Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.08.2012, Qupperneq 6

Fréttatíminn - 17.08.2012, Qupperneq 6
Kraftur í kortaveltu 4% RaunvöxtuR koRtaveltu Júlí 2012 m.v. julí 2011 Seðlabankinn Hólaskógur er á sunn- anverðum Gnúpverjaa- frétti. Stutt er þaðan að Háa- fossi, einum fegursta fossi landsins  Hálendið árbúðir, Gíslaskáli, Fremstaver, HólaskóGur oG skálinn Vinsælir fjallaskálar á Kili Hjónin vilborg Guðmundsdóttir og loftur Jónasson eiga fyrirtækið Gljástein sem rekur fjóra fjallaskála á Kili og Gnúpverjaafrétti, auk fimmta skálans heima á Myrkholti í Biskupstungum. Skálarnir eru vel sóttir af ferða- og hestamönnum. F erðir um hálendi Íslands gerast æ vinsælli og gott er að vita af góðum áningarstöðum þegar leið liggur þangað. Hjónin Vilborg Guðmunds- dóttir og Loftur Jónasson á Myrkholti í Biskupstung- um, mitt á milli Gullfoss og Geysis, eiga fyrirtækið Gljástein sem leigir út fjóra fjallaskála á Kili, auk þess sem þau byggðu nýjan gistiskála heima á Myrkholti sem veitir sömu þjónustu. „Við byrjuðum árið 2006 þegar við leigðum þrjá skála af Bláskógabyggð, Árbúðir, Gíslaskála og Fremstaver. Síðan byggðum við Skálann á Myrkholti en hann er rekinn eins og fjallaskálarnir,“ segir Vil- borg. „Í vor leigðum við síðan Hólaskóg, stóran skála af Skeiða- og Gnúpverjahreppi.“ Árbúðir eru skáli við Kjalveg, við Svartártorfur á bökkum Svartár. Húsið rúmar 30 manns í gistingu. Þar er góð aðstaða til matseldar, vatnssalerni og sturta. Öll aðstaða er fyrir hross, hestagerði, heysala og stórt hesthús. Frá Árbúðum er stutt í náttúruperl- una Hvítárnes. Þau hjónin reka kaffihús í Árbúðum. Þar er meðal annars hægt að fá heita súpu og brauð í hádeginu, auk þess sem þau selja þar lopavörur og fleira. „Það er búið að vera mikið að gera í sumar, margir sem koma og fá sér súpu,“ segir Vilborg. Gíslaskáli er í ósnortnu umhverfi í jaðri Kjalhrauns. Þar eru upptök Svartár en henni má fylgja allt niður í Árbúðir, hvort heldur er ríðandi eða gangandi. Í Kjalhrauni eru slóðir Reynisstaðabræðra. Stutt er í Gránunes og gömlu vörðuðu leiðina að Beinhóli og Grettishelli má ganga fram og til baka á einum degi. Austan við Svartárbotna rennur Jökulfallið í gljúfrum. Þar er merkt gönguleið. Fyrir þá sem eru á bíl er stutt að Hveravöllum og í Kerlingarfjöll. Gíslaskáli rúmar 45-50 manns í sex herbergjum. Aðstaða til matseldar er góð, borðstofa, tvær setustofur, vatnssalerni og sturta. Í Svartárbotnum er öll aðstaða fyrir hross. Skálinn í Fremstaveri er sunnan undir Bláfelli. Hús- ið rúmar 25 manns. Þar er góð aðstaða til matseldar og vatnssalerni. Austan við Bláfell rennur Hvítá í gljúfrum og bugðum. Frá fjallinu er útsýni vítt. Nýlegur gististaður er síðan Skálinn á Myrkholti, í alfaraleið milli Gullfoss og Geysis. Hann rúmar 32 í gistingu í átta fjögurra manna herbergjum. Eldhús er fullbúið, snyrti- og baðaðstaða, borðstofa og setustofa. Á Myrkholti er hestaleiga og öll aðstaða fyrir hross. Gústaf, sonur Vilborgar og Lofts, sér um hestana. Í nágrenni Skálans eru göngu- og reiðleiðir, að Gull- fossi og Geysi, um Brúarhlöð við Hvítá og Haukadals- skóg. Hólaskógur er á sunnanverðum Gnúpverjaafrétti á milli virkjananna í Búrfelli og Sultartanga. Þangað liggur slóði frá aðalveginum og áfram við línuveg ofan Háafoss, að Tungufelli í Hrunamannahreppi. Einnig er hægt að komast í Hólaskóg um Þjórsárdal, grófan veg upp með Gjánni. Hólaskógur er tveggja hæða hús sem rúmar 65 manns. Eldhús er á báðum hæðum, borðstofa, vatnssalerni og sturta. Öll aðstaða er fyrir hross. Vilborg segir að upphaflega hafi fjallaskálarnir verið fyrir hestamenn og gangnamenn noti þá þegar þörf er í leitum en nú hafi bæst við ferðaskrifstofur sem panti fyrir sitt fólk. Eins hafa stórfjölskyldur tekið skálana á leigu yfir helgar. Skálaverðir eru í hús- unum fram að mánaðamótum ágúst og september en eftir það sjá þau hjón til hvernig umferð verður. „Við skúrum svo skóla og leikskóla yfir veturinn,“ segir Vilborg. „Þetta fer ágætlega saman.“ Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is eigendur katta sýni ábyrgð Nær þrjú hundruð óskilakettir komu í Kattholt á tímabilinu frá 1. maí til 7. ágúst. Að sögn Önnu Kristine Magnúsdóttur, formanns Kattavinafélags Íslands, ríkir neyðarástand í Kattholti. Því skorar stjórn kattavinafélagsins á eigendur katta að láta gelda högna og gera ófrjósemisaðgerðir á læðum. Meira áríðandi og minna mál er að gelda högnana. Aðeins hluti kattanna komst heim til sín, aðrir voru teknir á góð heimili en marga þurfti að svæfa. „Stjórn kattavinafélagsins er orðin lang- þreytt á hversu litla ábyrgð margir kattaeigendur taka á dýrum sínum,“ segir í tilkynningu hennar. „Eins og sakir standa nú, er Kattholt yfirfullt og stöðugt berast beiðnir um að við tökum að okkur fleiri ketti. Þetta er ekkert líf fyrir dýrin og við höfum leitað allra leiða til að koma í veg fyrir of- fjölgun katta, án nokkurs árangurs. Eina vonin til að ástandið batni er að kattaeigendur fari að axla þá ábyrgð sem fylgir því að eiga kött.“ - jh Vöxtur einkaneyslu fer mjög vel af stað á þriðja ársfjórð- ungi samkvæmt vísbendingum sem tölur Seðlabankans um kortaveltu gefa til kynna. Samkvæmt þeim nam raun- vöxtur í kortanotkun einstaklinga innanlands 4 prósent í júlí samanborið við sama mánuð í fyrra, en kortavelta á þann mælikvarða gefur mjög góða vísbendingu um þróun einkaneyslu sem vegur um helming landsframleiðslunnar, að því er fram kemur hjá Greiningu Íslandsbanka. Fyrstu 7 mánuði ársins hefur kortavelta aukist um 3,3 prósent að raungildi frá sama tímabili fyrra árs. Umtalsverður vöxtur varð í kortaveltu Íslendinga erlendis í júlí, um 10,1% að raungildi frá sama tímabili fyrra árs. Erlend kortavelta hér á landi jókst um 15,3% í júlí frá sama mánuði í fyrra. - jh atvinnuleysi kom- ið niður í 4,7% Skráð atvinnuleysi mældist 4,7% í júlí og var 0,1 prósentustigi minna en í júní samkvæmt tölum vinnumálastofnunar. atvinnu- leysi hefur ekki verið minna síðan í nóvember árið 2008. Að meðaltali voru 8.372 án atvinnu í maí og fækkaði þeim um 332 manns milli mánaða. Í sama mánuði í fyrra voru að meðaltali 11.423 manns án atvinnu, eða um 6,6% af vinnuafli. Hraðar hefur dregið út atvinnuleysi á árinu en almennt var reiknað með. Í spám innlendra aðila er reiknað með að atvinnuleysi verði að jafnaði um 6,0-6,3 prósent á árinu. - jh OYSTER PERPETUAL GMT-MASTER II Michelsen_255x50_H_0612.indd 1 01.06.12 07:22 AFMÆLISTILBOÐ 40 GERÐIR GRILLA í SÝNINGARSAL Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 Er frá Þýskalandi www.grillbudin.is 69.900 veður FöstudaGur lauGardaGur sunnudaGur ÚrKomulaust og yfirleitt noKKuð bJart. Höfuðborgarsvæðið: SkýJað MEð KÖFlUM, oG FrEMUr Hlýtt víða léttsKýJða, en rigning suðaustantil Höfuðborgarsvæðið: SólRÍkt oG áFrAM FrEMUr Hlýtt. bJart og Hlýtt vestan og norðantil, en meira sKýJað og sÚld austan- og sunnantil. Höfuðborgarsvæðið: ÞUrrt oG Sól MEð KÖFlUM. gæðaveður um helgina í reykjavík Þegar djúpar og víðáttumkilar lægðir hring- sóla langt suður í hafi beina þær til okkar mildu lofti án þess að það rigni að ráði. nú lítur út fyrir að slíkt verði upp á teningunum. á höfuðborgar- svæðinu er allt útlit fyrir að á laugardag verði bæði hlýtt og bjart. austanlands og suð- austanlands er hins vegar spáð rigningu á laugardag og á sunnudag. Skilin verða glögg við Vík og þar fyirr vestan mun skárra veður. 16 14 20 16 17 17 14 18 11 14 16 15 15 10 13 einar sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is 4 fréttir Helgin 17.-19. ágúst 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.