Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.08.2012, Side 8

Fréttatíminn - 17.08.2012, Side 8
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@ frettatiminn.is  SjónvarpSáhorf ólympíuleikarnir drógu áhorfendur frá keppinautum rÚv Stöð 2 missti þúsundir áhorfenda Ólympíuleikarnir léku Stöð 2 grátt. Næstum helmingur áhorfenda stöðvarinnar skipti yfir á RÚV. Tólf þúsundum færri horfðu að jafnaði á fréttir Stöðvar tvö fyrstu vikuna í ágúst miðað við um miðjan júlí. Þá horfðu 43 þúsund á Helgu Arnardóttur og félaga flytja fréttir dagsins, sam- kvæmt tölum Capacent. Um tíu þúsund slepptu helgarsportinu á Stöð 2 þennan fyrsta sunnudag ágústmánaðar, sem er vinsælasti sjón- varpsliður stöðvarinnar, sé miðað við tölurnar hálfum mán- uði fyrr. Sjónvarpsáhorfendur eyddu 75 prósent lengri tíma með stillt á RÚV fyrstu vikuna í ágúst en þeir gerðu hálfum mánuði fyrr og fyrir Ólympíuleika. Nærri helmingur þeirra sem horfði á sjónvarpið um miðjan júlí völdu RÚV og 70 prósent sjónvarpsáhorfenda hálfum mánuði síðar, þegar frjálsíþróttakeppnin var í fullum gangi. Mest sátu 135 þúsund landsmanna við sjónvarpið yfir íslensku strákunum í handboltanum á Ólympíleikunum (58 prósent). 27,5 prósent horfði á sundið, sem voru þrír vinsælustu dagskrárliðirnir þessa vikuna. Athygli vekur að sex-fréttatími Sjónvarpsins, aðalfrétta- tíminn sem færðist fram um klukkustund vegna leikanna, komst ekki á topp tíu yfir vinsælustu þætti. Að jafnaði er aðalfréttatíminn meðal vinsælustu dagskrárliða. En Tíu- fréttir vermdu fjórða sætið (27,5%) með 62 þúsund áhorf- endur, tvöfalt fleiri en á aðalfréttatíma Stöðvar 2 þessa vik- una og tuttugu þúsundum fleiri en horfðu á Tíufréttirnar hálfum mánuði fyrr. Ásdís Hjálmsdóttir spjótkastari var fánaberi Íslands. Mynd: NordicPhotos/Getty Þúsundir dýra, oftast innfluttar rottur og mýs, eru notaðar í tilraunaskyni hér á landi á ári. Rannsókn á bættri aðferð við beinbrotum krafðist þess að kindur væru fótbrotnar fyrir tveimur árum. Læknar af Landspítalanum og norrænir starfsbræður þeirra stóðu að beinbrots- rannsókninni undir ströngum kröfum um aðbúnað og verkjastillandi meðferð dýr- anna, segir Sigríður Björnsdóttir, fulltrúi í tilraunadýranefnd yfirvalda. Nefndin veitir öll leyfi til rannsókna á dýrum hér á landi. „Hér gerir enginn sársaukafulla tilraun á dýri án þess að verkjastillandi meðhöndl- un sé þaulhugsuð og alveg í hámarki,“ seg- ir hún og að þessi rannsókn hafi verið gerð í von um að flýta mætti því að bein greru og bjarga fólki með ljót beinbrot. Sif Traustadóttir, formaður Dýravernd- arsamtaka Íslands, segir samtökin ein- göngu fylgjandi tilraunum á dýrum, ef tryggt er að þau þjáist ekki og alls ekki sé hægt að gera tilraunirnar með öðrum hætti. „Og það á að finna leiðir til þess að gera þessar rannsóknir án dýra. Það er yfirleitt hægt.“ Sigríður segir dýratilraunir algengastar hjá Háskóla Íslands; innan læknadeildar og lífeðlisfræðisdeildar. „Þá eru gerðar lyfjaprófanir og þróanir sem krefjast þess- ara rannsókna.“ Hún segir að ekki hafi þurft að stöðva tilraunadýrarannsóknir hér á landi þar sem rangt hafi verið að þeim staðið. „Við höfum sett eftirlitsmenn á rann- sóknir sem hafa verið sársaukafullar fyrir dýrin. Þá þarf að aflífa þau strax og því höfum við aukið ytra eftirlit.“ Sigríður seg- ir slíkar rannsóknir ekki algengar. Meðal sársaukafullra lyfjarannsókna séu þær þar sem ertandi efni eru notuð á dýrin til að framkalla bólgur í þeim. Sigríður segir að um tíma hafi stefnt í að rannsóknir á tilraunadýrum yrðu um- fangsmeiri á landinu, því DeCode hafi staðið að lyfjaþróun. „En það varð ekki úr því.“ Hún segir framsækið lítið fyrir- tæki hér á landi einnig taka að sér lyfjapróf- anir fyrir erlend fyrirtæki. „Þetta er þó til þess að gera á smáum skala hér á landi. Við erum með evrópska löggjöf og enginn hvati fyrir fyrirtæki að sækja hingað til að komast undan dýra- verndarákvæðum,“ segir Sigríður. Til- raunir á dýrum hér á landi séu mun fátíð- ari en á hinum Norðurlöndunum. „Dýratilraunir eru mjög dýrar og rann- sóknarsjóðir tómir svo mun minna er um þessar rannsóknir en ella.“  rannSóknir innfluttar rottur og mýS algengaStar í íSlenSkum tilraunum Kindur fótbrotnar í þágu læknavísinda Þúsundir dýra eru notaðar í tilraunir hér á landi á hverju ári. Oftast verða rottur og mýs, sem fluttar eru til landsins, tilraununum að bráð. Fyrir tveimur árum voru íslenskar kindur bein- brotnar í von um að flýta mætti því að bein greru og bjarga fólki með ljót bein- brot. Ertandi efnum er dælt í rottur við lyfjapróf- anir. Blóðtaka úr hryss- um gera þær að tilrauna- dýrum Blóðtaka úr fylfullum hryssum til lyfjaframleiðslu er meðal þess sem sækja þarf um til tilraunadýra- nefndar. Sif Traustadóttir, formaður Dýraverndar- félags Íslands og dýralækn- ir, segir blóð tekið úr hryss- unum yfir sumartímann. Það sé gert í nokkur skipti og úr því unnin hormón sem finna megi í þeim fyl- fullum. „Mig grunar að þetta gangi nærri hryss- unum. Mér finnst tekið mikið blóð úr þeim og hef áhyggjur af því hvernig þær spjara sig,“ segir hún. - gag Innfluttar rottur og mýs verða helst fyrir barðinu á vísindunum hér á landi sem annars staðar. Mynd/gettyimages Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is 6 fréttir Helgin 17.-19. ágúst 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.