Fréttatíminn - 24.08.2012, Page 64
Það
komast
bara
sárafáir
að og
þetta
er bara
svona
eins
og lítill
fundur.
Svarið við spurningu dagsins
HVAÐ ER Í MATINN?
Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgiskar@fylgiskar.is - fylgiskar.is
Tilbúnir skréttir · Ferskur skur
Heitur matur í hádeginu · Veisluþjónusta
Friðgeir einarsson Leikur heima í stoFu á LókaL
Leit að rómantík í reglustrikuðu hverfi
Alþjóðlega leiklistarhá-
tíðin Lókal hófst á
miðvikudag og stendur
yfir alla helgina. Fókus-
inn að þessu sinni er
á sviðslist frá þremur
borgum í Evrópu;
Reykjavík, Dublin og
Berlín. Við val á verk-
efnum á hátíðinni er
horft til listafólks sem
reynir á hefðbundin
mörk sviðslista. Leikar-
inn Friðgeir Einarsson
er einn þeirra sem
treður upp á Lókal en
hann býður áhorfendum
á einleik sem hann
flytur heima í stofu.
V erkið sem ég ætla að flytja í stofunni heima hjá mér heitir Blokk. Þetta er einleikur fjallar um blokkahverfi við Háaleitisbraut,“ segir Friðgeir. „Ég bý þarna og er búinn að vera að rannsaka hverfið,
svo að segja, í sumar og kynnt mér sögu þess og byggingu.“
Friðgeir flutti í Háaleitið fyrir nokkrum árum og segist því hafa sáralitla
tengingu við hverfið. „Þetta er ekki mitt uppvaxtarhverfi og ég þekki
fáa sem búa hér. Þannig að ég hef svona verið að leita að einhvers konar
tengingu. Þetta er líka ekki hverfi sem fólk rómantíserar eins og til dæmis
Vesturbæinn, Breiðholtið eða Vogana. Einhvern veginn er mjög sjaldan
horft á Háaleitið í einhverju svona rómantísku ljósi og ég er einhvern veg
inn að reyna að finna töfrana í þessu reglustrikaða hverfi.“
Friðgeir býður áhorfendum heim í stofu þar sem hann ætlar að „kynna
fyrir þeim áform sem ég hef fyrir hverfið og hvernig megi auka verðmæti
þess.“ Eins og gefur að skilja komast ekki margir áhorfendur á hverja
sýningu. „Það komast bara sárafáir að og þetta er bara svona eins og lítill
fundur.“ Og mörkin á milli leikarans og persónunnar sem hann túlkar
eru óljós. „Í þessu blandast svolítið saman mín persóna og síðan kannski
persóna verksins, þannig að munurinn er kannski ekki endilega alltaf ljós.
Og ég átta mig ekki alltaf á muninum sjálfur. Síðan koma fleiri að þessu.
Vinur minn verður sérstakur aðstoðarmaður minn og sambýliskonan mín
kemur við sögu líka. Þetta er svona heimilisverkefni eða heimilisskemmt
anaiðnaður. “ Friðgeir sýnir Blokk heima hjá sér á föstudag klukkan 21, á
laugardaginn klukkan 15 og á sunnudag á sama tíma.
Amy Comroy mætir einnig frá Dublin til leiks á Lókal. Hún er bæði höf
undur og leikari í verkinu I <3 Alice <3 I sem fjallar um tvær fullorðnar
konur sem koma út úr skápnum eftir að hafa búið hvor með annarri í 25 ár.
Amy fékk Dublin Fringe Award verðlaunin 2010 fyrir verkið. Sýningin er í
Hafnarhúsinu á föstudag klukkan 19 og á laugardaginn klukkan 17.
Friðgeir Einarsson
setur sig í stell-
ingar á þröngu
leiksviðinu í
stofunni heima.
norrænir sViðsListadagar LiFandi LeikLestur
Mikið líf verður í leikhústuskunum í Reykjavík um
helgina en þá verða Norrænir sviðslistadagar haldnir
samhliða leiklistarhátíðinni Lókal og Reykjavik dance
festival. Á þessa viðburði streymir listafólk og stjórn
endur frá Evrópu, Bandaríkjunum og Ástralíu.
Norræna leikskáldalestin rúllar af stað um helgina
en hún kemur í stað Norrænu leikskáldaverðlaunanna
sem hafa til þessa verið veitt einu norrænu leikskáldi
á tveggja ára fresti.
Leikárið 2012 2013 munu fimm norræn leikskáld,
eitt frá hverju landi, ferðast með leikskáldalestinni,
með tilnefnt leikrit í farteskinu.
Lestin fer af stað á Íslandi og Charlotte Böving leik
stýrir leiklestri upp úr verkunum hér á landi. „Við
verðum með sviðslestur með aðkomu fimmtán ís
lenskra leikara sem koma á svið og lesa af blaði. Við
erum búin að vinna í þessu í tvær vikur og erum kom
in með dálítið skemmtilegar lausnir,“ segir Charlotte.
„Þetta eru fimm vel skrifuð, spennandi en ólík verk
og við ákváðum að fara þá leið að bjóða upp á hálftíma
lestur úr hverju verki fyrir sig. Að þessum mikla lestri
loknum stíga svo skáldin á svið, svara spurningum
áheyrenda og ræða verkin. Þau verða öll lesin á ensku
svo allir geti skilið.“
Lestin fer síðan um hin Norðurlöndin á leikárinu og
leikarar í hverju landi um sig taka þau sínum tökum
þar.
Leiklestrarnir fara fram í Þjóðleikhúsinu, Kass
anum á laugardaginn og sunnudaginn og hefjast
klukkan 15 báða dagana. Aðgangur er ókeypis.
Verkin
fimm
Peter Asmussen:
Enginn hittir engan.
Danmörk
Tuomas Timonen:
Saga Megan.
Finnland
Bragi Ólafsson:
Hænuungarnir.
Ísland
Arne Lygre:
Ég hverf.
Noregur
Martina Montelius:
Mira á leið hjá.
Svíþjóð
Leikkonan
Charlotte Bövig
leikstýrir íslensku
útfærslunni á
leiklestri fimm nor-
rænna leikskálda.
Norræna leikskáldalestin fer í gang
FRUMSÝNING 20. OKTÓBER KL. 20
2. sýn: Föstudaginn 26. október
3. sýn: Laugardaginn 27. október
4. sýn: Sunnudaginn 4. nóvember
5. sýn: Laugardaginn 10. nóvember
6. sýn: Laugardaginn 17. nóvember
Miðasala í Hörpu og á www.harpa.is - sími 528 5050 - midasala@harpa.is
www.opera.is
52 menning Helgin 24.-26. ágúst 2012