Fréttablaðið - 08.11.2012, Qupperneq 26
8. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR26
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
INGIMAR TRYGGVI HARÐARSON
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn
4. nóvember. Útförin fer fram frá
Akureyrarkirkju þriðjudaginn 13. nóvember
kl. 10.30. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á reikning
565-4-250832, kt. 011176-3139.
Kristín Svavarsdóttir
Jóhannes Kristinn Ingimarsson Janine Long
Sigurður Hörður Ingimarsson Rannvá Olsen
Ágústa Eygló Ingimarsdóttir Einar Friðjónsson
Svava Ingibjörg Ingimarsdóttir Birkir Þór Sigurðsson
Heimir Bjarni Ingimarsson Anna Rósa Friðriksdóttir
og barnabörn.
Elskulegi bróðir okkar,
JÓN JÓNSSON
Frumskógum 1, Hveragerði,
er látinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir fá starfsmenn og vistmenn
Áss í Hveragerði fyrir góða umönnun og
vináttu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Rósa Jónsdóttir
Ásta Jónsdóttir
Álfheiður E. Jónsdóttir
Anna Margrét Jónsdóttir
Okkar kæra,
EYGLÓ GUÐMUNDSDÓTTIR
Hrafnakletti 2, Borgarnesi,
er látin. Útför verður gerð frá Borgarneskirkju
laugardaginn 10. nóvember kl. 14.00.
Snorri Þorsteinsson
Margrét Guðjónsdóttir
Davíð Magnússon
Andrea Davíðsdóttir Eygló Dóra Davíðsdóttir
Snorri Þorsteinn Davíðsson Linda Björk Bjarnadóttir
Margrét Andreudóttir
Innilega þökkum við þeim sem sýndu okkur
hluttekningu og hlýhug við andlát og útför
bróður okkar, mágs og frænda,
MAGNÚSAR ÓLAFS
HALLDÓRSSONAR
Ásbúðartröð 5, Hafnarfirði.
Sérstaklega þökkum við starfsfólki
gjörgæslu Landspítalans í Fossvogi fyrir
einstaka natni við meðferð hans og umönnun.
Anna Björg Halldórsdóttir
Halla Sólveig Halldórsdóttir Sigurjón Högnason
Karl Sigurjónsson Ines Willerslev Jörgensen
Freyja Sigurjónsdóttir
Halldór Steinn Halldórsson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
BENEDIKT BJARNI SIGURÐSSON
verkfræðingur,
Safamýri 85,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu Mörk
laugardaginn 27. október, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn
9. nóvember kl. 15.00.
Ása Benediktsdóttir
Jóhannes Benediktsson Björg B. Pálmadóttir
Anna María Benediktsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku maðurinn minn, faðir, tengdafaðir
og afi okkar,
ÓSKAR ÞÓRARINSSON
Hásteinsvegi 49, Vestmannaeyjum,
sem lést 2. nóvember, verður jarðsunginn frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn
10. nóvember kl. 14.00. Blóm vinsamlegast
afþökkuð, þeim sem vilja minnast Óskars er
bent á Krabbavörn í Vestmannaeyjum.
Ingibjörg Jóhanna Andersen
Rakel Óskarsdóttir
Sindri Óskarsson Ragnheiður Borgþórsdóttir
Sigmar Þröstur Óskarsson Vilborg Friðriksdóttir
Knútur Kjartansson
Kristín Kjartansdóttir
og barnabörn.
„Við heimsækjum munaðarleysingja-
hæli og börn sem búa við bág kjör.
Fyrir flest börnin sem við gefum skó-
kassa er þetta eina jólagjöfin sem
þau fá,“ segir Salvar Geir Guðgeirs-
son, einn forsprakka verkefnisins Jól
í skókassa sem lýkur á laugardaginn.
Á mörgum heimilum er það orðið
hluti af jólaundirbúningnum að
taka þátt í verkefninu, sem er nú
haldið í níunda sinn og er alþjóð-
legt samstarfsverkefni á milli hóps
innan KFUM og KFUK á Íslandi og
í Úkraínu. Hver sem hefur áhuga
á getur tekið þátt með því að útbúa
jólagjöf í skókassa og skila inn. Allir
kassarnir eru síðan fluttir til Úkraínu,
þar sem bágstöddum eru gefnir þeir
að gjöf. „Þetta snýst um að minnast
þeirra sem minna mega sín og hvað
margt smátt getur virkilega gert
eitt stórt,“ segir Salvar Geir. Verk-
efnið er allt unnið í sjálfboðavinnu
og hefur vaxið gríðarlega á síðustu
níu árum. „Þetta byrjaði árið 2004
sem krúttlegt innanhúsverkefni hjá
hópi innan KFUM og KFUK. Þá söfn-
uðum við 500 kössum og fannst það
frábært. Verkefnið spurðist hratt út
og árið eftir voru kassarnir orðnir
fimm sinnum fleiri, um 2.500. Árið
2006 vorum við svo með um 5.000
kassa og sú tala hefur nokkurn veg-
inn haldist síðan,“ segir Salvar Geir.
Hópur sjálfboðaliða vinnur svo að því
að yfirfara alla kassa sem berast. „Við
viljum passa upp á að allir kassarnir
innihaldi það sem þeir eiga að inni-
halda og séu svipaðir að gæðum. Það
SALVAR GEIR: ÞETTA SNÝST UM AÐ MUNA EFTIR ÞEIM SEM MINNA MEGA SÍN
Jólagjafir í skókössum handa
þúsundum úkraínskra barna
ÓMETANLEGT Salvar Geir hefur þrisvar sinnum farið til Úkraínu með skókassa. Hann segir það átakanlegt en jafnframt ómetanlegt. MYND/EINKASAFN
TOM ANDERSON, stofnandi Myspace og sjálfkrafa vinur allra notenda þar, fæddist þennan dag árið 1970.
„Google+ á eftir að slá öllum öðrum samskiptamiðlum við. Það sannar það enn og
aftur að allt er betra þegar það er félagslegt.“
42
Allir sem hafa áhuga á geta tekið þátt
og það er mjög einfalt að vera með:
1. Finndu skókassa og pakkaðu honum
inn. Mikilvægt er að lokinu sé
pakkað inn sér því það verður að
vera hægt að opna kassann.
2. Ákveddu kyn og aldursflokk þess
sem þú vilt gefa gjöfina.
3. Settu gjöfina í kassann. Það er miðað
við að kassinn innihaldi að minnsta
kosti einn hlut úr fimm flokkum
sem gefnir eru upp og óskað
er eftir að 500 til 800
krónur fylgi með
hverjum kassa fyrir
sendingar kostnaði.
Flokkarnir fimm eru:
■ Fatnaður. Til dæmis
húfur, sokkar, vett-
lingar.
■ Ritföng. Til dæmis skrifblokkir,
pennar, litir.
■ Leikföng. Til dæmis bangsar, bílar,
boltar.
■ Sælgæti. Til dæmis brjóstsykur,
sleikjó, karamellur.
■ Hreinlætisvörur. Mælst er til að
tannbursti og tannkrem sé í öllum
kössum. Sápustykki og þvottapoki er
líka sniðugt.
4. Lokaðu kassanum og skilaðu
honum inn. Hægt er að skila
honum inn víðs vegar um landið
en aðalskilastaður í Reykjavík
er í höfuðstöðvum KFUM og
KFUK á Íslandi, Holtavegi
28. Lokadagur til að skila
inn kössum er næst-
komandi laugardagur,
10. nóvember. Allar
nánari upplýsingar
má finna á heimasíð-
unni Skokassar.net.
VILT ÞÚ TAKA ÞÁTT?
Þetta gerðist þennan dag …
1520 Aftökur hefjast í Stokkhólmsvígunum.
1879 Hið íslenska fornleifafélag er stofnað.
1895 Wilhelm Conrad Röntgen uppgötvar röntgengeislana
þegar hann er að gera tilraunir með rafmagn.
1923 Bjórkjallarauppreisnin svokallaða á sér stað í München
í Þýskalandi. Adolf Hitler leiddi þá hóp nasista sem reyndu
að fella þýsku ríkisstjórnina en þeim mistókst það ætlunar-
verk sitt.
1923 Knattspyrnufélag Reykjavíkur býður upp á fimleika-
æfingar.
1949 Fyrstu umferðarljósin eru tekin í notkun á fernum gatna-
mótum í miðbæ Reykjavíkur.
2006 Byrjað er að selja Windows Vista til fyrirtækja.
þarf líka að passa upp á að þeir inni-
haldi ekkert sem þeir ekki mega inni-
halda eins og vökva, stríðsleikföng
eða spil,“ segir Salvar Geir. Spil eru
til að mynda tengd fjárhættuspilum
í Úkraínu, sem eru ólögleg og mikið
vandamál þar í landi.
Jóladagur á svæðinu þar sem köss-
unum er dreift er 7. janúar og fer
afhending fram í kringum þann dag.
Árlega fylgja einstaklingar úr undir-
búningshópnum kössunum utan og
hjálpa til við útdeilinguna. Salvar Geir
hefur farið í þrígang og segir upplif-
unina mikla. „Það er átakanlegt að
sjá með eigin augum hvað lífskjörin
eru miklu lakari þarna en við erum
vön. Jafnframt er ómetanlegt að fá að
afhenda kassana persónulega og upp-
lifa gleði barnanna við að fá þá í hend-
ur og opna þá,“ segir hann.
tinnaros@frettabladid.is