Fréttatíminn - 24.08.2012, Page 2
ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Skólaostur i sneiðum
og 1 kg stykkjum á tilboði
Stjórnmál jóhanna Sigurðardóttir tilkynnir um nýjan fjármálaráðherra
Óvissa um fjármálaráðuneytið
Katrín Júlíusdóttir hefur
ekki fengið að vita
hvort hún muni taka
við fjármálaráðu-
neytinu af Oddnýju
Harðardóttir þegar
Katrín snýr aftur
til starfa að loknu
fæðingarorlofi.
Hvorki Katrín Júlíusdóttir né
Oddný Harðardóttir hafa fengið
upplýsingar um það hvor þeirra
muni sitja sem fjármálaráðherra
þegar Katrín snýr til baka úr
fæðingarorlofi nú í haust. Jóhanna
Sigurðardóttir forsætisráðherra
mun tilkynna um þetta á flokks-
ráðsfundi Samfylkingarinnar sem
fram fer á laugardaginn.
Oddný Harðardóttir var skipuð
fjármálaráðherra um síðustu ára-
mót og var haft eftir Jóhönnu að
Katrín tæki við af henni þegar hún
kæmi úr fæðingarorlofi en Katrín
fór í fæðingarorlof í byrjun árs.
Hún hefur verið iðnaðarráðherra
frá því 2009 en Steingrímur J. Sig-
fússon tók við iðnaðarráðuneytinu
í fæðingarorlofi Katrínar.
Hinn 4. september taka gildi
breytingar á stjórnarráðinu og
verður iðnaðarráðuneytið þá ekki
lengur til þar sem það verður inn-
limað í nýtt umhverfis- og auð-
lindaráðuneyti annars vegar, sem
Svandís Svavarsdóttir stýrir, og
hins vegar atvinnu- og nýsköpunar-
ráðuneyti, sem Steingrímur stýrir.
Það er því ekki inni í myndinni að
Katrín snúi aftur í iðnaðarráðu-
neytið heldur er spurning um
hvort hún fari í fjármálaráðu-
neytið í stað Oddnýjar sem mun
þá einungis hafa stýrt því í átta
mánuði. Hvorki Katrín né Oddný
höfðu á fimmtudaginn vitneskju
um það hvor þeirra myndi stýra
fjármálaráðuneytinu og varðist
Hrannar Björn Arnar-
son, aðstoðarmaður
Jóhönnu, allra frétta
af málinu þegar
Fréttatíminn leit-
aði til hans.
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
Hvorki gos né nammi í
Versló
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menn-
ingarmálaráðherra, veitti Verslunarskóli
Íslands Gulleplið – viðurkenningu fyrir
framúrskarandi starf á sviði heilsueflandi
framhaldsskóla við athöfn í skólanum í
gær, að því er fram kom á síðu mennta- og
menningarmálaráðuneytisins. Meðal þess,
sem gert hefur verið til að bæta heilsu
nemenda í skólanum er frumkvæði þeirra
að breyttu vöruframboði í mötuneytinu, t.d.
er hætt að selja gosdrykki og sælgæti og í
þess stað boðið upp á hollan mat og drykki.
„Markmiðið með verkefninu heilsueflandi
framhaldsskólar er,“ að því er segir á
síðunni, „að stuðla markvisst að velferð og
góðri heilsu framhaldsskólanemenda.“- jh
Lítið launaskrið
Laun hækkuðu lítillega í júlímánuði sam-
kvæmt launavísitölunni sem Hagstofa
Íslands birti í gær. Laun hækkuðu um
0,1% í júlí frá fyrri mánuði. Í júní var
launavísitalan óbreytt. „Þessi þróun
undafarna mánuði virðist benda til þess
að launaskrið sé lítið um þessar mundir,“
segir Greining Íslandsbanka. Undanfarna
12 mánuði hafa laun hækkað um 6,9%
og er 12 mánaða takturinn óbreyttur frá
fyrri mánuði. „Árstakturinn í launa-
vísitölunni hefur komið hratt niður
síðustu mánuði, en í marsmánuði nam
árshækkun launa 12,1%. Núna yfir sumar-
mánuðina hefur árstakturinn hinsvegar
lækkað skarpt enda eru nú að detta út
úr 12 mánaða taktinum miklir hækkunar-
mánuðir frá því fyrir rúmu ári þegar
ákvæði kjarasamninga tóku gildi.“ Í júlí
lækkaði vísitala neysluverðs um 0,7% frá
fyrri mánuði. Jókst kaupmáttur launa því
um 0,8% í mánuðinum. Á síðastliðnum
tólf mánuðum hefur vísitala neysluverðs
hækkað um 4,6% og hefur kaupmáttur
launa þar með aukist um 1,3% á þeim
tíma. - jh
Vitnin vernduð fyrir
Annþóri og Berki
n afnlaus vitni í rannsókn á manns-láti á Litla-Hrauni verða ekki af-hjúpuð. Hæstiréttur hefur staðfest
að Héraðsdómur Reykjaness mátti meina
ofbeldismönnunum Annþóri Kristjáni
Karlssyni og Berki Birgissyni að fylgjast
með vitnisburði yfir þeim. Þeir fengu ekki
að vita nöfn eða fylgjast með þeim af skjá
eða í gegnum gler, eins og lög heimila
almennt þegar haldið er nafnleynd innan
veggja dómstóla.
Dómur Hæstaréttar verður ekki afhjúp-
aður fyrr en eftir hálft ár að beiðni lög-
regluyfirvalda sem telja rannsóknarhags-
muni í húfi. Þinghaldið er lokað.
Í 5. grein reglna um samkvæmt 123.
grein laga um meðferð sakamála segir að
sjá verði til þess að þeir ákærðu „geti jafn-
óðum heyrt allt, sem fram fer, og jafnframt
fylgst með því gegnum þar til gert gler eða
á sjónvarpsskjá.“ Hæstiréttur taldi þrátt
fyrir það að það ætti ekki við um Annþór
og Börk. Þeir heyrðu en sáu ekkert.
Lögmaður Barkar, Ingi Freyr Ágústs-
son, segir dóm Hæstaréttar „ákveðin
vonbrigði.“ En mun hann fara með málið
lengra?. „Við munum skoða alla kosti sem
eru í stöðunni.“
Þetta er í fyrsta sinn sem Hæstiréttur
kveður upp svona úrskurð en aðeins
einu sinni áður hefur héraðsdómur leyft
vitnavernd sem þessa. Það var fyrir átta
árum og einnig í dómsmáli gegn Berki
Birgissyni. Þá hjó hann mann með öxi
á veitingastaðnum A. Hansen í Hafnar-
firði. Hann var ákærður og dæmdur fyrir
hrottafengna líkamsárás.
DV sagði á þeim tíma frá því hvernig
Börkur ógnaði vitni í réttarhöldunum
og fékk af þeim sökum áminningu fyrir
hegðun sína hjá dómara. Þrjú vitni sem
notið höfðu nafnleyndar við skýrslu-
töku hjá lögreglu höfðu þá óskað eftir
áframhaldandi nafnleynd við dómsmeð-
ferð en Hæstarétti þótti ekki nægi-
lega sýnt fram á raunverulega ógn við
öryggi þeirra.
Þeir Börkur og Annþór sitja báðir
inni á Litla-Hrauni. Auk þess að hafa
verið ákærðir fyrir ofbeldi ásamt tólf
öðrum er nú rannsakað hvort þeir urðu
samfanga sínum að bana. Verði þeir
dæmdir getur fangavistin lengst um
fjölmörg ár.
Erlendur S. Baldursson, afbrotafræð-
ingur hjá Fangelsismálastofnun, segir
almennu regluna þá að menn afpláni
dóma í samfellu. Séu menn dæmdir
áður en þeir klári afplánun haldi hún
áfram þegar dómnum ljúki. „Það er
ekki sjálfgefið að menn fái reynslu-
lausn. En þó má velta fyrir sér hvort
hún reynist betur. Því klári menn dóm-
inn gera þeir það skilyrðislaust, en fái
þeir reynslulausn er hægt að setja þeim
skilyrði um að þeir til dæmis drekki
ekki og undirgangist meðferð. Það
getur verið betra fyrir samborgarana.“
Hann segir í höndum dómara hvort
þeir dæmi afbrotamenn vægar vegna
annarra brota eða ekki.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
dómSmál hæStiréttur verndar vitni í dómSmáli
Lögmaður ofbeld-
ismannsins Barkar
Birgissonar ætlar
að skoða alla kosti
í stöðunni eftir
að Hæstiréttur
staðfesti að vitni í
máli gegn Berki og
Annþóri Kristjáni
Karlssyni fengju
algjöra vitnavernd.
Þeir fengu ekki
að fylgjast með
vitnum í gegnum
gler eða af sjón-
varpsskjá eins og
reglur gera ráð
fyrir. Hæstiréttur
svipti nafnleynd
af vitnum í axar-
máli Barkar á A.
Hansen fyrir átta
árum.
Annþór Kristján Karlsson sagði í viðtali við Fréttatímann að hann ætlaði af afbrotabrautinni. Miðað við rannsóknir og ákærur á
hendur honum virðist honum hafa snúist hugur. Mynd/Hari
Nýr liðsmaður Fréttatímans
Rithöfundurinn og blaðamaðurinn Mikael Torfason hefur verið ráð-
inn ritstjóri Fréttatímans. Mikael mun ritstýra blaðinu ásamt Jónasi
Haraldssyni ritstjóra. Mikael varð ungur ritstjóri vikuritsins Fókus
og hefur yfir 16 ára reynslu af blaðamennsku. Hann var ritstjóri DV,
fréttastjóri innblaðs Fréttablaðsins og aðalritstjóri Fróða og Birtíngs
tímaritaútgáfu. Samhliða breytingunum á ritstjórn blaðsins lætur
Teitur Jónasson af starfi framkvæmdastjóra útgáfufélags Fréttatím-
ans og við tekur auglýsingastjóri blaðsins, Valdimar Birgisson, en
Teitur mun áfram koma að rekstri útgáfufélagsins sem útgáfustjóri.
2 fréttir Helgin 24.-26. ágúst 2012