Fréttatíminn - 03.08.2012, Blaðsíða 26
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Framkvæmdastjóri:
Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í
82.000 eintökum í Landsprenti.
L
Loðdýrarækt hérlendis blómstrar. Liðin
er sú tíð þegar allt gekk á afturfótunum
í greininni. Loðdýrabændur sjálfir tóku
sér tak fyrir meira en áratug og endur-
skipulögðu atvinnuveginn. Árangurinn
hefur ekki látið á sér standa. Íslenskir loð-
dýrabændur, það er að segja framleiðendur
minkaskinna, eru með þeim allra fremstu
í heiminum í framleiðslu og framleiðslu-
verðmæti. Þrjú lönd skara
þar fram úr, Danir, Íslend-
ingar og Norðmenn. Norð-
menn voru í öðru sæti á eftir
Dönum, hvað varðar verð og
gæði, en fyrir tveimur árum
tóku Íslendingar það yfir.
Það var vitlaust gefið í
upphafi loðdýraræktar hér
á landi og vandinn sem þá
var heimatilbúinn. Loðdýra-
rækt var ekki sett á lagg-
irnar á eigin forsendum heldur til lausnar
á vanda sauðfjárræktar og byggðaþróunar
í landinu. Fólki var att út í greinina með
óraunsærri lánafyrirgreiðslu og peninga-
austri en grunnstoðirnar gleymdist að
reisa, fóðurstöðvar, þekkingu og viðhald
hennar. Fóðurverð var allt of hátt og fóðrið
lélegt. Þetta var ávísun á að illa færi – sem
og varð.
Loðdýrabændur litu þá í eigin barm og
hafa breytt vandræðum og taprekstri í
vel rekna atvinnugrein sem veitir vinnu í
dreifðari byggðum og skilar þjóðarbúinu
dýrmætum gjaldeyri. Farið var í innflutn-
ing á erfðaefnum úr dýrum og því hefur
verið haldið áfram síðan, það besta keypt
frá Danmörku. Bændur fóru á námskeið
hérlendis og erlendis, sýningar voru sóttar
ytra, auk þess sem ráðunautar og aðrir
sérfræðingar voru fengnir hingað til lands.
Fóðurstöðvar nýta fiskúrgang, úrgang frá
sláturhúsum og kjötvinnslustöðvum en
ella færi mikið af þessum úrgangi í urðun.
Vandamáli er því breytt í peninga. Með
seiglu og þrautseigju náðist frábær árang-
ur. Því uppskera loðdýrabændur nú.
Í úttekt Fréttatímans á loðdýrarækt í
fyrra kom fram að heildarverðmæti grein-
arinnar losaði milljarð króna sem skilar sér
nánast í hreinum gjaldeyri því lítið er flutt
inn til búanna. Björn Halldórsson, formað-
ur Sambands loðdýrabænda, hélt því fram
þá að allar aðstæður hér á landi væru til að
tífalda framleiðsluna. Þá væri verið að tala
um verðmæti sem næmi hálfri loðnuver-
tíð. Sú þróun er hafin því loðdýrabændum
fjölgar um tæpan fjórðung á þessu ári. Þrír
nýir loðdýrabændur tóku til starfa í vor og
að minnsta kosti tveir hefja loðdýrarækt í
haust en fyrir voru búin 22. Ungir nýliðar
koma inn í greinina. Þróunin er því jákvæð
og bjartsýni ríkir. Góður árangur hefur
aukið loðdýrabændum sjálfstraust.
Íslenskir loðdýrabændur ganga inn í
öflugt kerfi í Danmörku en uppboðshúsin
í Danmörku eru með tæplega helming
allrar minkaskinnasölu í heiminum og
ráðandi í krafti stærðarinnar. Íslensk
minkaskinn eru meðal þeirra dýrustu sem
seljast nú en um þriðjungur alls útflutnings
skinna frá Danmörku fer til Kína. Hinn
mikli efnahagsuppgangur þar hefur leitt til
þess að fjöldi Kínverja er orðinn mjög auð-
ugur og sækir í dýra vestræna vöru, þar á
meðal pelsa.
Víða um lönd eru samtök fólks sem
leggjast gegn framleiðslu skinna. Um
skinnaframleiðslu og framleiðslu kjöts
gildir hins vegar í meginatriðum hið sama,
að vel sé búið að dýrunum og að sómasam-
lega sé staðið að slátrun þeirra. Það hversu
Íslendingar standa framarlega í þessari
grein sýnir að vel er að þeim málum staðið.
Þeir sem til loðdýraræktar þekkja vita að
bestu afurðirnar koma frá búum þar sem
vandað er til verka og aðbúnaður dýranna
er góður.
Íslenskir loðdýrabændur meðal þeirra fremstu í greininni
Uppskera að verðleikum
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Frídagur verslunarmanna
Frítökuréttur ætti að fylgja
Þ ann 13. september 1894 hélt verslunarfólk á Íslandi frídag versl-unarmanna hátíðlegan í fyrsta sinn.
Gerðist það skömmu eftir að flestir kaup-
menn Reykjavíkur höfðu lýst því yfir á fé-
lagsfundi í VR að þeir vildu gefa starfsfólki
sínu frí til skemmtanahalds. Hugmyndin
var sótt til Danmerkur og má segja að hún
sé fyrsti vísirinn að orlofi á vinnumark-
aði hér á landi. Til þess að tryggt yrði að
dagurinn nýttist sem best tók VR að sér
skipulagningu hátíðardagskrár sem hófst
með skrúðgöngu frá Lækjartorgi að Ár-
túnum. Þar var deginum varið í ræðuhöld,
leiki, söng og aðra skemmtidagskrá. Undir
kvöld var gengið aftur inn til Reykjavíkur
og að Lækjartorgi. Var gleði fólks yfir velheppnuðum
degi svo rík að hrópað var nífalt húrra fyrir honum og
þá einkum í þeirri von að leikurinn yrði endurtekinn
að ári.
Árin eftir 1894 var dagurinn haldinn hátíðlegur ein-
hvern mánudag í september eða ágúst. Það var hins
vegar árið 1931 sem fyrsti mánudagur í ágúst var
fastsettur frídagur verslunarmanna. Það tengdist m.a.
breytingu á samþykkt um lokunartíma verslana. Á
öllum tímum hefur dagurinn verið haldinn hátíðlegur
þó yfirbragð hans hafi sannarlega breyst og aðrar há-
tíðir í tengslum við daginn hlotið meiri athygli. Þar ber
helst að nefna hina miklu þjóðhátíð í Vestmannaeyjum
sem fáar samkomur jafnast á við en sú hátíð dregur
heiti sitt af þjóðhátíðinni sem haldin var 2. ágúst 1874 í
tilefni þúsund ára byggðar á Íslandi.
Draga þarf skýra línu
Í aðdraganda verslunarmannahelgar í fyrra velti ég
upp spurningum er lúta að stöðu verslunarfólks gagn-
vart þessari mestu ferðahelgi ársins. Oft hefur fólk á
orði að einkennilegt sé að eina fólkið sem raunverulega
þurfi að vinna á frídegi verslunarmanna sé verslunar-
fólk. Að sjálfsögðu er það ekki allskostar rétt, margar
stéttir leggja sitt af mörkum til samfélags-
ins þennan tiltekna dag eins og aðra. Má
þar m.a. nefna lögreglumenn og heilbrigð-
isstarfsfólk. Það breytir þó ekki þeirri stað-
reynd að verslunarfólk, sem þessi dagur er
sérstaklega helgaður, þarf í alltof mörgum
tilvikum að standa vaktina þegar það ætti
einmitt að njóta dagsins fjarri skyldustörf-
um.
Þeir sem starfa á grundvelli kjarasamn-
ings VR og SA/FA og standa vaktina fyrsta
mánudag í ágúst fá fyrir það greitt svokallað
stórhátíðaálag sem er tímakaup sem nemur
1,375% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu.
Það álag reiknast um níu stórhátíðir yfir árið.
Sérstaða dagsins
Þar sem frídagur verslunarmanna hefur þá sérstöðu að
vera helgaður verslunarfólki sérstaklega, tel ég að rétt
væri að sérregla ætti að gilda um hann, þ.e. að þeir sem
vinni fyrsta mánudag í ágúst, fái ásamt hinu umsamda
álagi, frítökurétt annan eða þriðja mánudag ágústmán-
aðar þess sama árs og vinnan er innt af hendi. Með
því móti er unnt að koma til móts við atvinnurekendur
sem hagsmuni hafa af því að bjóða þjónustu fyrir-
tækja sinna á þessum frídegi og einnig komið í veg
fyrir að hagsmunir stangist á, þ.e. frítökuréttur fólks
og þægindi þeirra sem ferðast um landið og vilja njóta
þjónustu af ýmsu tagi. En um leið yrði mikilvægi þessa
hátíðisdags undirstrikað og það áréttað að hið upp-
haflega markmið kaupmanna með deginum stendur
jafngilt nú sem fyrr, þ.e. að njóta frís og frístunda frá
amstri hversdagsins og að það verði ekki aðeins lagt
að jöfnu við 90% stórhátíðaálag heldur viðurkennt með
raunverulegum frítíma. Atvinnurekendum væri mikill
sómi af því að grípa boltann á lofti frá forvígismönnum
verslunarstéttarinnar á 19. öld. Vonandi verða þeir
til viðræðu um þetta atriði þegar næst verður sest að
samningaborði. Gleðilega þjóðhátíð – gleðilegan frídag
verslunarmanna!
Stefán Einar Stefánsson
Formaður Landssam-
bands íslenzkra verzl-
unarmanna og VR
WWW.SENA.IS/TOTALRECALL
FULLT AF VINNINGUM:
BÍÓMIÐAR
TÖLVULEIKIR - DVD MYNDIR - GOS OG FLEIRA!
SENDU SMS SKEYTIÐ
ESL TOTAL
Á NÚMERIÐ 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
9. HVER
VINNUR!
FJÖLDI
AUKAVINNINGA
VINNINGAR AFHENTIR Í ELKO LINDUM. 199 KR/SKEYTIÐ.
MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB.
HVAÐ ER RAUNVERULEGT?
VILTU
VINNA
MIÐA?
FRUMSÝND 8. ÁGÚST
26 viðhorf Helgin 3.-5. ágúst 2012