Fréttablaðið - 27.10.2012, Blaðsíða 24
27. október 2012 LAUGARDAGUR24
Í
Kína hefur vefsíðu banda-
ríska dagblaðsins New York
Times verið lokað vegna
fréttar sem þar birtist í gær
um að Wen Jiabao, forsætis-
ráðherra Kína, hefði undan-
farin ár sankað miklum auðæfum að
sér og fjölskyldu sinni.
Ættingjar hans, þar á meðal eigin-
kona hans, sonur, dóttir, tengda-
sonur, mágur og níræð móðir, eru
nú skráð fyrir eignum sem nema að
minnsta kosti 2,7 milljörðum dala,
en sú fjárhæð samsvarar næstum
því 350.000 milljörðum króna.
Wen forsætisráðherra og Hu
Jintao forseti hafa stjórnað Kína
í tæpan áratug. Þeir eru af fjórðu
kynslóð ráðamanna
Kínverska alþýðu-
lýðveldisins, báðir
um sjötugt og hyggj-
ast rýma til fyrir ei-
lítið yngri mönnum á
18. flokksþingi kín-
verska Kommúnista-
flokksins, sem hefst
þann 8. nóvember.
Fyrir fram þykir
nokkuð öruggt að það
verði Xi Jinping sem
tekur við forsetaemb-
ættinu og Li Keqiang
setjist í forsætisráð-
herrastólinn. Þeir eru reyndar ekki
nein unglömb heldur, rétt rúmum
áratug yngri en þeir Hu og Wen.
Þeir hafa báðir lengi verið í
röðum æðstu valdamanna Kína,
í næstu virðingarröð fyrir neðan
Hu og Wen, og því vart við neinni
kúvendingu að búast í landinu.
Krónprinsar og framagosar
Utan frá séð virðist enda lítið vera
um flokkadrætti innan valda-
stéttarinnar í Kína. Kínverskir
leiðtogar láta ekki mikið uppi um
störf sín. Fjölmiðlar fá sjaldnast að
skyggnast á bak við leyndarhjúpinn
og almenningur veit lítið um þær
hræringar sem þar eiga sér stað.
Stjórnmálaskýrendur hafa þó
flokkað kínverska ráðamenn í
tvo hópa. Annars vegar eru krón-
prinsarnir, afkomendur upphaflegu
byltingarleiðtoganna eða háttsettra
forkólfa úr flokknum. Hins vegar
eru svo framagosarnir, þeir sem
hafa brotið sér leið til frama innan
flokksins, fyrst innan ungliða-
hreyfingarinnar og síðan annarra
stofnana flokksins.
Xi kemur úr röðum krón-
prinsanna, en Li er einn af frama-
gosunum. Báðar þessar fylkingar
fá því sinn fulltrúa í æðstu stöðum,
og líklega verður einnig gætt jafn-
vægis þegar valdir verða full-
trúar í níu manna fastanefnd fram-
kvæmdastjórnar flokksins.
Misskipting auðs
Einhver áherslumunur er greinan-
legur á þessum tveimur hópum.
Krónprinsarnir eru sagðir íhalds-
samari og leggja áherslu á að varð-
veita arfleifð feðra sinna, en frama-
gosarnir eru sagðir framsæknari,
vilja ráðast í frekari umbætur og
bæta lífskjör almennings.
Nokkur ágreiningur virðist einn-
ig hafa verið meðal ráðamanna um
það aukna frelsi í viðskiptum, sem
síðustu áratugina hefur gjörbreytt
bæði kínversku þjóðfélagi og stöðu
Kína á alþjóðavettvangi.
Hagvöxtur hefur haldist mjög
hár síðustu árin, myndast hefur kín-
versk auðstétt sem getur leyft sér
nánast hvað sem er og jafnframt
hafa umsvif Kínverja víða um heim
orðið harla áberandi.
Nokkuð áhrifamikill hópur svo-
nefndra nývinstrisinna innan
Kommúnistaflokksins hefur gagn-
rýnt harðlega þessa þróun, sem þeir
segja hafa aukið misskiptingu auðs
í samfélaginu og jafnframt aukið
spillingu tengda hinum nýríku auð-
kýfingum, sem lifa í vellystingum
á meðan stór hluti landsmanna býr
enn við sára fátækt.
Þá hefur margt bent til þess
undan farið að þenslan í efnahags-
lífi Kína sé brátt komin að enda-
mörkum, með yfirvofandi bakslagi
sem erfitt verður fyrir nýju vald-
hafana að takast á við.
Hneykslismálin
Ekkert lát virðist auk þess á þeim
hneykslismálum sem skotið hafa
upp kollinum hvert á fætur öðru
undanfarin misseri. Þessi mál hafa
dregið fram í dagsljósið bæði þá
spillingu, sem virðist þrífast í skjóli
leyndarinnar, og þann ágreining og
átök sem virðast vera innan flokks-
ins þótt kyrrð ríki á yfir borðinu.
Nú síðast var Bo Xilai rekinn úr
flokknum, en hann
hafði áður verið
sviptur öllum titlum
og embættum eftir
að eiginkona hans
hafði verið dæmd til
ævilangs fangelsis
fyrir að hafa myrt
breskan kaupsýslu-
mann.
Bo var einn af
krónprinsunum, en
hafði samt tamið sér
að nokkru þá vin-
sældapólitík sem
framagosarnir eru
þekktir fyrir. Hann átti sæti í fram-
kvæmdastjórn flokksins og þótti til
skamms tíma eiga góða möguleika
á að hreppa sæti í fastanefnd fram-
kvæmdastjórnarinnar á flokks-
þinginu nú í haust.
Málið vakti mikla athygli, ekki
síst meðal almennings í Kína sem
óspart lét í ljós undrun sína og jafn-
vel reiði, enda hafði Bo verið vin-
sæll stjórnmálamaður.
Mótmælin
Fyrir utan hneykslismálin hafa
mótmæli almennings gegn stjórn-
völdum verið óvenju tíð síðustu
misserin. Kínversk stjórnvöld
segja sjálf að fjöldamótmæli í land-
inu skipti nú orðið tugum þúsunda
á hverju ári.
Í flestum tilvikum er það almenn-
ingur í sveitum eða smærri bæjum,
sem kemur saman til að mótmæla
ofríki sveitarstjórna, sem gagnrýnd
eru fyrir að hirða land af fólki og
afhenda verktökum undir bygginga-
framkvæmdir.
Græðgi sveitarstjórnarmanna er
kennt um og þeir sagðir drífa fram-
kvæmdir áfram af algjöru tillits-
leysi við íbúana, allt í þeim tilgangi
að geta sýnt æðri stjórnvöldum
fram á hagnað í bókhaldinu, en næla
sér svo sjálfir prívat og persónulega
í dágóðan hagnað í leiðinni.
Stundum skila mótmælin árangri.
Fyrir um það bil ári tókst íbúum í
Wukan, 20 þúsund manna þorpi, að
ná því fram að sveitarstjórn hætti
við áform um að afhenda verk-
tökum landsvæði sem notað hafði
verið undir landbúnað. Leiðtogi mót-
mælendanna var gerður að flokks-
leiðtoga þorpsins og í kosningum
stuttu síðar komust fulltrúar mót-
mælendanna í sveitarstjórnina.
Glíman fram undan
Vestrænir fréttaskýrendur segja
margir hverjir þessa ólgu til marks
um óánægju almennings, sem nýrri
stjórn í Peking gæti reynst erfitt að
ráða við.
Aðrir fréttaskýrendur hafa þó
bent á að stjórnin í Peking sjái sér
oft hag í að grípa inn í þar sem
almenningur efnir til staðbundinna
mótmæla gegn spilltum sveitar-
stjórnum. Svo fremi sem mótmæl-
endur víða um land fari ekki að taka
saman höndum og beina reiði sinni
gegn stjórninni í Peking.
Þeir Xi og Li fá að minnsta kosti
nóg af erfiðleikum að glíma við,
bæði í efnahagsmálum og í sam-
skiptum við almenning í landinu,
þótt sjálfsagt fái þeir um leið nóg
tækifæri til að auðgast persónulega
eins og Wen hefur gert.
FIMMTA KYNSLÓÐIN TEKUR VIÐ
Á flokksþingi kínverska Kommúnistaflokksins í næsta mánuði
stendur til að skipta um drjúgan part af forystuliði flokksins. Þeir Hu
Jintao forseti og Wen Jiabao forsætisráðherra láta af völdum ásamt
sjö af níu mönnum í fastanefnd framkvæmdastjórnar (politbüro)
flokksins, en við tekur ný kynslóð kínverskra forystumanna.
Meðlimur í framkvæmdastjórn
kínverska kommúnistaflokksins
Framagosi Krónprins Harðlínumaður
XI JINPING 59 ÁRA
Sonur kommúníska skæruliða-
leiðtogans Xi Zhongxun. Tekur
væntanlega við af Hu Jintao sem
flokksformaður og leiðtogi ríkisins.
Aðhyllist markaðslausnir í efnahags-
málum en er íhaldssamur á pólitískar
umbætur.
LI KEQIANG 57 ÁRA
Skjólstæðingur Hu Jintao og tekur væntan-
lega við af Wen Jiabao forsætisráðherra. Er
með háskólapróf í lögfræði og hagfræði.
Á stefnuskrá hans er að fjölga störfum, gera
íbúðaverð viðráðanlegt, efla heilsugæslu og
hvetja til nýsköpunar í grænni orkutækni.
ZHANG DEJIANG 66 ÁRA
Aðstoðarforsætisráðherra, með iðnað, flutninga
og orkumál á sinni könnu. Þykir nokkuð öruggur
um að fá sæti í fastanefnd framkvæmdastjórnar
Kommúnistaflokksins.
Gallharður stuðningsmaður ríkiseinokunar, tregur til
að leyfa umbætur og tortryggir áhrif bæði erlendra
fyrirtækja og einkafyrirtækja á efnahagslífið í Kína.
LIU YUNSHAN 65 ÁRA
Yfirmaður áróðursdeildar Kommúnista-
flokksins. Líklegur til að fá sæti í
fastanefnd framkvæmdastjórnar flokksins.
Andvígur pólitískum og efnahagslegum
umbótum. Einnig andvígur lýðræðis-
hreyfingunni. Styður stranga ritskoðun
fjölmiðla og internets.
LI YUANCHAO
62 ÁRA
Stjórnar öllum ráðningum í æðstu störf ríkis-
stjórnar og ríkisfyrirtækja.
Telst vera einna nútímalegastur og frjálslyndastur
hinna nýju ráðamanna.
WANG QISHAN
64 ÁRA
Tekur nú þegar æðstu ákvarðanir í efnahagsmálum.
Þykir líklegur til að styðja erlenda fjárfestingu,
aukið frjálsræði í fjármálakerfinu og skatta-
umbætur.
YU ZHENGSHENG
67 ÁRA
Leiðtogi flokksins í Shanghai. Líklegur til að fá
sæti í fastanefndinni.
Styður einkageirann, borgarþróun og félagslegar
umbætur.
LIU YANDONG
66 ÁRA
Gæti orðið fyrsta konan sem fær sæti í fastanefndinni.
Á sæti í ríkisráði Kína og framkvæmdastjórn
Kommúnistaflokksins. Þykir frjálslynd og líkleg til
að styðja frekari stjórnmálaþátttöku almennings.
WANG YANG
58 ÁRA
Leiðtogi Kommúnistaflokksins í Guangdong. Áður
talinn umbótasinni en skuggi féll á þann hróður
nýverið þegar gripið var til aðgerða gegn frjáls-
lyndum fjölmiðlum í héraðinu.
HU CHUNHUA
49 ÁRA
Skjólstæðingur Hu Jintao.
Hefur barist fyrir stuðningi til fátækra og meiri fjár-
hagsaðstoð handa verst stöddu héruðum landsins.
MENG IUANZHU 65 ÁRA
Ráðherra öryggismála. Þykir líklegur til að fá sæti
í fastanefndinni.
Styður hlutverk Shanghai sem alþjóðlegrar fjár-
málamiðstöðvar.
ZHANG GAOLI
66 ÁRA
Tilheyrir hvorki flokki krónprinsa né framagosa,
en er í framboði til fastanefndarinnar.
Hefur ekki látið mikið fyrir sér fara – en talinn
vera hliðhollur markaðslausnum og styður
útþenslu einkageirans.
Kynslóðaskipti í næsta mánuði
Á flokksþingi kínverska Kommúnistaflokksins í næsta mánuði er reiknað með að Hu Jintao forseti og Wen Jiabao forsætis-
ráðherra eftirláti embætti sín eilítið yngri mönnum. Vart er að búast við neinni kúvendingu en að minnsta kosti hefur Wen
notað tímann vel undanfarinn áratug og sankað auði að sér og fjölskyldu sinni. Guðsteinn Bjarnason skyggnist á bak við tjöldin.
ÞEIR ERU AÐ KVEÐJA Hu Jintao forseti og Wen Jiabao forsætisráðherra eftirláta eilítið yngri mönnum embættin í næsta mánuði.
NORDICPHOTOS/AFP
HEIMILD: GRAPHIC NEWS
Fyrsta kynslóð 1949-1976
Byltingarleiðtoginn Mao Zedong
ásamt Zhou Enlai og fleirum.
Önnur kynslóð 1976-1992
Deng Xiaoping ásamt Hua
Guofeng, Hu Yaobang, Zhao
Ziyang og Jiang Zemin.
Þriðja kynslóð 1992-2003
Jiang Zemin ásamt Li Peng, Zhu
Rongji og fleirum.
Fjórða kynslóð 2003-2012
Hu Jintao ásamt Wen Jiabao o.fl.
FJÓRAR KYNSLÓÐIR