Fréttablaðið - 08.11.2012, Side 46

Fréttablaðið - 08.11.2012, Side 46
8. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR34 34tónlist TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Í SPILARANUM tonlist@frettabladid.is Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds- son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is. Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Skýringar: TÓNLISTINN Vikuna 31. október - 7. nóvember 2012 LAGALISTINN Vikuna 31. október - 7. nóvember 2012 Sæti Flytjandi Lag 1 Ásgeir Trausti .....................................Dýrð í dauðaþögn 2 Retro Stefson ..............................................................Glow 3 Valdimar ......................................................................... Sýn 4 Ragnar Bjarnason / Jón Jónsson ...................... Froðan 5 Mumford & Sons ............................................. I Will Wait 6 Muse .....................................................................Madness 7 Rihanna ..............................................................Diamonds 8 Philip Philips .............................................................Home 9 Jónas Sigurðsson ...................................... Hafið er svart 10 Magni ..................................................................Augnablik Sæti Flytjandi Plata 1 Ásgeir Trausti .....................................Dýrð í dauðaþögn 2 Skálmöld ............................................................Börn Loka 3 Retro Stefson ..............................................Retro Stefson 4 Valdimar ..............................................................Um stund 5 Of Monsters and Men ............My Head Is an Animal 6 Jóhann Jóhannsson ..................Copenhagen Dreams 7 Jónas Sigurðsson .............. Þar sem himin ber við haf 8 Steind. Anders. & Hilmar Ö. Hilmars. ...........Stafnbúi 9 Samaris.....................................................Stofnar falla EP 10 Mugison ........................................................... 5 CD Pakki Rokkararnir í Soundgarden hafa snúið aftur með nýja plötu eftir fimmtán ára hlé. Fyrsta smáskífulagið heitir Been Away Too Long. Eftir fimmtán ára hlé eru Seattle- rokkararnir í Soundgarden mættir aftur með nýja plötu, King Animal. Síðan þeir komu aftur saman fyrir tveimur árum hafa þeir verið að taka upp ný lög og afrakstur- inn er King Animal sem kemur út eftir helgi. Upptökustjóri var Adam Kasper sem hefur starfað með Foo Fighters, Queens of the Stone Age og Pearl Jam. Í nýlegu viðtali við NME segir söngvarinn Chris Cornell að á plötunni haldi þeir áfram þar sem frá var horfið á þeirri síðustu. „Allir meðlimirnir semja lögin og þess vegna er þetta mjög fjölbreytt plata,“ sagði hann. Fyrsta smáskífulagið heitir Been Away Too Long og þar er að sjálf- sögðu vísað í hina löngu fjarveru Soundgarden frá sviðsljósinu. Hljómsveitin hætti störfum árið 1997, skömmu eftir að Down on the Upside kom út. Sú plata fékk fínar viðtökur. Hún náði öðru sæt- inu á bandaríska Billboard-listan- Soundgarden snýr aftur ROKK OG RÓL! Chris Cornell og Kim Thayil á tónleikum með Soundgarden fyrir skömmu. Hljómsveitin gefur eftir helgi út plötuna King Animal. NORDICPHOTOS/GETTY um og tvö smáskífulög, Burden in My Hand og Blow Up the Outside World, fóru á toppinn. Skömmu síðar, eða 1997, hætti Soundgarden. Menn voru orðnir þreyttir á stöðugu tónleikahaldi og einnig hver á öðrum. Að auki höfðu þeir deilt um framtíðarhljóm sveitar innar. Söngvarinn Chris Cornell vildi draga úr þungum gít- arriffunum og prófa nýjar og létt- ari slóðir, við litla hrifningu gítar- leikarans Kim Thayil. Cornell hafði í nógu að snúast í „fríinu“. Hann hóf sólóferil og gaf út Euphoria Morning árið 1999. Tveimur árum síðar stofnaði hann rokksveitina Audioslave með fyrr- verandi meðlimum Rage Against the Machine. Eftir gott gengi henn- ar hætti Cornell og hún leystist upp. Söngvarinn gaf út tvær sóló- plötur til viðbótar, sem fengu held- ur dræm viðbrögð. Thayil spilaði inn á plötu Pro- bot, hliðarverkefnis Dave Grohl, en hafði sig annars lítið í frammi. Trommarinn Matt Cameron hafði meira að gera því hann spilaði með The Smashing Pumpkins á plötunni Adore en gekk svo til liðs við Pearl Jam og hefur spilað inn á fjór- ar plötur með þeirri sveit. Bassa- leikarinn Ben Sheperd spilaði með Mark Lanegan, fyrrverandi söngv- ara Screaming Trees. Soundgarden hefur verið á tón- leikaferð á þessu ári og nýlega var tilkynnt um spilamennsku á tón- leikunum Hard Rock Calling sem verða í Hyde Park í London næsta sumar. Iggy & The Stooges og Cold Chisel koma þar einnig fram. freyr@frettabladid.is Soundgarden var ein vinsælasta grugghljómsveitin á tíunda áratugnum. Hún var ein margra slíkra sem voru á mála hjá útgáfunni Sub Pop. Soundgarden varð fyrsta gruggsveitin til að semja við stórt útgáfufyrirtæki, A&M, en sló ekki í gegn fyrr en Nirvana, Pearl Jam og Alice in Chains höfðu komið grugg- inu á kortið. Vinsælasta plata hljómsveitarinnar var Superunknown. Hún náði efsta sæti Billboard-listans og á henni voru smáskífulögin Black Hole Sun og Spoonman. EIN VINSÆLASTA GRUGGROKKSVEITIN Fyrir þrjátíu árum þegar geisladiskurinn var nýr kostaði hann töluvert meira út úr búð heldur en vínylplatan. Verðmunurinn var útskýrður með háum framleiðslukostnaði og meiri gæðum. Þessi nýja tækni var svo fullkomin, hljómurinn miklu betri og hlustand- inn yrði laus við snarkið í þessum rispum sem alltaf kæmu á vínyl- plöturnar með notkun. Í dag er búið að snúa þessu alveg við. Nú er vínyllinn miklu dýrari en geisladiskurinn. Ástæðurnar eru hærri framleiðslu kostnaður og meiri gæði. Geisladiskur- inn getur aldrei náð þess- um hlýja og náttúrulega hljómi sem vínyl platan býður upp á. Og svo er snarkið svo notalegt. Verðmunurinn er augljós þegar við berum saman stóra og flotta pakka. Blur-boxið margrómaða sem kom út í sumar er bæði fáanlegt á vínyl og CD. Í fyrrnefnda boxinu eru sjö vínyl- plötur. Í því síðarnefnda er átján hljómdiskar og þrír mynddiskar. Vínylboxið er samt dýrara. Annað dæmi er Bítla-boxið. Fyrir þrem- ur árum komu allar Bítlaplöturnar út á CD. Steríó-útgáfan inniheld- ur 16 diska og kostar um 35 þúsund krónur. Á mánudaginn koma sömu plötur út í forláta vínylplötuboxi. Verðið á því slagar hátt í 60 þúsund … Það þarf ekki að efast um að framleiðslukostnaður sé hærri á vínyl, en framleiðslukostnaður er samt bara hluti af verðmynd- uninni. Hann einn nægir ekki til að réttlæta þennan mikla mun. Verðið fer líka eftir því hvað kaupandinn er tilbúinn að borga og í dag eru kaupendur til í að borga miklu meira fyrir vínylinn. Hann þykir eigulegri gripur og stofustáss á meðan geisladiskurinn er ódýrt dót fyrir fjöldann. Það verður gaman að fylgjast með þróun- inni í framtíðinni. Persónulega hef ég bara eitt mottó í sambandi við þessi mál: Það er tónlistin sem skiptir mestu máli, ekki miðillinn … Sagan endurtekur sig BORN TO BE FREE með Borko er plata vikunnar ★★★★ ★ „Borko snýr aftur fjórum árum seinna með fína plötu.“ - TJ Jónas Sigurðsson og Lúðra- sveit Þorlákshafnar - Þar sem himin ber við haf Elíza Newman - Heimþrá Magni - Í huganum heim Ráðstefna um eflingu lýðræðis á Íslandi í Ráðhúsi Reykjavíkur laugardaginn 10. nóvember 2012 klukkan 10 til 15. 09.30 til 10:00: Stúlknakórinn Graduale Nobili syngur nokkur lög 10.00 til 12.00: Ráðstefnustjórar: Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytis og Kristinn Már Ársælsson, stjórnarmaður í Öldu: Ráðstefna og dagskrá kynnt Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra: Lýðræði á nýrri öld: Valdið til fólksins Melissa Mark-Viverito, borgarfulltrúi í New York, og Donata Secondo, verkefnisstjóri The Participatory Budgeting Project: Fjárhagsáætlunargerð með þátttöku íbúa í New York 12:00 til 12.30 Matarhlé 12.30 til 13.15: Ellý Katrín Guðmundsdóttir, borgarritari: Íbúalýðræði í Reykjavík Jón Gnarr, borgarstjóri: Betri Reykjavík og beint lýðræði 13.15 til 14.50: Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna: Börn mega gagnrýna skólann! Unnur Helgadóttir og Ásta Margrét Helgadóttir, ungmenni frá Ráðgjafarhópi umboðsmanns barna: Maður þarf ekki að vera orðinn 18 til að hafa skoðun! Martin Østerdal, framkvæmdarstjóri LNU, Landsrådet for norske barne- og ungdomsorganisasjoner: Þátttaka barna og kosningar – kosningaaldur og leiðir ungmenna til þátttöku í lýðræðislegu samfélagi 14.50 til 15.00 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra: Lokaorð Ráðstefnan er öllum opin, ókeypis og aðgengileg. Rit og táknmalstúlkun og túlkun erlendra fyrirlesara. Bein útsending: Fjölmiðladeild Flensborgarskólans tekur upp og sendir út dagskrá ráðstefnunnar frá vefsvæði sínu: www.gaflari.is Nánari upplýsingar á vefsíðum Innanríkisráðuneytisins: irr.is, umboðsmanns barna: barn.is, Reykjavíkurborgar: reykjavik.is og Öldu: alda.is.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.