Fréttablaðið - 27.10.2012, Page 36
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 | Umsjónarmenn auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson, benediktj@365.is,
s. 512-5411 | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Boston var upphaflega byggð upp af Bretum og þess vegna finnst sumum hún vera
evrópskari en aðrar borgir í Banda-
ríkjunum. Boston þykir hentug
borg til að fara í verslunarleiðang-
ur. Verslanir eru í fallegum miðbæ
þar sem gönguleiðir eru þægileg-
ar. Sömuleiðis er stutt að fara í stór-
verslanir og vöruhús. Boston er þó
fyrst og fremst stórborg þar sem
iðandi mannlíf er dag sem nótt.
Þeir sem koma til Boston í fyrsta
skipti ættu að fara í skoðunarferð
um borgina með leiðsögumanni,
en boðið er upp á slíkar ferðir frá
miðbænum. Sumar rúturnar eru
sömuleiðis bátar og fara því bæði í
ökuferð og siglingu með fjörugum
bílstjórum. Margt er að sjá og upp-
lifa. Þá er gott að kynna sér hvað er
um að vera þá daga sem staldrað
er við í borginni því oft eru áhuga-
verðir tónleikar í boði. Hægt er að
skoða viðburði á síðunni Boston.
com.
Mörg góð veitingahús eru í
Boston og þau er hægt að kynna
sér á netinu. Á betri veitingahúsum
er ráðlegt að panta borð fyrir fram.
Það tekur þrjár og hálfa klukku-
stund að ferðast með hraðlest til
New York frá Boston og því vel hægt
að sameina heimsókn í þessar tvær
borgir í einni ferð. Ef tekin er venju-
leg lest getur tíminn þó farið upp í
fjórar til fimm klukkustundir. Leið-
in á milli þessara borga er ákaf-
lega falleg, Nýja-England og síðan
Conn ecticut, en velmegun hefur
alltaf verið á þessu svæði. Fyrir þá
sem gefa sér góðan tíma er ekki úr
vegi að leigja bíl og aka um svæðið.
Margar þekktar sjónvarps seríur
hafa verið teknar upp í Boston og
má þar frægasta nefna Cheers en
barinn sem notaður var í þáttun-
um er til í Boston undir nafninu
Bull & Finch Pub. Nokkrir aðrir
frægir sjónvarpsþættir sem ger-
ast í Boston eru meðal annars
Ally McBeal, Boston Legal, Bo-
ston Public, Dawson’s Creek og
The Practice.
Borg sem laðar
að ferðamenn
Boston er uppáhaldsborg fjölda Íslendinga. Þar hafa margir stundað nám í
gegnum árin, enda háskólaborg sem státar af einum frægasta skóla heims,
Harvard. Boston er einnig vinsæl verslunarborg, enda þægileg.
Boston hefur mikið aðdráttarafl. Kvikmyndagerðarmenn hafa til dæmis heillast af borginni og margar sjónvarps- og bíómyndir hafa
verið teknar þar.
Flestir ættu nú að vera farnir að
kannast við lagið Gangnam Style
sem suðurkóreski rapparinn PSY
gaf út í sumar. Þann 23. október
síðastliðinn hafði verið horft 530
milljón sinnum á myndbandið á
YouTube vefnum.
Færri vita hins vegar að Gang-
nam er borgarhluti í Seúl. Bein
þýðing orðsins er „sunnan við
ána“ og vísar til þess hluta borgar-
innar sem er sunnan við ána Han.
Einkum er talað um Gangnam sem
ákveðið hverfi innan borgarhlut-
ans. Fyrir nokkrum áratugum var
ekki mikið annað en hrísgrjóna-
akrar og stöku hof á þessu svæði
en nú er hverfinu líkt við Beverly
Hills í Kaliforníu. Íbúar hverfisins
þykja hipp og kúl og eru með putt-
ann á púlsinum þegar kemur að
tísku, tónlist og stíl. Uppbygging
hverfisins var mikil á árunum fyrir
Ólympíuleikana í Seúl árið 1988 og
hefur það allar götur síðan verið
tengt háu fasteignaverði, dýrum
verslunum og partístemningu.
Í Gangnam eru engar konung-
legar hallir eða gömul virki eins
og norðurhluti Seúl státar af. Þó
er borgarhlutinn ekki alveg gjör-
sneyddur hefð. Hofið Bongeunsa
er eitt það glæsilegasta í borginni
og tveir kóreskir kóngar og ein
drottning eru grafin í Seonjeong-
neung-garði sem er í Gangnam.
Aðdráttaraf l Gangnam er hins
vegar aðallega fólgið í skemmti-
garðinum Lotte-heimi, gríðar-
stóru Ólympíuþorpinu og Sam-
sung D‘Light-garðinum.
Hugtakið Gangnam Style, eða
Gangnam-stíll, var útskýrt í viku-
legum lista tímaritsins Time‘s yfir
ný hugtök sem „hegðun tengd
íburðarmiklum lífsstíl íbúa Gang-
nam-hverfisins í Seúl“. Rappar-
inn PSY lýsti því yfir í viðtali að
það væri ákveðin kímni í því að
hann segðist í laginu vera „Gang-
nam Style“ þegar svo augljóst er að
hann er mjög langt frá því að vera
það sem felst í hugtakinu.
Gangnam er hverfi í Seúl
Háhýsi í Gangnam í Seúl. Gangnam er sunnan við ána Han. NORDIC PHOTO/GETTY
TripAdvisor hefur tekið saman 25 vinsæla áfangastaði sem ferða-
menn hafa valið fyrir árið 2012. Í fyrstu sætunum eru frægustu borg-
ir heimsins og er London þar í fyrsta sæti en New York í öðru. Ís-
land er ekki á þessum lista. Allt eru þetta afar áhugaverðir staðir til
að heimsækja og margt að sjá. Einhverjir geta væntanlega merkt við
hvaða staði þeir hafa nú þegar heimsótt og hvað er eftir á listanum.
Vinsælustu
áfangastaðirnir
1. London, England
2. New York, Bandaríkin
3. Róm, Ítalía
4. París, Frakkland
5. San Francisco, BNA
6. Marrakech, Marókkó
7. Istanbúl, Tyrkland
8. Barcelona, Spánn
9. Siem Reap, Kambódía
10. Berlín, Þýskaland
11. Chicago, Bandaríkin
12. Flórens, Ítalía
13. Buenos Aires, Argentína
14. Sydney, Ástralía
15. Peking, Kína
16. Prag, Tékkland
17. Las Vegas, Bandaríkin
18. Bora Bora, Kyrrahaf
19. Sjanghæ, Kína
20. Honolúlú, Havaí
21. Los Angeles, Bandaríkin
22. New Orleans, BNA
23. Höfðaborg, S-Afríka
24. Chiang Mai, Taíland
25. Dublin, Írland
Úrval Útsýn kynnir ógleymanlegt ævintýri
með Serenade of the Seas frá Royal
Caribbean skipafélaginu. 15 dagar af einstakri
náttúrufegurð, sögu og menningu. Heimsóttir
verða framandi áfangastaðir með spennandi
skoðunarferðum. Þér gefst m.a. tækifæri
á að fara í eyðimerkursafarí í Dubai, skoða
Luxor og Konungadalinn í Egyptalandi, kafa í
Rauðahafinu og lifa í vellystingum á glæsilegu
skemmtiferðaskipi þar sem allt er til alls!
„Stórkostlegt 15 daga
ævintýri á framandi slóðum!“
477.800,-Frá:
Verð á mann
NÁNAR Á UU.IS
13. APRÍL - 1. MAÍ 2013
SERENADE OF THE SEAS
DUBAI OG SUEZ CANAL