Fréttatíminn - 17.08.2012, Side 42
40 veiði Helgin 17.-19. ágúst 2012
veiði sportveiðivefurinn.is
veiði sjónvarpsþættir um veiði
fluga vikunnar karl lúðvíksson
„Já, ég skal segja þér hver uppáhalds flugan mín
er,“ segir veiðimaðurinn Karl Lúðvíksson. Valið
vefst ekki fyrir honum: „Blue Charm!“
Karl, eða Kalli Lú eins og hann er oftast kall-
aður, er líklega einhver þekktasti veiðimaður
landsins enda hefur hann árum saman fjallað
um veiði á ýmsum vígstöðvum og er hann nú um
mundir að ljúka við sjöttu seríu Veitt með vinum,
veiðiþættina vinsælu sem verða til sýninga á Stöð 2
Sport í vetur. Kalli Lú fékk Maríulaxinn sinn 12 ára
gamall í Langá og hefur verið að síðan. Og það er
ekki að sökum að spyrja með svo þróaðan veiði-
geggjara, Blue Charm er ágætlega vel þekkt fluga
og það er ekkert hvaða Blue Charm sem er þegar
Kalli er annars vegar: „Já, þetta er Blue Charm
sem ákveðinn aðili á Bretlandi hnýtir sérstaklega,
í fyrirtækinu Morrison. Afi minn heitinn keypti
alltaf á tveggja ára fresti einhverjar þúsund flugur
frá þessu fyrirtæki. Það sem gerir hana ólíka þeim
flugum sem ég hef séð í veiðibúðum er númer
eitt að hún er með „medium flat tinsel-vafningi“
á búknum en ekki „oval“, léttklædd sem gerir að
verkum, eins og þeir sögðu gömlu veiðimennirnir;
glampar betur á hana og fiskurinn sér hana betur.“
Á þessa flugu hefur Kalli fengið margan fiskinn,
bæði lax og sjóbleikju en hann notar mest flugu
númer tíu og þá „low water“ öngla.
Bresk Blue Charm
Kalli Lú með sérhnýtta Blue Charm en
hún þessi hefur fíflað margan fiskinn.
Saman höfum við ferðast um allt landið til að veiða
og er sama hvort það sé stangveiði eða skotveiði.
Veiðigeggjunin rak
þá út í vefþáttagerð
Egill Gómez og
Bergþór Helgi
Bergþórsson
fara hvergi
dult með
það að þeir
eru haldnir
veiðidellu á
efsta stigi. Hún
leiddi svo til
þess að þeir
fóru að gera
sérstaka þætti
um veiði og þá
þætti má finna
á netinu.
æ tli það sé ekki veiðidella á hæsta stigi sem leiddi til þess að við fórum að gera þessa þætti. Við
félagarnir höfum veitt saman frá því við vor-
um guttar, fyrstu veiðiferðirnar okkar byrj-
uðu í Elliðavatni þar sem það var stutt fyrir
okkur að fara því við áttum báðir heima í
Breiðholtinu,“ segja þeir Egill Gómez og
Bergþór Helgi Bergþórsson – býsna brattir
því þeir hafa verið að vinna veiðiþætti sem
þeir setja beint á netið. Kannski má segja
að þetta sé enn eitt dæmi þess að fjölmiðlun
sé að taka stakkaskiptum með internetinu
og sér ekki fyrir enda á því. Þeir félagar
reyndu, til að mynda, ekki svo mikið sem
setja sig í samband við sjónvarpsstöðvarnar
með þessa þáttagerð sína.
„Nei það gerðum við ekki, við vildum
fyrst sjá hvernig þetta myndi ganga hjá
okkur. Og verður að segjast að þetta hafi
gengið mjög vel, okkur er allstaðar tekið
mjög vel þar sem við höfum verið að taka
upp og eru við farnir að fá boð um að koma
á staði til að gera þætti.
Við erum með heimasíðuna sportveidi-
vefurinn.is sem er vefur fyrir alla áhuga-
menn um skot– og stangveiði og fannst
okkur Sportveiði TV vera góð viðbót við
vefinn. Hægt er að sjá þættina á vefnum og
einnig erum við með facebook-síðu þar sem
hægt er að sjá þættina líka. En, ef einhver
sjónvarpsstöð vill fá okkur þá erum við
tilbúnir í viðræður.“
Della sem versnar með aldrinum
Þeir Egill og Bergþór hafa ekki fengist
við „sjónvarps“-þáttagerð áður en létu
það ekki stöðva sig. „Nei aldrei, en okkur
fannst vanta svona veiðiþætti sem væri
fyrir alla fjölskylduna. Þar sem fjallað yrði
um allt sem viðkemur stanga- og skot-
veiði.“ Og þeir draga ekki úr því aðspurðir
hvort veiðidellan sé ríkjandi: „Við erum
með veiðidellu á hæsta stigi og ef það er
eitthvað þá versnar hún með aldrinum.
Saman höfum við ferðast um allt landið til
að veiða og er sama hvort það sé stangveiði
eða skotveiði.“
Það er því kannski ekki úr vegi að spyrja
hvert helst liggja leiðir? Víða, segja þeir:
„Það helsta sem við getum nefnt er Ytri
Rangá, Elliðaár, Vatnsdalsá ,Leirvogsá,
Leirá, Skorradalsvatn, Þingvallavatn og
Veiðivötn og við reynum alltaf að fara á
nýjar veiðislóðir á hverju sumri.
Og svo förum við líka á gæs og rjúpu og
svo hefur Bergþór verið að skjóta hrein-
dýr.“
Uppáhalds veiðistaðurinn er Ytri Rangá
í tilfelli Egils en hjá Bergþóri er það Leir-
vogsá og Veiðivötn. Stærsta fiskinn fengu
þeir félagar í Leirvogsá, eða tólf punda lax.
„Svo höfum við verið að fá 6 – 8 punda fiska
í Skorradalsvatni.“
Jakob Bjarnar Grétarsson
jakob@frettatiminn.is
Bergþór og Egill. Láta sér ekki duga að veiða heldur eru þeir sjálfir með umfjöllun um þetta helsta hugðarefni sitt.
Nú sem stendur er allt á
fullu hjá þeim félögum,
Agli Gómez og Bergþóri
Helga, við að vinna efni
fyrir Sportveiði TV. „En
við erum að leita að
styrktaraðilum og ef
einhverjir eru sem vilja
taka þátt í þessu með
okkur hvetjum við þá
til að hafa samband
við okkur á netfangið
sportveidivefurinn@
sportveidivefurinn.is.“ Og
þar með er því komið á
framfæri. En hvað er það
helsta sem hefur verið til
umfjöllunar?
„Við erum búnir að gera
fjóra þætti, í fyrsta þætti
heimsóttum við Reynis-
vatn og tókum viðtal
við Sigfús Sigurðsson
handboltamann sem er
jafnframt umsjónarmaður
svæðisins. Svo kíktum
við í veiðivöruverslunina
Litlu fluguna en það er
lítil verslun í Seljahverfinu
í Breiðholti sem er sér-
verslun fluguveiðimanns-
ins. Svo fylgdumst við
með námskeiði hjá Flugu-
veiðiskóla Veiðiheims
sem er fyrir þá sem eru
að feta sín fyrstu spor í
fluguveiðinni og grunninn
í fluguhnýtingum. Í fjórða
þætti fórum við í Ytri
Rangá og fylgdumst með
Guðbrandi Einarssyni
yfirleiðsögumanni við
veiðar og svo er fimmti
þátturinn væntanlegur
innan skamms.“
Egill Gómez ræðir við Guðbrand Einarsson, yfirleiðsögumann í Ytri Rangá, í
Sportveiði TV.
Veiði á vefnum