Fjarðarpósturinn - 17.12.2009, Blaðsíða 28
28 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 17. desember 2009
Ingibjörg Gísladóttir fæddist
10. september 1934. Hún
andaðist 7. desember síðast -
liðinn. Foreldrar hennar voru
Gísli Guðmundsson,
bifreiðastjóri f. 20. 3.
1903, d. 10.1. 1983
og Pálína Þórð ar -
dóttir f. 30.5. 1902, d.
9.9.1935. Hún var í
fóstri hjá Hrefnu
Jónsdóttur og Guð -
mundi manni henn ar
á Langeyrar vegi 10
þar til Gísli faðir hennar hóf
búskap með Jónínu Sigur rósu
Scheving Hall gríms dóttur f.
17.7.1908, d. 3.2.1983, eða
Rósu eins og hún var nefnd, sem
gekk Ingibjörgu í móð ur stað og
ól hana upp sem dóttur sína.
Systir Ingibjargar er Pálína
Gísladóttir f. 19.6.1938.
Ingibjörg kynntist Sigurbergi
Sveinssyni viðskiptafræðingi og
kaupmanni f. 15.4.1934 þegar
hún var 16 ára og gengu þau í
hjónaband 16.9.1955. For eldrar
hans voru Sveinn Þorbergsson
vélstjóri, f. 12.4.1899, d.
10.2.1989 og Jónína Björg
Guðlaugsdóttir húsmóðir f.
21.10.1904, d. 15.7.1991. Börn
Ingibjargar og Sigurbergs eru:
Hjördís Pálína ljósmóðir f.
1952, maki Ingvar S. Jónsson f.
1951, Rósa kennari f. 1957,
maki Jónatan Garðarsson f.
1955, Sveinn kaup -
maður f. 1960, maki
Björk Pétursdóttir f.
1962 og Gísli Þór við -
skiptafræðingur f.
1965, maki Hafdís
Sig ur steinsdóttir f.
1967. Barnabörnin
eru tíu og barna barn a -
börnin þrjú.
Ingibjörg ólst upp í Hafnar -
firði og gekk þar í skóla. Hún fór
ung að vinna og starfaði lengst
af við verslun og var um árabil
hjá Kaupfélagi Hafnarfjarðar.
Hún stofnaði ásamt eiginmanni
sínum og hjónunum Bjarna
Blomsterberg og Valgerði Jóns -
dóttur Blomsterberg versl unina
Fjarðarkaup í júlí 1973 og starf -
aði þar fram á síðasta dag.
Ingibjörg var félagi í Sínawik
og gegndi þar trúnaðarstörfum
og var einnig í Fjallafreyjum og
fleiri félagahópum um margra
ára bil og var mjög vinamörg.
Útför Ingibjargar fór fram frá
Víðistaðakirkju miðvikudaginn
16. desember kl. 14.
Ingibjörg Gísladóttir
Fædd 10. september 1934 – Dáin 7. desember 2009
Raggi Bjarna ásamt Vilhjálmi
Þ. Vilhjálmssyni, Guðmundi
Hallvarðssyni, formanni Sjó -
manna dagsráðs og Þorgeiri
Ástvaldssyni mættu á Hrafnistu
í Hafnarfirði í síðustu viku.
Eftirvæntingin var mikil og var
salurinn troðfullur.
Það er skemmst frá því að
segja að Raggi náði upp flottri
stemmningu þar sem fólk tók
undir af krafti.
Ljósmyndasýning
Nú stendur yfir sýning á
ljósmyndum Birgis Guðjóns -
sonar, Diðriks Óla Hjörleifs -
sonar og Kristins Þorbergs -
sonar sem kalla sig Nikon
félaga. Sýningin stendur til 4.
janúar.
Raggi Bjarna og félagar á Hrafnistu
Fjölbreytt félagsstarf fyrir aldraða – Ljósmyndasýning Nikon félaga
Sumir komust meira að segja í sviðsljósið með Ragga
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
Nikon félagarnir.
Raggi Bjarna í essinu sínu.
Tilboðið gildir 17.– 22. desember.
Skeifan, Smáralind, Korputorg, Hafnarfjörður, Selfoss, Egilsstaðir og Akureyri.
Heitt á könnunni - kíktu við!
JÓLABÆKURNAR
ERU ÓDÝRARI
Í OFFICE 1 Fullt verð 4.990 kr.
2.495
kr.
50%
Steinunn Þorsteinsdóttir eig -
andi versluninnar Kaki á
Strandgötunni hefur nú komið
með sína eigin hönnun, monro
design. Hún segir hönnunina
byggjast upp á kvenleika og
hæfi flest allri líkamsbyggingu.
Fyrsta línan kom í sölu núna í
desember ár og hefur henni
verið mjög vel tekið.
Línan kemur í stærðum frá
small til x-large og er einungis
til í svörtu en á næta ári á að
bæta úr litaúrvali og einnig er
von á meira úrvali úr sömu
línu.
Steinunn hefur verið með
verslunarrekstur frá 1995, er
lærður stílisti en boðið er upp á
stílistaráðgjöf í versluninni.
Í Kaki er boðið upp á
fjölbreytt úrval af fatnaði og
fylgihluti fyrir konur á öllum
aldri.
Ný eigin
fatahönnun hjá Kaki
Frá tískusýningu í Kaki.