Fréttatíminn


Fréttatíminn - 03.08.2012, Blaðsíða 43

Fréttatíminn - 03.08.2012, Blaðsíða 43
tíska 43Helgin 3.-5. ágúst 2012 Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460 www.belladonna.is VERTU Í TAKT VIÐ ÓLYMPÍULEIKANA Í LONDON 2012 C o c a -C o la ; C o ke ´a n d t h e C o c a -C o la ´c o n to u r b o tt le a re t ra d e m a rk s o f T h e C o c a -C o la C o m p a n y. © 2 0 12 T h e C o c a -C o la C o m p a n y. Stígvél fyrir helgina s.512 1733 - s.512 7733 Kringlan - Smáralind www.ntc.is | erum á Doppótt stígvél/3 litir 7.995.- Há stígvél/2 litir 7.995.- Ökklastígvél m/stroffi 7.995.- Barnastígvél/2 litir 5.995.- Ökklastígvél m/slaufu 5.995.- Kendall sat fyrir hjá Victoria's Secret Hin sextán ára Kendall Jenner, næst yngsta Kardashian systirin, fetar nú í fótspor ofurfyrirsætna á borð við Naomi Camp- bell, Andriana Lima og Gisele Bündchen, en í fyrr í vikunni var henni flogið til New York þar sem hún sat fyrir hjá nærfatafyrirtækinu Victoria's Secret. Mikil gagnrýni hefur heyrst vegna þessa samstarfs, en mörgum finnst hún of ung til þess að sitja fyrir í kynþokka- fullum undirfötum. Kendall lætur þó ekki svona gagn- rýni stoppa sig og heldur hún áfram að eltast við drauminn. Fyrirsætuferill hennar hefur risið hratt síðustu mánuði, en hún tók þá ákvörðun fyrr á árinu að hætta í menntaskólanum til þess að sinna ferlinum betur. Gallabuxnalína fyrir konur í stærri stærðum Kardashian þríeykið, þær Kim, Khloe og Kourt- ney, leggja nú lokahönd á nýja gallabuxnalínu sem ætluð er fyrir konur í yfirstærð. Sjálfar eru þær þekktar fyrir sínar kvenlegu línur og vita þær því nákvæmlega hvernig gallabuxur þær þurfa að framleiða fyrir konur í stærri stærðum. Línan mun heita Kardahsian Kurves og mun vera seld í verslunum Sears í haust á við- ráðanlegu verði. Í þetta sinn munu systurnar ekki taka þátt í auglýs- ingaherferð línunnar og leita þær nú eftir stelpum í aðdáendahópi þeirra til þess að vera andlit línunnar. Margar umsóknir hafa borist en aðeins ein stelpa verður fyrir valinu og mun hún verða talsmaður línunnar í ár. Tískudrottning í Glee Leikkonan Sara Jessica Parker mun birtast áhorfendum þáttarins Glee í nýjustu þáttaröðinni sem sýnd verður í haust. Leikkonan mun leika ritstjóra tískutímarits en ekki er enn vitað hvernig hún á að tengist öðrum karakterum þáttarins. Hún verður vel klædd að vanda og mun engin önnur en ritstýra bandaríska Vogue, Anna Wintour, sjá um búningaval Söru fyrir þáttinn. Jeremy Scott, aðallhönnuður Adidas, frumsýndi nýjustu haustlínuna á dög- unum, sem var eins frumleg og við mátti búast. Bangsar, dýramynstur og lita- gleði eru áberandi og er hönnuðurinn duglegur að blanda saman and- stæðum. Línan hefur fengið góðar undirtektir og er hún væntanleg á Bandaríkjamarkað í næsta mánuði. Litrík haustlína frá Jeremy Scott

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.