Fréttatíminn - 24.08.2012, Side 34
Þæng - grunnnámskeið
Nánari upplýsingar á heimasíðu: www.handidir.is
Skráning á námskeið í síma 616 6973,
eða sendið skráningarbeiðni á netfang: handidir@gmail.com
Handíðir, Garðatorgi 7, Garðabæ
4 námskeið kynningarblað Helgin 24.-26. ágúst 2012
Dansnám Dansskóli ReykjavíkuR
Foreldar og börn
dansa saman
Foreldar sækja danstíma með tveggja og þriggja ára börnum.
í kvöldskólanum koma oft til okkar menn sem hafa starfað við fagið í langan tíma, án
þess nokkurn tímann hafa lokið
formlegri menntun og vantar jafn-
vel lítið upp á til að klára prófið.
Þetta er yfirleitt fólk sem útskrif-
ast með hæstu einkunnir á sveins-
prófi, enda kemur það inn með
mikla reynslu úr atvinnulífinu
þar sem stór hluti menntunar fer
fram,“ segir Berglind Halla Jóns-
dóttir, áfangastjóri Fjölbrautaskól-
ans í Breiðholti. Hún segir jafn-
framt að starfsnámið í rafvirkjun,
húsasmíði og sjúkraliðabraut séu
þær greinar sem mest er sótt í af
því námi sem kvöldskólinn býður
upp á. Þrátt fyrir að starfstétt
smiða hafa hlotið talsvert högg við
efnahagshrunið, skynjar Berglind
Halla ekki minni áhuga og segir
marga hverja sem fara í gegnum
námið komast á samning.
„Mikil áhersla hefur verið lögð
á starfsnámið í kvöldskólanum
meðal annars með samstarfi við
fræðslumiðstöð atvinnulífsins þar
sem nemendur fara í raunfærni-
mat. Stærsti hlutinn af kvöldskóla-
nemendum er í starfsnámi, en
auðvitað erum við alltaf líka með
þá nemendur sem eru komnir til
að ljúka stúdentsprófi og töluvert
af fólki kemur hingað í tómstunda-
nám í tungumálum og jafnvel
tölvum, íslensku og sögu.“
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
er stór skóli með 13 námsbrautir,
1430 dagskólanemendur, 700
kvöldskólanemendur og 1500
nemendur í sumarskóla. Það
mætti ætla nemendurnir hverfi í
fjöldann. En annað er upp á ten-
ingnum.
„Hér er starfsfólk sem er
reiðubúið að þjóna og við leggjum
mikið upp úr því að sinna nemend-
um okkar vel og hjálpa hverjum
og einum eftir fremsta megni. Við
tökum vel á móti fólki og viljum
allt fyrir það gera og veita því ráð-
gjöf, finna lausnir og fylgja því
eftir í gegnum allt námið. Hrærð
fellum við svo tár við útskrift
þegar við sjáum á eftir nemendum
þó auðvitað séum við alltaf af-
skaplega stolt og glöð að sjá þá ná
árangri,“ segir Berglind Halla.
Skólinn þjónar mjög breiðum
hópi nemenda og telur Berglind þá
vera þversnið af þjóðfélaginu.
„Við fáum bæði fólk sem hefur
ekkert lært og fólk sem hefur lok-
ið öðrum prófum, jafnvel háskóla-
prófum. Bæði er fólk að sækja sér
símenntun, nýja menntun til að
fá stærri tækifæri eða einfaldlega
afla sér þekkingar sjálfum sér til
ánægju. Allt þetta fólk finnur sig
í áfangakerfinu, þar á meðal þeir
sem hafa fallið úr menntaskóla.
Hér er líf og fjör frá morgni til
kvölds og stemningin í skólanum
er alltaf góð,“segir Berglind Halla.
kvölDskóli FB BReiðum hópi nemenDa þjónað
Reiðubúin að þjóna
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti er eini kvöldskólinn á höfuðborgarsvæðinu sem býður upp á
starfsnám í rafvirkjun og húsasmíði.
D ansskóli Reykjavíkur býður í vetur skemmti-lega danstíma fyrir börn
á aldrinum tveggja til þriggja ára
ásamt foreldrum þeirra. Dans-
skóli Reykjavíkur er frumkvöðull
í þessari tegund dansnámskeiða
og þykir skólanum spennandi
að geta boðið börnum upp í dans
með foreldrunum. Samverustund
foreldra og barna og tómstunda-
starf sameinast í þessu nám-
skeið og um leið og mamma og
pabbi stíga í dans með börnunum
á dansgólfinu öðlast þau færni
til að dansa saman
heima í stofu oftast
við mikla gleði
barnanna.
Helstu barna-
dansarnir
og dansleikir
eru kenndir á
námskeiðinu og
áhersla lögð á
gleði og að hreyfa
sig í takt við
tónlist.
Eldri börnum
býðst að læra
almenna
sam-
kvæmisdansa, eins og vals og cha
cha og verða vinsælu jólaböllin
og grímutímarnir á sínum stað,
auk þess sem nemendasýningin
verður að sjálfsögðu haldin í vor.
Dansskóli Reykjavíkur hét
áður Dansskóli Ragnars, en með
tilkomu Lindu Heiðarsdóttur
sem meðeiganda var ákveðið að
breyta nafninu. Linda hefur mikla
reynslu að baki sem menntaður
kennari og sem samkvæmisdans-
ari. Aðalkennarar skólans eru
Ragnar Sverrisson, Linda Heið-
arsdóttir og Javier Fernancer Val-
ion sem kemur frá Spáni
og er nýjasti kennari
skólans og mun að
mestu leyti þjálfa
keppnispör
skólans
og
undir-
búa
sig
fyrir
dans-
mót bæði
á Íslandi og
erlendis.
Nemar í rafvirkjun í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti.