Fréttablaðið - 27.10.2012, Blaðsíða 38
KYNNING − AUGLÝSINGVöruflutningar LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 | Umsjónarmenn auglýsinga: Elsa Jensdóttir elsaj@365.is sími 512 5427 |
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Hingað til hafa dýr sem flutt eru til landsins þurft að fara í kostnaðarsama sóttkví. Helgi
Hjörvar segir að áhættumat sem gert
hafi verið í öðrum löndum sýni litla
hættu á smiti. „Ég þurfti að fá mér
leiðsöguhund og varð með því hund-
eigandi. Ég ferðast mikið milli landa
og áttaði mig á að það er leyft frá
suður strönd Krítar til norðurstrand-
ar Svalbarða að ferðast með hunda og
ketti ef farið er að settum reglum. Hér
á landi þurfa dýr hins vegar að fara
í sóttkví eftir komuna til landsins,“
segir Helgi, sem lagði fram frum-
varpið á síðasta ári um breytingar á
innflutningi gæludýra til landsins.
Meðflytjendur hans eru Ólína Þor-
varðardóttir og Magnús Orri Schram.
„Bretar hafa gert áhættumat á
þessu en þeir búa á eyju eins og við.
Sömuleiðis höfum við skoðað hvern-
ig Ástralar hafa þetta en þeir hafa
minnkað mikið þessar einangrunar-
kröfur sínar og breytt áherslum. Ís-
land er eina landið á evrópska efna-
hagssvæðinu sem er enn með þessar
ströngu reglur. Ég held að breyting-
ar á þessu séu hluti af alþjóðlegri
þróun sem óhjákvæmilegt verður að
lagfæra þegar fólk er farið að sækja
vinnu á milli landa í auknum mæli.
Meðan það er ekki mikil hætta þessu
samfara sé ég enga ástæðu til ann-
ars en að við breytum reglunum með
vissum skilyrðum og eftirliti. Dýrin
verða bólusótt gegn þeim sjúkdóm-
um sem hætta er á að þau smitist af,“
segir Helgi.
„Við höfum f lutt þetta frum-
varp tvisvar en mér fannst menn
skiptast í fylkingar með eða á móti
eftir því hvort þeir væru með eða
á móti Evrópusambandinu. Ég er
þeirrar skoðunar að hundar og
kettir eigi betra skilið,“ segir Helgi.
„Við munum leggja þetta frumvarp
fram aftur núna og síðan fer málið
til nefndar. Þegar menn skoða
reynslu annarra landa og áhættu-
möt sem gerð hafa verið þá munu
þeir sannfærast um að rétt sé að af-
greiða málið.“
Gæludýravegabréf staðfestir að
dýrin hafi fengið allar nauðsynleg-
ar bólusetningar. elin@365.is
Vegabréf fyrir gæludýrin
Frumvarp um gæludýravegabréf verður lagt fyrir þingið í þriðja skipti á næstu
dögum. Helgi Hjörvar alþingismaður vonast til að málið fái afgreiðslu nú.
Helgi Hjörvar vonast eftir því að flytja megi gæludýr á milli landa án þess að þau þurfi að
fara í sóttkví.
Breakbeat
laugardagskvöld kl. 22r skvöld l.
Fyrirtækjaþjónusta Pósts-ins er mjög hagkvæm þjón-usta. Hún er sniðin að þörf-
um fyrirtækja, hvort sem þau eru
að senda eða sækja bréf, pakka eða
vörubretti þar sem við erum með
sendibíla með og án lyftu,“ segir
Jónas Þór Gunnarsson, sérfræð-
ingur fyrirtækjalausna.
Í hverju felst Fyrirtækja-
þjónustan?
„Í stuttu máli þá eru allar þær
sendingar sem fyrirtæki vilja
senda með Póstinum sóttar og
komið með þær sendingar sem stíl-
aðar eru á viðkomandi fyrirtæki. Í
samráði við Póstinn er ákveðið
á hvaða tíma og hversu oft á dag
Fyrirtækjaþjónustan kemur. Á um-
sömdum tíma mætir starfsmaður
frá okkur reiðubúinn til þjónustu.
Hægt er að láta hann koma allt að
þrisvar sinnum á dag en einnig
bjóðum við upp á aukaferðir, ef á
þarf að halda. Pósturinn flytur vör-
una heim að dyrum, hvort sem um
er að ræða pakka eða bretti,“ segir
Jónas.
Tímasparnaður
Fyrirtækjaþjónusta Póstsins spar-
ar fyrirtækjum bæði tíma og fyrir-
höfn við að fara sjálf með send-
ingar og sækja þær. „Það er bæði
kostnaðarsamt og óhagkvæmt fyrir
mörg fyrirtæki að vera með starfs-
mann í því að sendast með vörur
út um allan bæ. Í sumum tilfellum
þarf jafnvel sérútbúinn bíl. Hag-
kvæmnin í því að nýta sér Fyrir-
tækjaþjónustuna er því ótvíræð
og einkar góður kostur.“
Fyrir hverja?
„Pósturinn þjónustar margar
stærstu heildverslanir landsins
og nýta þær sér Fyrirtækjaþjón-
ustuna til að láta sækja sending-
ar, allt frá litlum pökkum að heil-
um brettum. Þetta getur því varla
verið þægilegra.“
Sendlaþjónusta Póstsins
Pósturinn býður einnig upp á
Sendlaþjónustu sem býðst fyr-
irtækjum á höfuðborgarsvæð-
inu, nema í póstnúmerunum 116,
271, 276, og á Akureyri. „Þetta er
einföld og þægileg þjónusta. Þú
hringir, sendill sækir sendingu,
allt að 30 kílóum, til fyrirtækis og
ekur henni til móttakanda. Mark-
mið okkar er að frá því að send-
ill er pantaður líði innan við 90
mínútur þangað til sendingin er
komin í hendur viðtakanda.
Með þjónustunni er komið
til móts við auknar kröfur fyrir-
tækja um sveigjanleika. Sendill-
inn sendist með bréf og pakka allt
að þrjátíu kílóum. Hægt er að biðja
um að sendillinn sæki nokkrar
sendingar í einu og fari með þær á
fleiri en einn stað. Nánari upplýs-
ingar um þjónustuna ásamt fleiru
er að finna á heimasíðunni www.
postur.is.
Þú ferð alla leið með
Fyrirtækjaþjónustu Póstsins
Fyrirtæki geta sparað sér tíma og fyrirhöfn með því að nota Fyrirtækjaþjónustu Póstsins. „Við mætum á umsömdum tíma með
sendingar stílaðar á fyrirtækið og sendumst með vörur frá þeim,“ segir Jónas Þór Gunnarsson, sérfræðingur Fyrirtækjalausna.
Fyrirtækjaþjónustan mætir allt að þrisvar
sinnum á dag til að sækja og sendast með
pakka, allt eftir þörfum viðskiptavinarins. Jónas Þór Gunnarsson segir Póstinn flytja vöruna heim að dyrum, hvort sem um er að ræða pakka, bréf eða bretti.