Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.08.2012, Síða 40

Fréttatíminn - 17.08.2012, Síða 40
Kjarakaup á keti Þ Það fer eftir því hvernig á málið er litið hvort hreindýrakjöt er dýrt eða ekki. Samkvæmt verðskrá austfirsku kjötvinnslunnar Snæfells kostar kíló af hreindýralundum 14.979 krónur. Fillet er aðeins ódýrara, kostar 14.444 krónur kílóið. Innra læri kostar 12.487 krónur og lærvöðvi 8.987 krón- ur hvert kíló og hakk 2.246 krónur. Fimmtán þúsund kall fyrir kíló af kjöti er vissulega hátt verð en taka verður með í reikninginn að um vill- bráð er að ræða sem sækja þarf til fjalla með fyrirhöfn og útgjöldum. Slíkt verður trauðla borið saman við kjöt af skepnu sem alin er í húsi eða girðingu og lógað í slátur- húsi. Það er frekar að bera kílóverð á hreindýri saman við aðra villibráð sem sækja þarf til fjalla. Þar er rjúpan nærtækust, ómissandi á jólaborð margra. Á liðnu hausti gat ég, með nettum reikningskúnstum, komið kílóverði á rjúpnaketi í milljón krónur. Sá útreikningur var sennilega ekki mjög sanngjarn en byggðist á leiðangri beggja sona minna, tengdasonar og mágs á veiðislóð norðan heiða. Afraksturinn var ein rjúpa, um það bil 100 grömm af kjöti, en kostnaður lauslega áætlaður um 100 þúsund krónur; bíll, gisting, fæði, drykkjar- vara og skotfæri. Piltarnir létu þessa útreikninga ekki hafa áhrif á sig og sóttu allir sem einn um leyfi til hreindýra- veiða, á þeirri vertíð sem nýlega er hafin. Veiðifélagið Tryggvi, sem samanstendur af fyrrgreindum fjór- menningum, er greinilega komið til með að vera. Einn úr hópnum fékk úthlutað dýri. Það var nóg fyrir alla. Þeir undirbjuggu því fjallaferð, spenntir að vonum, og héldu áleiðis á austurhorn landsins í upphafi liðinnar helgar. Áður hafði leyfishafinn gengið undir próf og sýnt, með fimm skotum beint í mark af hundrað metra færi, að hann væri hæfur veiðimaður. Það rigndi sunnan heiða um síðustu helgi en blítt var á norðausturhorninu. Það þýddi að hreindýr héldu sig hátt til fjalla eða inni í þjóðgarði þar sem ekki mátti skjóta. Leiðsögumaður hópsins fór því víða með hið nýstofn- aða veiðifélag án þess að félagarnir yrðu dýra varir. Líkamsæfingin var hins vegar góð, upp og niður hin og þessi fjöll í breyskjunni. Það var ekki fyrr en þrír heilir dagar voru liðnir að hjörð fannst og dýrið var fellt. Það voru því stoltir meðlimir Tryggva sem komu heim með bráðina. Jóla- og ára- mótamaturinn er klár hjá þeim – og þeir vel að þeim kræsingum komnir. En hvað kostar svo kílóið af ljúfmet- inu? Það vilja þeir félagar ekki reikna út og því er ég, sem faðir þeirra, tengdafaðir og mágur, reiðubúinn að hjálpa til, ekki síður en þegar þeir sóttu rjúpuna norður síðastliðið haust. Ekki er um nákvæman útreikning að ræða heldur lauslega samantekt sem sýnir að það kostar sitt að draga björg í bú fyrir börn og konur sem bíða í borg- inni. Dæmið lítur svona út, í stórum dráttum: Leyfi til að fella dýr, 80.000 krónur. Fjórar gistinætur fyrir fjóra menn, tíu þúsund krónur á mann hverja nótt, samtals 160.000 krónur. Matur fyrir fjóra menn í fjóra daga, 120.000 krónur. Þetta er áætlun, miðað við kaup á mat- vælum og viðkomu á veitingahúsum. Drykkjarföng 20.000 krónur. Þarna er sparlega áætlað í fjallaferð fjögurra manna en byggist á því að í slíkri ferð gefast fá tækifæri til neyslu áfengra drykkja enda fer það ekki saman við meðferð skotvopna. Skotfæri, skot- próf og æfingar 25.000 krónur. Hér er ekki reiknað með byssukaupum enda gengið út frá því að félagar í Tryggva hafi aðgang að veiðiriffli með sjón- auka. Leiðsögumaður er talinn kosta um 55.000 krónur á dag. Þriggja daga gjald fyrir hann er því 165.000 krónur. Akstur er viðamikill liður í slíkri ferð enda farið eins langt og hægt er að komast innanlands. Veiðifélagarnir fjórir þurfa góðan jeppa. Hringvegur- inn, án útúrdúra, er nær 1500 kíló- metrar. Þar við bætist leit á fjöllum í þrjá daga. Þótt pistilskrifari hafa enga hugmynd um hve mikið var ekið leyfir hann sér að bæta við 700 kílómetrum. Akstur í túrnum er því talinn hafa verið 2.200 kílómetrar. Hægt er að reikna beinan eldsneytis- kostnað en taka verður með í reikn- inginn slit á bíl og fleira. Samkvæmt akstursgreiðslum til ríkisstarfs- manna ber að greiða 117.50 krónur fyrir hvern ekinn kílómetra. Við það bætist 45 prósent torfærugjald, eins og í þessu tilviki, og kostar hver ekinn kílómetri því 170,40 krónur. Ríkis- starfsmaður gæti rukkað 375 þúsund krónur fyrir aksturinn. Það er þó ekki sanngjarnt að ganga svo langt enda voru þeir í Tryggva á eigin jeppa. Gjaldið er því helmingað og reiknað með 187 þúsund krónum í aksturs- kostnað þessa 2.200 kílómetra. Dýrið þarf að flá og kæla. Það kostar 20.000 krónur. Úrbeining á hreindýrsskrokki kostar 25.000 krónur, með loftþéttri pökkun á kjöti, og sútun á skinninu 15.000 krónur. Að gefnum þessum forsendum kostar það 817.000 þúsund krónur, fyrir þessa vösku menn í veiðifélag- inu Tryggva, að sækja hreindýrið og fæða með því fjölskyldur sínar. Það er ódýrt, meira að segja kjarakaup, í samanburði við það að sækja eina rjúpu norður að haustlagi. Hreindýr- skýr gefur af sér um það bil 40 kíló af óúrbeinuðu kjöti. Það þýðir að kílóið, með beini, kostar ekki nema 20.452 krónur og kannski tvöfalt það ef miðað er við úrbeinaðan skrokk. Að borga 40 þúsund krónur á hrein- dýraketskílóið er smotterí eitt miðað við milljónina í rjúpnaketinu. Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Te ik ni ng /H ar i Þú velur og draumasófinn þinn er klár GERÐ (yfir 90 mismunandi útfærslur) STÆRÐ (engin takmörk) ÁKLÆÐI (yfir 2000 tegundir) Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum H Ú S G Ö G N Patti verslun | Dugguvogi 2, 104 Reykjavík Sími: 557 9510 | Vefsíða: www.patti.is Verslun okkar er opin: Virka daga kl. 9-18 Laugardaga kl. 11-16 Sunnudaga lokað BaselTorino Verð áður 270.900 kr Dallas 2+Tunga Aðeins 189.900 kr BonnLyon 38 viðhorf Helgin 17.-19. ágúst 2012

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.