Fréttablaðið - 08.11.2012, Page 18

Fréttablaðið - 08.11.2012, Page 18
18 8. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR Það liggur fyrir að þeir sem tapað hafa mestu af eigin fé í húsnæði sínu eru þeir sem keyptu sína fyrstu íbúð eða stækkuðu við sig á árunum 2007 og 2008. Í lok árs 2007 voru viðskipta- bankarnir nær hættir að lána til íbúðarkaupa enda hafði þrengst um lánsfé og margt sem benti til að erfiðleikar væru fram undan í efnahagslífi Vesturlanda. Þá beitti Jóhanna Sigurðar dóttir húsnæðismálaráðherra sér hins vegar fyrir auknum útlána- heimildum Íbúðalánasjóðs (ÍLS). Hámarkslán ÍLS voru hækkuð og slakað á kröfum um hámarks- veðsetningarhlutfall. Útlán sjóðsins tóku kipp við þessar aðgerðir. Í nýrri skýrslu Samtaka fjármálafyrirtækja um verð- tryggingu, vexti og verðbólgu á Íslandi má glöggt sjá hvern- ig útlán ÍLS nær þrefölduðust frá áramótum þar til þau náðu hámarki síðsumars 2008. Jóhanna Sigurðardóttir narraði þann- ig fjölda manna til íbúðarkaupa síðustu mánuðina fyrir hrun. Í þingræðu 23. maí 2008 sagði Jóhanna að ÍLS hefði „sannað gildi sitt sem lífæð fasteignamarkaðarins“. Hið rétta er að mánuðina þar á eftir veitti þessi æð ólyfjan um fasteigna markaðinn sem gerði það að verkum að fleiri fóru illa út úr fasteigna- viðskiptum en ella hefði orðið. Þessi heimili hafa annaðhvort eða bæði tapað stórum hluta eigin fjár í fasteignum sínum eða eru komin í neikvæða stöðu. Auðvitað er hugsanlegt að með tímanum hækki íbúðaverð umfram lán og staða þessa fólks batni en þangað til verður staðan óþægileg. Í viðurkenningarskyni fyrir þessa frammistöðu tók Jóhanna svo við sem forsætisráðherra í vinstri stjórn sem bannaði þessu fólki helstu bjargir með því að snarhækka alla skatta og tefja fyrir atvinnusköpun vítt og breitt um landið. Lágir skattar og næg atvinna eru þó ein helsta forsenda þess að heimilin geti staðið við skuldbindingar sínar og treyst stöðu sína og þar með þjóðfélagsins. Jóhanna Sigurðar- dóttir narraði þannig fjölda manna til íbúðarkaupa síðustu mán- uðina fyrir hrun. FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS HALLDÓR Jóhönnulánin Fjármál Sigríður Andersen héraðsdóms- lögmaður og varaþingmaður Sjálfstæðis- flokksins N úverandi ríkisstjórn gaf í upphafi fögur fyrirheit um að efla erlenda fjárfestingu í atvinnulífinu. Flestir vita hvernig það hefur farið; erlenda fjárfestingin hefur orðið mun minni en hún gæti verið, meðal annars vegna stöðugra breytinga á rekstrarumhverfi og regluverki, fjandsamlegra yfirlýsinga ráðamanna í garð fjárfesta, tilhneigingar til að breyta reglum eftir á, hótana um eignaupptöku og þannig mætti áfram telja. Erlendur fjárfestir brá ljósi á þessa mótsagnakenndu stefnu í grein í Fréttablaðinu í fyrradag. Þar skrifaði Dag Andre Johansen, framkvæmdastjóri og eigandi RAC Skandinavia, um „einkenni- lega reynslu sína“ af því að vera fjárfestir á Íslandi. RAC keypti ráðandi hlut í Alp hf., sem rekur Budget- og Avis-bílaleigurnar á Íslandi, síðastliðið sumar. Johansen segir suma hafa efazt um að íslenzk fyrirtæki væru góður fjárfestingarkostur, meðal annars vegna gjaldeyris- haftanna. En þar sem atvinnustefna stjórnvalda hafi verið að leggja mikla áherzlu á ferðaþjónustu hafi forsendurnar þótt hagstæðar. Hluturinn var keyptur og fjárfestingin bundin til fimm ára sam- kvæmt lögum um gjaldeyrisútboð. Eftir að hafa verið lokkaður til að kaupa stóran hlut í íslenzku fyrirtæki, annars vegar með reglunum um gjaldeyrisútboð og hins vegar með fögrum fyrirheitum stjórnvalda um eflingu ferða- þjónustunnar, er ekkert skrýtið að Johansen segist hafa orðið hissa þegar því var skellt á hann í fjárlagafrumvarpinu að snarhækka ætti vörugjöld á bílaleigubíla. „Ég get fullvissað ykkur um að í samkeppnislöndum Íslands, í Skandinavíu, tíðkast ekki að stjórnvöld reki slíkan fleyg í eina atvinnugrein með svo dramatískum hætti og með jafnskömmum fyrirvara og boðað er,“ skrifar Johansen. Hann rekur síðan hvaða afleiðingar vörugjaldalækkunin sé líkleg til að hafa. Verð þjónust- unnar muni væntanlega hækka, sem muni fækka ferðamönnum. Þá geti bílaleigurnar þurft að leggja á kílómetragjald, sem þýði að ferðamenn dreifist síður um landið. Allt er þetta í beinni andstöðu við ferðamálaáætlun sömu stjórnvalda og áforma að hækka skattinn, en í henni er kveðið á um að tryggja eigi samkeppnishæfni greinarinnar, tryggja eigi að rekstrar skilyrði séu sambærileg og í nágrannalöndunum og reynt verði að dreifa ferðamönnum betur um landið. Í ákafa sínum að ná meiri skatttekjum af atvinnugreinum sem ganga vel sést ríkisstjórnin ekki fyrir. Það geta verið rök fyrir því að bílaleigur eigi ekki að njóta neins afsláttar af vörugjöldum og að hótelgisting eigi ekki að vera í lægra virðisaukaskattþrepi en önnur þjónusta. En það er algjörlega galið í bransa eins og ferðaþjónustu, þar sem fyrirtæki eru búin að gefa upp verð eitt til tvö ár fram í tímann, að skella skattahækkunum á greinina fyrirvaralaust. Fyrir nú utan hvers konar framkoma það er við fjárfesta í greininni, inn- lenda sem erlenda. Fjármálaráðherrann verður að finna einhver önnur ráð til að brúa bilið í ríkisfjármálum á næsta ári. Skattahækkunum skellt á ferðaþjónustuna: Burt með fjárfesta og ferðamenn Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Pönk ei meir Jón Gnarr borgarstjóri er staddur í Ósló og aðstoðar þar við að fella tré það sem prýða mun Austurvöll yfir hátíðarnar, sjálft Óslóartréð. Jón er þó ekki kominn í aukavinnu við skógarhöggið, heldur er ástæða ferðar hans sú að honum fannst Reykvíkingar hafa orðið sér til skammar þegar kveikt var í Óslóartrénu árið 2009. Það var í búsáhaldabyltingunni sem sá gjörningur fór fram, 20. janúar nánar tiltekið, og ósagt skal látið hvort Reykvíkingar hafi verið þar á ferð. Án þess að íkveikjum sé mæld bót var bruninn nokkuð táknrænn fyrir óánægjuelda sem brunnu meðal þjóðarinnar. Það er ekki mikið pönk eftir í gamla pönkaranum Jóni Gnarr. Pollapönk Það er hins vegar smá pönk eftir í Sambandi ungra sjálf- stæðismanna. Tillögur þeirra um niðurskurð í menningar málum eru róttækar og samræmast hugmyndafræði óheftrar frjálshyggju. Ekki mitt pönk Sjálfstæðisþingmanninum Ragn- heiði Ríkharðsdóttur líkaði þó ekki að vera bendluð við tillögur ungliða flokksins. Hún gaf lítið fyrir tilraunir Árna Þórs Sigurðs- sonar, þingmanns Vinstri grænna, í þá veru og spurði hann í forundran hvort hann ætlaði þá að taka ábyrgð á tillögum Ungra Vinstri grænna. Slíkt væri greinilega fráleitt. Það er lítið pönk í því að sverja af sér verk ungliða eigin flokks. kolbeinn@frettabladid.is Auka- og varahlutaverslun Vagnhöfða 23 Sími: 590 2000www.benni.is Opnunartími: Opið virka daga frá kl. 08-18 Auka- og varahlutir fyrir bílinn Sparnaður með K&N loftsíum Meiri kraftur minni eyðsla

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.