Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.11.2012, Qupperneq 25

Fréttablaðið - 08.11.2012, Qupperneq 25
FIMMTUDAGUR 8. nóvember 2012 25 sviga … vegna áforma erlendra aðila að byggja hótel“. Er hótelið bleiki fíllinn í miðbænum sem byggja á fyrir framan tónlistarhúsið? Er sátt um að Harpa verði helst sýnileg frá bílum sem keyra Sæbraut, úr leður- stólum Seðlabankans og gluggum lúxushótels? Felst í þessu áhætta um slæma landkynningu, þegar gestir fara að spá í hvaða asnar Íslend- ingar séu að klína útlensku merkja- hóteli af miklu ódýrari hönnun fyrir sunnan Hörpuna? Var ekki horf- ið frá hugmyndinni um að Harpa ætti að vera falin bak við aðrar byggingar þegar ákveðið var nota að rándýrt listaverk sem efni í út- veggina? Byggingin er sér hönnuð til að hennar sé notið sem skúlptúrs úr fjarlægð. Hefur aldrei verið íhugað að búa til opið almennings rými yfir bílastæðahúsið sem er í byggingu undir reitnum úr því sem komið er? Er ekki til heppilegri reitur fyrir hótel, eða aðrar byggingar sem væri hægt að endurnýta til þess arna, t.d. einhverjir hálfbyggðu lúxus- turnanna við Sæbraut með útsýni bæði til Hörpu og Esju? Er stolt landans, (þrátt fyrir skuldabagg- ann) þar sem hann nýtur útsýnis- ins úr miðbænum til eins stærsta tónlistarhúss heims með Esju í bakgrunninn, einskis virði? Hvað þýðir að taka hlutina út fyrir sviga í skipulags málum: Að sleppa því að stjórna og láta „erlenda aðila“ stjórna borginni, í hagnaðarskyni? Það er alvarleg rangfærsla í loka- orðum greinarinnar um að horfið sé frá útþenslu borgarinnar, því áætl- anir liggja fyrir um iðnaðarsvæði austan við byggðina, langt út á græna útivistarsvæðið, því miður. Ágætt ef þeir sem bera ábyrgðina geri grein fyrir hverju þetta sætir. Ég nýti tækifærið til að sam- þykkja nafnið Spilhúsastíg, sem spurt er hvort ekki sé bara sam- þykkt. Gott mál, en væri hægt að biðja um samþykki borgaranna í afdrifaríkari málum? Fagna ber nýlegum pistli ráða-manns hjá Reykjavíkurborg um góð tengsl borgar og sjávar. Gott ef Geirsgata verður gerð að borgar- götu og bílum þannig verði gert minna hátt undir höfði í borgar- myndinni. Tilvísun í skala gamla bæjarins fyrir nýbyggingar, og endur nýting gamalla bygginga í miðbænum er til fyrirmyndar. Greinin kallar þó fram áleitnar spurningar. Vinnur borgin kerfisbundið með endur nýtingu bygginga, líka í öðrum bæjar hlutum, og á hvern hátt? Getur al menningur, sem hefur áhuga á að vannýttar byggingar í nágrenninu nýtist betur, komið að málinu í samvinnu við borgar- yfirvöld? Smáskalabyggð með neðanjarð- arbílastæðum við höfnina hljómar vel og tekur sig fallega út á glans- myndum þótt hætt sé við að hún auki fjarlægðina og skapi fyrir- stöðu á milli gamla hverfisins og hafnarinnar. Stóra spurningin er þó hvort rökrétt sé að byggja á dýrasta grunninum í bænum þegar þörfin hefur aðallega aukist fyrir ódýrt íbúðarhúsnæði eftir hrunið. Hár byggingarkostnaður á þessum stað gerir áform um félagslega blandaða byggð óraunsæ. Eins auka áætlan- ir um hátt hlutfall lítilla íbúða eins- leitni þar sem ekki er pláss fyrir barnafjölskyldur og annars konar sambýli sem gæti boðið upp á marg- breytileika. Ef borgin lætur einkageiranum eftir stjórnina á framkvæmdinni mun hún nær örugglega neyðast til að éta ofan í sig gamla drauma um ódýrar íbúðir og margbreytileika við höfnina síðar. Þetta sanna dæmi, t.d. í Ósló sem staðið hefur í svipuðu ferli. Til að minnka kostnaðinn ætti borgin að leita fyrirmynda í þokka- fullri íbúðabyggð á sanngjörnu verði, sem er nær einungis að finna þar sem íbúarnir sjálfir, eða borg- in fyrir þeirra hönd, stjórnar fram- kvæmdinni og býr til reglurnar án aðkomu aðila sem aðeins vilja koma að málinu til að fjárfesta og ávaxta pund sitt vel. Það væri líka miklu ódýrara að byggja í ónýttum milli- bilum í borginni (t.d. öllum gæslu- völlunum sem lagðir eru niður) og í ókláruðum hverfum á jaðrinum með ofgnótt ónýtts rýmis og inn- viða. Þetta hefði einnig þann kost að skjóta stoðum undir meiri þjónustu og atvinnutækifæri inni í hverfun- um og drægi því úr þörf fyrir notk- un einkabílsins. Í Ósló er þekkt að öflugu fyrir- tækin í byggingariðnaðinum séu með fólk í fullri vinnu sem eins konar hrægamma á skrifstofum borgarskipulags til að þvinga í gegn byggingar á stöðum þar sem hægt er að selja lúxusíbúðir, meðan grannar sem ekki líst á blikuna og stunda aðra vinnu á skrifstofu- tíma fá ekki rönd við reist. Forðist Reykjavíkurborg þess konar þrýst- ing getur hún aftrað meira tjóni en orðið er, í borg þar sem forsendur byggðar hafa gjörbreyst eftir hrun. Vík ég nú að „smáatriði“ í text- anum um að svæðið milli mið- bæjarins og Hörpu sé „tekið út fyrir Að stjórna skipulagi Skipulagsmál Arna Mathiesen arkitekt Er sátt um að Harpa verði helst sýnileg frá bílum sem keyra Sæbraut, úr leðurstólum Seðlabankans og gluggum lúxushótels? Stöndum saman gegn einelti Er ÞÚ búin að skrifa undir á www.gegneinelti.is? Opið laugard. kl. 10-14
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.