Fréttatíminn - 24.08.2012, Síða 48
36 bílar Helgin 24.-26. ágúst 2012
Daimler Framleiðslu oFurlúxusbíla hætt
ForD Árgerð 2013 aF C-max tvinnbílnum
Sama eyðsla í langkeyrslu og borgarakstri
Ford hefur sett ný viðmið þegar kemur að eldsneytis-
notkun með 2013 árgerð af Ford C-tvinnbílnum. Í
fyrsta skipti eru tölurnar um eldsneytisnotkun þær
sömu hvort sem um er að ræða borgarakstur, blandað-
an akstur eða langkeyrslu eða 5 lítrar á hundraðið en
þessar tölur voru á dögunum staðfestar af bandarísku
umhverfisstofnuninni, að því er fram kemur á síðu
Brimborgar, umboðsaðila Ford.
Þar kemur fram að Ford C-MAX hafi verið valinn bíll
ársins 2011 í Danmörku. Þann árangur megi ekki síst
þakka innleiðingu tækninýjunga í C-MAX en Ford hafi
verið leiðandi þegar kemur að lágri eldsneytisnotkun
og sparneytni.
„Meðal þessara nýjunga er kerfi sem gerir öku-
mönnum viðvart þegar hámarksnýting er á eldsneytis-
notkun með ljósmerki í mælaborði bílsins og ECO-
Cruise. Það er hraðastillir, líkt og þeir hefðbundnu,
nema með honum sparar bíllinn orku með því að
minnka hraðann við tilteknar aðstæður, eins og þegar
ekið er upp brekku, og spara þannig dýrmæta orku,“
segir enn fremur.
Hjá Brimborg fæst Ford C-MAX með 1,6 lítra og
2,0 lítra TDCi-dísilvélum, beinskiptur og sjálfskiptur.
Tvinnbíllinn er væntanlegur seinni hluta næsta árs eða
um þar næstu áramót.
Ford C-MAX. Hann fæst með dísilvélum en
tvinnbíllinn er væntanlegur hingað til lands
síðla næsta árs eða um áramótin 2013/2014.
ÞRIÐJA OG SÍÐASTA UMFERÐ
ÍSLANDSMÓTSINS
Í GÖTUSPYRNU
FLOKKAR
Aðgangseyrir 1.000 kr.
Frítt fyrir 12 ára og yngri
í fylgd með fullorðnum
www.kvartmi la . is
DAGSKRÁ 14.00 Keppni hefst
16.45 Keppni lýkur
17.00 Verðlaunaafhending
á pallinum
Mótorhjólaflokkar
• Hjól að 800cc
• Hjól 800cc +
Bílar með drifi á einum
öxli keppa í 4 flokkum
• 4. cyl bílar
• 6. cyl bílar
• 8. cyl + bílar
• 8. cyl. bílar 1983 og eldri
Fjórhjóladrifnir bílar
keppa í einum flokki
• 4x4 bílar
Fornbílar keppa í einum
flokki
• Fornbílar - Teppaflokkur
Jeppar, trukkar
• Trukkaflokkur
Laugardaginn 25. Ágúst á kvartmílubrautinni
Nýr Mercedes-Benz GLK frumsýndur
Nýr Mercedes-Benz GLK verður
frumsýndur í bílaumboðinu Öskju
á morgun, laugardaginn 25.
ágúst. Nýja útfærslan af þessum
vinsæla, fjórhjóladrifna sportj-
eppa er talsvert breytt í útliti og
hönnun. Framhluti og innrétting
GLK hafa verið endurhönnuð og
eru nú enn glæsilegri en áður, að
því er fram kemur í tilkynningu
umboðsaðilans. Meðal nýjunga í
búnaði eru LED-dagljósabúnaður
og sjálfskipting í stýri.
„Þá er nýr GLK sparneytnari,
betur búinn og öflugri en nokkru sinni. Dráttargetan er nú 2.400 kg og alls 400 kg
meiri en í eldri gerðinni. Meðaleyðsla GLK er 6,5 lítrar á hundraðið í blönduðum akstri,
sem er enn minni eyðsla en i eldri gerðinni sem lenti í verðlaunasæti bæði 2011 og
2012 í sínum flokki í sparaksturskeppni Atlantsolíu,“ segir enn fremur.
Verð á nýjum GLK er frá 6.890.000 krónum. Fulltrúi frá Mercedes-Benz í Þýskalandi
verður á staðnum ásamt starfsfólki Öskju og veitir góð ráð um aukabúnað, vara-
hluti og viðhald. Þá gefst gestum færi á svara nokkrum laufléttum spurningum og í
verðlaun verða helgarafnot af nýjum GLK. Frumsýningin er klukkan 12-16 á laugardag
í Öskju að Krókhálsi 11.
Meðal nýjunga í búnaði nýs Mercedes Benz
GLK eru LED-dagljósabúnaður og sjálfskipting
í stýri.
Maybach lúxusbíla-
merkið lagt niður
Tap var á fram-
leiðslu Maybach
sem keppa
átti við Rolls
Royce. Rúmlega
aldargamalli en
slitróttri sögu
Maybach er lokið.
Ofurlúxus S-línu
Benzar eiga að
fylla í það tóma-
rúm sem skapast.
m aybach lúxusbílamerkið í eigu Daimler (Mercedes) hefur verið lagt niður og framleiðslu
á þessum ofurlúxusvögnum hefur verið
stöðvuð. Þar með lýkur 103 ára sögu
bíltegundar sem hófst árið 1909 þegar
Wilhelm Maybach stofnaði vélasmiðju
sína. Sú saga er þó ekki samfelld því að
starfsemi Maybach stöðvaðist í stríðs-
lok, árið 1945, og hófst ekki á ný fyrr en
árið 1997 þegar Daimler hóf framleiðslu
á rándýrum ofur-lúxusbílum, að því er
fram kemur á síðu Félags íslenskra bif-
reiðaeigenda.
„Það varð sannarlega ekki ferð til fjár,“
segir á síðu FÍB, „því að tap var alla tíð
á rekstrinum. Kaupendur reyndust allt
of fáir og framleiðslan því hvergi nærri
nóg til að rísa undir þróun og nýsköpun.
En hjá Daimler skilur Maybach þó eftir
sig tómarúm, sem ætlunin er að fylla
með nýrri kynslóð ofurlúxus-Benz bíla af
S-línunni. Þeir Maybach bílar af árgerð
2012 sem búið var að framleiða virðast
allir vera gengnir út...“
Frá því er síðan greint að það hafi verið
á bílasýningunni í Frankfurt árið 1997
sem fyrstu nútíma-Maybach bílarnir voru
frumsýndir. Mikið var gert úr lúxusnum
og dýrðinni í kringum bílinn þar og voru
bílarnir sýndir í sérstöku horni sýningar-
svæðis Mercedes. Þar stóðu þeir afgirtir
og tröllvaxnir öryggisverðir gættu þess
að enginn gæti nálgast þá, gæti snert þá
og hvað þá sest inn í þá til að máta sig við
sætin og innréttingarnar. „Tíðindamaður
FÍB,“ segir enn fremur á síðu félags-
ins, „var á staðnum meðan sýningin var
einungis opin blaða- og fréttamönnum
og leitaði eins og fleiri eftir því að fá að
skoða bílinn nánar en fékk ekki. Öllum
slíkum beiðnum var svarað neitandi og
litaðist umfjöllun fjölmiðla um þennan
nýja bíl mjög af því og var ekki jákvæð.
Þau 16 ár sem framleiðslan stóð náði
salan aldrei neinu flugi þótt ýmislegt
væri reynt. Síðasta tilraunin var gerð í
tengslum við 125 ára afmæli Mercedes
Benz en þá var kynnt sérstakt afmælis-
módel; Maybach Edition 125 á bílasýn-
ingunni í Frankfurt. En það hafði engin
áhrif. Afmælismódelið varð aðeins síð-
asta dauðateygjan.
Stofnandinn; Wilhelm Maybach hóf
feril sinn í bílaiðnaðinum hjá Daimler
og stýrði þar tækniþróunarmálum um
skeið. Hann hætti hjá Daimler árið 1907
og stofnaði eigin smiðju tveimur árum
síðar ásamt syni sínum Karli. Feðgarnir
voru hugfangnir af fluginu og einbeittu
sér fyrstu árin að því að smíða flugvéla-
mótora. Í lok fyrri heimsstyrjaldar árið
1918 hófu þeir svo að byggja bíla. Fyrsti
raðframleiddi Maybach bíllinn kom svo
fram árið 1921 og hét W3. Framleiðslan
gekk vel og Maybach bílar þóttu traustir,
öflugir og hraðskreiðir og urðu einskonar
einkennisbílar valdamanna, auðmanna
og frægðarfólks. Þegar seinna stríðið
braust út árið 1939 lagðist bílaframleiðsl-
an niður og við tók framleiðsla hergagna.
Bílaframleiðsla hófst ekki á ný hjá
Maybach eftir að stríðinu lauk árið 1945.
Árið 1960 keypti Mercedes Maybach
verksmiðjuna og vörumerkið með, en
bílaframleiðsla hófst þó ekki fyrr en á 10.
áratugnum sem fyrr segir. Þó þreifuðu
menn fyrir sér og sýndu t.d. frumgerð
bíls sem greinilega var settur til höfuðs
Rolls Royce og Bentley árið 1997. Nokkr-
ar fleiri frumgerðir voru svo sýndar á
ýmsum stórum bílasýningum næstu
árin uns framleiðslugerðin; Maybach 57
birtist og skömmu síðar Maybach 62. Í
raun var þetta einn og sami bíllinn tækni-
lega séð, nema hvað annar var 5,7 metra
langur en hinn 6,2 m.
Kaupenda-markhópurinn var fyrst og
fremst auðugir Bandaríkjamenn sem á
10. áratugnum sóttust mjög eftir evrópsk-
um lúxusbílum. En það brást. Best gekk
salan árið 2004 en þá seldust á heimsvísu
alls 244 Maybach bílar en salan varð eftir
það lengst af þetta 120-150 bílar árlega.“
Best gekk
salan árið
2004 en þá
seldust alls
244 May-
bach bílar.
Lúxusbílar Maybach seldust illa og tap var á framleiðslunni alla tíð frá
því að Daimler (Merceces-Benz) endurvakti lúxusbílamerkið árið 1997.