Fjarðarpósturinn - 17.12.2009, Qupperneq 15
www.fjardarposturinn.is 15Fimmtudagur 17. desember 2009
Þú sækir pizzu og stóran skammt
af brauðstöngum og færð aðra
pizzu sömu stærðar að auki.
Heimsending:
Miðlungs pizza af matseðli,
2 lítra gos, stór skammtur
af brauðstöngum og sósa.
Heimsending:
Stór pizza af matseðli,
2 lítra gos, stór skammtur
af brauðstöngum og sósa.
Afgreiðslutími Domino’s
á Fjarðargötu í desember:
Aðfangadag og jóladag - lokað.
Annan í jólum - opið frá kl 11:00.
Gamlársdag - lokað.
Nýársdag - opið frá kl 11:00.
Ó
! ·
13
00
9
Skötuveisla á Þorláksmessu
Boðið verður upp á sterka og milda skötu, tindabikkju,
skötustöppu, saltfisk, plokkfisk, hamsa, hnöðmör,
hangiflot og meðlæti. Að sjálfsögðu verða einnig soðnar
kartöflur, rófur, smjör, rúgbrauð og jólagrautur í boði.
Vinsamlegast pantið tímanlega í síma 555 1810
Húsið opnað kl. 11.30
Hólshrauni 3, Hafnarfirði • 555 1810
www.veislulist.is
Verð aðeins kr. 3.000,-
Kveinstafir kvótahafa vegna
nýlegra og fyrirhugaðra að -
gerða stjórnvalda vekja ekki
samúð með þeim hjá þjóðinni.
Fólk sem haft hefur
einkarétt á nýtingu
sjávarútvegs auðlind -
arinnar í ára tugi og
kveinar nú yfir leið -
réttingum á því órétt -
láta kerfi sem kvóta -
kerfið er, nýtur ekki
samúðar. Þetta fólk
hefur haft einka rétt á
öflugustu auð lind
þjóð arinnar í áratugi
en ekki nýtt hana til að efla
sjávar útveginn, heldur nýtt
einokun sína til þess að auðgast
sjálft á leigu og sölu á
fiskveiðikvóta og notað af -
rakst urinn í óarð bærar fjár -
festingar erlendis eins og
banka jöfrarnir og útrásar vík -
ingarnir sem enga kunnáttu
virðast hafa haft á fjár mála -
sviðinu. Ef þeir eru að fara á
hausinn út af þessu
þá mega þeir gjarnan
gera það mín vegna.
Það eru nægir aðrir,
og sjálfsagt hæfari
en þeir, til þess að
taka við af þeim.
Stjórn völd eiga ein -
faldlega ekki að taka
neitt tillit til þessara
aðila vegna fjár hags -
örðugleika þeirra.
Ég vil þó undanskilja þá aðila í
sjávarútvegi sem hafa komið
inn í greinina eftir úthlutun
veiðiheimilda og þurft að leigja
eða kaupa afla heim ildir frá
þeim sem fengu þær á silfurfati,
oft á tíðum með því að taka
óhagstæð lán. Þeir, ásamt nýj -
um aðilum ættu að hafa forgang
þegar afla heimildum er út -
hlutað á nýjan leik í nýju kerfi.
Ég vil taka það fram að ekki
er hægt að setja alla kvótahafa
undir sama hatt. Sumir hafa
staðið sig með ágætum og ekki
neitt yfir þeim að kvarta. Sú
fullyrðing kveinendanna að
sjávarútvegurinn muni hrynja
ef kerfinu verður breytt eiga
ekki við nein rök að styðjast.
Áfram verður úthlutað afla -
heimildum þótt einhverjir fari á
hausinn eða hverfi af sjónar -
sviðinu. Nýir aðilar taka ein -
faldlega við af þeim. Hvað
varð ar hættuna á því að erlendir
bankar geti eignast kvóta vegna
veðsetninga skulda íslenskra
útgerðarfélaga þá er sú hætta
ofmetin. Kvótakerfið er ekki
varanlegt og hægt að afnema
það hvenær sem er. Ég veit ekki
betur en að auðlindir Íslendinga
í hafinu séu yfirlýstar sem eign
þjóðarinnar. Það er því einnig
vafamál hvort veðsetning kvót -
ans standist lög. En ríkistjórnin
hefur það í hendi sér að styrkja
þessa yfirlýstu eign þjóðarinnar
með skírari lögum.
Ég vil að lokum lýsa yfir
þeirri skoðun minni sem gamall
sjó maður, að ég er algjörlega
mótfallin skerðingu á sjó -
manna afslætti í skattakerfinu.
Þessi stétt manna á það inni hjá
þjóðinni, ásamt bændum, að
hafa haldið lífinu í okkur und -
an farnar aldir. Heill sé þeim.
Höfundur er fv.
flugumferðarstjóri.
Kvótahafar, hættið að kvarta
– nú er komið að ykkur að skila til baka
Hermann
Þórðarson
Kannabis ræktun
stöðvuð
Lögreglan á höfuðborgar -
svæð inu stöðvaði kannabis -
ræktun í iðnaðarhúsnæði í
Hafnarfirði 9. des. sl. Við
húsleit var lagt hald á 2,4 kg
af marijúana og 210 kanna -
bis plöntur. Þetta var svo -
kölluð vatnsræktun en plönt -
urnar voru flestar mjög stórar
og í fullum blóma. Áður
höfðu fundist rúmlega 100
grömm af marijúana í íbúð í
austur borg Reykjavíkur en
málin tengjast. Karl á
fimmtugs aldri, sem var hand -
tekinn á síðartalda staðnum,
hefur játað aðild að þeim
báðum.
Lögreglan minnir á fíkni -
efnasímann 800 5005. Í hann
má hringja nafnlaust til að
koma á framfæri upplýs ing -
um um fíkniefnamál.