Fréttablaðið - 27.10.2012, Blaðsíða 22
27. október 2012 LAUGARDAGUR22
S
ara Marti Guðmunds-
dóttir er önnum kafin
kona. Hún komst í
sviðsljósið 17 ára gömul
sem söngkona hljóm-
sveitarinnar Lhooq,
er útskrifuð leikkona úr Lista-
háskóla Íslands og leikstjóri úr
Central School of Speech and
Drama í London. Í síðustu viku
var frumsýnt brúðuleikhúsverkið
Nýjustu fréttir, sem hún leikstýrði
og samdi í samstarfi við leikhóp-
inn VaVaVoom sem vakið hefur
mikla hrifningu gagnrýnenda. Við
náðum í skottið á henni rétt eftir
frumsýningu og rétt áður en hún
flaug aftur heim til London.
Sara hefur búið í London síðan
2009, er gift Bretanum Tobias
Munthe og á ársgamlan son.
Sagan segir að þau hjón lifi miklu
glamúr lífi, eigi íbúðir úti um allt,
kastala í Frakklandi og umgang-
ist kvikmyndastjörnur. Sara veltist
um af hlátri við þær fréttir. „Það
er æðislegt þegar svona sögur fara
af stað. En, já, maðurinn minn á
efnaða fjölskyldu, en það er langt
frá því að við lifum í einhverjum
glamúr. Við eigum íbúð í London
og vorum að kaupa íbúð í Reykja-
vík, eftir að ég seldi þá sem ég átti
hér. Varla hægt að kalla það ævin-
týralegt líferni. Og, nei, við eigum
ekki kastala. Hvað ættum við að
gera með hann?“
Þriggja daga brúðkaupsveisla
Þú fórst til London í leikstjórnar-
nám eftir að þú útskrifaðist sem
leikkona úr LHÍ. Kynntistu mann-
inum þínum þar? „Nei, við kynnt-
umst í New York, það er voða sæt
saga. Fyrir sjö árum fór ég til New
York með bekkjarsystur minni,
Önnu Svövu Knútsdóttur, í nokkra
daga. Við vorum báðar nýhættar
með kærustunum okkar, vorum
í ástarsorg og ákváðum að skella
okkur til New York, versla og
borða góðan mat og hafa það næs.
Ferðin var bara æðisleg og
síðasta kvöldið okkar þar var
okkur boðið í partý
hjá vini hennar, Haf-
steini Gunnari Sig-
urðssyni, sem var að
læra kvikmyndagerð í
NY. Ég hafði aldrei hitt
hann áður en kynnt-
ist honum þetta kvöld
og líka bekkjarbróð-
ur hans, Tobiasi. Við
Tobias töluðum saman
í sjö klukkutíma, en svo
þurfti ég að drífa mig í
flugið heim og átti ekk-
ert von á því að hitta
hann aftur. Einu og
hálfu ári síðar fæ ég
svo símhringingu: „Já,
hæ, þetta er Tobias, við
hittumst í New York.
Manstu eftir mér?“ Ég
mundi vel eftir honum,
hann bauð mér í kaffi,
ég sagði já og við erum
búin að vera að drekka
það kaffi síðan.“
Brúðkaupið ykkar er
líka umrætt; þriggja
daga veisla með þús-
und gestum í kastala
í Suður-Frakklandi með kvik-
myndastjörnum og fyrirfólki af
öllum þjóðernum. „Jesús minn,
hvaða heimildarmenn hefur þú
eiginlega? Nei, það var ekki í kast-
ala en þetta var sjúklega skemmti-
leg þriggja daga veisla í sumarhúsi
tengdaforeldra minna, sem er sko
enginn kastali en það er mögulegt
að það sjáist kastali út um glugga.
Gestirnir voru 180, ekki þúsund,
en það var nú aðallega af því við
eigum bæði svo risastórar fjöl-
skyldur, við skárum niður eins
og við gátum. Hann er franskur í
aðra ættina, breskur í hina og ég
er íslensk í aðra ættina og spænsk
í hina þannig að auðvitað var fólk
af ýmsum þjóðernum þarna og
einu kvikmyndastjörnurnar sem
voru þarna voru Helena Bonham
Carter og maðurinn hennar, Tim
Burton, en það var bara af því að
Helena og Tobias eru þremenning-
ar og þau eru mjög samheldin fjöl-
skylda. Það er nú ekkert flóknara
en það. Það má miklu frekar segja
að Íslendingarnir hafi verið stjörn-
urnar í þessu brúðkaupi, þeir tóku
þetta alveg að sér, sáu
um skemmtiatriðin og
brilleruðu auðvitað.“
Ein kjaftasaga í við-
bót, svo er ég hætt,
það er sagt að Tobias
sé af Rockefeller-ætt-
inni. „Nei, nei, nei. En
hann er af Rothschild-
ættinni í móðurættina,
það er gömul og fræg
ætt sem er dreifð út um
alla Evrópu og hefur
eflaust átt nokkra
kastala einhvern tíma,
en hvorki hann né for-
eldrar hans berast
mikið á.“
Skíthrædd við að koma
fram
Hvernig gengur þér
að koma undir þig fót-
unum í leiklistarlífinu
í London? „Ég er búin
að vera í fæðingar-
orlofi í heilt ár, auk
þess að undirbúa Nýj-
ustu fréttir, en ég er
svona að byrja að leita
fyrir mér. Þegar ég kem heim til
London núna byrja ég á því að leita
að heimili fyrir Nýjustu fréttir og
svo þegar ég er búin að því byrja
ég að undirbúa næsta leikrit sem
ég ætla að leikstýra þar, finna
fjármagn og styrki og annað. Ég
er búin að velja verkið en þetta
er allt enn þá í vinnslu og ég get
eiginlega ekki sagt meira frá því
núna.“ Ertu alveg hætt að leika?
„Ég er ekkert hætt því, en hef ekki
sóst eftir því í London. Ég sakna
þess alveg stundum en leikstjórnin
kallar meira á mig akkúrat núna.
Auðvitað mundi ég stökkva til ef
mér byðist eitthvað spennandi
hlutverk en sú staða hefur ekki
komið upp þannig að ég hef ekk-
ert þurft að velja. Mér finnst líka
alveg óskaplega gaman að leik-
stýra, finnst ég einhvern veginn
kominn heim þar.“
Hvað með sönginn, er hann
horfinn úr lífi þínu? „Ég á í dálitlu
ástar-/haturssambandi við söng-
inn. Ég elska að syngja, meira en
nokkuð annað í raun og veru, finnst
gaman að vinna við tónlist og með
tónlistarmönnum en hef engan
áhuga á að gera það að atvinnu.
Svo er ég enn þá bara skíthrædd
við að koma fram. Ég veit að það
hljómar furðulega en ég hef alltaf
verið það. Það er allt annað að fara
í búning og leika einhvern annan
en sjálfa þig. Þegar þú syngur þá
ertu bara þú sjálf. Mér hefur alltaf
fundist það óskaplega erfitt og það
er ekkert að skána með árunum.
Mér finnst samt ekkert skemmti-
legra en að fara í stúdíó og syngja
eða hóa í góða vini og taka sessjón
en það er komið svo ótrúlega mikið
af hæfileikaríku tónlistarfólki að
ef maður ætlar að eiga einhvern
séns verður maður að hella sér út í
þetta og ég er ekki tilbúin til þess.
Ég læt sturtuna duga í bili.“
Þorpsstemning í Notting Hill
Hvernig kanntu við þig í London?
„London er æðisleg. Við búum í
vesturhluta London í Ladbroke
Grove, sem er eiginlega alveg við
Notting Hill, og það er alveg yndis-
legt hverfi. Þótt það sé inni í miðri
stórborg er svona þorpsstemning,
maður þekkir apótekarann og fisk-
salann og heilsar fólki á götu, bara
eins og hérna í miðbænum. Fyrst
eftir að ég flutti var ég reyndar
alveg úrvinda alla daga. Það tekur
svo mikinn tíma að fara á milli
staða og allt er miklu meira mál
en hér, þar sem maður gengur allt
sem maður þarf að fara og allir
vinir manns búa rétt hjá manni.
Eitt er það þó sem ég sakna
ekkert sérstaklega frá Íslandi og
það er veðrið. Og myrkrið. Það á
mun betur við mig að vera í aðeins
hlýrra loftslagi og aðeins meiri
birtu á veturna. Þegar ég var að
leikstýra hjá Stúdentaleikhúsinu
2011 kom ég heim í janúar og var
fram í apríl og ég get svarið það ég
held ég hafi talið sautján stormvið-
varanir á því tímabili. Þá hugsaði
maður hvað fólk væri klikkað að
búa hérna; myrkur allan sólar-
hringinn og stormviðvörun eftir
stormviðvörun, fólk hlýtur að vera
galið! En svo kemur sumarið og þá
gleymir maður hvað allt var ömur-
legt. En það eru kostir og gallar
við allt og ég veit að ég mun alltaf
verða hér með annan fótinn.“
Enska, íslenska og spænska
Þú ert ekki óvön því að þurfa að
skipta þér á milli menningar-
heima, mamma þín er spænsk.
Varstu ekki mikið á Spáni sem
krakki? „Jú, við fórum mikið
þangað og mér finnst ég ótrúlega
heppin að hafa búið að því að eiga
aðra menningu og annað tungu-
mál. Maður lærir líka að það er
ekki allt eins alls staðar og lífið
er ekkert svart-hvítt.“ Töluðuð þið
spænsku við mömmu ykkar? „Já,
ég hef alltaf talað tvö tungumál
jöfnum höndum og núna eru þau
orðin þrjú: Ég er gift á ensku, vinn
núna á íslensku og ræði trúnaðar-
mál við mömmu mína á spænsku.“
Var það kannski þess vegna sem
þú ákvaðst að verða leikkona, þú
varst svo vön að skipta um hlut-
verk? „Já, ætli það ekki bara. Ann-
ars veit ég eiginlega alveg hvenær
ég ákvað að verða leikkona. Sá það
í gær. Ég fór til foreldra minna og
horfði á vídeó af okkur systkin-
unum þegar við vorum börn og þá
rann það upp fyrir mér að daginn
sem bróðir minn fæddist breyttist
ég. Hef örugglega hugsað: Athygl-
in er komin eitthvert annað, ég
verð að ná henni aftur með ein-
hverjum ráðum! Ég hálfvorkenndi
þessu fjögurra ára barni þarna í
vídeóinu sem var svo desperat að
ná athygli foreldranna. Þannig að
það má segja að bróðir minn sé
örlagavaldurinn í lífi mínu.“
Einu kvik-
myndastjörn-
urnar sem
voru þarna
voru Helena
Bonham
Carter og
maðurinn
hennar, Tim
Burton.
Hvað ætti ég að gera með kastala?
Sara Marti Guðmundsdóttir lifir engan veginn dæmigerðu lífi. Hún er söngkona, leikkona og leikstjóri, býr í London með
annan fótinn á Íslandi og sögur ganga um glamúrlíf að hætti kvikmyndastjarna. Sara sagði Friðriku Benónýsdóttur sannleikann
að baki sögunum, rómantíska ástarsögu og hvernig það er að búa í því fræga hverfi Notting Hill í London.
FJÖLÞJÓLEGT LÍF Sara segist vera gift á ensku, vinna á íslensku og ræða trúnaðarmál við mömmu sína á spænsku. „Mér finnst ég ótrúlega heppin að hafa búið að því að eiga
aðra menningu og annað tungumál.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Nýjustu fréttir er nýtt íslenskt brúðuleikhúsverk fyrir fullorðna, sem fjallar um áhrif frétta á einkalíf okkar. VaVaVoom nálgast
efniviðinn með spunavinnu og tekur hópurinn á efninu á gaman-
saman og myndrænan hátt. Gagnrýnendur hafa lofað verkið í hástert
og sýningin fékk fullt hús stjarna í Fréttablaðinu.
Brúðuleikhús fyrir fullorðna, hvernig virkar það? „Já, góð spurn-
ing. Ég held ekki að það sé neitt mikið öðruvísi en barnasýningarnar.
Þetta er lítið ævintýri en hún tekur á efnum sem eru ekki endilega
fyrir börn, í því felst munurinn. Við getum sagt að þetta sé sýning
fyrir fullorðna sem leyfa sér að verða börn og ganga á vald sjónar-
spilsins. Við unnum alltaf út frá þeirri grunnhugmynd að gera sýn-
ingu sem fjallar um samband okkar við fréttir. Það gefur náttúru-
lega óendanlega möguleika í efnisvali, þannig að mesta vinnan var
fólgin í því að þrengja konseptið þannig að allir, bæði Íslendingar og
Evrópubúar, gætu skilið það því meiningin er að fara með sýninguna
á ferðalag um Evrópu eftir að sýningartíma hér lýkur og koma fram
á brúðuleikhúsfestivölum hér og þar. Helmingurinn af hópnum er
erlendur og hinn helmingurinn íslenskur og það sem við völdum varð
að vera eitthvað sem við áttum öll sameiginlegt. Síðan tekur fólk
bara það með sér sem höfðar mest til þess, eins og alltaf.
Rétt er að benda á að sýningarfjöldi er takmarkaður og ekki eftir
neinu að bíða að drífa sig í leikhús.“
Höfundar: Sigríður Sunna Reynisdóttir, Sara Marti Guðmundsdóttir og
hópurinn. Leikstjóri: Sara Marti Guðmundsdóttir. Dramatúrg og aðstoðar-
leikstjóri: Raul Fuertes-Fuertes. Tónlist: Sóley Stefánsdóttir. Ljósahönnun:
Ingi Bekk Einarsson. Myndbandshönnun: Pierre-Alain Giraud. Búningar og
sviðsmynd: Eva Signý Berger. Leikmunir: Högni Sigurþórsson. Flytjendur:
Sigríður Sunna Reynisdóttir og Irena Stratieva.
Sýnt í Kúlunni í þjóðleikhúsinu.
■ NÝJUSTU FRÉTTIR VEKJA HRIFNINGU