Fréttablaðið - 08.11.2012, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 08.11.2012, Blaðsíða 52
8. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR40 40 popp@frettabladid.is 7.500 kr. Verð áður 10.900 kr. Little fat 3.000 kr. Verð áður 4.800 kr. Cable Box 2.500 kr. Verð áður 5.000 kr. Eyeleds 7.990 kr. Verð áður 11.500 kr. Lux W1 78.800 kr. Verð áður 125.000 kr. Sera 3.000 kr. Verð áður 4.800 kr. Cable Nest 1.000 kr. Verð áður 2.400 kr. Cable clip Skipholti 37 Sími 568 8388 Opið laugardaga frá 11-16 Láttu drauminn rætast! Til að rýma fyrir nýjum og glæsilegum vörum bjóðum við úrval ljósa og fylgihluta á frábæru verði í nokkra daga. 5.000 kr. Verð áður 7.900 kr. Junior Bíó ★★★★ ★ Berberian Sound Studio Leikstjórn: Peter Strickland. Leikarar: Toby Jones, Cosimo Fusco, Tonia Sotiropoulou, Susanna Cappellaro, Antonio Mancino Þessi óvenjulega hrollvekja segir frá Gilderoy, miðaldra breskum hljóðmanni sem ferðast til Ítalíu til að hljóðsetja kvikmynd. Starfs- menn Berberian-hljóðversins eru stórfurðulegir og eigandinn sjálfur er sérstaklega óvinsam- legur. En Gilderoy er fagmaður og ákveður því að staldra við og klára verkið. Það er nærri ómögulegt að segja nánar frá söguþræðinum, en mörk alvöru og ímyndunar verða óskýrari eftir því sem líða tekur á myndina. Er Gilderoy geðveik- ur eða er hann ef til vill staddur í helvíti? Toby Jones fer með hlut- verk hans og heldur uppi mest- um þunga myndarinnar á eigin spýtur. Frábær leikari sem ég hef aldrei fyrr séð í aðalhlutverki. Sjónrænar og hljóðrænar til- vísanir í ítalskar hrollvekjur 8. áratugarins eru óteljandi og við fáum meira að segja að heyra í öldruðu giallo-drottningunni Suzy Kendall í nokkrum stuttum atrið- um. Tónlistin er samin af ensku indie-sveitinni Broadcast og tekst henni að skapa magnaðan hljóð- heim sem byggir að miklu leyti á gamalli kvikmyndatónlist, en er þó miklu meira en bara eitthvað retró-hjakk. Það er nær ómögulegt að afgreiða Berberian Sound Stud- io með stjörnugjöf. Hún fer með áhorfandann í ferðalag en keyrir svo til Krýsuvíkur og skilur hann eftir. Hún er sérhæfð, óræð og artí. En hún mun finna sinn mark- hóp. Ég er handviss um það. Haukur Viðar Alfreðsson Niðurstaða: Ein forvitnilegasta mynd ársins. Keyrt til Krýsuvíkur BERBERIAN SOUND STUDIO Mynd Peters Strickland er sérhæfð, óræð og artí en mun finna sinn markhóp, að mati gagnrýnanda Fréttablaðsins. „Þetta byrjaði með því að við Val- gerður fórum í líkamsræktarátak okkar á milli,“ segir Sesselja Vil- hjálmsdóttir, sem ásamt Valgerði Halldórsdóttur hefur hannað snjallsímaforritið Kinwins. Kinwins er hvatningarleikur sem gengur út á að gera notendur sína að betri mönnum og stuðla að heilbrigðu líferni. Notandinn skrá- ir inn dagleg verkefni og safnar stigum. Hægt er svo að deila verk- efnunum með vinum og fjölskyldu og hvetja hver annan áfram. „Þetta er á sama tíma sam- félagsmiðill þar sem hægt er að tengjast fjölskyldu og vinum en einnig er hægt að hafa þessar upplýsingar fyrir sig og keppast um að ná betri árangri,“ segir Sesselja en rúmt ár hefur tekið að þróa leikinn sem iPhone-notendur geta núna hlaðið frítt niður í sím- ana sína. Í framtíðinni er svo markmið Kinwins að notendur þess geti nálgast ýmsar tölfræðilegar upp- lýsingar um sínar hverdagslegu athafnir og séð hvað má betur fara í átt að heilbrigðara lífi og aukinni vellíðan. Sesselja og Valgerður gerðu fyrir nokkru síðan frumkvöðla- heimildarmyndina The Startup Kids og hönnuðu borðspilið Heila- spuna. Þær voru langt komnar með Facebook-leik byggðan á Heilaspuna þegar hugmyndin að Kinwins kom upp. En þarf maður ekki að búa yfir mikilli tölvufærni til að búa til smáforrit? „Við erum báðar mjög tölvuvænar og getum bjargað okkur en í þessu verk- efni fengum við forritunarteymi til liðs við okkur,“ segir Sesselja, en verkefnið er styrkt af Tækni- þróunarsjóði. Sesselja og Valgerður stefna svo á að markaðssetja leikinn á heims- vísu á næstunni enda telja þær að leikurinn eigi erindi við alla. „Við erum tilbúnar með markaðsefni á heimsvísu og bíðum bara eftir grænu ljósi að utan. Kinwins snýst um að fá yfirsýn og kortleggja líf sitt og á sama tíma auka hæfileika sína. Það hlýtur að eiga erindi við alla.“ Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á Kinwins.com. alfrun@frettabladid.is Líkamsræktarátakið varð að nýju snjallsímaforriti KINWINS Hugmyndin að snjallsímaforriti Sesselju og Valgerðar kviknaði í líkamsræktarátaki. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON 1. Notandi skráir inn hvað hann er að gera, til dæmis lesa, hlaupa, vinna eða borða. Svo getur hann deilt því með vinum á Kinwins eða á öðrum samfélagsmiðlum, til dæmis á Facebook. Leikurinn snýst um að safna stigum með því að nýta hæfileika sína til hins ýtrasta. 2. Sem dæmi má taka að ef notandi skráir inn að hann sé að elda eykur hann hæfi- leika sína í eldamennsku. Á sama tíma safnar hann fleiri stigum fyrir sömu athöfn eins og að auka skapandi hugsun og andlega vellíðan. Ef notandi skráir vini sína með sér og staðsetningu fær hann vinastig og stig fyrir að vera á nýjum stað. 3. Notandinn getur færst á milli borða með stigasöfnun í mismunandi flokkum. Flokkarnir eru heilsa, líkamlegt atgervi, skapandi hugsun, hve góður maður er í höndunum, fróðleiksfýsn, félagslyndi, ferðalög og reynsla. 4. Heildarleikurinn gengur út að reyna að færast upp um borð og eignast betra hús í leiknum. Notendur geta síðan keppt við vini sína og borið saman árangur sinn. HVERNIG VIRKAR KINWINS FRANK LAWRENCE hefur skuldbundið sig til að leikstýra þriðju myndinni í Hunger Games-þríleiknum. Tökur á annarri myndinni standa yfir um þessar mundir með Lawrence við stjórnvölinn. Franska leikkonan Marion Cotillard segist elska breska menningu og vera mikill aðdáandi Radio- head. „Ég ímynda mér England sem blöndu af tísku og tónlist. Þar finnst rokk og ról í öllu; konungs- fjölskyldunni, pönkinu og borgarastéttinni. Bretar eru bestir í tónlist og ég held upp á David Bowie, The Rolling Stones, Radiohead, Bítlana og fleiri,“ sagði leikkonan í viðtali við Harper‘s Bazaar. Cotillard segist einnig kunna að meta breska sjónvarpsþáttagerð og í algjöru uppáhaldi hjá henni er gamanþátturinn Absolutely Fabulous. „Ég er mikill aðdáandi.“ Elskar breska menningu ELSKAR BRETA Marion Cotillard er mikill aðdáandi breskrar menningar. 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.