Fréttatíminn - 17.08.2012, Side 10
Veitingastaðir tVeggja ára leit að húsnæði lokið
Russell Crowe í
hlutverki arkar-
smiðsins Nóa
sem væntanlega
mun þurfa
að vinda sér
undan íslensku
víkingasverði í
öflugri sveiflu í
biblíusögumynd
Darrens Aronof-
skys, Noah.
Subway aftur í miðbæinn
„Þetta var orðið tímabært,“ segir
Gunnar Skúli Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Stjörnunnar sem
rekur Subway-staðina á Íslandi.
Fyrirtækið hefur fest sér hús-
næði fyrir nýjan Subway-stað í
miðborg Reykjavíkur. Nýi staður-
inn verður í Bankastræti 14, þar
sem Pizza Pronto var áður til húsa.
Gunnar Skúli segir að væntanlega
verði hann opnaður í næsta mán-
uði.
Um tvö ár eru nú liðin síðan
Subway-staðnum í Austurstræti
var lokað. Gunnar Skúli segir að
það húsnæði hafi verið á þremur
hæðum og ekki nógu hentugt fyrir
Subway. Leit hefur staðið að hent-
ugu húsnæði síðan.
Pítsustaðurinn sem áður var
rekinn í húsnæðinu var vinsæll
viðkomustaður skemmtanaglaðra
Reykvíkinga. Gunnar Skúli býst
fastlega við því að Subway verði op-
inn eitthvað frameftir. „Það verður
mjög líklega einhver nætursala
þarna.“ -hdm
Nýr Subway-staður verður opnaður í
Bankastræti í næsta mánuði. Ljósmynd/Hari
reykVískir Víkingar lánuðu sVerð sín í stórmyndina noah
Vopnlausir víkingar
á Menningarnótt
Eins og fornar sögur segja okkur þarf mikið að ganga á til þess að víkingar láti sverð sín frá sér
og þá helst ekki fyrr en búið er að senda þá til Valhallar og hægt er að slíta þau úr kaldri, dauðri
hendi þeirra. Einherjarnir í Víkingafélagi Reykjavíkur eru hins vegar slíkir höfðingjar heim að
sækja að þeir lánuðu sverð sín fúslega fyrir tökur á stórmyndinni Noah og næsta víst er að Rus-
sell Crowe muni standa andspænis illmenni sem sveiflar íslensku sverði í myndinni.
É g veit ekki hvað kom til. Kannski gleymdi leikmunadeildin sverðunum sínum í Bandaríkjunum,“ segir Gunn-
ar Víkingur, jarl í víkingafélaginu Einherj-
um, þegar hann er spurður hvað varð til þess
að hann og félagar hans voru beðnir um að
lána sverð sín í tökur á biblíusögu-
mynd Darrens Aronofsky, Noah,
sem er í tökum á Íslandi þessa
dagana. „Ég veit heldur ekki hvað
varð til þess að kvikmyndaliðið
leitaði til okkar. Ætli við séum
ekki bara svona flottir.“
Eins og alþjóð sjálfsagt veit er
leikstjórinn Darren Aronofsky á
Íslandi ásamt ekki ómerkari mann-
skap en Russell Crowe, Emmu
Watson og Anthony Hopkins við
tökur á Noah sem sækir innblástur
í söguna af Nóa og örkinni hans. Eitthvað
verður um vopnaglamur og átök í myndinni
og ljóst að einhverjir kappar muni beita ís-
lenskum víkingasverðum í atganginum.
„Þeir komu hingað í félagsheimilið okkar
í Nauthólsvík. Einn frá True North og einn
fulltrúi kvikmyndaversins og fengu að skoða
nokkur sverð. Þeir voru mjög hrifnir af
sverðinu mínu og mér var sagt að ein aðal-
persónan myndi nota það. Það er víst eitthvert
illmennið,“ segir Reykjavíkurjarlinn stoltur
og vongóður um að sverð hans muni komast í
návígi við Russell Crowe sem leikur Nóa.
Gunnar segir fulltrúa kvikmyndaversins
hafa litist mjög vel á aðstöðuna hjá Einherj-
unum sem hafa komið sér fyrir í herbragga
í Nauthólsvík þar sem þeir hafast við leigu-
laust í boði Reykjavíkurborgar. „Hann spurði
hvernig þeir gætu launað okkur greiðann en
okkur var bara sönn ánægja að því að lána
sverðin okkar í slíka stórmynd. Hann talaði
samt um að styrkja félagið eitthvað fjárhags-
lega en annars setti ég bara það eina skilyrði
að ég fengi sverðið mitt aftur. Ég bað líka
um mynd af leikaranum sem mun nota það
með sverðið á lofti og að hún væri árituð. Ég
sagðist líka ekkert hafa á móti því að fá eigin-
handaráritun frá þessum aðal köllum, Russell
Crowe og Anthony Hopkins.“
Þrír félagar Gunnar lánuðu einnig sverð sín
og Gunnar segir að eitthvað sé búið að eiga
við þau og breyta. „En við vildum alls ekki
selja sverðin og félagar mínir eru að hugsa
um að kaupa sér ný sverð og halda þessum
óbreyttum eins og þeim verður skilað eftir
tökur. Enda verða sverðin okkar miklu eigu-
legri gripir eftir þetta, eiginlega orðin söguleg
og það verður gaman að sjá þeim bregða fyrir
á hvíta tjaldinu. “ Lánið á sverðunum setti Ein-
herjana í klemmu þar sem þeir ætla að slá upp
tjaldi við Hallgrímskirkju á Menningarnótt,
kynna félagið og sýna bardaga. „Það verður
samt varla mikið úr bardagasýningunni þar
sem við erum eiginlega vopnlausir.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Gunnar Víkingur í fullum skrúða með sverðið góða sem hefur síðustu vikur verið í höndum illmennis sem gerir Russell Crowe
lífið leitt í stórmyndinni Noah. „Ætli ég fái sverðið nokkuð fyrr en tökum er alveg lokið en ég lagði mikla áherslu á að ég yrði að
fá sverðið til baka.“
Komdu á
rétta staðinn
og gerðu
góð kaup!
Brautarholti 8
Opið virka daga 9-18
og laugardaga 10-16
sími 517 7210 / www.idnu.is
Tilboðsverð:
4.990 kr.
Laugavegur
N
óa
tú
n
Brautarholt
Þ
ve
rh
ol
t
IÐNÚ
Hlemmur
Skipholt
Ný útgáfa á þes
sari vinsælu bók
skólavöruverslun
(G
ild
ir
ti
l 3
0.
á
gú
st
n
.k
.)
8 fréttir Helgin 17.-19. ágúst 2012