Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.08.2012, Side 58

Fréttatíminn - 17.08.2012, Side 58
Helgin 17.-19. ágúst 201256 tíska  Tíska sóley JóhannsdóTTir faTahönnunarnemi Tíska stríðsáranna gerð nýtískulegri s íðasti mánuðurinn í skólanum fór í að sinna verkefni þar sem tískusagan átti að vera innblásturinn. Við máttum allar velja okkur tísku- áratug og hanna línu út frá honum fyrir sumarlínu 2013. Ég valdi mér tísku stríðsáranna og var markmið mitt að gera hana skemmtilega og örlítið nýtískulegri. Þetta verkefni tók mikið á og ég held að undir lokin var ég farin að vinna allt að sextán tíma á dag, bara til þess að geta klárað hana á rétt- um tíma. Í heildina hannaði ég tvö „outfit“ eða í heildina fimm flíkur og ég er mjög ánægð með útkomuna. Það er svo gaman þegar allt tekst. Það er ekki sjálfgefið að vera búin að skissa upp flotta flík því svo á maður eftir að sauma hana og finna réttu efnin í hana og oftar en ekki verð ég frekar vonsvikin með niðurstöðuna. Er líka búin að fá mikið lof fyrir línuna, sem er alltaf skemmtilegt. Sækir innblástur í gömul ævintýri „Ég er frekar minimalistísk þegar kemur að tísku. Ég vil hafa hönnunina mína klæðilega, en á sama tíma áhugaverða. Ég sjálf er mikið fyrir stærri föt, jafnvel strákaleg, en á sama tíma vil ég að konurnar séu aðlaðandi. Yfirhafnir sem ég hanna eru yfirleitt í stærri kantinum og set ég oft axlapúða í jakka til að fá stífara og karl- mannlegra form á því. En á hinn bóginn finnst mér kvenlegur líkaminn þurfa að fá að njóta sín í fallega aðsniðnum flíkum. Mér finnst alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt og stundum geri ég eitthvað alveg út úr karakter, bara til að sjá hvernig það virkar. Þannig læri ég best. Innblástur í fatahönnuninni sæki ég út um allt, en kannski helst úr gömlum minn- ingum og ævintýrum. Ég nýt þess þegar hlutirnir eru einhvernveginn dularfullir og óleystir. Daglega lífið gefur mér einnig góðan innblástur og sé oft undar- leg form á hlutum sem ég gæti notað á skemmtilegan hátt í fatahönnunini.“ Hafði engan grunn Sóley hafði aðeins sótt eitt saumanámskeið áður en hún sótti um skólann í Danmörku og segir hún að ekki sé krafist þess að nemendur hafi grunn í fatahönnun þegar sótt er um. „Það er talið æskilegt að nemendur hafi einhvern grunn í fatahönnun, en það er þó ekki skilyrði. Þetta er tveggja ára nám, þar sem maður lærir bæði klæðskerann og listræna hlið fatahönn- unar. Skólinn hentar mér fullkomlega og ekki skemmir fyrir hversu mikinn áhuga ég hef á skandinavískri tísku og stíl. Kaupmannahöfn er líka mjög skemmtileg borg, sem býður upp á marga möguleika innan tískugeirans.“ -kp Fatahönnunarneminn Sóley Jóhannsdóttir hefur haft áhuga á tísku alveg síðan hún man eftir sér. Hún lét drauminn rætast þegar hún hóf nám í Margrethe Skolen í Kaupmannahöfn og lauk hún fyrsta árinu í vor, þar sem hún hannaði glæsilega fatalínu sem byggð var á tísku stríðsáranna.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.