Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.08.2012, Síða 30

Fréttatíminn - 24.08.2012, Síða 30
Smálán og lítilmenni Reiðialda skall á Facebook í vikunni í kjölfar frétta um að markhópur smálánafyrirtækja, sem lána peninga með hraði gegn svimandi vöxtum, virtust helst vera fíklar og ungt fólk sem ekki kann fótum sínum forráð í fjármálum. Hildur Helga Sigurðardóttir Endurtek að það er skömm að þessum smánarlánafyrirtækjum, sama hverjir standa þarna að baki. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir Blessaðir mennirnir! Torfi Geirmundsson Já, hvernig væri að birta nöfn þeirra sem eiga og reka þessi fyrirtæki. Fjármagna þeir líka innflutning á fíkniefnum? Halldor Bragason Hverjir eru eigendur þessara smálána fyrirtækja? Eru meira að segja búnir að stofna samtök smálánafyrirtækja og senda lögfræðing í viðtöl sem kemur með all svakalega röksemd fyrir okrinu þ.e. að flestir lántakendur séu yfir tvítugt. Guðmundur Andri Thorsson Það var lögmaður með blátt bindi að tala máli Smálánafyrir- tækjanna í sjónvarpinu áðan eins og verjandi í sakamáli, sem hann náttúrlega er. En ég sá bara fyrir mér auglýsingarnar þar sem væntanlegir viðskiptavinir eru sýndir sem vitgrannir smá- hundar... Ævar Örn Jósepsson Heitir þetta ekki smánar- lánastarfsemi? Linda Laufdal Þetta eru hrein og bein okurlán og ég hélt að það væri ólöglegt að vera okurlánari samkvæmt lögum. Hvernig getur þetta verið löglegt?? Andri Sigurðsson Smálánafyrirtækið 1909 er með tvöfalt fleiri vini á Facebook en Dögun, Samstaða, Hreyfingin, Borgarahreyfingin, Píratapartýið og Björt framtíð til samans. Hver vill Lilju kveðið hafa? Lítil tíðindi eru fólgin í því að það blási um alþingiskonuna Lilju Mósesdóttur enda ekki langt síðan sá veðurglöggi Siggi stormur sagði skilið við stjórnmálaflokk hennar, Sam- stöðu. Valkyrjan Ásgerður Jóna Flosadóttir gekk síðan úr skaftinu í vikunni og nú vill Lilja ekki vera formaður í eigin flokki. Heiða B Heiðars Lilja er hætt í Lilju af því að hún hefur misst fylgi við Lilju sem aldrei hefur verið á kjörseðli. Páll Ásgeir Ásgeirsson Lilja Mósesdóttir stofnaði flokk 7. febrúar 2012. Hún ætlar ekki að bjóða sig fram til formanns á fyrsta landsfundi flokksins til að axla ábyrgð á fylgistapi. Missti ég af einhverju? Hvaða fylgi var þetta sem vannst og tapaðist? Var kosið meðan ég var á fjöllum í sumar? Stefán Pálsson Óvænt útspil Lilju Mósesdóttur opnar leiðina fyrir skjótan frama varaformanns Samstöðu. Hann er reyndar ennþá ungur Fram- sóknarmaður á bloggsíðunni sinni, en setur þar ný viðmið í notkun á eftirhermum í pólitísku starfi... Gunnar Lárus Hjálmarsson OK þá. Ég skal þá vera formaður Samstöðu. Eiður Svanberg Guðnason Þetta er líklega í fyrsta skipti sem stjórnmálamaður axlar ábyrgð á niðurstöðum skoðanakannana! Stefán Pálsson Síðasta sólarhringinn hefur enginn gengið úr flokki Lilju Mósesdóttur. Það er nú ekki svo slæmur árangur... Ómar R. Valdimarsson Mig langar ekki heldur til þess að verða formaður þessa flokks. Held ég þekki ekki bara neinn sem langar til þess... Ákærður fyrir brot á þagnarskyldu Gunnar Andersen, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, hefur verið ákærður fyrir brot á þagnarskyldu og brot í opin- beru starfi. Stjórn Fjármálaeftirlitsins sagði Gunnari upp 1. mars síðastliðinn og kærði hann til lögreglu. Það gerðist eftir að stjórn inni bárust upplýsingar um að Gunnar hefði látið taka saman gögn og koma þeim til DV. Áður höfðu stjórnin og Gunnar deilt opinberlega um framtíð hans í starfi. Stjórnin taldi að aðkoma Gunnars að aflandsfélögum Landsbankans í kringum aldamót og upplýsinga- gjöf til Fjármálaeftir- litsins væri þess efnis að Gunnari væri ekki lengur sætt í starfi. 357.000 ferðamenn höfðu komið til landsins í lok síðasta mánaðar. Til samanburðar höfðu rúmlega 304 þúsund manns komið til landsins á sama tíma í fyrra. kílómetra ekur leið 57 hjá Strætó tvisvar á dag milli Reykjavíkur og Akureyrar. 7.700 krónur kostar að fara alla leið. Boðið er upp á þráðlaust net í vagninum á leiðinni. Vikan í töLum A4 - Office oftast með lægsta verðið á skólabókum Allt að 83 prósenta verðmunur er á skólabókum, samkvæmt verðkönnun ASÍ. A4 - Office 1 var oftast með lægsta verðið á nýjum bókum í könnuninni, 15 af 33 titlum voru ódýrastir þar. Fatlaðir kjósi með eigin aðstoð Líklegt er að fatlaðir og sjónskertir fái að greiða atkvæði með aðstoð eigin aðstoðar- manna í þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs eftir tvo mánuði. Forsætisráðherra Danmerkur í opinbera heimsókn Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, kemur til landsins í opinbera heimsókn næstkomandi mánudag. Langflestir hafa fengið fram- haldsskólavist Langflestum sem sóttu um nám í fram- haldsskóla á komandi skólaári hefur verið tryggð skólavist, að því er fram kom hjá Katrínu Jakobsdóttir mennta- og menn- ingarmálaráðherra. Vextir Seðlabankans óbreyttir Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að halda vöxtum óbreyttum. Daglánavextir verða áfram 6,75%, vextir af lánum gegn veði til sjö daga 5,75%, hámarksvextir á 28 daga innistæðubréfum 5,5% og innlánsvextir 4,75%. Páll tekur við ritstjórn Skírnis Páll Valsson hefur verið ráðinn ritstjóri Skírnis - Tímarits Hins íslenska bókmennta- félags. Hann tekur við af Halldóri Guðmundssyni sem tekið hefur við starfi framkvæmdastjóra Hörpu. Nígerískar konur leita hælis hérlendis Sex konur frá Nígeríu hafa leitað hælis hér á landi það sem af er ári. Allar komu þær ýmist með börn sín með sér eða eru barns- hafandi. Nýrra leiða leitað við þyrlu- kaup Stjórnvöld leita nú nýrra leiða til að útvega þyrlur fyrir Landhelgisgæsluna. Horfið hefur verið frá samstarfi við Norðmenn og í undirbúningi eru hugsanleg kaup á eldri þyrlum. Tekur við „strákunum okkar“ Aron Kristjánsson hefur verið ráðinn þjálfari íslenska karlalands- liðsins í handbolta. Hann tekur við af Guðmundi Guðmundssyni sem náði frábærum árangri með liðið, silfri á ólympíuleikum og bronsi á EM. Aron er þjálfari Hauka í Hafnarfirði. Samningur hans við Hauka var til ársins 2014 en hann hefur verið styttur um eitt ár. Aron þjálfar því Haukaliðið samhliða íslenska landsliðinu í vetur. Aron hóf meistaraflokksþjálfun árið 2004 þegar hann tók við Skjern í Danmörku. Árið 2007 tók hann við þjálfun Hauka og gerði liðið að þreföldum Íslands- meisturum, árin 2008, 2009 og 2011. Auk þess hefur liðið undir hans stjórn unnið deildarmistara- og bikarmeistaratitil. Skólar voru settir í vikunni og þurfa ökumenn að vera sérstaklega vel á varðbergi gagnvart yngstu vegfarend- unum. Krakkar úr 3. og 4. bekk Krikaskóla í Mosfellsbæ voru vel á nótunum. Ljósmynd/Hari HeituStu koLin á Góð Vika fyrir Aron Kristjánsson handboltaþjálfara SLæm Vika fyrir Gunnar Andersen, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins 14.000 krónur fékk Rauði kross- inn að gjöf frá ungum aukaleikurum í Hollywoodmynd- inni Noah sem tekin var upp hérlendis. Peningarnir voru sektarsjóður fyrir blótsyrði Russells Crowe og kollega hans. 10 milljónir króna var verð- mæti aflans hjá aflahæstu bátunum í strandveiðum við Íslandsstrendur sem lauk í vikunni. Alls skiluðu strand- veiðar hátt í 2,7 milljörðum króna í aflaverðmæti. 12 manns voru ákærðir í kjölfar mótmæla vörubílstjóra árið 2008 og búsáhaldabyltingar- innar í byrjun árs 2009. Tveir þeirra í kjölfar mótmæla vörubílstjóra en tíu alls eftir búsáhaldabyltinguna. 100.000 manns sátu límdir við skjá- inn þegar Dans, dans, dans var á dagskrá RÚV síðasta vetur. Önnur þáttaröð fer í loftið í lok október undir styrkri stjórn Ragnhildar Steinunnar Jóns- dóttur. 388 30 fréttir Helgin 24.-26. ágúst 2012 vikunnar

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.