Fréttatíminn - 17.08.2012, Blaðsíða 12
Manchester United – 16 stig
„Hefðin hjá United mun sigra peningana hjá
City.“
„Þótt Sir Alex sé kominn á grafarbakkann
er enn nægur kraftur í honum til að vinna 20.
deildartitil United. Þó það sé erfitt að skáka
frammistöðunni á síðustu leiktíð verður Liverpool samt von-
brigði leiktíðarinnar og í fallbaráttu.“
„Ég hugsa nú samt að United taki titilinn, sérstaklega ef
þeim tekst að landa Van Persie frá Arsenal eins og verið
er að tala um núna.
Annars verður þetta barningur á milli City og United hef
ég trú á.“
„Auðvitað tekur Manchester United þetta, sér í lagi
ef Sir Alex bætir við bakverði (og helst bæði hægri og
vinstri) áður en leikmannaglugginn lokar.“
„Ég held að Alex Ferguson og lærisveinar muni hefna
rækilega fyrir síðasta tímabil, þegar þeir spiluðu rassinn
úr buxunum á lokametrunum og héldu tómhentir inn í
sumarfríið. Það mun ekki gerast aftur í bráð, enda mann-
skapurinn reynslunni ríkari.“
„Þessi þétti leikmannahópur samanstendur af gríðar-
lega reyndum leikmönnum. Þó svo að Ferguson sé ekki að
kaupa marga leikmenn til liðsins ætlar hann að spila fram
þeim leikmönnum sem hann hefur keypt undan-
farin ár. Það verða þó einhver tromp sem
detta inn á lóðina á Old Trafford í vetur, ef
ekki í upphafi leiktíðar, þá um áramótin.“
„Lið Manchester United er sólgið í
titilinn eftir þurrkatímabilið síðast og ég
spái því að það klári þetta. Grannarnir
í City leggja núna áhersluna á að verða
stærstir í Evrópu og á meðan munu Rauðu
djöflarnir taka dolluna heima fyrir.“
„Besti varnarmaður heims, Vidic, er
kominn til baka og Cleverley mun fara á
kostum á miðjunni. Þetta verður frábært ár
hjá Rooney en samt mun Chicharito fara á
kostum og setja inn fleiri mörk en hann
og svo mun Kaganawa brillera. City
kemur næst á eftir svo Chelsea og
því næst Arsenal. Þetta verður
döpur leiktíð fyrir Tottenham
og Liverpool. Rogers verður
látinn taka pokann sinn upp úr
áramótum.“
„Titillinn fer því miður til
Mancester ef Robin Van Persie
fer til United endar hann þar.
Ef ekki þá tekur City þetta.“
„Það munar öllu að
Nemanja Vidic skuli vera
búinn að jafna sig eftir
erfið meiðsli og verði klár í
slaginn strax í fyrsta leik.
Hann er mikilvægasti leik-
maður liðsins og eykur
líkur á að endurheimta
titilinn. David de Gea
verður í þetta skiptið
tilbúinn fyrir ensku
úrvalsdeildina eftir
basl á fyrsta ári. Hann
mun mæta til leiks
reynslunni ríkari og
verður magnaður í
markinu.“
Manchester City – 11 stig
„Manchester City verður það lið sem hin þurfa að vinna,
þeir eru ferskastir og sterkastir og Mancini er búinn að finna
sigurformúluna.“
„Manchester City ver titilinn. Grannarnir í United ná
ekki að hanga í þeim þeim bláklæddu. Elli kerling heilsar
uppá Sir Alex Ferguson og stelur frá honum töfrasprot-
anum. Glazer fjölskyldan græðir ekki nógu mikið á sölu hlutabréfa á Nasdaq og
Ferguson yfirgefur félagið í janúar. Á meðan mokar Mubarak peningum í City sem
stingur önnur lið af um páska.“
„Þeir eru komnir á bragðið með fulla vasa af peningum, þó ekki hafi borið
mikið á leikmannakaupum. Þeir ætla ekki að láta einn titil duga.“
„Þrátt fyrir nánast engin kaup hingað til þá er hópurinn gríðarlega sterkur,
Balotelli er að þroskast og verða betri með hverjum leik ásamt því að Tevez
verður „líklega“ með allt mótið. Þá er ekkert ólíklegt að veskið verði rifið upp og
1-2 leikmenn birtist áður en glugginn lokast um mánaðamótin.“
„Í hjarta mínu vona ég að hið unga lið Liverpool springi út og taki titilinn
traustataki. Því miður er ekki innistæða fyrir því og hið stjörnum prýdda lið Man.
City rúllar þessu upp. Vandræðagemlingarnir hafa lært sína lexíu og hópurinn er
einfaldlega of sterkur fyrir hin liðin að keppa við.“
„Manchester liðin og Chelsea skera sig úr hvað varðar fjárhagslegan styrk
sem endurspeglast í breidd leikmannahópa liðanna. Þríeykið efnaða mun berjast
um titilinn, önnur lið heyja harða baráttu fyrir allan peninginn um meistardeildar-
sæti!“
„Það er búið að vera að smyrja City-vélina í nokkur ár og hún mun malla
þetta áfram í vetur. City er líka með bestu framlínu deildarinnar. Aguero,
Balotelli og síðast en ekki síst léttur og nettur Tevez munu tryggja City
titilinn. Yaya Toure mun aftur á móti vera mikilvægasti leikmaður liðsins
enda miðjumaður par exelans. Chelsea og Tottenham munu valda
mestum vonbrigðum í vetur – en kannski er það bara óskhyggja
Arsenal-mannsins.“
„Hér áður var það talinn helsti kostur og einkenni enskrar knatt-
spyrnu að hún væri óútreiknanleg. Enginn leikur unninn fyrirfram og
óvænt úrslit voru daglegt brauð. Þetta hefur mikið breyst. Allir vita að
bara þrjú lið geta unnið, Manchester-liðin tvö og Chelsea. Allir vita líka
að litlu liðin með minnst í veskinu falla. Spennan er því engin.“
„Hópurinn er ógnvænlegur og nú kunna þeir á þetta.
Svo verða 4-5 lið að berjast um meistaradeildar-
sætin; Arsenal, Chelsea, Manchester United og
sennilega Tottenham líka. Liverpool gerir á sig
eins og venjulega, það er bara þeirra hlutskipti
þessi árin.“
„Man. City vinnur deildina og ver titilinn
með umtalsverðum yfirburðum. Chelsea
mun fylgja 5 til 10 stigum á eftir en þeir
hafa eytt miklu í sumar. Man Utd. verður
í 3. sæti en félagið hefur staðnað og
stefnir í annað vonbrigðatímabil.
Síðan verður barist hart um fjórða sæti.
Arsenal, Tottenham ,Liverpool berjast
um það.“
„Keyptur titill annað árið í röð.
Því miður. Það er eins og liðið kaupi
stundum eingöngu til að koma í veg
fyrir að önnur lið styrki sig.“
Blóðug barátta liðanna í Manchester
Fréttatíminn fékk stóran hóp fólks
til að spá í spilin fyrir ensku úrvals-
deildina sem hefst á morgun. Næst-
um því allir eru á því að bikarinn
verði áfram í Manchester
eftir þessa leiktíð. Útlit
er fyrir harða baráttu
Manchester City og
Manchester United.
S tóra stundin rennur upp á morgun, laugar-dag, þegar flautað
verður til leiks í ensku úr-
valsdeildinni eftir sumarfrí.
Síðustu vikur hafa liðin
verið að sanka að
sér nýjum leik-
mönnum og
leggja loka-
hönd á undir-
búninginn.
Og nú kemur í
ljós hvernig til
hefur tekist.
Fréttatíminn
fékk 30 máls-
metandi konur
og karla til að
leggja mat á
tímabilið sem
nú fer í hönd.
Af þeim telja
26 að Manc-
hester City
og Manches-
ter United
muni berjast
um titilinn.
Þrjú önnur
lið fengu
eitt atkvæði
hvert sem
meistara-
efni;
Arsenal,
Liverpool
og Tot-
tenham.
Margir
telja
einnig að
Chelsea verði í
toppbaráttunni.
Höskuldur Daði
Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Álitsgjafar
Ari Edwald forstjóri, Arnar Björnsson
íþróttafréttamaður, Ása Þóra Guðmundsdótt-
ir hjúkrunarfræðingur, Bjarni Benediktsson
alþingismaður, Björgvin G. Sigurðsson alþingis-
maður, Einar Logi Vignisson auglýsingastjóri,
Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður, Elvar Geir
Magnússon ritstjóri, Grímur Sigurðsson lögmaður,
Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður, Guð-
mundur Benediktsson sparkspekingur, Hafdís
Eyjólfsdóttir sérfræðingur, Hrannar Pétursson
upplýsingafulltrúi, Hilmar Björnsson dagskrárstjóri
Skjásins, Hörður Magnússon íþróttafréttamaður,
Höskuldur Þórhallsson alþingismaður, Kristjana
Arnarsdóttir nemi, Kristján Kristjánsson upplýsinga-
fulltrúi, Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur, Magnús
Orri Schram alþingismaður, Ólafur Garðarsson lögmaður og
umboðsmaður, Jóhann Ágúst Jóhannson framkvæmdastjóri,
Pjetur Sigurðsson ljósmyndari, Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýs-
ingafulltrúi, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona, Sigurður
Hlöðversson auglýsingamaður, Sveinn Andri Sveinsson lögmaður,
Trausti Hafliðason fréttastjóri, Þorgrímur Þráinsson rithöfundur,
Þórunn Elísabet Bogadóttir blaðamaður.Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Eldhúsvaskar og tæki
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Húsavík
Vestmannaeyjum
Bol-871 48cm þvermál
þykkt 0,8mm
6.990,-
Bol-834 80x48x18cm þykkt 0,8mm
11.990,-
AGI- Eldhústæki
3.990,-
Bol-897 66x43x18cm þykkt stáls 0,8mm
10.450,-
Bol-604 48x43x18cm Þykkt stáls 0,8mm
7.490,-
(fleiri stærðir til)
Fyrirliðar liðanna, þeir Vincent
Kompany hjá Manchester City, og
Nemanja Vidic hjá Manchester
United, verða í aðalhlutverki hjá
liðum sínum.
10 fótbolti Helgin 17.-19. ágúst 2012