Fréttablaðið - 08.11.2012, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 8. nóvember 2012 25
sviga … vegna áforma erlendra aðila
að byggja hótel“. Er hótelið bleiki
fíllinn í miðbænum sem byggja á
fyrir framan tónlistarhúsið? Er sátt
um að Harpa verði helst sýnileg frá
bílum sem keyra Sæbraut, úr leður-
stólum Seðlabankans og gluggum
lúxushótels? Felst í þessu áhætta um
slæma landkynningu, þegar gestir
fara að spá í hvaða asnar Íslend-
ingar séu að klína útlensku merkja-
hóteli af miklu ódýrari hönnun fyrir
sunnan Hörpuna? Var ekki horf-
ið frá hugmyndinni um að Harpa
ætti að vera falin bak við aðrar
byggingar þegar ákveðið var nota
að rándýrt listaverk sem efni í út-
veggina? Byggingin er sér hönnuð til
að hennar sé notið sem skúlptúrs úr
fjarlægð. Hefur aldrei verið íhugað
að búa til opið almennings rými yfir
bílastæðahúsið sem er í byggingu
undir reitnum úr því sem komið er?
Er ekki til heppilegri reitur fyrir
hótel, eða aðrar byggingar sem væri
hægt að endurnýta til þess arna,
t.d. einhverjir hálfbyggðu lúxus-
turnanna við Sæbraut með útsýni
bæði til Hörpu og Esju? Er stolt
landans, (þrátt fyrir skuldabagg-
ann) þar sem hann nýtur útsýnis-
ins úr miðbænum til eins stærsta
tónlistarhúss heims með Esju í
bakgrunninn, einskis virði? Hvað
þýðir að taka hlutina út fyrir sviga
í skipulags málum: Að sleppa því
að stjórna og láta „erlenda aðila“
stjórna borginni, í hagnaðarskyni?
Það er alvarleg rangfærsla í loka-
orðum greinarinnar um að horfið sé
frá útþenslu borgarinnar, því áætl-
anir liggja fyrir um iðnaðarsvæði
austan við byggðina, langt út á
græna útivistarsvæðið, því miður.
Ágætt ef þeir sem bera ábyrgðina
geri grein fyrir hverju þetta sætir.
Ég nýti tækifærið til að sam-
þykkja nafnið Spilhúsastíg, sem
spurt er hvort ekki sé bara sam-
þykkt. Gott mál, en væri hægt að
biðja um samþykki borgaranna í
afdrifaríkari málum?
Fagna ber nýlegum pistli ráða-manns hjá Reykjavíkurborg um
góð tengsl borgar og sjávar. Gott ef
Geirsgata verður gerð að borgar-
götu og bílum þannig verði gert
minna hátt undir höfði í borgar-
myndinni. Tilvísun í skala gamla
bæjarins fyrir nýbyggingar, og
endur nýting gamalla bygginga í
miðbænum er til fyrirmyndar.
Greinin kallar þó fram áleitnar
spurningar.
Vinnur borgin kerfisbundið
með endur nýtingu bygginga, líka
í öðrum bæjar hlutum, og á hvern
hátt? Getur al menningur, sem hefur
áhuga á að vannýttar byggingar
í nágrenninu nýtist betur, komið
að málinu í samvinnu við borgar-
yfirvöld?
Smáskalabyggð með neðanjarð-
arbílastæðum við höfnina hljómar
vel og tekur sig fallega út á glans-
myndum þótt hætt sé við að hún
auki fjarlægðina og skapi fyrir-
stöðu á milli gamla hverfisins og
hafnarinnar. Stóra spurningin er þó
hvort rökrétt sé að byggja á dýrasta
grunninum í bænum þegar þörfin
hefur aðallega aukist fyrir ódýrt
íbúðarhúsnæði eftir hrunið. Hár
byggingarkostnaður á þessum stað
gerir áform um félagslega blandaða
byggð óraunsæ. Eins auka áætlan-
ir um hátt hlutfall lítilla íbúða eins-
leitni þar sem ekki er pláss fyrir
barnafjölskyldur og annars konar
sambýli sem gæti boðið upp á marg-
breytileika.
Ef borgin lætur einkageiranum
eftir stjórnina á framkvæmdinni
mun hún nær örugglega neyðast til
að éta ofan í sig gamla drauma um
ódýrar íbúðir og margbreytileika
við höfnina síðar. Þetta sanna dæmi,
t.d. í Ósló sem staðið hefur í svipuðu
ferli. Til að minnka kostnaðinn ætti
borgin að leita fyrirmynda í þokka-
fullri íbúðabyggð á sanngjörnu
verði, sem er nær einungis að finna
þar sem íbúarnir sjálfir, eða borg-
in fyrir þeirra hönd, stjórnar fram-
kvæmdinni og býr til reglurnar án
aðkomu aðila sem aðeins vilja koma
að málinu til að fjárfesta og ávaxta
pund sitt vel. Það væri líka miklu
ódýrara að byggja í ónýttum milli-
bilum í borginni (t.d. öllum gæslu-
völlunum sem lagðir eru niður) og
í ókláruðum hverfum á jaðrinum
með ofgnótt ónýtts rýmis og inn-
viða. Þetta hefði einnig þann kost að
skjóta stoðum undir meiri þjónustu
og atvinnutækifæri inni í hverfun-
um og drægi því úr þörf fyrir notk-
un einkabílsins.
Í Ósló er þekkt að öflugu fyrir-
tækin í byggingariðnaðinum séu
með fólk í fullri vinnu sem eins
konar hrægamma á skrifstofum
borgarskipulags til að þvinga í
gegn byggingar á stöðum þar sem
hægt er að selja lúxusíbúðir, meðan
grannar sem ekki líst á blikuna
og stunda aðra vinnu á skrifstofu-
tíma fá ekki rönd við reist. Forðist
Reykjavíkurborg þess konar þrýst-
ing getur hún aftrað meira tjóni en
orðið er, í borg þar sem forsendur
byggðar hafa gjörbreyst eftir hrun.
Vík ég nú að „smáatriði“ í text-
anum um að svæðið milli mið-
bæjarins og Hörpu sé „tekið út fyrir
Að stjórna skipulagi
Skipulagsmál
Arna
Mathiesen
arkitekt
Er sátt um að Harpa verði helst sýnileg frá
bílum sem keyra Sæbraut, úr leðurstólum
Seðlabankans og gluggum lúxushótels?
Stöndum saman gegn einelti
Er ÞÚ búin að skrifa undir á www.gegneinelti.is?
Opið laugard. kl. 10-14