Fréttatíminn - 03.08.2012, Blaðsíða 20
ásamt því að spila á gítar og semja
lög. „Ég er ekkert sérstakur píanó-
leikari en ég hef allt aðra tengingu
við það núna. Ég hafði alveg gaman
af píanónáminu á sínum tíma en
þetta var ekkert sem ég hafði sjálf
ákveðið að ég vildi gera. Þetta var
meira svona skemmtileg skylda,“
segir hún og hlær, „sem er alls ekki
það sem ég er að upplifa með tónlist-
ina í dag. Það er engin skylda, bara
skemmtun.“
Eigum nóg efni fyrir sólarhring
Vala er nýbúin að stofna hljómsveit
ásamt tveimur vinkonum, Unni Söru
Eldjárn og Silju Rós Ragnarsdóttur,
sem syngja báðar og semja lög. „Við
erum alveg með nóg efni til að spila
í meira en sólarhring samfleytt,“
segir hún og hlær. Auk þeirra eru
í hljómsveitinni Borgþór Jónsson
bassaleikari, Helgi Reyr Guðmunds-
son trommari, Sindri Bergsson á gít-
ar og Jón Birgir Eiríksson píanóleik-
ari. Hljómsveitin hefur hlotið nafnið
Líparít. „Við stelpurnar ákváðum
bara að stofna hljómsveit og tíndum
saman úr öllum áttum einhverja
flinka stráka með okkur sem við
vissum að voru betri að spila á hljóð-
færi en við,“ segir Vala og hlær.
„Þetta er allt saman mjög nýtt en við
ætlum að koma fram á Menningar-
nótt, spilum í Iðnó klukkan þrjú.“
Aðspurð segist Vala ekkert hafa á
móti því að leggja fyrir sig tónlist-
ina. Hún segir það hins vegar ekki
auðveldasta starf í heimi og því sé
hún búin að skrá sig í sálfræði í Há-
skólanum í haust. Með því sameinar
hún starfsgreinar beggja foreldra
sinna því Ásta er náms- og starfsráð-
gjafi og reka þau saman Nemaforum
á Lækjartorgi, sem er menningar-
hús þar sem boðið er upp á nám-
skeið og tónleika.
Vala hefur einnig komið reglulega
fram með pabba sínum við ýmis
tækifæri, nú síðast á Tónlistarhá-
tíðinni Bræðslunni á Borgarfirði
eystra sem fram fór um helgina.
Stærsti viðburðurinn var hins vegar
60 ára afmælistónleikar Valgeirs
sem haldnir voru í Hörpu í árs-
byrjun. „Það var alveg stórkostleg
upplifun. Ég vissi ekkert hvað ég
var að koma mér út í enda hafði ég
bara verði búin að spila fyrir mest
50 manns þegar þetta var og svo
stend ég þarna fyrir framan heila
Eldborg,“ segir Vala. „Pabbi bað
mig um að gefa sér í afmælisgjöf að
syngja fyrir sig í Hörpu og ég gerði
það. Þetta var alveg sérstök upplifun
– og mögnuð.“
Mikill aðdáandi pabba síns
Hún viðurkennir að auðvitað geti
það hjálpað henni að komast áfram
í tónlistinni verandi dóttir Valgeirs
Guðjónssonar. „Auðvitað fæ ég
tækifæri sem ég fengi kannski ekki
ef hann væri ekki pabbi minn. En ég
vona að það sé ekki eingöngu vegna
þess.“
Hún segist mikill aðdáandi pabba
síns. „Hann er fyrirmynd mín í
tónlist. Ég uppgötvaði Spilverk þjóð-
anna allt of seint og svo Stuðmenn
og Hrekkjusvínaplötuna. Ég er alveg
grjótharður aðdáandi tónlistarinnar
hans.“
Hún segir ómetanlegt að eiga
hann að í tónlistinni. „Hann er með
svo mikla reynslu og alltaf með góð
ráð. Hann kemur líka alltaf með
rosalega prófessjónal gagnrýni
þannig að ég get tekið mark á hon-
um og þar af leiðandi verið aðeins
ákveðnari og öruggari með það sem
ég er að gera.“
Þó svo að Vala sé komin með
eigin hljómsveit er hún ekki hætt að
koma fram með pabba sínum. „Nei,
alls ekki. Við ætlum næst að halda
tónleika í Nemaforum um verslunar-
mannahelgina.“
Krumma
Gylfaflöt 7,
112 Reykjavík
587-8700
www.krumma.is
Öryggi - Gæði - Leikur
Mikið úrval af
Lyra föndurvörum.
Verð 5.305 kr.
Nýtt mekkanó í
verkfæratöskum.
Verð 3.800-7.148.
BRIO náttúrulegir trékubbar 50 stk.
LEGO
há-og lágstafir.
Verð 6.500 kr.
Leikur að læra
margföldunartöfluna.
Verð 2.890 kr.
Verð 5.734 kr.
Stærfræðispil
Plus-Plus kubbarnir
eru vinsælir sem
kennslu- og leikefni
Um myglusvepp:
Rannsóknir hafa sýnt fram á tengsl á
milli þess að búa þar sem raki er við-
varandi og heilsufars. Sterkustu tengsl
eru á milli raka í húsnæði og astma,
öndunarfæraeinkenna og svefntruflana
þar sem raki er viðvarandi í gólfi. Raki
í steyptu gólfi getur valdið niðurbroti
efna í steypu, gólfefnum og límum sem
hefur neikvæð áhrif á gæði innilofts.
Þar sem raki er í steyptu gólfi er
algengara að íbúar finni til einkenna í
nefholi og hálsi en þar sem raki er ekki
til staðar.
Einkenni sem geta komið fram eru
talin upp hér:
Fullorðnir
Einkenni— koma ekki öll fram—ein-
staklingsbundið.
Þreyta, eða sífelldur höfuðverkur,
stundum eins og mígreni.
Ennisholubólgur, óþægindi og sí-
endurteknar sýkingar.
Hósti, þurrkur eða sviði í hálsi, eða
sviði í lungum, hrotur.
Tíð þvaglát, tíður niðurgangur eða
aðrar meltingartruflanir.
Sjóntruflanir, minnistruflanir,
snertiskyn, doði og dofi í útlimum,
ljósnæmni, rafmagnsviðkvæmni.
Jafnvægistruflanir,
Kvíði, þunglyndi, svefnvandamál.
Áreiti í slímhúð—öndunarfæri og
melting.
Þroti, bjúgur
Húðvandamál, þurrkur eða útbrot.
Liðverkir, stingir, eða aðrir óútskýrðir
verkir.
Fæðuóþol, óþol gegn t.d. hnetum,
brauði, msg, mjólkurvörum eða
öðru.
Þyngdaraukning eða þyngdartap án
skýringa
Einkenni eins og hjá börnum
Börn
Einstaklingsbundið hvaða einkenni
koma fram og hversu sterkt
Ef þessi einkenni koma fram án
eðlilegra skýringa
nefrennsli, hitasveiflur, eyrnaverkur,
þrýstingur í eyrum (eins og hellur),
hósti, astmi, lungnabólga, bronkítis
höfuðverkur eða einkenni frá
ennisholum.
útbrot (líkt exem), þurr húð, roða
í kinnar, rauða flekki í framan, þurra
bletti eða sprungna húð, kláði.
sveppasýking á bleyjusvæði eða
annars staðar
tíðar sýkingar, RS og bakteríur
verk í fætur eða liðamót—oft framan
á sköflungi eða í hnjám
Magakrampi, meltingartruflanir,
niðurgangur eða harðlífi.
Óróleiki, athyglisbrestur og einkenni
ofvirkni, einbeitingarskortur, skap-
brestir.
Í slæmum tilfellum hægist á þroska
og einkenni frá taugakerfi koma fram.
Fæðuóþol t.d mjólkurvörur ofl.
Rétt þykir að benda á að það eru aðrir
umhverfisþættir sem geta haft neikvæð
áhrif á loftgæði innandyra. Það eru
neikvæð tengsl á milli raka í húsnæði
og heilsu.
Ef grunur leikur á að myglusveppir
vaxi í húsnæði er mikilvægast að finna
upptök raka og ástæðu fyrir því að
þeir nái að vaxa. Myglusveppir geta
ekki vaxið nema þar sem raki er til
staðar. Raki getur myndast til dæmis
þar sem húsnæði lekur, lagnir hafa
rofnað, einangrun er ábótavant eða
þar sem loftflæði er lítið. Afar brýnt er
að bregðast fljótt og örugglega við ef
vatnstjón á sér stað og koma í veg fyrir
að byggingarefni séu blaut.
Gró myglusveppa eru alls staðar
loftborin. Myglusveppir verða ekki
vandamál innandyra nema þar sem
raki er óeðlilega mikill í lofti eða í
byggingarefnum og gróin vaxa upp og
mynda myglu.
Af husogheilsa.is
Pabbi er fyrirmynd mín í tónlist. Ég uppgötvaði Spilverk þjóðanna allt of seint og svo
Stuðmenn og Hrekkjusvínaplötuna. Ég er alveg grjótharður aðdáandi tónlistarinnar hans.
Auðvitað fæ ég tækifæri sem ég fengi kannski
ekki ef hann væri ekki pabbi minn. En ég vona
að það sé ekki eingöngu vegna þess.
20 viðtal Helgin 3.-5. ágúst 2012