Fréttablaðið - 08.11.2012, Qupperneq 2
8. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR2
LÝÐHEILSUMÁL „Það er ekki nóg að
lagfæra einn rétt hér og þar heldur
þarf að skoða þessi mál algerlega
frá grunni,“ segir Sigurveig Kára-
dóttir matreiðslumaður, sem látið
hefur sig skólamáltíðir varða.
Fyrir nokkrum árum tók Sigur-
veig sig til ásamt Sigurrós Páls-
dóttur matreiðslumanni og Mar-
gréti Gylfadóttur mannfræðingi
og kannaði skólamötuneytin ofan í
kjölinn. „Við sáum að þetta var alls
ekki nógu gott,“ segir Sigurveig,
sem kveður þær stöllur hafa rætt
við fjölmarga sem tengist málinu.
Því miður hafi of lítið breyst.
„Það er til dæmis verið að kaupa
forskrældar og innfluttar kart-
öflur og fiskinagga frá Alaska.
Manneldisviðmið virðast aðeins
til leiðbeiningar og ekkert eftirlit
haft með þeim. Það sem ræður eru
rammasamningar um krónutölur
en málið er aldrei skoðað í heild-
ina,“ segir Sigurveig og bendir á
að þessi sama umræða geti einnig
átt við elliheimili og spítala. „Það
er atvinnuleysi. Er ekki hægt ein-
hvern veginn að tengja þetta
tvennt saman?“
Þá kveðst Sigurveig undrast tal
um að skólamatseðlar séu sniðnir
að smekk barna. „Börn fæðast ekki
matvönd. Það er fullorðna fólkið
sem gerir þau matvönd með því að
ákveða fyrir fram hvað þau vilja
og hvað ekki,“ segir hún og bætir
við að sér finnist barnamatseðlar á
veitingastöðum vera hneyksli.
„Það er hreinlega vanvirðing við
börn að þeim sé réttur mat seðill
með nöggum og spagettí. Börn eru
bara litlar útgáfur af fólki. Sum
eru matvönd en svo eru önnur
sem eru það bara alls ekki,“ segir
Sigur veig.
Mikilsvert atriði segir Sigurveig
vera þann nauma tíma sem oft sé
gefinn til að matast í skólunum.
„Það hringir bjalla og öll börnin
hlaupa í röð. Sum eru fljót að kom-
ast fremst en eftir korter hringir
bjallan aftur og börnin hlaupa út,
sama hvort þau eru búin að borða
eða ekki. Það er ekkert skrítið að
þau verði lasin,“ segir Sigurveig
og kallar eftir því að matarmálin
verði tekin inn í námskrá skólanna.
„Það þarf að kynna matinn fyrir
börnunum og kenna þeim hvaðan
hann kemur þannig að matur sé
hluti af námsefninu. Það skilar
sér margfalt til baka,“ segir Sigur-
veig og nefnir enn einn þáttinn sem
betur mætti fara.
„Skólaeldhúsin eru oft mjög
undir mönnuð. Ég spyr mig hvort
það samræmist lögum að láta
kokkana elda ofan í svona marga.
Þetta er hættulegt og menn verða
veikir og bara hrynja niður. En það
borgar sig ekki fyrir kokkana að
opna munninn mikið því þá missa
þeir vinnuna. Hvaðan eiga þeir
að fá aukinn metnað til að leggja
meira í vinnuna sína ef þeir fá það
ekki metið?“ spyr Sigurveig.
gar@frettabladid.is
„Barnamatseðlar eru
vanvirðing við börn“
Sigurveig Káradóttir matreiðslumaður segir skólamatseðla alls ekki nógu góða.
Allt of lítill tími sé til að borða í skólunum. Færa þurfi matinn inn í námskrá.
Börn séu gerð matvönd með því að ákveða fyrir fram hvað þau vilji og hvað ekki.
SIGURVEIG KÁRADÓTTIR Manneldisviðmið virðast aðeins til leiðbeiningar og lítið
eftirlit með að þeim sé fylgt, segir matreiðslumaðurinn Sigurveig Káradóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Nánar um
LGG+ á ms.is/lgg Fyrir fulla virkni
Ein á dag
Nú með
bláberjabragði
Nýjun
g
bláber
ja
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Guðrún, á fólk ekki að segja
takk fyrir matinn?
„Jú, og hann var góður.“
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir er
bæjarstjóri í Hafnarfirði, þar sem gera á
óháða úttekt á máltíðum sem fyrirtækið
Skólamatur útbýr fyrir hafnfirska grunn-
skóla.
KÍNA, AP Hu Jintao hefur síðustu daga sætt óvenju
opinskárri og harðri gagnrýni á opinberum vettvangi
í Kína, nú þegar hann er að láta af embætti sem leið-
togi kínverska Kommúnistaflokksins.
„Við áttuðum okkur ekki á því að Hu yrði svona
íhaldssamur,“ segir Wu Jiaxiang, fyrrverandi félagi
í Kommúnistaflokknum, sem hefur snúið sér að við-
skiptum og stundar jafnframt bloggskrif af kappi.
Hann segir vonbrigðin með Hu hafa byrjað þegar
fjölda bloggsíðna var lokað árið 2005 vegna þess að
skrifin á þeim þóttu helst til frjálslynd.
Reiknað er með að Xi Jinping taki við af Hu á 18.
flokksþingi Kommúnistaflokksins, sem hefst í Peking
í dag.
Í ríkisfjölmiðlum er miklum dýrðarljóma varpað
á valdatíma Hus undanfarinn áratug og vísað til vel-
sældar innanlands og aukinna áhrifa Kína á alþjóða-
vettvangi.
Sjálfstæðari fjölmiðlar, lítt ritskoðaðar bloggsíður
og hugmyndaveitur birta hins vegar annan dóm um
Hu og valdatími hans er sagður markast af glötuðum
tækifærum. Ekki hafi verið tekist á við langvarandi
vandamál, sem hafi fyrir vikið orðið enn erfiðari
viðureignar: Gjáin milli fátækra og ríkra hafi dýpkað,
umhverfisvandinn aukist og valdhroki magnast. - gb
Leiðtogi kínverska Kommúnistaflokksins sætir óvenju opinskárri gagnrýni í Kína:
Hu sagður hafa brugðist vonum
FLOKKSÞING AÐ HEFJAST Miklar öryggisráðstafanir hafa verið
gerðar í Peking í tilefni af flokksþinginu. NORDICPHOTOS/AFP
AKRANES Árni Múli Jónasson
hætti í gær sem bæjarstjóri á
Akranesi vegna samskiptabrests
við hluta bæjar-
fulltrúa. Sam-
komulag náðist
um starfslokin
en Árni Múli
mun þó áfram
vinna að fram-
gangi ákveð-
inna mála fyrir
bæjarfélagið til
áramóta.
„Svo maður
tali hreint út
þá voru nokkrir bæjarfulltrú-
ar orðnir hundleiðir á mér og
ég á þeim,“ sagði Árni í gær við
Skessuhorn á Akranesi. Hann
hefði viljað ljúka ráðningartíma-
bilinu en þetta hefði reynst far-
sælasta lausnin. Árni hefur stýrt
Akranes kaupstað frá sumrinu
2010. - sh
Árni Múli fer frá Akranesbæ:
Hættir vegna
núnings við
bæjarfulltrúa
ÁRNI MÚLI
JÓNASSON
BRETLAND Þeir Wolfgang Schäuble
og George Osborne, fjármála-
ráðherrar Þýskalands og Bret-
lands, hvetja til alþjóðlegra
aðgerða gegn skatta undanskotum
fjölþjóðlegra fyrirtækja. Þeir
segjast eftir sem áður vilja bjóða
stórfyrirtækjum hagstæða skatta,
en ætlast jafnframt til þess að
þeir skattar verði greiddir.
Breska dagblaðið The Guardian
bendir á að kaffihúsakeðjan Star-
bucks hafi ekki greitt krónu í
skatta í Bretlandi í þrjú ár, þrátt
fyrir að hagnast verulega á við-
skiptum þar í landi. - gb
Hvetja til alþjóðlegra aðgerða:
Vilja stöðva
undanskotin
GEORGE OSBORNE OG WOLFGANG
SCHÄUBLE Fjármálaráðherrar Bretlands
og Þýskalands. NORDICPHOTOS/AFP
SLYS Karlmaður á níræðisaldri
lést þegar bifreið hans lenti utan
vegar og valt á Hafnarvegi við
Höfn í Hornafirði skömmu fyrir
klukkan fjögur í gær.
Tildrög slyssins eru óljós en
það er til rannsóknar hjá lög-
reglu. Hálka var á svæðinu þegar
slysið varð. Ekki er hægt að
greina frá nafni hins látna að svo
stöddu. - mþl
Bíll fór út af vegi og valt:
Karlmaður lést
í umferðarslysi
HAFNARFJÖRÐUR Bæjarstjórn
Hafnar fjarðar tók í gær einróma
undir viðbrögð Guðrúnar Ágústu
Guðmundsdóttur bæjarstjóra við
athugasemdum frá grunnskóla-
kennurum vegna matarmála.
Guðrún boðaði í fyrradag fund
um málið með fulltrúum skóla-
skrifstofu, starfsfólki grunn-
skóla, innkaupastjóra, Skólamat,
bæjarráði og fræðsluráði. Fá á
óháðan aðila til að gera úttekt á
matvælum í skólunum í samræmi
við almennar kröfur og ábend-
ingar Lýðheilsustofnunar. Bæjar-
stjórnin fól Guðrúnu að gera
einnig samanburð á fyrirkomu-
lagi mötuneytismála hjá öðrum
sveitar félögum. - gar
Styðja áform bæjarstjóra:
Bæjarstjórnin
vill matarúttekt
UTANRÍKISMÁL Almanna tengsla-
fyrirtækið Burson-Marsteller
hefur verið ráðið til að aðstoða
íslensk stjórnvöld til að halda
uppi málstað Íslendinga í makríl-
deilunni og Icesave-málinu. Í
fjáraukalögum er gert ráð fyrir
að verja allt að 26 milljónum til
þessa verkefnis á næsta ári.
Atvinnuvega- og utanríkisráðu-
neyti fengu Burson-Marsteller til
verksins. Huginn Freyr Þorsteins-
son, aðstoðarmaður atvinnuvega-
ráðherra, segir að fyrirtækið
muni fylgjast með umræðu um
málefni tengd Íslandi, sérstak-
lega makríldeil-
una, í erlendum
fjölmiðlum og
gefa stjórnvöld-
um ráð um við-
brögð ef þeirra
gerist þörf.
„Sumir gagn-
aðilar Íslands
hafa verið með
stórar yfirlýs-
ingar sem eru
skaðlegar Íslandi og íslenskum
hagsmunum, sérstaklega í sjávar-
útvegi,“ segir Huginn. „Íslensku
samninganefndinni, utanríkis-
málanefnd Alþingis og hags-
munaaðilum fannst sem sjónar-
mið Íslands kæmu hvergi fram
í erlendum fjölmiðlum. Þar sem
um mikið hagsmunamál er að
ræða fyrir Ísland var því ákveðið
að leita eftir ráðgjöf til að tryggja
að þeim sterku rökum sem Ísland
hefur í makríldeilunni yrði komið
á framfæri.“
Varðandi þóknun Burson-
Marsteller segir Huginn að óvíst
sé hvort öll upphæðin verði nýtt,
en það velti á því hvernig deilan
þróist og hvort þörf verði fyrir
þjónustu fyrirtækisins. - þj
Alþjóðlegt almannatengslafyrirtæki fengið til ráðgjafar í makríldeilunni:
Halda uppi málstað Íslendinga
HUGINN FREYR
ÞORSTEINSSON
STJÓRNMÁL Alþingi samþykkti í
gær þingsályktunartillögu þess
efnis að skipuð verði þriggja
manna nefnd til að rannsaka sölu
hlutabréfa ríkisins í Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins og einkavæð-
ingu Landsbankans og Búnaðar-
bankans á árunum 1998 til 2003.
Alls greiddu 24 þingmenn
atkvæði með þingsályktunar-
tillögunni en fyrsti flutnings-
maður hennar var Skúli Helga-
son, Samfylkingunni. Viðstaddir
þingmenn Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknar flokksins sátu hjá. - mþl
Rannsóknarnefnd skipuð:
Einkavæðing
banka skoðuð
Jörð skalf í Gvatemala
Jarðskjálfti, 7,4 stig á Richter-kvarð-
anum, varð rétt undan strönd
Gvatemala í Mið-Ameríku í gærkvöldi.
Fregnir í gærkvöldi bentu til þess að
átta, hið minnsta, hefðu látist.
JARÐSKJÁLFTI
SPURNING DAGSINS
Börn eru bara litlar
útgáfur af fólki. Sum
eru matvönd en svo eru
önnur sem eru það bara alls
ekki.
SIGURVEIG KÁRADÓTTIR
MATREIÐSLUMAÐUR