Fjarðarpósturinn - 17.12.2009, Page 12
Mikið vatn hefur runnið til sjávar
síðan Hrafnista tók til starfa í jaðri
byggðarinnar í hrauninu í Hafnar -
firði, þar sem nú er Hraunvangur.
Ástæðu þess að dvalarheimilið tók
til starfa árið 1977 má í raun rekja
allt til ársins 1948 þegar stjórn
Sómannadagsráðs Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar, eins og það hét
form lega, hafði til skoðunar nokkr -
ar tillögur um staðsetningu á fyrsta
dvalarheimilinu, en stjórnin hafði
þá mestan áhuga á að það risi í
Laugarnesinu, á þeim slóðum, þar
sem Hrafn Gunnlaugsson,
kvikmyndargerðarmaður býr nú.
Sáu Hrafnistumenn fyrir sér
dvalarheimili með bátabryggju í
flæðarmálinu fyrir neðan, þaðan
sem hressir heimilismenn gætu
róið á bátkænum sínum út á flóann
og aðrir heimilismenn notið
nálægðar við hafið. Ekki varð úr
þessu, þar sem bæjaryfirvöld töldu
að staðsetningin myndi þrengja að
þróun Reykjavíkurhafnar í fram -
tíð inni.
Guðmundur Hallvarðsson, for -
mað ur Sjómannadagsráðs, segir að
Hafnar fjarðarbær hafi 1950 sent
ráðinu formlegt boð um að reisa
fyrsta dvalarheimili sjómanna í
Hafnarfirði í landi Hvaleyrar, ekki
langt frá þeim stað þar sem nú er
golfvöllur Keilis. Voru ýmsir í
stjórn Sjómannadagsráðs áfram
um að taka boðinu og hefjast
handa, en niðurstaðan varð þó sú
að hinkra þar til Reykvíkingar
tækju af skarið varðandi lóða út -
hlutun í bænum. „Á þessum sama
tíma var Hafnarfjarðarbær að
byggja eigið elli- og dvalarheimili,
þar sem nú er Sólvangur, og bæjar -
stjórnin óskaði eftir 500 þúsund
króna láni frá Sjómannadagsráði til
að klára bygginguna og taka hana í
notkun. Sjómannadagsráð átti
talsvert fé í sjóði enda búið að
stefna að byggingu dvalarheimilis
alveg frá árinu 1939. Það varð úr
að veitt var 400 þúsund króna lán
til Hafnarfjarðarbæjar. Síðan feng -
um við loks úthlutað sex hekturum
við Laugarás í Reykjavík 1951
þannig að þar hófst bygging fyrsta
heimilisins sem tók til starfa á
sjómannadaginn 1957,“ segir Guð -
mundur.
Heimili í 35 ár
Þó að fyrsta Hrafnistuheimilið
risi í Reykjavík hafði Sjó manna -
dagsráð síður en svo gefið hug -
mynd um byggingu dvalar heimilis
í Hafnarfirði upp á bátinn enda ljóst
að mikil og knýjandi þörf var fyrir
heimili fyrir aldraða í þessum
tveimur af stærstu útgerðarstöðum
landsins. Var sótt um lóð hjá bæn -
um árið 1972 að svipaðri stærð og
fékkst í Reykjavík. Ekki fengust þó
meira en 2,6 hektarar við lóðamörk
Garðabæjar, sem bauð þegar í stað
4-6 hektara viðbót á aðliggjandi
lóð. Ekki kom til þess að nýta
þyrfti hana að sinni og var fyrsta
skóflustungan í Hafnarfirði tekin
að byggingu A-álmunnar á sjó -
mannadaginn 9. júní 1974. „Það
gerði enginn annar en Gísli Sigur -
björnsson, forstjóri Grundar í
Reykja vík og Áss í Hveragerði.
Gísli var þá með réttu frumkvöðull
á þessu sviði því Grund tók til
starfa árið 1922 og Ás 1952.“
Engin tveggja manna herbergi
Hrafnista í Hafnarfirði tók til
starfa 1977. Þar voru rými fyrir 141
heimilismann, allt einbýli og
hjónaíbúðir. Guðmundur segir að
allt fyrirkomulag hafi þótt hið
glæsi legasta og mjög fram úr -
stefnulegt. „Þetta var tvímælalaust
best búna dvalarheimili landsins.
Pétur Sigurðsson, sem þá var
formaður Sjómannadagsráðs, var
búinn að ferðast víða um lönd til að
kynna sér rekstur dvalar- og
hjúkrunarheimila. Mörgum erlend -
um gestum á sviði heilbrigðismála
í öldrunarþjónustu og fulltrúum
félagasamtaka sjómanna, sem
skoðuðu Hrafnistu í Hafnarfirði,
þótti með ólíkindum að sjá svo
fram úrstefnulegt dvalar- og hjúkr -
unarheimili hér á Íslandi,“ segir
Guðmundur.
Jöfn og stöðug uppbygging
Stöðug þróun hefur verið í
rekstri Hrafnistu í Hafnarfirði eftir
því sem árin hafa liðið. Dægradvöl
sem um 50 aldraðir njóta og tók til
starfa fyrir um tveimur áratugum.
Þangað sækir fólk ýmsa þjálfun og
tómstundaiðkun tvisvar til fimm
sinnum í viku. Þá var byggð ný
hjúkrunarálma 1982, B-álman
svokallaða, fyrir 85 veika aldraða
einstaklinga og um svipað leyti var
hafist handa við byggingu raðhúsa
skammt frá aðal bygg ingunni með
alls 56 þjónustu íbúð um við
Naustahlein og Boðahlein, en þær
tilheyra landi Garðabæjar. Íbúð -
irnar voru seldar jafnóðum á frjáls -
um markaði fyrir kostnaðar verð.
Einnig hafa verið byggð tvö þrjátíu
og tveggja íbúða fjölbýlis hús fyrir
60 ára og eldri við Hraun vang 1 og
3 og er innangengt úr þeim inn á
Hrafnistu. Íbúar bæði leigu- og
eignaríbúðanna eiga þess kost að
nýta þjónustu sem veitt er á
Hrafnistu.
700 manna samfélag
Guðmundur segir að öll rými séu
fullnýtt hjá Hrafnistu, einnig
leiguíbúðirnar enda um góðan stað
að ræða með fallegu útsýni, bíla -
kjöllurum og því mikla öryggi sem
felst í því að búa í nálægð við
Hrafnistuheimilið og þá þjónustu
sem þar er veitt. Hjá heimilinu
starfa um 330 manns og eru
langflestir búsettir í Hafnarfirði. Er
Hrafnista því einn stærsti vinnu -
staðurinn í bæjarfélaginu. Ásamt
heimilismönnum og íbúum eignar-
og leiguíbúða við heimilið er hér
um að ræða samfélag um sjö
hundruð manna, sem er svipað og
íbúafjöldi Fáskrúðsfjarðar.
Frekari uppbygging í Garðabæ
Guðmundur segir að Sjó manna -
dagsráð hafi í hyggju frekari upp -
byggingu á svæðinu í nágrenni við
Hraunvang. Til stóð að hefja bygg -
ingu nýrrar hjúkrunarálmu við
aðalbygginguna í samstarfi við
Hafnar fjarðarbæ, en þau áform
hafa verið lögð til hliðar. Þess í stað
er áformað að byggja fleiri leigu -
íbúðir á svæðinu en fyrst þurfi
Hafn arfjarðarbær og Garðabær að
ganga frá lóðamörkum sínum því
það hefur komið á daginn að þau
ganga í gegnum miðja væntanlega
byggingu. „Framtíðaruppbygging
á svæðinu mun hins vegar fara
fram í landi Garðabæjar, norðan
Hleina, en þar er gert ráð fyrir
byggingu fjölbýlishúsa fyrir um
200 manns ásamt þjónustuhúsi,
seg ir Guðmundur Hallvarðsson,
formaður Sjómannadagsráðs.
Hrafnista í Hafnarfirði
Samfélag á stærð við Fáskrúðsfjörð
Guðmundur Hallvarðsson.
12 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 17. desember 2009
Nánari upplýsingar í síma 565-1213
eða á www.fjorukrain.is
Gjafabréf frá Fjörukránni
er upplögð jólagjöf í ár !
Hljómsveit Rúnars Þórs
og sérstakur heiðursgestur hans,
Gylfi Ægisson
syngur flest af sínum bestu lögum.
Minnum á skötuhlaðborðið
á þorláksmessu !
p
re
n
tu
n
.i
s
jólahlaðborðið
glæsilega
Dansleikur um helgina
Hrafnistuhúsin eru bæði í Hafnarfirði og Garðabæ en Boðahlein og Naustahlein eru í Garðabæ.
Á Hrafnistu er mjög öflugt tómstundastarf.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n