Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.08.2012, Page 36

Fréttatíminn - 17.08.2012, Page 36
Og sjá, ég boða yður auglýsingu! Á laugardaginn náðu Hinsegin dagar hámarki með skrautlegri og vel heppnaðri gleðigöngu í rign- ingunni í Reykjavík. Gangan var að sjálfsögðu áberandi á Facebook en þar sló þó Fréttablaðið eign sinni á nánast alla umræðu fyrir tvær auglýsingar sem birtust í blaðinu þennan dag. Önnur var bein Biblíutilvitnun og greinilega beint gegn samkynhneigðum á helsta gleðidegi þeirra. Facebook-urum var ekki skemmt. Þráinn Bertelsson Í Fréttablaðinu í dag eru 26 blaðsíður þar sem auglýst er eftir starfsfólki. Er það ekki til marks um að landið sé að rísa þótt öðru sé beinstíft haldið fram af heilags- andahoppurunum og íhaldströll- unum sem standa bakvið hina við- bjóðslegu hommafóbíuauglýsingu í sama blaði? Óli Gneisti Sóleyjarson Það er verulega spes að prestur kalli tilvitnun úr Nýja testamentinu hatursáróður. Gudmundur Arnarsson Fréttablaðið skuldar útskýringu og jafnvel afsökunarbeiðni á þessari glórulausu þvælu sem birt er nafn- laust í blaðinu. Bryndis Isfold Hlodversdottir ömurlegt að Fréttablaðið skuli ekki neita svona hatri. Jóhannes Kr Kristjánsson Það held ég að þeir sem auglýstu í Fréttablaðinu í dag í nafni Kristni, fari beina leið til helvítis. Til hamingju allir með daginn. Erla Hlynsdóttir Á meðan við höfum Þjóðkirkju, og höfuðrit hennar er Biblían, get ég ekki séð neitt athuga- vert við að orðréttar biblíutilvitnanir séu birtar í fréttablöðum. Jón Aðalsteinn Það fer í taugarnar á mér þegar nafnlausir vitleysingar fá að birta auglýsingar á borð við þessa á bls. 56 í Fréttablaðinu í dag. Ef þetta er leyfilegt, þá má greinilega allt svo lengi sem greiðslan skilar sér. Jakob Frímann Magnússon Hinir „rétttrúuðu“ Biblíuvitnandi vandlætingarmenn gerðu sjálfum sér engan greiða með Frétta- blaðsauglýsingunni í dag. Megi Gay Pride halda áfram að vaxa og dafna, til marks um undanhald íslenskra fordóma. Til hamingju með daginn Gleðigöngumenn- og konur! Baldur Kristjánsson Nafnlausa auglýsingin í Frétta- blaðinu er ekkert annað en hatursræða í garð samkyn- hneigðra og setur dómgreind þeirra Fréttablaðsmanna í vafa- samt ljós. knuz.is Mikið var það nú fallegt af Frétta- blaðinu að birta þessa auglýsingu. Eða þannig. Smáíslensk sál og Yuri Og ekki féll heilsíðuauglýsing frá Smáís um ólöglegt niðurhal afþreyingarefnis í frjórri jarðveg á netinu. Þar var skúrkinum Yuri teflt fram og fólki bent á að með niðurhali væri það að skipta við þann sótraft sem virtist vera frá Eystrasaltslandi. Og sem fyrr var fólki ekki skemmt. Fríða Garðarsdóttir Í dag er fordómaleysi fagnað... Og þá þetta. Ég gubba! Ómar R. Valdimarsson Hvernig væri ef þetta Smáís apparat vísaði til hvaða laga verið er að brjóta með því AÐ BORGA fyrir áskrift að SKY eða Netflix í þessari xenophobísku auglýsingu sinni. Ekki eru það lög um höf- undarétt, sem meira að segja heimila niðurhal efnis með Torrent forriti svo framarlega sem því fylgir ekki upphal... Stefán Hrafn Hagalín Ber ekki Yuri líka ábyrgð á hommahatrinu í Fréttablaðinu? Hilmar Þór Guðmundsson Held að SMÁÍS þurfi að ráða sér auglýsingastofu og PR fulltrúa. Þetta er líklega ljótasta skita ársins 2012. Ég vona að þeir hafi ekki þurft að borga fyrir þetta. Peningarnir að klárast Eigið fé Portusar, eignarhaldsfélags Hörpu, dugar ekki fyrir óbreyttum rekstri lengur en fram á mitt næsta ár, að því er Pétur J. Eiríksson, stjórnarformaður Portusar, segir. Reiknað er með að hallarekstur á Hörpu verði rúmar 400 milljónir króna á þessu ári. Pétur segir að stærstan hluta taprekstursins mega skýra með hærri fasteignagjöldum en gert hafi verið ráð fyrir, 380 milljónum í stað 180 milljóna, sem greiðast til annars eigandans, Reykjavíkurborgar. Ríkið og Reykjavíkurborg lánuðu Austurhöfn-TR 730 milljónir króna í nóvember í fyrra, sem átti að greiða upp á tólf mánuðum. Haft hefur verið eftir Katrínu Jakobsdóttur mennta- og menntamálaráðherra að þegar nýtt félag um rekstur Hörpu verður stofnað í haust verði núverandi stjórn skipt úr fyrir nýja. 200 innlendir og erlendir lista- menn koma fram á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni í ár. Uppselt er á hátíðina. mynd: airwaves kílóum af mat hendir hver fjölskylda á Íslandi árlega samkvæmt tölum sér- fræðinga MATÍS. Alls hendir almenningur á Íslandi allt að 3.500 tonnum af mat á ári. Vikan í tölum Berjaspretta með eindæmum Berjaspretta á vestanverðu landinu er víða með allra besta móti og sums staðar jafnvel sú besta í áratugi. Bláber hafa þroskast vel á hlýju og sólríku sumri. Hægja ber á ESB-viðræðum Hægja þarf á aðildarviðræðum við Evrópu- sambandið vegna aðstæðna í pólítíkinni og óróleika á evrusvæðinu að mati Þorsteins Pálssonar, eins samningarmanna Íslands. Forsetinn heiðraði ólympíufara Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, heiðraði íslensku keppendurna á ólympíu- leikunum, þjálfara og aðra starfsmenn, með móttöku á Bessastöðum á miðvikudaginn. Aflaverðmæti strandveiðibáta Aflaverðmæti báta sem stunduðu strand- veiðar í sumar er um 2,6 milljarðar króna. Alls stunduðu 759 smábátar strandveiðar í maí, júní, júlí og ágúst en heimilt var að veiða samtals 8,600 tonn. Fyrrum bæjarstjóri til Malaví Guðmundur Rúnar Árnason, forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar og fyrrverandi bæjarstjóri, hefur verið ráðinn verkefnis- stjóri í Malaví hjá Þróunarsamvinnustofnun Íslands. Ríkið skaðabótaskylt gagn- vart Iceland Express Ríkiskaup eru skaðabótaskyld gagnvart flugfélaginu Iceland Express. Kærunefnd útboðsmála hefur komist að þessari niður- stöðu eftir að hafa skoðað útboð um flug- sæti til og frá Íslandi. Ríkiskaup tóku tilboði Icelandair sem var, að mati kærunefndar, talsvert hærra. Ræða hækkun eftirlaunaaldurs Hugmyndir eru uppi um að hækka eftir- launaaldur hjá starfsmönnum hins opinbera úr 65 árum í 67 og gera réttindaávinnslu línulega líkt og hún sé í almenna kerfinu. Ríkisábyrgð er á Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, ólíkt lífeyrissjóðum á almennum markaði. Vann 46 milljónir í Víkingalottóinu Íslendingur vann bónusvinninginn í Víkinga- lottóinu á miðvikudagskvöld, 46 milljónir króna. Miðinn var keyptur í Lukkusmár- anum í Smáralind í Kópavogi. Norðmaður og Svíi skiptu með sér fyrsta vinningnum sem er tæpar 190 milljónir. Stuðningur við Pussy Riot vekur athygli Stuðningur Jóns Gnarr, borgarstjóra í Reykjavík, við rúss- nesku pönksveitina Pussy Riot hefur vakið töluverða athygli erlendra fjölmiðla. Boðað hefur verið til sam- stöðumótmæla við rússneska sendiráðið í dag, föstu- dag, þegar dómur verður kveðinn upp í málinu. Í enskumælandi rússneskum fjölmiðlum er greint frá mótmælayfirlýsingu borgarstjóra frá því í gleðigöngunni á laugardaginn. Konurnar þrjár í pönksveitinni, sem eru á þrítugsaldri, gætu átt yfir höfði sér allt að sjö ára fangelsisdóm verði þær sakfelldar. Þær voru handteknar í mars og hafa verið í haldi fyrir þátt sinn í mótmælum gegn Vladimir Pútín, meðal annars með því að flytja pönkbæn án leyfis í kirkju. Aðstandendur mótmælanna hér hvetja fólk til að mæta og standa vörð um málfrelsi, mannréttindi og réttlæti. Mótmælafundir hafa verið boðaðir meðal annars í London, New York og Moskvu. Sif Gunnarsdóttir messar yfir Jóni Gnarr borgarstjóra fyrir kynningar- fund um Menn- ingarnótt. Stefán Eiríksson lögreglu- stjóri og Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri höfðu gaman af. Ljósmynd/Hari HeituStu kOlin á Góð Vika fyrir Jón Gnarr borgarstjóra Slæm Vika fyrir Pétur J. Eiríksson, stjórnarformann Portusar 50 5 mest seldu kiljurnar í íslenskum bókabúðum í sumar komu út undir merkjum Egils Arnar Jóhannssonar og félaga hjá Forlaginu. Tvær fyrstu Hungurleika- bækurnar voru þær mest seldu. 30 milljónir greiddi ítalskur listaverkasafnari fyrir Endalokin verk Ragnars Kjartans- sonar sem hann vann á Feneyja- tvíæringnum fyrir þremur árum. Verkið samanstendur af 144 myndum sem Ragnar málaði á sex mánaða tímabili í Feneyjum. 2 íslenskir listamenn verða fulltrúar Íslands á Sao Paolo tvíæringnum sem hefst í byrjun september, þeir Hreinn Friðfinnsson og Sigurður Guðmundsson. 17. Menningarnóttin í Reykjavík fer fram á morgun, laugar- dag. Búist er við tugþúsund- um gesta í miðborgina. 34 fréttir Helgin 17.-19. ágúst 2012 vikunnar

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.