Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.12.2012, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 24.12.2012, Qupperneq 30
24. desember 2012 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 26TÍMAMÓT Kristján Leósson fagnar 42 ára afmæli sínu í dag. Hann segir afmælis- pakkana og veisluhöldin hafa stytt bið- ina eftir jólunum þegar hann var barn. „Ég hef ekki prófað neitt annað en að eiga afmæli þennan dag, þannig að ég hef nú engan samanburð, en mér þótti alltaf vænt um afmælisdaginn því hann þótti svolítið spes. Maður passaði sig þó á því að öllum gjöfum yrði ekki slegið saman, það var alveg bannað og er enn í dag. Það er enginn afsláttur gefinn á því,“ segir Kristján sem starfar sem vísindamaður hjá raunvísindastofnun Háskólans. Kristján fagnar afmæli sínu yfir- leitt fyrri hluta dags, áður en jólahald hefst. „Sem barn byrjaði ég daginn á því að opna afmælisgjafirnar og það einfaldaði biðina eftir jólunum mikið. Fyrir mig var þetta bara skemmtilegt en það hefur án efa bætt á stressið hjá foreldrum mínum að þurfa að halda afmælisveislu í þokkabót. Vinum var boðið í veisluna og þá höfðum við öll eitthvað að gera fram til klukkan sex. Ætli foreldrar þeirra hafi ekki verið hæstánægðir með fyrirkomulagið,“ segir hann og hlær. Kristján segir fátt hafa breyst síðan þá. Hann byrjar aðfangadag enn þá á því að opna afmælisgjafirnar og tekur svo á móti hamingjuóskum frá vinum og vandamönnum. „Maður reynir að taka á móti þeim sem detta inn yfir daginn, en eftir því sem maður eldist er maður minna fyrir að halda stór- veislur. Í dag er ekkert sérstakt á dag- skránni, bara morgunkaffi með fjöl- skyldunni.” Kristján er kvæntur Hildigunni Sverrisdóttur og saman eiga þau þrjú börn, þar af eina tvíbura. Inntur eftir því hvað börnunum þyki um afmælis- dag föður síns segir hann að þeim þyki þetta skemmtilegt. „Þeim finnst þetta bara skemmtilegt, held ég. Að pabbi og Jesús eigi afmæli sama dag. En álagið eykst auðvitað á frúna. Svo á mamma mín afmæli á annan í jólum og tví- burarnir okkar eru fæddir 5. janúar, þannig að það eru mikil hátíðarhöld hjá okkar fjölskyldu fram að þrett- ándanum.” Verðið þið ekki þreytt á stöðugum hátíðarhöldum á svo stuttum tíma? „Maður bara stillir þessu eftir því sem maður hefur orku til. Annars er maður bara alltaf búinn á því, það fylgir því að keyra fimm manna heim- ili. Þá er nóg vinna allt árið um kring,“ segir afmælisbarnið að lokum. sara@frettabladid.is Afmælisveislan stytti biðina eft ir jólunum Kristján Leósson á afmæli í dag. Hann segist enn passa upp á að gjöfum sé ekki slegið saman. Afmælisdagurinn í ár hefst með morgunkaffi með fj ölskyldunni. JÓLABARN Kristján Leósson fagnar afmæli sínu í dag. Honum hefur alltaf þótt vænt um afmælisdaginn, enda þyki hann nokkuð sérstakur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Jólasálmurinn Heims um ból var frumfluttur í bænum Oberndorf í Austurríki, í námunda við Salzburg, á aðfanga- dag árið 1818. Fáa hefur líklega grunað hversu vinsæll sálm- urinn átti eftir að verða um allan heim næstu árhundruðin. Sveinbjörn Egilsson þýddi sálminn yfir á íslensku en upp- runalega textann samdi Joseph Mohr árið 1816. Mohr þessi var þá prestur í Mariapfarr, afskekktu þorpi í Austurríki. Hann varð síðan aðstoðarprestur í Oberndorf, og að morgni aðfangadags árið 1818 á hann að hafa komið að máli við Franz Gruber, sem var tónlistarkennari á staðnum, og beðið hann að semja lag við textann fyrir tvo einsöngvara, kór og gítar. Þeir fluttu svo lagið ásamt öðrum við messu í Nikulás- arkirkjunni um kvöldið. Lagið skipar enn þann daginn í dag stóran sess í hjörtum margra, bæði fullorðinna og barna. ÞETTA GERÐIST 24. DESEMBER 1818 Jólalag frumfl utt Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Alúð - virðing - traust Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐNI EGILL GUÐNASON frá Suðureyri við Súgandafjörð, til heimilis að Sóltúni 5, Reykjavík, andaðist á Hjúkrunarheimilinu Skjóli að kvöldi mánudagsins 17. desember. Útför hans fer fram frá Áskirkju fimmtudaginn 27. desember klukkan 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Parkinson- samtökin. Brita Marie Guðnason Jóhann Guðnason Rósa Hrund Guðmundsdóttir Guðni Albert Guðnason Ingólfur Guðnason Sigrún Elfa Reynisdóttir Kjartan Guðnason Sesselja Traustadóttir og barnabörn. VirðingReynsla & Þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 · 82o 3939 svafar · 82o 3938 hermann www.kvedja.is Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdarfaðir, afi, langafi og langalangafi, SKJÖLDUR ÞORGRÍMSSON, lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli 20. desember. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð Skjóls. Þórhildur Hólm Gunnarsdótti Una Svava Skjaldardóttir Chuck Rogers Þorgrímur Skjaldarson Tryggvi Lúðvík Skjaldarson Halla María Árnadóttir Ásthildur Skjaldardóttir Birgir Aðalsteinsson Guðbjörg Skjaldardóttir Sigurður Árnason Guðrún Viktoría Skjaldardóttir Björn Guðmundsson barnabörn, langafabörn og langalangafabörn. Alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra SIGURÐAR GUNNARS SIGURÐSSONAR Skildinganesi 12, Reykjavík. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks blóðlækningadeildar Landspítalans fyrir frábæra umönnun. Helga Margrét Ketilsdóttir Árni Sigurðsson Guðný Lilja Oddsdóttir Helgi Grétar Sigurðsson Rosalie Sarasua Bjarni Árnason Rakel Karlsdóttir Árni Þór Árnason Harpa Hrund Pálsdóttir Alysha Sarasua Alexander Snorri Sigurdsson Benjamin Joseph Sigurdsson Sara Björk og Tristan Bjarki Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, HELGA HÁKONARDÓTTIR Hólsvegi 17, lést á heimili sínu fimmtudaginn 20. desember. Útför auglýst síðar. Bergþór Magnússon Magnús Eðvarð Guðleifsson Guðbjörg Guðmundsdóttir Bergþór Helgi Bergþórsson Gyða Sigurbjörg Steinarsdóttir Bergsteinn Bergþórsson Vilborg Helga Bergþórsdóttir Katrín Ósk Magnúsdóttir Brynjar Þór Magnússon Elísabet Jenný Bergþórsdóttir Kristófer Þorri Magnússon Okkar ástkæri TRYGGVI ÞÓRIR HANNESSON Bakkastöðum 165, 112 Reykjavík, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju fimmudaginn 27. desember kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Valdís Vilhjálmsdóttir

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.