða Ólympíunefndarinnar (IOC), þegar hann
tjáði sig um lyfjamál Armstrongs. Margir áttu
von á því að hjólreiðaíþróttin yrði strokuð út af
keppnisdagskrá Ólympíuleikanna, en Rogge telur
að það væri ekki rétt ákvörðun. Að mati Rogge
hefur Alþjóðahjólreiðasambandið gert meira en
margir aðrir í baráttunni gegn lyfjamisnotkun.
„Því miður hafa mörg lyfjamál tengst hjólreið-
um en Alþjóðahjólreiðasambandið er á réttri leið
hvað varðar lyfjaeftirlit og ég held að til lengri
tíma litið verði þetta áfall til þess að efla það
ferli enn frekar,“ var haft eftir Rogge skömmu
eftir að upp komst um óhreina mjölið í pokahorni
Lance Armstrong.
Það er ólíklegt að Armstrong nái að laga
ímyndina eftir allt sem á undan er gengið. Það
dugar ekki að skipta um kennitölu. Það hjálpar
honum lítið að góðgerðasamtökin Livestrong,
sem Armstrong stofnaði sjálfur, hafi safnað um
64 milljörðum króna.
„Það eina sem hann á skilið er að vera týndur
og tröllum gefinn,“ sagði Pat McQuaid, forseti
Alþjóðahjólreiðasambandsins (UCI), þar sem
hann var staddur fyrir framan nokkur hundruð
fjölmiðlamenn. McQuaid og félagar hans í stjórn
UCI strikuðu yfir öll met sem voru í eigu Arm-
strongs með einu pennastriki. „Ég hef óskað eftir
því að það verði ekkert nafn skráð sem sigur-
vegari á þessum tíma,“ bætti McQuaid við.
Armstrong hefur fullyrt að hann hafi verið
lyfjaprófaður alls 500 sinnum án athugasemda,
en hann var með einn þekktasta „íþróttadóp-
lækni“ veraldar á sínum snærum. Sá kauði heitir
Michele Ferrari og fékk hann um 100 milljónir
króna í laun frá Armstrong. Ferrari er dæmdur
sakamaður í dag og má ekki koma að atvinnu-
íþróttum með neinum hætti það sem eftir er
ævinnar.
Armstrong notaði ýmsar aðferðir til þess
að komast upp með svikin þrátt fyrir fjöl-
mörg lyfjapróf. Fram til ársins 2000 var ekki
hægt að finna merki um notkun EPO. Blóð-
gjöf, sem var mikið notuð af Arm strong,
var hægt að fela með því að sprauta vökva
beint í æð, og villa þar með um fyrir lyfja-
eftirlitinu. Sérfræðingar sem mældu
hlutfall rauðra blóðkorna í blóðvökva hjá
Armstrong fyrir atvinnumót á árunum
2009-2010 hafa sagt að líkurnar séu
einn á móti milljón að þar hafi allt
verið eðlilegt.
Nánast allir notuðu lyf
Floyd Landis, sem var liðsfélagi Arm-
strongs í US Postal-atvinnuliðinu, hefur
greint frá því hvernig þeir notuðu ólög-
leg lyf með markvissum hætti. Landis
greindi einnig frá því að John Bruy-
neel, sem var framkvæmdastjóri US
Postal-liðsins, hefði mútað Hein Ver-
bruggen, forseta UCI, árið 2002 til
þess að þagga niður að Armstrong
hefði fallið á lyfjaprófi – vegna notk-
unar á EPO.
Hafsteinn Ægir Geirsson, sem er í
fremstu röð í keppnishjólreiðum hér
Íslandi, vonast til þess að íþróttin eigi
eftir að ná að laga ímyndina. „Ég hef
fylgst grannt með og fyrir hjólreiða-
íþróttina er þetta leiðindamál. Ef litið er
aftur í tímann er ljóst að það voru nánast
allir að nota lyf á árunum 1992-2005, en
eftir þann tíma hefur eftirlitið aukist og
ástandið er að lagast,“ sagði Hafsteinn Ægir,
en hann telur engar líkur á því að hjólreiða-
íþróttin nái að losna við alla þá sem reyna að
hafa rangt við. „Það er bara eins og í öðrum
íþróttagreinum, það þarf öflugt lyfjaeftirlit, og
það verða alltaf einhverjir sem vilja stytta sér
leið. Hér á Íslandi er þetta svo langt
frá okkur enda erum við í þessu sem
áhugamenn en ekki atvinnumenn,“
sagði Hafsteinn Ægir.
Wiggins er argur og pirraður
Eins og áður segir hefur Armstrong
ekkert tjáð sig um lyfjahneykslið.
Bretinn Bradley Wiggins, sem sigr-
aði í Frakklandshjólreiðunum á
þessu ári, á ekki von á því að Arm-
strong játi á sig sökina og komi
fram með afsökunarbeiðni. Wiggins
er argur og pirraður að vera í þeirri stöðu
að allir efist um þann árangur sem hann nær
í keppni. „Það er mikil reiði sem býr í þeim sem
stunda hjólreiðar, ég elska íþróttina og hef alltaf
gert. Það er skömm að íþróttin hafi verið dregin í
gegnum þetta svað, en þegar maður eldist hættir
maður að trúa á jólasveininn – það sama gildir
um Lance Armstrong.“
Á skilið að vera týndur
og tröllum gefinn
Ímynd hjólreiðaíþróttarinnar er í molum. Stórstjarnan Lance Armstrong var stútfull
af ólöglegum lyfjum á hátindi ferilsins. Sigurður Elvar Þórólfsson kynnti sér söguna á
bak við eitt allra stærsta og háþróaðasta lyfjasvindl íþróttasögunnar.
Lance Armstrong
Fæddur: 18.09.1971
Hæð: 1.77 m
Þyngd: 75 kg
Atvinnumaður: 1992-2011