Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.08.2012, Síða 66

Fréttatíminn - 24.08.2012, Síða 66
JAZZHÁTÍÐ REYKJAVÍKUR 24.ÁGÚST - 20:00 Harpa/Kaldalón THEO BLECKMAN OG HILMAR JENSSON Sigríður Thorlacius, Pétur Grétarsson, Shahzad Ismaily. 21:30 Kex Hostel // Gym og Tonic BRINK MAN SHIP - Borgarelektróník eins og hún gerist best 25.ÁGÚST - 11:30 Harpa/Kaldalón ÁRDEGISTÓNLEIKAR AGNARS MÁS MAGNÚSSONAR 20:00 Harpa/Silfurberg JACK MAGNET SExTETTINN/ GíTARSTEfNu- MÓT PAuL BROwN OG fRIðRIK KARLSSON. Sérstakir gestir Móses Hightower. 26.ÁGÚST - 16:00 Iðnó TRISTANO PROJECT 20:00 Iðnó SIGuRðuR fLOSASON KvARTETT ÁSAMT NIKOLAJ HESS. 18. ÁGÚST – 1. SEPTEMBER www.reykjavikjazz.is Z 20 12J A Z REYKJAVÍK PO R T h ö n n u n norra na husid e - - B jörn Flóki flutti til Banda-ríkjanna fyrir tveimur árum til þess að ljúka masters- námi í kvikmyndagerð og hefur búið í New York síðan. Hann út- skrifaðist í maí og síðan þá hefur hann sökkt sér ofan í sögu föður- ins og dragg-drottningarinnar James Ross. „Þetta var síðasta verkefnið mitt í skólanum og það hefur svo bara verið að vinda upp á sig og stækka. Þetta er mjög ánægjulegt allt saman og gaman að hafa eitthvað fyrir stafni svona strax eftir útskrift.“ Björn fjármagnaði Drag Dad með því að óska eftir frjálsum framlögum á vefnum kickstarter. com og undirtektirnar fóru fram úr björtustu vonum. „Takmarkið var 16.000 dollarar en við end- uðum í 22.600 og héldum áfram að fá framlög eftir að söfnuninni lauk. Ég er hissa og himinlifandi og þetta eru miklu betri viðbrögð en ég átti von á.,“ segir Björn. Næsta skref er því að sækja James og son hans Jeremiah heim til Atlanta og taka upp efni. „Við erum að undirbúa tökur og förum til Atlanta í byrjun október. Við ætlum að vera þar í átta daga og metum svo, út frá því hversu mikið efni við framleiðum, hvort myndin verði stuttmynd eða í fullri lengd. Efnið og sagan munu ráða því.“ Björn uppgötvaði James, eða Tyru Sanchez, í raunveruleika- þættinum RuPaul´s Drag Race. „Ég hélt mikið upp á þennan þátt sem er ótrúlega fyndinn og skemmtilegur. Þarna kynntist maður litríkustu persónuleikum raunveruleikasjónvarpsins sem voru vissulega með mikla stæla en líka mjög einlægir. Mér fannst þessi náungi bara alltaf lang áhugaverðastur og mér fannst að það væri eitthvað meira á bak við hann en við fengum að sjá. Hann var svona „tíkin“ í þáttunum og var lagður í smá einelti af hinum kepp- endunum. Hann var lang yngstur, tuttugu og eins árs og svolítið óþroskaður.“ Tyra upplýsti meðal annars í þáttunum að fæðing sonar hans hefði bjargað lífi hans. „Hann talaði oft um son sinn og hversu erfitt það væri að vera í burtu frá honum. Það tæki hann mjög sárt. Þetta vakti áhuga minn og mig langaði að vita meira um hann,“ segir Björn. Tyra/James sigraði í þættinum við mismikinn fögnuð. „Hann hefur eiginlega verið útskúfaður í dragg-heiminum síðan vegna þess að fólki fannst hann ekki eiga skilið að vinna. Vegna þess að það kunni ekki að meta persónu- leikann. Mér fannst saga hans hins vegar svo áhugaverð að ég hafði bara samband við hann. Mig lang- ar að kafa undir yfirborðið og fá að vita meira um líf hans og baráttu. Pabbi hans neitar til dæmis að horfast í augu við hvað hann gerir og neitar að styðja hann. Pabbi hans rak hann að heiman þegar hann var sautján ára þannig að þarna er tækifæri til að skoða tvöfalt feðgasamband. James og Jeremiah, annars vegar, og James og föður hans hins vegar.“ Þegar James var heimilislaus kom besta vinkona hans honum til bjargar. Þau urðu ástfangin og eignuðust Jeremiah saman. „Síðan fór hann að vinna fyrir sér og barninu á dragg-klúbbum, varð svona rosalega góður og sigraði stærstu dragg-keppni í heimi.“ Björn fagnar því ekki síst að fá tækifæri til þess að gera mynd um föður eins og James og vonast til þess að geta sýnt fram á að kyn- hlutverk ráði engu um hversu góð- ir foreldrar fólk geti orðið. Hann er sjálfur samkynhneigður og hefur, ásamt sambýlismanni sínum til níu ára, kannað möguleika á ætt- leiðingu og fengið að kynnast for- dómum gegn samkynhneigðum í þeim málum. James vonast einnig til þess að Drag Dad muni opna augu fólks en í viðtali um verkefnið ytra sagðist hann gera sér vonir um að myndin muni auðvelda samkynhneigðum pörum að ættleiða. „Ég held að samkynhneigðir foreldrar séu alveg eins og allir aðrir foreldrar. Við elskum öll börn og öll þráum við að eignast börn.“ Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is  Björn Flóki Gerir heimildamyndina draG dad Hann tal- aði oft um son sinn og hversu erfitt það væri að vera í burtu frá honum. Góður pabbi og dáð dragg-drottning James William Ross IV, sem hefur slegið í gegn í Bandaríkjunum í draggi sem Tyra Sanchez, vinnur fyrir sér og sjö ára syni sínum með því að troða upp í kvenmannsgervi. Kvikmynda- gerðarmaðurinn Björn Flóki ætlar að segja sögu þeirra feðga í heimildamyndinni Drag Dad. Björn Flóki er samkynhneigður og hefur ásamt manni sínum rekið sig á þá veggi sem mæta samkynhneigðum sem vilja ættleiða barn. Með myndinni vill hann ekki síst sýna fram á að fólk geti verið góðir foreldrar óháð kynhneigð og fleiri en karl og kona geti alið upp barn saman. Björn Flóki leit ekki á sig sem heimildamyndagerðarmann fyrr en Drag Dad-verkefnið vatt upp á sig. Kvikmyndagerð snýst um að segja sögur og hreyfa við fólki og þá breytir engu hvort um er að ræða heimildarmyndir eða leiknar myndir,“ segir Björn sem stefnir að því að reyna fyrir sér á báðum sviðum til að byrja með. Jeremiah er sjö ára og elst upp hjá föður sínum sem lifir tvöföldu lífi og er einnig dragg- drottn- ingin Tyra Sanchez. Tónlistarhátíðin Gæran fer fram á Sauðárkróki um helgina. Tón- leikar verða bæði föstudagskvöld og laugardagskvöld í húsnæði Loð- skinns, en verksmiðjunni hefur verið breytt í tónleikastað. 20 hljómsveitir koma fram á Gærunni í ár, jafn þekktar sveitir sem ungar og upprennandi. Mark- mið hátíðarinnar er einmitt að gefa ungum og upprennandi hljóm- sveitum tækifæri á að spila fyrir framan fullt af fólki í góðu hljóð- kerfi og í bland við þekktari nöfn. Meðal þeirra sem koma fram eru Sverrir Bergmann og Mun- aðarleysingjarnir, Brother Grass, Eldar, Gildran, Eivör Pálsdóttir, Hljómsveit Geirmundar Valtýsson- ar, Nóra, Death by Toaster, Skytt- urnar, The Wicked Strangers, Dúkkulísurnar og Bee Bee and the Bluebirds. Miðasala fer fram á Miði.is og á Kaffi Krók á Sauðárkróki.  hátíð Gæran í þriðja sinn Rokkað á Króknum Strák- arnir í hljóm- sveitinni Eldar troða upp á Gærunni um helgina. 54 dægurmál Helgin 24.-26. ágúst 2012

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.