Fréttablaðið - 24.12.2012, Síða 38
24. desember 2012 MÁNUDAGUR| SPORT | 34
FRJÁLSAR „Heimsmeistaramótið
í Barcelona stendur náttúrulega
upp úr. Hún fór fram úr vænting-
um mínum þar ekki síst þar sem
heimsmeistaramót sautján ára og
yngri fer fram á næsta ári. Þegar
við vorum að plana árið 2012 sáum
við þetta mót fyrir okkur sem
tækifæri til þess að öðlast mikil-
væga reynslu sem hún myndi búa
að fyrir HM 17 ára og yngri árið
2013,“ segir Gunnar Páll Jóakims-
son, þjálfari Anítu.
Gunnar Páll segir að frammi-
staða Anítu á stóru unglingamóti í
Þýskalandi tæpum þremur vikum
fyrr hafi gefið tóninn. Þar bætti
hún 29 ára gamalt Íslandsmet
Ragnheiðar Ólafsdóttur úr FH og
ljóst að hún hefði alla burði til að
standa sig vel í Barcelona.
„Þá sá maður að það væri raun-
hæft að komast upp úr riðlinum og
kannski fimmtíu prósent líkur á
að komast í úrslit. En að komast í
úrslit og hvað þá að ná fjórða sæti
var framar mínum væntingum.
Hún var eina sextán ára stelpan
sem komst í úrslit og átti lakasta
tímann,“ segir Gunnar Páll greini-
lega stoltur.
Nýtir stressið til góðs
Að sögn þjálfara Anítu er helsti
styrkleiki Anítu að hún stendur
sig best í keppni. Það hafi vakið
athygli hans á árinu sem senn er
á enda.
„Hún nær að taka allt stressið
og fá útrásina á jákvæðan hátt.
Útkoman er sú að hún hleypur
hraðar. Hún gerir betur í keppn-
inni sjálfri en maður reiknaði
kannski með,“ segir Gunnar Páll.
Ekki vanti upp á frammistöðu á
æfingum en viljinn og keppnis-
skapið sé hennar styrkur.
Aníta bætti Íslandsmetið í 800
metrunum bæði í undanriðlun-
um og í úrslitahlaupinu í Barce-
lona. Íslandsmet hennar er 2:03,15
mínútur en fyrr á árinu bætti hún
Íslandsmetið innanhúss í sömu
grein. Metið var 35 ára gamalt og í
eigu Lilju Guðmundsdóttur. Aníta,
sem er á sínu fyrsta ári í mennta-
skóla, bætti metið um tæpar fjórar
sekúndur þegar hún hljóp á 2:05,96
mínútum á Reykjavíkurleikunum
í janúar.
Til þess að toppa árið bætti
Aníta Íslandsmetin í 600 og 1000
metra hlaupum innanhúss með
fjögurra daga millibili nú í des-
ember. Íslandsmetin eru því
þegar byrjuð að falla þótt keppn-
istímabilið innanhúss hefjist ekki
fyrir alvöru fyrr en eftir áramót.
Ætlar sér verðlaun í Úkraínu
Hápunktur Anítu á næsta ári verð-
ur heimsmeistaramót 17 ára og
yngri í Donetsk í Úkraínu um miðj-
an júlí. Aníta á besta tíma ársins
í aldursflokknum sem stendur og
stendur því vel að vígi.
„Þótt ég vilji ekki setja beint
pressu á okkur þá vitum við að
hún stefnir á að komast á verð-
launapall þar,“ segir Gunnar Páll.
Hann tekur undir með blaðamanni
að óþarfi sé að fara í felur með það
markmið enda sé það einfaldlega
raunhæft. Hún eigi í dag fimmta
besta tíma ársins í flokki 17 ára
og yngri. Allir sem séu fyrir ofan
hana verða 18 ára á næsta ári og
því ekki lengur gjaldgengir.
„Þannig að hún á raunverulega
besta tímann núna en það eru mjög
margar nálægt henni. Sú besta frá
Bandaríkjunum er til dæmis með
nokkurn veginn sama tíma,“ segir
Gunnar Páll og handan við hornið
eru fleiri efnilegar stelpur.
Auk HM 17 ára keppir Aníta
á EM 19 ára í Bandaríkjunum í
sumar auk þess sem vonir standa
til að hún komist á EM fullorðinna
innanhúss í Gautaborg í mars.
kolbeinntumi@365.is
SPORT
Stendur sig alltaf best í keppni
Hin 16 ára gamla Aníta Hinriksdótir hafnaði í fj órða sæti í 800 metra hlaupi á HM 19 ára og yngri auk þess sem hún bætti eldgömul
Íslandsmet í greininni innan- sem utanhúss á árinu. Að óbreyttu ætti árið 2013 að verða eft irminnilegt hjá hlaupakonunni efnilegu.
ÆFIR MEÐ STRÁKUNUM Aníta er langfljótasta stelpan í sínum aldursflokki.„Strákarnir hafa skapað henni æfingaumhverfi sem
er mjög gott. Þeir eiga sinn hluta og þátt í þessum árangri,” segir Gunnar Páll. MYND/BJÖRN GUÐMUNDSSON
Hún nær að taka
allt stressið og fá útrás-
ina á jákvæðan hátt.
Útkoman er sú að hún
hleypur hraðar.
Gunnar Páll Jóakimsson, þjálfari Anítu
FÓTBOLTI Þóra Björg var
stödd í verslunarmiðstöð í
Melbourne þegar undirritað-
ur náði af henni tali í gær. „Ég er
í helvíti ef svo mætti að orði kom-
ast. Það er að nálgast miðnætti á
Þorláksmessu. Það er svo mikil
stappa af fólki að ég hef aldrei
séð annað eins,“ sagði lands-
liðsmarkvörðurinn sem varði
mark Western Sydney Wande-
rers í 3-1 tapi gegn Melbourne
Victory á laugardaginn.
„Þetta var reyndar gott lið en
við hefðum vel getað unnið þetta.
Ég gerði mistök og sem markvörð-
ur er það dýrt. En ef ég horfi fram
hjá mistökunum átti ég fínan leik.
Það er bara erfitt að líta fram hjá
einu mistökunum,“ segir Þóra.
Þegar tvær umferðir eru eftir af
deildarkeppninni er Sydney-liðið
í sjötta sæti.
„Efstu fjögur liðin fara í úrslita-
keppni. Útlitið er ekkert rosalega
bjart hjá okkur sem stendur. En
ef við vinnum næstu tvo leiki og
úrslit falla okkur í hag þá ættum
við að komast inn,“ segir Þóra.
Hún telur áströlsku deildina lík-
lega á pari við þá íslensku hvað
styrkleika varðar.
„Þær ná ekki að æfa jafnmikið
hérna enda getur fólk verið upp
í einn og hálfan tíma að keyra á
æfingu. Við getum því ekki æft
á hverjum degi enda eru þetta
ekki atvinnumenn,“ segir Þóra og
minnir á að kvennafótboltinn sé
ungur að árum í Ástralíu.
„Getumunur leikmanna í sama
liði getur verið mjög mikill. Þú
getur verið með ástralskan lands-
liðsmann og svo átján ára stelpu
sem er að stíga sín fyrstu skref.“
Þóra ber Ástralíu og Áströlum
afar vel söguna.
„Sydney er frábær og nú er ég
í Melbourne sem er ekki síðri.
Fólkið er bara meiriháttar. Það
eru allir svo indælir og hamingju-
samir. Þetta hefur verið frábært,“
segir Þóra sem verður í góðra
manni hópi á aðfangadag.
„Ég er á leið í 20-30 manna boð
hjá fólkinu sem ég bý hjá. Þetta
verður risafjölskylduboð með
þeirra fjölskyldu og vinum,“ segir
Þóra og hlakkar mikið til. Þóra
hefur lítið séð til kengúra í Sydney
en brúni ástralski snákurinn er þó
á sveimi.
„Hann var í heimreiðinni. Það
er víst annar eitraðasti snák-
ur í heimi. Við læddumst inn því
það má víst ekki hlaupa. Svo var
ég inni þar til hann var farinn,“
segir Þóra sem snýr aftur til LdB
Malmö í Svíþjóð eftir að Ástralíu-
ævintýrinu lýkur í janúar. -ktd
Allir indælir og hamingjusamir í Ástralíu
Þóra Björg Helgadóttir hefur spilað sem lánsmaður með Western Sydney Wanderers í Ástralíu undanfarnar
fi mm vikur. Landsliðsmarkvörðurinn hefur lítið séð af kengúrum en baneitraðir snákar hafa látið sjá sig.
VONAST EFTIR FRÍI Þóra Björg
vonast til þess að fá vikufrí í
Ástralíu áður en hún mætir til
æfinga hjá LdB Malmö á ný.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI „Við erum búnir að
vinna tólf leiki í röð og ekki tapað
frá því í október. Við erum á góðu
skriði,“ segir Jakob Örn sem er
á sínu fjórða tímabili með liðinu.
Leikstjórnandinn er í fimmta sæti
yfir fjölda stiga að meðaltali í leik
og er ánægður með gang mála.
„Mér finnst þetta vera besta
tímabilið mitt í Sundsvall. Ég
skoraði meira í fyrra en heilt yfir
gef ég liðinu meira núna. Ég nýti
skotin mín betur, hitti vel, svo ég
er ekki að taka skot frá öðrum,“
segir Jakob.
Jakob lék með íslenska landslið-
inu í undankeppni Evrópumótsins
í haust. Þá kom landsliðið saman
í fyrsta skipti í eitt ár og lék tíu
landsleiki á tæpum mánuði. Riðill
Íslands var líklega sá sterkasti í
undankeppninni en andstæðing-
arnir voru landslið Serba, Svart-
fjallalands, Ísraels, Eistlands og
Slóvakíu. Einn leikur vannst en
Jakob telur að leikmenn landsliðs-
ins hafi grætt mikið á verkefninu.
„Ég held við höfum örugglega
grætt á því. Sérstaklega við sem
erum ekki vanir að spila á þessu
stigi. Jón (Arnór Stefánsson) er
auðvitað vanur þessu úr ACB-
deildinni á Spáni. En aðrir, eins
og við Hlynur (Bæringsson) og
fleiri, fáum fá tækifæri til að spila
á svo háu getustigi,“ segir Jakob.
Vesturbæingurinn uppaldi þekkir
betur en flestir til landsliðsþjálfar-
ans Peters Öqvist því hann er einn-
ig þjálfari Sundsvall.
„Það er rosalega erfitt að setja
saman landslið eftir hlé og fara
beint í að spila við bestu þjóðir
Evrópu. Sérstaklega þegar menn
eru ekki einu sinni vanir að spila á
þessu stigi,“ segir Jakob Örn.
Á laugardaginn var birtur
árlegur listi íþróttafréttamanna
yfir þá tíu íþróttamenn sem þóttu
skara fram úr á árinu. Jón Arnór
komst ekki á listann sem Jakobi
þykir skrítið.
„Hann var auðvitað okkar besti
maður í Evrópukeppninni en líka
heilt yfir einn besti leikmaður
keppninnar. Svo hefur hann verið
að spila rosalega vel á Spáni svo
mér finnst mjög skrýtið að hann
hafi ekki komist á listann. Ég veit
ekki hvort hann þurfi að vinna
spænsku deildina til þess að hann
komist inn,“ segir Jakob en auk
hans er Hlynur Bæringsson á sínu
þriðja tímabili hjá liðinu..
„Hlynur er Hlynur. Hann er
að spila við stærri menn og er
næstfrákastahæstur í deildinni.
Hann skilar fáránlega miklu til
lisðins í framlagi því hann gerir
svon marga hluti. Hann skorar
kannski ekki mest en gerir svo
margt gott,“ segir Jakob Örn. - ktd
Besta tímabilið mitt í Sundsvall til þessa
Jakob Örn Sigurðarson og félagar hjá Sundsvall Dragons eru í toppsæti sænsku deildarinnar um jólin eft ir tólf sigurleiki í röð.
➜ Bestu tímar ársins
hjá ´96 árganginum
1. Aníta Hinriksdóttir, Ísland 2:03,15
2. Mary Cain, Bandaríkin 2:03,34
3. Dureti Edao, Eþíópía 2:05,26
4. Zeyetuna Mohmmed, Eþíópía 2:05,31
5. Raevin Rogers, Bandaríkin 2:05.50
Í EVRÓPUKEPPNINNI Íslenska landsliðið hafnaði í 5. sæti í riðli sínum. Liðið hafði
betur í innbyrðisleikjum gegn Slóvakíu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI