Fréttablaðið - 08.11.2012, Page 20

Fréttablaðið - 08.11.2012, Page 20
20 8. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR Rekstrarvörur - vinna með þér Ofsóknir, þrálát áreitni, stríðni og ofbeldi. Allt eru þetta orð sem koma upp í tengslum við skilgreiningu orðabókar á hugtakinu einelti. Þessi orð lýsa ekki saklausri háttsemi, þvert á móti, alvar- legu ofbeldi, sem í eðli sínu er niðurbrjótandi. Í því felst að niðurlægja, móðga, særa, mis- muna og ógna manneskju ítrek- að. Kynferðisleg áreitni fellur hér undir, en einnig andlegt og líkamlegt ofbeldi. Einelti fær aðeins þrifist að samfélagið leyfi það, að hinir þöglu áhorfendur aðhafist ekki, horfi í aðra átt, oftast fremur vegna andvaraleysis en illsku. Þess vegna getum við, hvert og eitt, lagt okkar lóð á vogarskál- arnar í að útrýma einelti. Það gerum við með því að hafa góð áhrif á okkar eigið umhverfi, beita ekki valdi í samskiptum, bera virðingu fyrir fjölbreyti- leikanum og neita að taka þátt í þögninni. Í dag, 8. nóvember, gefst okkur tækifæri til að sýna tákn- rænan stuðning við baráttuna gegn einelti og gegn þögninni. Við, sem undir þetta ritum, hvetjum alla sem vettlingi geta valdið til að hringja bjöllum eða þeyta flautur, um allt land, helst um allan heim, á slaginu 13.00 í sjö mínútur, eina mínútu fyrir hvern dag vikunnar. Baráttan gegn einelti veltur á okkur öllum. Við getum stöðvað það. Sjá nánar: www.gegneinelti.is Hringjum bjöllum gegn einelti Heimskautaísinn hopar stöðugt og veitir aðgang að svæðum sem áður var ekki aðgangur að sökum ísalaga árið um kring. Olía og jarðgas eru nú sótt á staði sem áður fyrr voru utan hagkvæmra nýtingarsvæða og flutt á mark- aði. Samt fyrirfinnst ógrynni olíu og jarðgass suður í löndum sem hægt er að ná til með mun minni tilkostnaði en á norðurskautinu. Þá eru öll álitaefni um afmörkun og skiptingu landgrunnsins norður frá enn óleyst. Umræður um ný tækifæri á norðurslóðum eru verulegar. Umræðurnar virðast þó hafa farið fram úr áþreifanlegum aðgerðum sem búið geta strandríki umhverf- is norðurskautið undir að samnýta ný tækifæri á norðurslóðum. Þessi umræða er orðin að skrumiðnaði þar sem sægur manna keppist við að segja aftur og aftur sama hlut- inn en með ólíkum orðum þó. Nýframkvæmdir og hönnun samgöngumannvirkja, mann- virkjagerð og lagning járnbrauta og gerð hafna og flugvalla eru í engu samræmi við umræður og umfang þeirra væntinga sem vakt- ar hafa verið. Þetta er vísbending um að umræðurnar séu kænsku- bragð manna sem ekki leggja sjálf- ir fullan trúnað á það sem þeir eru að segja og að það séu fyrst og fremst pólitískar brellur hjá þeim að tala í síbylju um nýja þýð- ingu norðurskautsins og ný tæki- færi strandríkja norðurslóða til að mynda í tengslum við byggðamál og umhverfismál. Orð án hugsana Árangur ríkissjóðs – frá vöxtum í velferð Það eru orð að sönnu að sú tíð er liðin að vinstri stjórnir eyði meiru en hægri stjórnir. Hafi það nokkurn tímann verið annað en áróðursfullyrðing að hægri menn væru gætnari í meðferð opinberra fjármuna en vinstri menn. Hvarvetna austan hafs sem vestan er hafin tiltekt eftir óráðsíu nýfrjálshyggjunn- ar á undanförnum áratugum. Endurreisnin gengur best þar sem leikurinn er jafnaður. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðar- dóttur, sem nú er á sínu fjórða ári, hóf sína vegferð í samráði við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og færustu hagfræðinga Íslands. Hún valdi í samræmi við pólit- ískar hugsjónir jafnaðar manna blandaða leið sem reynst hefur farsæl. Nauðsyn legt var að skera niður ríkisútgjöld. Við eyddum meira en við öfluðum. Um leið voru skattar hækkaðir á þeim sem höfðu bak til að bera auknar byrðar. Þeim var hlíft eftir mætti sem höllum fæti stóðu. Þá var reynt að halda uppi kaupmætti lágtekju- og millitekjufólks þannig að heildareftirspurn í hag kerfinu legði grunn að hagvexti. Þessi stefna hefur gengið upp. Á Íslandi hefur hagkerfið vaxið á meðan víða annars staðar, þar sem kreppan hefur verið látin bitna á almenningi, er viðvar- andi samdráttur. Við erum á réttri leið með því að lækka skuldabyrði ríkis- sjóðs sem hlutfall af fram- leiðslu landsins af vöru og þjón- ustu (VLF). Það er mikilvægt. Staða Íslands er þó enn mjög alvarleg. Heildarskuldir munu nema í lok árs um 1.497 millj- örðum króna sem er um 85% af VLF og hafa lækkað um 5% frá fyrra ári. Kostnaður af lántöku til þess að styrkja gjaldeyris- forðann, gjaldið fyrir endur- reisn fjármálakerfisins og veik- ing skattstofna ríkisins hafa leitt okkur í þessa stöðu. Ef litið er hins vegar á hreina skulda- stöðu ríkis sjóðs Íslands, en þar er tekið mið af veittum lánum, kröfum ríkissjóðs, handbæru fé og gjaldeyrisvaraforða, þá er áætlað að hún nemi 794 millj- örðum króna í lok þessa árs sem jafngildir um 45% af VLF. Hvernig sem litið er á málin verðum við að gæta ítrustu varúðar í útgjöldum þótt rofað hafi til. Við verðum að temja okkur aðhaldssemi og varkárni í ráðstöfun opinbers fjár. Nú er okkur að takast að loka fjár- lagagatinu sem skall á okkur eftir hrun, svo við getum farið að greiða niður skuldir og breyta alltof háum vaxta- greiðslum í velferð. Við þurfum að sameinast um það sem er nauðsynlegt eins og tækjakaup til Landspítalans og fjórðungs- sjúkrahúsa sem varðar þjóðar- hag, en láta annað bíða betri tíma. Samanburður á milli ríkja sýnir að ábyrgð er mest í fjár- málastjórn hins opinbera þar sem jafnaðarmenn hafa haft langvarandi ítök. Norrænu ríkin eru meðal stöðugustu og sam- keppnishæfustu ríkja heims. Í þeirra hópi eigum við að vera. Við tökum mið af þeim og hvik- um ekki frá norrænni velferðar- stefnu í stjórn fjármála ríkisins. Fjármál Katrín Júlíusdóttir fjármála- og efnahagsráðherra Á Íslandi hefur hagkerfið vaxið á meðan víða annars staðar, þar sem kreppan hefur verið látin bitna á almenningi, er viðvarandi samdráttur. Verum góðar fyrirmyndir og vöndum okkur í samskiptum Reynslan og rannsóknir hafa sýnt að til þess að takast á við einelti og annað ofbeldi í skólum þarf að horfa á samskipti í víðu samhengi. Með réttum viðhorf- um hinna fullorðnu og með því að kenna börnum að eiga sam- skipti sem einkennast af lýðræðis- legum gildum er hægt að byggja upp menningu þar sem einelti er hafnað og börn búa við öryggi. Í tilefni dags gegn einelti þann 8. nóvember leggur skóla- og frí- stundasvið Reykjavíkurborgar ásamt verkefnastjórn um aðgerð- ir gegn einelti, samstarfs verkefni þriggja ráðuneyta, því sérstaka áherslu á mikilvægi góðra sam- skipta. Flestir eru væntanlega sam- mála um að fáir eiginleikar séu eftirsóknarverðari en einmitt sá hæfileiki að geta átt góð samskipti við annað fólk. Þetta má m.a. sjá í fjölmörgum atvinnuauglýsingum þar sem tekið er fram að góðir samskiptahæfileikar séu skilyrði fyrir ráðningu í starfið. Pesta- lozzi-stofnunin, sem framfylgir menntastefnu Evrópuráðsins um skóla án ofbeldis, leggur megin- áherslu á að hvetja skóla til að auka skipulega nám í sam skiptum þar sem nemendur tileinka sér lýðræðisleg gildi. Þannig læra þeir að hlusta á ólík sjónarmið, að leysa ágreining, sýna sam- kennd, taka ábyrgð og bera virð- ingu fyrir skólasystkinum sínum, hvernig sem þau eru. Nám í sam- skiptum þarf að samþætta öllu námi og starfi barnanna og vefa inn í allt skóla- og frístundastarf en má ekki einskorða við af- markaðar kennslustundir. Áherslur Pestalozzi eru í góðu samræmi við grunnþætti mennt- unar í leik-, grunn- og framhalds- skólunum, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi og jafn- rétti. Það sama á við um niður- stöður viðamikillar rannsóknar sem sænsk skólayfirvöld, Skol- verket, unnu í samstarfi við þrjá þarlenda háskóla. Í niðurstöð- um hennar kemur m.a. fram að þar sem minnst einelti mælist í skólum ríkir góður skólabragur, áhersla er á samvinnu, skapandi starf, samkennd og traust. Í þeim skólum er einnig markvisst unnið með grunngildi samskipta meðal starfsmanna og nemenda. Auk þess er unnið skipulega í eineltis- málum, aðferðir eru þaulhugsaðar og ábyrgð allra er skýr. Nýlegar rannsóknir á einelti sem gerðar voru í Danmörku benda einnig til þess að fremur ætti að líta á einelti sem félags- legt fyrirbæri en vandamál ein- staklinga. Með þessu er átt við að einelti sé hluti neikvæðs sam- skiptamynsturs sem nær að festa rætur og því þarf að skoða einelti í víðara félagslegu samhengi en oft hefur verið gert. Það voru hvorki börn né skól- inn sem fundu upp einelti frekar en annað ofbeldi þó svo stundum mætti ætla annað af almennri umræðu. Það þarf ekki annað en að líta til þess hvernig vandamál eru leyst í kvikmyndum sem börn horfa á eða hvernig fólk tekst stundum á við ágreining í fjöl- miðlum, þ.m.t. á netinu. Ekki er heldur víst að öll börn alist upp við að bera virðingu fyrir fólki óháð uppruna þess, skoðunum, útliti eða framkomu. Það er því ekki tilviljun að slagorð þátttakenda í Pestalozzi- áætluninni um skóla án ofbeldis er „Convivencia starts with me and ends with we“, sem má e.t.v. útleggja: „Ef ég kýs að lifa í vin- samlegu samfélagi þarf ég að byrja á því að líta í eigin barm“. Við eigum að sjálfsögðu að gera kröfur um að aðrir virði rétt okkar, barna okkar og nemenda um líf án ofbeldis en við megum heldur ekki gleyma að ígrunda eigin viðhorf og ábyrgð og hvern- ig við kennum börnum okkar og nemendum að vera þátttakendur í samfélagi án ofbeldis. Í tilefni dags gegn einelti þann 8. nóvember hefur skóla- og frí- stundasvið Reykjavíkur útbúið sérstakan verkefnabanka með tillögum sem kennarar og frí- stundaráðgjafar geta nýtt í vinnu með börnum til að efla færni þeirra í samskiptum. Verkefna- bankinn verður vistaður á heima- síðu skóla- og frístundasviðs www.skolarogfristund.is 1.-15. nóvember nk. en verður eftir það á innri vef skóla- og frístunda- sviðs á vefsvæði verkefnisins Vin- samlegt samfélag. Í tengslum við daginn eru einn- ig allir hvattir til að skrifa undir þjóðarsáttmála gegn einelti, sem er aðgengilegur á heimasíðunni, www.gegneinelti.is. Með undir- ritun sinni skuldbindur fólk sig til að vinna gegn einelti og mark- miðið er að fá sem allra flesta til að skrifa undir sáttmálann. Samfélagsmál Nanna Kristín Christiansen verkefnastjóri á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar Við eigum að sjálfsögðu að gera kröfur um að aðrir virði rétt okkar, barna okkar og nemenda um líf án ofbeldis en við megum heldur ekki gleyma að ígrunda eigin viðhorf og ábyrgð... Samfélagsmál Helga Björk Magnúsdóttir Grétudóttir tónlistarkennari og aktívisti Ögmundur Jónasson innanríkis- ráðherra Norðurslóðir Róbert Trausti Árnason Samtökum atvinnulífsins

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.