Fréttablaðið - 27.10.2012, Blaðsíða 94
27. október 2012 LAUGARDAGUR58
sport@frettabladid.is
STJÓRN KSÍ ákvað eftir sigur Íslands á Úkraínu á fimtudagskvöldið að veita leikmönnum A-landsliðs kvenna 10 milljóna
króna bónusgreiðslu fyrir að tryggja sér sæti í úrslitakeppni EM 2013, rétt eins og gert var fyrir EM 2009. Upphæðin
skiptist á milli leikmanna en á þann máta að þeir sem spila mest fá hæstu upphæðirnar. Sif Atladóttir (til vinstri) og
markvörðurinn Þóra Björg Helgadóttir fá mest því þær léku allar 1080 mínúturnar í undankeppninni.
Kynþáttamálið
kraumar enn undir
yfirburðinu og er ekki alveg
farið í burtu. Vitundarvakn-
ingin verður sífellt meiri.
SIR ALEX FERGUSON
KNATTSPYRNUSTJÓRI MAN. UNITED
Á LEIÐ TIL SVÍÞJÓÐAR Hólmfríður
Magnúsdóttir fagnar EM-sætinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Niðurröðun þeirra
tólf liða sem tryggðu sér sæti í
úrslitakeppni EM 2013 í styrk-
leikaflokka hefur verið gefin
út. Ísland er í þriðja og neðsta
flokknum ásamt fimm öðrum
liðum.
Farið er eftir stigagjöf UEFA
við styrkleikaröðunina en hún
byggir á árangri liðanna í síðustu
keppnum. Ísland er í áttunda sæti
á stigalistanum.
Gestgjafar Svíar spila í A-
riðli sem fer fram í Gautaborg
og Halmstad. Hinum tveimur
liðunum í efsta styrkleikaflokki
hefur einnig verið raðað í riðla
en Þýskaland er í B-riðli (sem
fer fram í Växjö og Kalmar) og
Frakkar í C-riðli (Norrköping og
Linköping).
Þrjú lið eru í öðrum styrkleika-
flokki og dragast í riðlana þrjá.
Hin liðin sex eru svo í þriðja og
neðsta styrkleikaflokki og fara
því tvö lið úr honum í hvern riðil.
Styrkleikaflokkarnir
1. styrkleikaflokkur:
Svíþjóð (A-riðill), Þýskaland (B-riðill) og Frakk-
land (C-riðill).
2. styrkleikaflokkur:
England, Noregur og Ítalía.
3. styrkleikaflokkur:
Danmörk, Ísland, Finnland, Rússland, Holland
og Spánn.
Úrslitakeppni EM 2013:
Ísland í neðsta
styrkleikaflokki
FRJÁLSÍÞRÓTTIR Dansk-keníski
hlauparinn Wilson Kipketer
kemur hingað til lands í næsta
mánuði og heldur fyrirlestur á
Grand Hótel í Reykjavík þann 10.
nóvember næstkomandi.
Vésteinn Hafsteinsson frjáls-
íþróttaþjálfari hefur veg og
vanda að fyrirlestrinum og stefn-
ir á að halda fleiri slíka í fram-
tíðinni þar sem heimsþekktir
íþróttamenn koma hingað til
lands.
Kipketer verður fertugur
síðar á árinu en náði mögnuðum
árangri á sínum ferli. Hans sterk-
asta grein var 800 m hlaup og
var hann heimsmethafi í grein-
inni þar til David Rudisha sló met
hans eftirminnilega á Ólympíu-
leikunum í London í sumar.
Hann vann aldrei Ólympíugull
en á enn heimsmetið innanhúss
auk þess sem hann vann þrjá
heimsmeistaratitla og fjölda ann-
arra verðlauna og viðurkenninga.
Skráning fer fram á heimasíðu
Vésteins, Vesteinn.com. - esá
Fyrirlestur á Grand hótel:
Kipketer segir
frá ferlinum
KIPKETER Var um árabil besti 800 m
hlaupari heims. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Margrét Lára Viðars-
dóttir valdi réttan tíma fyrir
tímamótamark með íslenska
landsliðinu þegar hún kom
íslenska liðinu í 1-0 í 3-2 sigri á
Úkraínu í seinni umspilsleiknum
á Laugardals vellinum í fyrra-
kvöld. Margrét Lára náði með
því tveimur tímamótamörkum
með einu sparki því þetta var 50.
mark hennar í keppnis leik með
landsliðinu og 30. markið hennar
á Laugardalsvellinum.
Margrét Lára lék sinn fyrsta
alvörulandsleik á móti Ung-
verjum í júní 2003 sem jafn-
framt var hennar fyrsti landsleik-
ur. Hún skoraði fjórum mínútum
eftir að hafa komið inn á sem
varamaður og hefur síðan skor-
að 50 mörk í 52 landsleikjum í
undan keppni EM (31 mark í 32
leikjum), undankeppni HM (19
mörk í 17 leikjum) eða úrslita-
keppni EM.
Margrét Lára hefur jafnframt
skorað yfir tíu mörk í síðustu
þremur undankeppnum íslenska
landsliðsins, 12 mörk í undan-
keppni EM 2009, 10 mörk í undan-
keppni HM 2011 og loks 11 mörk
í undankeppni EM 2013. Aðeins
Þjóðverjinn Célia Okoyino da
Mbabi (17 mörk) skoraði fleiri
mörk í þessari undankeppni.
Margrét Lára hefur einnig
verið afar dugleg að finna netið
á þjóðarleikvanginum í Laugar-
dalnum en markið í fyrrakvöld
var 30. markið sem hún skorar í
23 leikjum sínum á Laugardals-
vellinum. Allir þeir leikir hafa
verið í undankeppni stórmóts
og hún hefur skorað í Dalnum
á öllum árum síðasta áratuginn
nema 2004 og 2010.
- óój
Mörk Margrétar Láru í
leikjum í HM eða EM:
Undank. EM 2005 10 leikir/8 mörk
Undank. HM 2007 8/9
Undank. EM 2009 10/12
Úrslitak. EM 2009 3/0
Undank. HM 2011 9/10
Undank. EM 2013 12/11
Margrét Lára Viðarsdóttir búin að skora 50 mörk í 52 alvöru landsleikjum:
Tvö tímamótamörk í einu sparki
MARGRÉT LÁRA VIÐARSDÓTTIR 69 mörk
í 86 landsleikjum, þar af 50 í keppnis-
leikjum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HANDBOLTI Haukar og Akureyri
mætast í dag í Schenker-höllinni
á Ásvöllum í lokaleik 6. umferðar
N1-deildar karla, en það lið sem
vinnur leikinn mun koma sér vel
fyrir í toppsæti deildarinnar.
Haukar eru eina taplausa liðið
og geta náð fjögurra stiga for-
skoti með sigri. Akureyringar
töpuðu sínum fyrsta leik í síðustu
umferð en eru með fullt hús í
tveimur ferðum sínum suður á
þessu tímabili. Leikurinn hefst
klukkan 15.45. - óój
N1-deild karla í dag:
Toppsætið undir
STEFÁN RAFN SIGURMANNSSON 36
mörk í 5 leikjum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Morgundagurinn verður
þéttpakkaður í ensku úrvalsdeild-
inni en augu flestra munu beinast
að tveimur leikjum. Annars vegar
að borgarslag Everton og Liver-
pool á heimavelli fyrrnefnda liðs-
ins og hins vegar stórslag toppliðs
Chelsea og Manchester United.
Umfjöllun enskra fjölmiðla
hefur þó ekki aðeins beinst að
knattspyrnunni heldur að stórum
hluta að þeim fjölmörgu kynþátta-
deilum sem virðast skjóta upp
kollinum með reglulegu millibili
í knattspyrnuheiminum. Sú deila
sem vakið hefur langmesta athygli
hófst fyrir ári síðan þegar að John
Terry, fyrirliði Chelsea, hafði niðr-
andi orð um Anton Ferdinand, leik-
mann QPR.
Bann og sektir
Terry verður í banni í leiknum á
morgun en málefni hans hafa verið
helsta umfjöllunarefni enskra fjöl-
miðla síðustu vikurnar. Hann var
nýlega úrskurðaður í fjögurra
leikja bann fyrir orð sín en Anton
er bróðir Rio Ferdinand, varnar-
manns Manchester United.
Mál þetta hefur haft gríðarleg
áhrif á enska knattspyrnu. Terry
er hættur að spila með landsliðinu,
Ashley Cole var sektaður og ávítt-
ur af enska knattspyrnusamband-
inu fyrir reiðiskrif sín á Twitter
vegna málsins og Rio Ferdinand
sömuleiðis fyrir að saka Cole um
að vera „hvítan að innan“. Þá hafa
fjölmargir aðrir knattspyrnumenn
látið sig málið varða.
Nú stendur yfir átak í ensku
úrvalsdeildinni sem nefnist „Kick
It Out“ og beinist gegn kynþátta-
fordómum. Jason Roberts, fram-
herji Reading, reið á vaðið þegar
hann kom opinberlega fram og
neitaði að klæðast bol í upphitun
eins og ætlast var til af leikmönn-
um liða í deildinni. Roberts fannst
refsing Terry of væg og vildi vekja
athygli á því með athæfi sínu.
Brottrekstrarsök
Þeir Ferdinand-bræður fóru að
fordæmi Roberts um síðustu helgi
og það gerðu einnig fleiri þeldökk-
ir knattspyrnumenn í Englandi.
Málið hefur komið af stað mik-
illi umræðu um kynþátta fordóma
í enskri knattspyrnu og ekki
minnkaði hún þegar að þeldökkir
leikmenn enska U-21 landsliðsins
voru úthrópaðir í leik í Serbíu fyrr
í mánuðinum.
Nú hafa samtök knattspyrnu-
manna í Englandi tilkynnt sex
þrepa áætlun sem ætluð er til að
taka harðar á kynþáttafordómum.
Þar á meðal að hægt verði að reka
leikmenn (og þjálfara) sem verða
uppvísir að kynþáttaníði.
Við munum fara að lögunum
„Ef meirihluta félaga finnst að við
þurfum lög eins og þessi munum
við að sjálfsögðu fylgja þeim,“
sagði Roberto Di Matteo, knatt-
spyrnustjóri Chelsea, á blaða-
mannafundi í gær.
Chelsea hefur verið gagnrýnt
fyrir að taka of vægt á John Terry
en hann var aðeins sektaður. Ekki
er búist við öðru en að Terry fái
aftur fyrirliðabandið þegar hann
hefur tekið út sína refsingu.
Leikmenn Chelsea munu klæð-
ast „Kick It Out“-bolunum fyrir
leikinn á morgun og þá hafa ensk-
ir fjölmiðlar greint frá því að
Ferdinand-bræður séu nú reiðu-
búnir að taka í hönd þeirra Terry
og Cole. Þeir virðast því reiðu-
búnir að ná ákveðnum sáttum í
þessari tiltekinni deilu.
Fleiri aðgerða er þörf
Hvort leikur Chelsea og Man-
chester United á morgun mark-
ar einhvers konar kaflaskil í
þessu máli er óvíst. Þó er líklegt
að umræðan muni halda áfram.
Ekki er þó búist við öðru en að Rio
Ferdinand fái óblíðar móttökur
hjá stuðningsmönnum Chelsea,
rétt eins og í leik liðanna í febrúar
þegar liðin skildu jöfn, 3-3.
Alex Ferguson, stjóri United,
er þó þeirrar skoðunar að fleiri
aðgerða er þörf og þá sérstaklega
að hálfu knattspyrnuyfirvalda.
„Rio og Anton gerðu rétt,“ sagði
hann og átti við sameiginlega yfir-
lýsingu þeirra fyrr í vikunni þar
sem þeir sögðu að meira þyrfti
til í baráttunni gegn kynþátta-
fordómum.
„Kynþáttamálið kraumar enn
undir yfirborðinu og er ekki alveg
farið í burtu. Vitundarvakningin
verður sífellt meiri. Leikmanna-
samtökin eru að gera sitt besta
en UEFA, FIFA og enska knatt-
spyrnusambandið þurfa að gera
meira.“ eirikur@frettabladid.is
Toppslagur í skugga deilna
Chelsea og Manchester United mætast í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar á
morgun en kynþáttaníðsmál John Terry, fyrirliða Chelsea, hefur dregið dilk á
eftir sér. Umræðan hefur snert marga og mun líklega hafa víðtækar afleiðingar.
MÓTMÆLTI Rio Ferdinand hitar upp fyrir leik Manchester United um síðustu helgi.
Wayne Rooney er klæddur í „Kick It Out”-bolinn en Ferdinand neitaði að taka þátt í
átakinu. NORDICPHOTOS/GETTY
Leikir helgarinnar
Laugardagur:
11.45 Aston Villa - Norwich Sport 2 & HD
14.00 Arsenal - QPR Sport 2 & HD
14.00 Wigan - West Ham Sport 3
14.00 Stoke - Sunderland Sport 4
14.00 Reading - Fulham Sport 5
16.30 Man. City - Swansea Sport 2 & HD
Sunnudagur:
13.30 Everton - Liverpool Sport 2 & HD
15.00 Southampton - Tottenham Sport 3
15.00 Newcastle - WBA Sport 4
16.00 Chelsea - Man. Utd. Sport 2 & HD