Fréttatíminn - 24.08.2012, Qupperneq 46
Lillehammer 1994
J
Jafnaldrar mínir og skólafélagar hafa
átt stórafmæli allt þetta ár, færst til um
tug. Það hlaut því óhjákvæmilega að
koma að mér. Öll eldumst við víst um
eitt ár í senn og á tíu ára fresti breytist
fremri aldurstalan, frá 10 ára aldri að
aldarafmælinu. Fæstir ná þriggja stafa
tölu þótt dæmi séu þar um, einkum
meðal kvenna. Þær virðast betur af
guði gerðar, lífslíkur þeirra eru lengri
en karla. Íslenskir drengir geta vænst
þess að ná að meðaltali 79,9 ára aldri
en stúlkur 83,6 ára. Í stórum dráttum
getum við miðað við tommustokk
þar sem hver sentimetri á stokknum
nálgast það að vera eitt lífár. Freistandi
væri að miða við málband, sem yfirleitt
er 150 sentimetar, en það er víst til of
mikils mælst.
Þó skal engu spáð um hver þróunin
verður hvað varðar ævilengd mann-
fólksins. Framfarir í læknavísindum
hafa verið það miklar að meðal-
ævilengd Íslendinga, karla jafnt sem
kvenna, lengdist um 15 ár á rúmlega
50 ára tímabili á nýliðinni öld. Þetta
þýðir að vænta má mikillar fjölgunar
eldri borgara þegar fjölmennustu ár-
gangar Íslandssögunnar verða komnir
á eftirlaun, á árunum milli 2020-2030.
Því var spáð fyrir nokkrum árum að
árið 2030 yrði tæplega fimmti hver Ís-
lendingur eldri en 65 ára. Öldruðum
fjölgar því hraðar en ungu fólki en
hér á landi fækkaði lifandi fæddum
börnum á ævi hverrar konu úr 4,1 á
tímabilinu 1956-60 í 2,1 á árunum
1991-95.
Það er dásamlegt að bæta árum í
sarpinn, haldi fólk góðri heilsu. Það er
ekki sjálfgefið. Enn finnst mér ég vera
strákur og til í nánast hvað sem er.
Aldurinn er því líka huglægt ástand.
Maður er því ekki mikið eldri en mað-
ur vill vera sjálfur. Kannski ekki alveg
jafn sprettharður og á unga aldri og líti
maður í spegil má sjá að hárið hefur
breytt um lit. Inneignin í reynslubank-
anum hefur hins vegar aukist. Hægt er
að grípa til hennar þegar þurfa þykir.
Gott ef hún er ekki verðtryggð. Smá-
atriði skipta minna máli en áður.
Það þarf að fara vel með kroppinn
sem hýsir vitundina, sjálfið. Þetta veit
ég, enda löngum verið betri í hinu bók-
lega en verklega. Þar verð ég að játa
syndir. Ekki það að ég hafi beinlínis
farið illa með belginn, drukkið í hófi
og aldrei reykt, en beina líkamsrækt
hef ég leitt hjá mér frá því á barna- og
gagnfræðaskólaaldri og lengst af verið
í starfi sem lýsa má sem taugatrekkj-
andi. Á árum áður reyktu starfsfélagar
mínir meira en góðu hófi gegndi og
það við borð sín. Ég kom því gjarn-
an eins og hangikjöt heim að kvöldi.
Þótt ég reykti ekki sjálfur fékk ég
minn skammt af nikótíni og tjöru. Það
breyttist þegar reykingar voru bann-
aðar innan dyra og nikótínfíklarnir
hröktust út á svalir. Á menntaskóla-
árum mínum var ekki leikfimisalur
í skólanum og við kvörtuðum ekki
undan því. Tíðarandinn var þannig.
Anti-sportismi þótti fínn. Líkams-
ræktaræðið kom síðar. Það hafði ekki
önnur áhrif á mig en þau að eitt sinn
lét ég til leiðast og keypti árskort í
líkamsræktarstöð. Að ári liðnu hafði
ég notað það fjórum sinnum – og öll
þau skipti í fyrstu viku átaksins. Það
var ekki átak heldur átakanlega leiðin-
legt að þvælast tæki úr tæki innan um
rennandi sveitt fólk. Þetta voru vond
kaup. Golf reyndi ég en gaf mér ekki
tíma. Mér líkaði bærilega við sportið,
það litla sem ég reyndi, en hætti samt.
Stundum hef ég lagt á ráðin um göngu-
túra, þrisvar í viku eða svo, enda segja
sérfræðingar að það sé hollt. Þau plön
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík Sími: 534 7268
1.250 kr
1.350 kr
HOLLT
OG GOTT
PHO víetnamskur veitingastaður Ármúla 21 - 108 Reykjavík - Sími: 588 6868
1.250 kr
ALLT FYRIR
AUSTURLENSKA MATARGERÐ
699 kr. 550 kr.
387 kr.
320 kr.
Opið:
mán - föst Kl. 11 - 21
lau - sun Kl. 12 - 21
ÓSKUM EFTIR DUGLEGU OG
SKEMMTILEGU STARFSFÓLKI
umsokn@vidir.is
Okkur vantar aðstoð í hönnun, grafík og html.
ERUM ALVEG
Á HAUS!
Fullt af verkefnum hjá
Betri Stofunni:)
Vantar:
GRAFÍSKAN HÖNNNUÐ
og html-ara!
ErUM aÐ VInna GRAFÍK Í aDOBE
VEFI Í JOOMLa OG WOrDPrESS OG FL.
HtML - MSQL - DataBaSE - SÉrSMÍÐI OFL.
SKEMMtILEG OG FJÖLBREYTT VERKEFNI
ÁHUGASAMIR SEnDI FYrrI VErKEFnI OG UMSÓKnIr Á
vinna@betristofan.is
atH - UMSÓKnUM Er EKKI SVaraÐ Í SÍMa
67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011
34 viðhorf Helgin 24.-26. ágúst 2012