Fréttatíminn - 24.08.2012, Page 36
6 námskeið Helgin 24.-26. ágúst 2012
Námskeið í markþjálfuN
H erdís Pála Pálsdóttir aðstoðar fólk og fyrirtæki við að finna sínar eigin leiðir til að verða að því besta sem það getur orðið
með markþjálfun og námskeiðum. Hún á að baki
viðamikla reynslu af störfum við mannauðsstjórn
un en hún skipti nýlega um gír og settist hinum
megin við borðið, ef svo má segja.
„Ég hef lengi staðið að kaupum á fræðslu af
ýmsum fræðsluaðilum inn til þeirra fyrirtækja
sem ég hef starfað fyrir og veit því nokkuð vel eftir
hverju fyrirtæki eru að sækjast í þeim efnum,“
segir Herdís Pála Pálsdóttir sem rekur fræðslu
þjónustu, ráðgjöf og markþjálfun fyrir fyrirtæki
og einstaklinga. Hún er vel menntuð á sínu sviði,
með MBA gráðu með áherslu á mannauðsstjórnun,
B.Ed frá Kennaraháskóla Íslands og hefur hún
jafnframt lokið námi í markþjálfun frá Háskólanum
í Reykjavík. Þar að auki hefur hún starfað sem
grunnskólakennari, fræðslustjóri Íslandsbanka,
mannauðsstjóri og framkvæmdastjóri rekstrar og
þróunarsviðs Byrs.
„Sem markþjálfi get ég veitt einstaklingum og
smáum hópum góða eftirfylgni því í mörgum til
vikum er það svo að fólk þarf ekki á fleiri nám
skeiðum að halda heldur frekar stuðning og hvatn
ingu til að nýta alla þá þekkingu sem viðkomandi
hefur náð sér í. Það er auðvelt að sitja námskeið
og verða sér út um nýja þekkingu, en hana þarf að
nýta að námi loknu til að brjóta upp venjur og kom
ast upp úr gamla farinu. Mín sýn er því sú, ekki síst
fyrir stjórnendur og sérfræðinga sem farið hafa á
ótal námskeið, ráðstefnur og fleira eftir að form
legu námi lauk, að markþjálfun sé mjög æskilegur
og árangursríkur hluti fræðsluferlisins.“
Hvernig námskeið býður þú upp á?
„Það má segja að þau námskeið sem ég er
með séu af tvennum toga. Annars vegar eru það
námskeið sem snúa að allri mannauðsstjórnun,
stjórnun fyrir nýja og reynda stjórnendur, frammi
stöðumat, hvatningu og endurgjöf, samstarf og
samskipti ólíkra einstaklinga, innri samskipti og
fleira sem snýr að því að hafa fólk í vinnu,“ segir
Herdís Pála.
„Hins vegar eru það hvetjandi námskeið sem
eru jafnt fyrir stjórnendur og almennt starfsfólk,“
segir Herdís Pála og telur upp nokkur þeirra sem
bera jafnframt skemmtileg heiti, svo sem: Ert þú
páfugl í landi mörgæsa?, Ert þú það besta sem þú
getur orðið?“ „Ert þú korktappi eða skipstjóri?, Er
allt öðrum að kenna?, Verum ánægð án ástæðu.
„Allt eru það námskeið sem miða að því að vekja
fólk til umhugsunar um sjálft sig, og hvort það sé á
réttri leið í átt markmiðum sínum, jafnt í starfi og
einkalífi.“
Jafnframt býður hún upp á sérsniðin námskeið á
hennar þekkingarsviði.
Frekari upplýsingar um Herdísi Pálu og hennar
þjónustu má finna hér:
www.herdispala.is og www.facebook.com/her
dispala.is
Finndu þínar eigin leiðir
Ert þú páfugl í landi mörgæsa?
H austið fer af stað með látum. Það er einhver nýr kraftur og bjartsýni í landanum eftir hina einstöku blíðu sem hefur ríkt hér á landi í
sumar. Eftir verslunarmannahelgina fór allt af stað
og mun fyrr en síðustu ár. Það er geysilega jákvætt
og vonandi verður ekkert lát á að landsmenn verði
duglegir að hreyfa sig í vetur,“ segir Ágústa Johnson,
eigandi Hreyfingar.
Undanfarin ár hafa ný námskeið verið í
boði hjá Hreyfingu í takt við það nýjasta og
heitasta í líkamsrækt. „5stjörnu FIT er
glænýtt námskeið sem við Anna Eiríks
höfum sett saman eftir að hafa kynnt
okkur allt það nýjasta og vinsælasta í
ferð okkar til New York nýverið. Æf
ingarnar eru hannaðar til að umbreyta
líkamanum á kerfisbundinn hátt með
því að tóna handleggi, þjálfa flata
sterka kviðvöðva og með krefjandi
æfingum fyrir mjaðmir, rass og læri
sem styrkja, lyfta og móta líkam
ann. Æfingarnar eru stundaðar á
hnitmiðaðan og rólegan hátt
en eru krefjandi og skila
góðum árangri. Lögð er
áhersla á þægilega tónlist.
Þetta námskeið hentar
sérlega þeim sem vilja
krefjandi æfingar en engan hamagang, hopp og slíkt
heldur afslappað andrúmsloft en þó taka vel á í mark
vissri þjálfun og endurmóta línurnar,“ segir Ágústa en
bætir við að þetta sé bara eitt af þeim nýju námskeið
um sem séu í boði. Hún nefnir líka drauma æfinga
kerfið CLUB FIT sem er hópþjálfun á hlaupabrettum
og lyftingar með lóðum. Auk þess verði Hot Yoga, Hot
Fitness, Zumba, Fanta gott form og vinsæla átaks
námskeiðið Árangur áfram á sínum stað.
„Það sem er efst á baugi í Hreyfingu er
að nú standa yfir breytingar til að bæta
þjónustuna við viðskiptavini. Nýr hjóla
salur var nýverið tekinn í notkun og má
fullyrða að hann er sá fullkomnasti hér
á landi. Salurinn er sérstaklega hann
aður með stemningu í huga. Sérstakur
ljósabúnaður hefur verið settur upp
sem eykur til muna á upplifun þátt
takenda í hjólatímum og skapar
kraftmikla stemningu. En auk þess
er fullkomið hljóðkerfi og hið geysi
vinsæla Activio púlsmælakerfi en
flestir eru sammála um að þegar
fólk byrjar að nota það er
ekki aftur snúið. Hvatn
ingin sem kerfið veitir er
mikil og þjálfunin verður
mun markvissari og
skemmtilegri. Salur
inn hefur einnig verið
skreyttur skemmtilegu
veggfóðri þar sem lesa
má hafsjó af hvatn
ingarorðum sem getur
komið sér vel þegar fólk
er að vinna að markmiðum
sínum,“ segir Ágústa.
líkamsrækt Ný Námskeið HreyfiNgar
Kraftmikil eftir gott sumar
Ágústa Johnson hélt til New York nýverið og kynnti sér allt það nýjasta í heilsurækt.
Eftir verslunarmanna-
helgina fór allt af stað og
mun fyrr en síðustu ár. Ágústa Johnson, eigandi Hreyfingar.
Herdís Pála Pálsdóttir.
Námskeiðin að hefjast.
NámskeiðiN okkar eru að hefjast.
Glerbræðsla, leirmótun,
leirsteypa, GlerskartGripir
oG skartGripaGerð.mikið
úrval af skartGripa fni.
www.glit.is