Fréttatíminn - 24.08.2012, Síða 47
Fært til bókar
Léttölið þambað í gríð og erg í krafti
auglýsinganna
Bjórauglýsingar í ljósvakanum dynja á
landsmönnum þrátt fyrir bann þar um. Þar
hafa menn sett kíkinn fyrir blinda augað.
Þetta fer í taugarnar á Eiði Guðnasyni,
fyrrum sendiherra, þingmanni og ráðherra.
Á síðu sinni segir hann: „Hér hefur oftlega
verið vikið að því hvernig m.a. Ríkissjón-
varpið fer á svig við landslög og auglýsir
bjór og bjórþamb í tíma og ótíma. Það er
gert undir því yfirskini að verið sé að aug-
lýsa léttöl. Orðið léttöl birtist í eina sekúndu
eða svo með smásjárletri í skjáhorni. Það
er í rauninni allt gert til að fela merkinguna
og Ríkissjónvarpið lætur sér það vel lynda.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra
vill setja undir þennan leka. Það á líka að
vera alveg skýrt hvað verið er að auglýsa.
Ef orðið léttöl birtist stórum stöfum skýrt
og greinilega í bjórauglýsingum væri
ekkert við þessu að segja. Orðið léttöl er
falið. Þessvegna er hér siglt undir fölsku
flaggi í skjóli Ríkisútvarpsins. Fyrirhuguð
breyting á lögum miðar ekki því að banna
framleiðendum að auglýsa léttöl. Alls ekki.
Tilgangurinn er að banna að auglýsa bjór
(eins og bannað er skv. íslenskum lögum)
undir því yfirskini að verið sé að auglýsa
léttöl. Að minnsta kosti þrír núverandi og
fyrrverandi þingmenn, þar af tveir fyrr-
verandi menntamálaráðherrar Sjálfstæðis-
flokksins, hafa lagst gegn því að þessu
verði breytt. Gott væri ef hægt væri að taka
höndum saman um að koma í veg fyrir lög-
brot Ríkissjónvarpsins og vernda um leið
börn og unglinga fyrir bjórauglýsingum
sem Ríkissjónvarpið treður inn á heimilin
í landinu.“ Svo mörg voru þau orð. Aug-
lýsingar þessarar gerðar hafa tíðkast um
langt árabil. Hvernig væri nú að menn létu
af afturhaldinu og leyfðu bjórauglýsingar í
stað þess að amast við þeim. Þetta minnir
á það þegar flugliðar og sjómenn einir
máttu flytja inn bjór. Við það mátti allur
almenningur búa í áratugi, þar
til Davíð Scheving Thor-
steinsson iðnrekandi braut
það á bak aftur með harð-
fylgi í Leifsstöð. Frá árinu
1989 hafa Íslendingar því haft
frjálsan aðgang að bjór, eins og
aðrar þjóðir. Vaflaust geta einhverjir haldið
því fram að bjórauglýsingar auki drykkju
en líklegra er þó að þær hafi fremur áhrif á
það hvaða bjórtegund menn kaupa, hvort
þeir velja Carlsberg fram yfir Tuborg – eða
einhverja aðra tegund. Allir vita jú að það
fæst bjór í Ríkinu. Fróðlegt væri að sönnu
að vita hvort allar þær tegundir sem
auglýstar eru sem léttöl séu fáanlegar.
Fæstir reka augun í annað léttöl í
matvöruverslunum þessa lands
en gamla góða Pilsnerinn frá
Ölgerðinni.
LEIÐIN TIL
HOLLUSTU
www.skyr.is
Norræna matvælamerkið
Skráargatið auðveldar þér að
velja holla matvöru.
Vörur með Skráargatinu verða
að uppfylla ákveðin næringar-
viðmið og teljast hollastar í
sínum fæðuflokki.
Skyr.is drykkirnir standast
þessar ströngu kröfur, þú
getur því treyst á hollustu
Skyr.is.
67%
... kvenna á
höfuðborgar-
svæðinu
lesa Fréttatímann*
hafa fallið um sjálf sig þótt fínar
gönguleiðir séu allt í kringum
heimilið.
Mér datt í hug, daginn sem
fyrri talan breyttist í aldri
mínum, að taka upp nýja siði
og hefja daglegar gönguferðir.
Minn innri maður, sjálfið sem
geymt er í kroppnum, sagði
mér að þetta væri skynsamlegt.
Ég hafði hins vegar svo mikið
að gera afmælisdaginn að þetta
fórst fyrir. Daginn eftir var ég
að jafna mig og komst ekki.
Svo hófst ný vinnuvika með
löngum vinnudögum. Ástandið
er því óbreytt hvað líkamsrækt-
ina varðar á nýja áratugnum.
Áformin eru þó góðra gjalda
verð og um að gera að reyna,
þótt síðar verði. Golfsettið er
á sínum stað, rykfallið í bíl-
skúrnum en brúkhæft þegar ég
nenni. Sama á við um göngu-
skóna. Þeir eru af vandaðri gerð
og tilbúnir í slaginn.
Gamansöm afkvæmi afmæl-
isbarnsins settu saman mynd-
band um íþróttafrek föður síns
og sýndu gestum sem heiðruðu
hann. Þar bar hæst stutt mynd-
skeið undir heitinu Lilleham-
mer 1994 og vísaði til afreka á
vetrarólympíuleikunum það ár.
Sjálfsagt hefur það verið um
það leyti sem pistilskrifarinn
ákvað, enn einn ganginn, að
vinna bug á hreyfingarleysinu.
Því var fjárfest í gönguskíð-
um. Eldri sonurinn var með
vídeódellu á þeim tíma og kvik-
myndaði fyrstu – og síðustu
– skref föður síns á skíðum.
Skíðaganga stirðra hefur ekki
í annan tíma verið gengin af
meiri einbeitni. Æfingum lauk
samdægurs. Skíðin, og forláta
skíðaskó, má finna við hliðina á
golfsettinu í bílskúrnum.
Vinahópur bætti um betur að
lokinni sýningu hinnar ólymp-
ísku göngu og færði afmælis-
drengnum gjöf, ef vera kynni að
hann tæki sig saman í andlitinu
og byrjaði loksins að hreyfa sig.
Í fallega skreyttum pakka var
hvorki að finna skíði, skauta
né nýtt golfsett heldur tól
sem hópurinn góði taldi hæfa
virðulegum aldri viðkomandi –
göngugrind!
Helgin 24.-26. ágúst 2012 viðhorf 35