Fjarðarpósturinn - 17.12.2009, Qupperneq 19
www.fjardarposturinn.is 19Fimmtudagur 17. desember 2009
Bæjarhraun 6 • 220 Hafnarfjörður • Sími 520-8003 • www.stilling.is
Kúplingar
Skín ofar stormaströnd
stjarnanna ljómi.
Himindýrð lýsir lönd
lofsöngur ómi.
Fegursti geisli’ í geim
greiðir þér veginn heim.
Fúslega fylgjum þér,
för hvert sem lífið ber,
Betlehemsstjarna.
Frelsarinn fæddur er,
fögnuð hann gefur.
Mannanna mein hann ber,
miskunn þá vefur.
Almáttgar hendur hans,
hjálpræðis sérhvers manns,
leiða mig lífs um stig.
Leiða mun einnig þig
stjarnanna stjarna.
Reynir Guðsteinsson
Síðasti dagurinn í Íþrótta -
skóla FH var fyrir skömmu og
mættu yfir 100 börn með for -
eldrum sínum. Það var ævin -
týrabragur yfir tímanum og
Íþróttaálfurinn hjálpaði þar til
en hann gaf sér góðan tíma með
krökkunum.
Íþróttaskóli FH hefur starfað
frá árinu 1995 en hann býður 2-
5 ára börnum upp á fjölbreytt
og markvisst hreyfinám og
uppeldislega vandaða dagsskrá
sem tekur mið af þroskaþáttum
barna. „Allir eiga að finna
eitthvað við sitt hæfi,“ segur
Daði Rúnar Jónsson skólastjóri.
„Ekki er sóst eftir mikilli
keppni eða afrekum tengd
keppni. Hreyfinám og efling
þroskaþátta barnsins sitja í
fyrirrúmi. Rannsóknir hafa sýnt
fram á að grunnþjálfun, þar
sem áhersla er lögð á alhliða
líkams- og hreyfiþroska og
félagslega gott og jákvætt
umhverfi, hefur lykilþýðingu
fyrir einstaklinginn þegar fram
í sækir. Við í íþróttaskólanum
leitumst við að skapa slíkt
umhverfi og með hjálp
foreldranna ætlum við að ná
settu marki.“
Foreldrar fylgist með
Í íþróttahúsinu er nóg rými
fyrir foreldra að koma og
fylgjast með börnum sínum, en
Daði Rúnar segir sérstaka
áherslu lagða á að foreldrar séu
virkir í leik og starfi.
Skólinn hefst á ný eftir
áramót laugardaginn 9. janúar í
Kaplakrika.
Betlehems -
stjarnan
Íþróttaálfurinn með börnunum
Tríó Reykjavíkur fagnar 20 ára samstarfi við Hafnarborg
með nýárstónleikum þar sem sérstakur gestur er hafnfirski
tenórinn Eyjólfur Eyjólfsson
Flutt verða íslensk sönglög, Vínartónlist og seiðandi
sígaunatónlist.
Aðgangseyrir er 2400 krónur.
Miðapantanir í Hafnarborg í síma 585 5790.
Sunnudag 24. janúar 2010 kl. 20:00
Nýárstónleikar
í Hafnarborg
Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar.
Opið alla daga kl. 11 – 17
og fimmtudaga til kl. 21.
Lokað á þriðjudögum.
Aðgangur ókeypis.
Strandgata 34
220 Hafnarfjörður
Iceland
www.hafnarborg.is
hafnarborg@hafnarfjordur.is
(354) 585 5790
Opið er í Hafnarborg um jól og
áramót sem hér segir:
Þorláksmessa – kl. 11 til 17
Aðfangadagur – lokað
Jóladagur – lokað
26. – 28. desember – kl. 11 til 17
29. desember – lokað (þriðjudagur)
30. desember – kl. 11 til 17
31. desember – 1. janúar – Lokað
2. janúar – kl. 11 til 17
3. janúar – kl. 11 til 17, sýningum lýkur