Fjarðarpósturinn - 17.12.2009, Qupperneq 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 17. desember 2009
Nágrannasveitarfélagið okkar er nánast
gjaldþrota og í skýrslu eftirlitsstofnunar sveit -
arfélaga segir að það sé ekki hægt að kenna
efna hagshruninu um. Á Álftanesi hefur bæjar -
stjórnin logað í illdeilum í mörg ár. Skyldi þar
vera að finna orsök vandans? Bæjarbúar kjósa
eina bæjarstjórn. Henni ber að vinna saman að
framgangi síns sveitarfélags. Oft vill skorta á
það og persónulegar og flokkspólitískar erjur fá
að skemma starf bæjarstjórna. Það er ekki bara minnihlutans að
veita aðhald. Það er hvers og eins bæjarfulltrúa enda mega menn
aldrei gleyma sér í eigin ágæti og sigla svo blint að feigðarósi.
Allir bæjarfulltrúar unnu nú að gerð fjárhagsáætlunar fyrir Hafn ar -
fjörð sem boðar mikinn niðurskurð. Af hverju hafa menn ekki alltaf
unnið saman að áætlanagerð? Samstarf og samvinna á að einkenna
bæjarstjórnir og bæjarbúar eiga að sýna aðhald og tryggja að háværir
hópar geti att bæjarstjórnum út í framkvæmdir sem sveitarfélagið
ræður ekki við eða raskar fjárhagslegri getu þess til að sinna öðrum
málum. Það er flott að geta sagt að þessi og hin höllin hafi verið byggð
en það er oftast á kostnað annarra og jafnvel brýnni verka.
En það er hinn almenni borgari sem sýnir að við búum í þjóðfélagi
sem okkur er annt um. Gott dæmi um það er Sverrir Víg lundsson í
matstofunni „Á milli hrauna“. Hann og tvö börn hans og þeirra
fjölskylda ásamt einum starfsmanna helga aðfanga dagskvöld vinnu
fyrir þá sem minna mega sín. Þarna mun hópur fólks, ungir sem
aldnir, taka á móti fólki með hlýju í hjarta og veita þeim ánægjulegt
aðfangadagskvöld. Þjóðfélög byggjast upp á því að við sýnum
hinum næsta kærleika. Við eigum að geta verið sjálfbær kærleiksrík
þjóð. Við eigum ekki að þurfa að bíða eftir að góð gerðarsamtök
styðji náunga okkar. Við getum sjálf sýnt kærleika og aðstoð – hvert
og eitt. Það er okkur aldrei ljósara en nú að það er sælla að gefa en
að þiggja.
Fjarðarpósturinn þakkar lesendum sínum og viðskiptavinum
ánægju lega samveru á árinu sem er að líða. Róður héraðsfréttablaða
hefur þyngst mjög á undanförnum árum og þrátt fyrir aukna aug lýs -
ingasölu hækkar kostnaður langt umfram tekjur. Fjarðarpósturinn
hefur verið með óbreytta verðskrá í 8 ár og tilboðsverð hafa jafnvel
lækkað. Slíkt gengur ekki lengi. Ég horfi því björtum augum á
framtíðina og treysti á að fyrirtækjaeigendur nýti sér langbesta
auglýsingamiðilinn fyrir Hafnarfjörð. Fjarðarpósturinn er ómissandi
hluti af menningu Hafnarfjarðar.
Gleðileg jól. Guðni Gíslason.
Útgefandi: Keilir útgáfufélag ehf., kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Víðistaðakirkja
4. sunnud. í aðventu – 20. desember
Barnaguðsþjónusta kl. 11
Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
Aðfangadagur jóla – 24. desember
Aftansöngur kl. 18
Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur. Barna- og
stúlknakór Víðistaðakirkju syngur undir stjórn Áslaugar Bergsteins dóttur.
Einsöngur: Sigurður Skagfjörð Steingrímsson, barítón. Básúna: Jessica Buzbee.
Miðnæturguðsþjónusta kl. 23.30
Margrét Sigurðardóttir sópran syngur
við undirleik Arngerðar Maríu Árnadóttur organista.
Jóladagur – 25. desember
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14
Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur.
Einsöngur: Aron Axel Cortes tenór.
Gamlársdagur – 31. desember
Aftansöngur kl. 18
Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur.
Einsöngur: Elín Ósk Óskarsdóttir sópran.
www.vidistadakirkja.is
Næsti Fjarðarpóstur kemur út 7. janúar 2010
Sendibílaþjónusta í 25 ár!
Benni Ben. • 893 2190
Tölvuþjónustan Rthor
Fartölvuviðgerðir
og almennar tölvuviðgerðir.
Kem í heimahús
Ódýr og góð þjónusta
Sími: 849 2502
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HAFNARFJARÐAR
SÍMI 565 9775 - ALLAN SÓLARHRINGINN - UTH.IS
Frímann Andrésson
útfararstjóri
hÁLFDÁN hÁLFDÁNARSON
útfararstjóri
Sýningar í Bæjarbíói
Á laugardaginn kl. 16 sýnir Kvik -
myndasafn Óskarsverðlauna mynd -
ina On Golden Pond (1981).
Opið hús í Jafnréttishúsi
Opið hús er í Jafnréttishúsi, Strand -
götu 25 um helgar á aðventunni kl.
13-18.
Þýsk myndasögusýning
Þýsk myndasögusýning stendur nú
yfir í Bókasafni Hafnarfjarðar. Sýn -
ing in er samstarfsverkefni Borg ar -
bókasafns í Reykjavík og Goethe-
Institut í Kaupmannahöfn. Hún
stend ur til áramóta. Myndirnar eru
eftirprentanir úr nokkrum þýskum
myndasögum og gefa þannig innsýn
í þessa vaxandi bókmenntategund.
Áhugafólk um myndasögur ætti ekki
að láta sýninguna fram hjá sér fara.
Jólatónleikar Kórs
Flensborgarskólans
Vinakvöld á aðventu 17. desember
kl. 18 í Hamarssal.
Jólaganga Hafnarfjarðar
Á Þorláksmessu kl. 19.30 frá
Fríkirkjunni. Hálftíma ganga sem
lýkur í Jólaþorpinu.
Jólatónleikar Regínu
Jólatónleikar Regínu Óskar og Barna-
og stúlknakórs Víðistaðakirkju
sunnu daginn 20. desember kl. 17.
Dagskrá í Jólaþorpinu
Laugardag kl. 13-18:
Kl. 14: Lúðrasveit Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar. Sigurjón Brink flytur
lög af nýútkomnum diski sínum.
kl. 15: Kór Öldutúnsskóla. Rauðhetta,
leikatriði.
kl. 16: Lalli töframaður heillar áhorf -
endur upp úr skónum. Ívar Helgason
flytur tvö nýútkomin jólalög. Jenný,
Stella og Sunneva syngja jólalög.
kl. 17: Fjörugt atriði úr söngleik
Víðistaðaskóla Footloose. Atriði frá
Jafnréttishúsi.
Sunnudag kl. 13-18:
kl. 14: Sönghópur frá félagsmið -
stöðinni Vitanum syngur nokkur lög.
Kl. 15: Úti-jólaball. Jólasveinabandið
heldur uppi stuðinu.
kl. 17: Jaðarleikhúsið, Fimleikafélagið
Björk og Leikfélag Flensborgar
bregða á leik.
Mánudag kl. 18-22:
kl. 19: Jólagjöfin, tónleikar í boði Rio
Tinto Alcan. Skemmtileg kvöld -
stemmning í Jólaþorpinu.
Þriðjudag kl. 18-22:
Skemmtileg kvöldstemming í
jólaþorpinu, notaleg jólatónlist
og kaupmenn taka vel á móti
gestum.
Þorláksmessu kl. 18-22:
Kl. 19.30: Jólaganga Hafnarfjarðar –
sjá ramma t.v.
Kl. 20.00: Jólatónleikar með hljóm -
sveitinni Hátíðarsveinum, en það eru
þeir Magnús Kjartansson, Björn
Thor oddsen, Jón Rafnsson
og Einar Valur Scheving. Um
sönginn sjá Helga Möller og
Flugfreyjukórinn. Mætum öll í
Jólaþorpið á Þorláksmessu og
fögnum komu jólanna.
Gamlárshlaup Hauka
Hlaupið frá Ásvöllum kl. 10 árdegis
á gamlársdag. 10 km hlaup.
Sóknarprestur og starfsfólk
Víðistaðakirkju
óska íbúum Víðistaðasóknar og
Hafnfirðingum öllum
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári!