Fréttatíminn - 03.06.2011, Síða 4
Íslendingar 433 þúsund árið 2060
491
þúsund
Mannfjöldi hér á
landi árið 2060
Samkvæmt háspá
Hagsstofa Íslands
Ég lít hins
vegar svo
á að það
væri stór-
kostlegur
árangur
fyrir mig
að vera
með hand-
leggi og
geta hreyft
axlir og
olnboga.
G
uðmundur Felix missti báða
handleggi eftir vinnuslys fyrir
rúmum áratug. Hann var að
störfum sem rafveituvirki við
Úlfarsfell þegar hann greip
um rafstreng og fékk ellefu þúsund volta
rafstraum í gegnum sig. Síðan hefur Guð-
mundur Felix sýnt ótrúlegan dugnað og
æðruleysi í endurhæfingu, að mati lækna
hans.
Fyrir nokkrum árum komst hann í sam-
band við heimsfrægan franskan lækni,
Jean-Michel Dubernard, sem var sá fyrsti til
að græða hendur á fólk. Dubernard komst
einnig í heimsfréttir fyrir að græða andlit
á konu sem var bitin af hundi. Guðmundur
Felix tók af Dubernard loforð um að ef
læknavísindin þróuðust á þann veg að unnt
yrði að græða á hann nýja handleggi, skyldi
Dubernard sjá til þess að það yrði gert.
Undanfarin tvö ár hefur Guðmundur farið
í rannsóknir hjá frönsku læknateymi til að
fá skorið úr um hvort mögulegt sé að græða
á hann handleggi. Lokasvars er að vænta í
júní.
„Hingað til hafa handaágræðslur verið
gerðar í þeirri von að fólk geti hreyft fing-
urna. Það eru aðeins þrjátíu prósent líkur
á að ég muni geta hreyft fingurna ef ég fæ
nýja handleggi. Ég lít hins vegar svo á að
það væri stórkostlegur árangur fyrir mig
að vera með handleggi og geta hreyft axlir
og olnboga. Læknarnir eru hissa á því að
ég geri ekki meiri kröfur um árangur,“
segir Guðmundur sem kom heim frá Lyon
í Frakklandi á dögunum þar sem síðustu
rannsóknir fóru fram.
„Í rauninni yrði aðgerðin á mér langt út
fyrir það sem telst mögulegt. Hingað til
hafa aðgerðir verið gerðar á fólki sem er
með lengri útlimi en ég. Þeir þurfa að brjóta
í gegnum viðbeinin á mér til að tengja sam-
an taugarnar við nýja handleggi. Ég hugsa
samt að þeir geri aðgerðina en læknateymið
skiptist í tvo hópa. Annar hefur áhyggjur af
því að ekki verði hægt að réttlæta svo tíma-
og mannaflsfreka aðgerð ef ekki næst betri
árangur en þetta. Mér heyrist samt á þeim
að þeir vilji allir framkvæma aðgerðina.“
Telji læknarnir að hægt sé að græða
handleggi á Guðmund verður þrjátíu manna
læknateymi sent í æfingabúðir til að fara
í gegnum alla þætti hennar. Í október eða
nóvember yrði Guðmundur settur á biðlista
eftir handleggjum og þegar þeir réttu fynd-
ust yrði aðgerðin framkvæmd.
Á spítalanum í Frakklandi, þar sem Guð-
mundur hefur verið í rannsóknum undan-
farna daga, hitti hann franska konu sem
fékk framhandleggi ágrædda fyrir fjórum
árum. „Ég kom að henni þar sem hún sat og
var að fikta í iphone-símanum sínum. Hún
er með fulla tilfinningu í höndum og fingr-
um og getur gert alls konar fínhreyfingar,“
segir Guðmundur bjartsýnn og vonast eftir
jákvæðu svari frá læknunum.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
fyrirtækin í sama
skuldavanda og áður
lánum fyrirtækja í vanskilum hefur nánast
ekkert fækkað frá því í lok árs 2010. Þetta
kemur fram í skýrslu Seðlabanka Íslands
um fjármálastöðugleika. heildarlán í óskil-
um voru rétt rúmlega 40% af öllum lánum
í árslok 2009, en voru slétt 40% í mars
síðastliðnum. Seðlabankinn segir að stór
hluti af lánum heimilanna hafi verið endur-
skipulagður en endurskipulagning skulda
fyrirtækja hafi gengið hægar fyrir sig, að
því er fram kemur í Vísisfrétt. Skuldsetning
heimila og fyrirtækja sé enn mjög mikil
og geti haft neikvæð áhrif á hagvöxt sem
aftur sé forsenda þess að þau ráði við
skuldsetninguna. Í skýrslu Seðlabankans
kemur enn fremur fram að breytingar
á fiskveiðistjórnunarkerfinu gætu veikt
sjávarútvegsfyrirtæki og þar með rýrt
lánasöfn viðskiptabankanna.-jh
rútustríð
Sýslumaðurinn í Kópavogi hefur sett
lögbann á fyrirhugaðar áætlunarferðir
rútufyrirtækisins Kynnisferða, frá akureyri
og austur fyrir land að Höfn í Hornafirði.
ástæðan er sú, að því er fram kemur í frétt
ríkisútvarpsins, að annað rútufyrirtæki,
Bílar og fólk, er með sérleyfi á leiðunum
og hefur haldið uppi áætlunarferðum á
svæðinu allt árið um kring undir nafninu
Sterna. Kynnisferðir höfðu í hyggju að
bjóða upp á sínar ferðir frá 15. júní og fram
í ágúst. forsvarsmenn Bíla og fólks fóru
fram á að á þessar ferðir yrði lagt lögbann,
sem sýslumaðurinn í Kópavogi samþykkti.
-jh
Íbúðalánasjóður fylgi í
kjölfar landsbankans
helgi hjörvar, formaður efnahags- og
skattanefndar alþingis, telur einboðið
að Íbúðalánasjóður bjóði viðskiptavinum
sínum sambærilegar lausnir í skuldamálum
og lands-
bankinn
kynnti í
síðustu
viku. að
öðrum
kosti sé til-
gangslaust
fyrir ríkið
að reka
sjóðinn, að
því er Vísir
greinir frá.
landsbank-
inn kynnti í
síðustu viku
aðgerðir til
að bregðast við skuldavanda heimilanna.
Bankinn ætlar meðal annars að bjóða
viðskiptavinum sínum vaxtafslátt og niður-
færslu skulda. landsbankinn gengur með
þessu lengra en Íbúðalánasjóður en breyta
þarf lögum sjóðsins til að heimila slíkar
aðgerðir. -jh
HeilbriGðismál Vill komast í HandaáGræðslu
hér er Guðmundur felix (í miðjunni) á spítalanum í lyon ásamt frönsku konunni sem fékk ágrædda framhandleggi fyrir fjórum
árum. Ljósmynd: Úr einkasafni
Bíður eftir lokasvari
um nýja handleggi
Guðmundur felix Grétarsson væntir á næstu vikum lokasvars um hvort græddir verði á hann hand-
leggir. Aldrei áður hefur svo flókin handaágræðsla verið framkvæmd í heiminum. Fái Guðmundur
jákvætt svar verður þrjátíu manna læknateymi sent í æfingabúðir til að undirbúa aðgerðina.
Í mannfjöldaspá sem hagstofa Íslands hefur uppfært fyrir
árabilið 2011-2060 er gert ráð fyrir að mannfjöldi hér á
landi í lok spátímabilsins verði 433 þúsund en þar er miðað
við svokallaða miðspá. Samkvæmt lágspánni yrði mann-
fjöldinn 384 þúsund, en 491 þúsund samkvæmt háspánni.
aldursskipting landsmanna breytist mjög á tímabilinu.
fjöldi þeirra sem eru 65 ára og eldri eykst mjög í hlutfalli
við fólk á vinnualdri (20-64 ára) en yngra fólki fækkar. Í
öllum spáafbrigðum er gert ráð fyrir jákvæðum flutnings-
jöfnuði til langs tíma. Sá flutningsjöfnuður er borinn uppi af
erlendum ríkisborgurum, en til lengri tíma litið flytja jafnan
fleiri íslenskir ríkisborgarar til útlanda en snúa heim. -jh
CINTAMANI
WWW.CINTAMANI.IS
Sól í heiði
Vertu samt í einhverju
hlýju svo það slái
ekki að þér.
SumS STaðar STrekkingSvindur.
SmáSkúrir en Sól á milli veSTan- og
SuðveSTanlandS, en léTTSkýjað
verður um SuðauSTanverT landið.
Fremur SvalT Fyrir árSTÍmann.
HöFuðborgarSvæðið: SKúrir af oG til
oG hiti 6 til 8 StiG.
enn SumS STaðar STrekkingSvindur.
ÞurrT um land allT og Hlýnandi. Sólin
mun SkÍna glaTT einkum auSTanTil.
HöFuðborgarSvæðið: hafGola oG Sól, en
SÍðdeGiSSKúrir. hiti uM 10 til 12 StiG ÞeGar
BeSt lætur.
vÍða léTTSkýjað um Sunnan- og
auSTanverT landið, en annarS
SmáSkúrir. kólnar um kvöldið.
HöFuðborgarSvæðið: Bjart
Með KöfluM, en hætt Við SKúruM
annað SlaGið.
Fremur vindasamt,
en sólríkt austanlands
Þó vænt sumarloft sé hér skammt suð-
vesturundan, er eins og það nái ekki
almennilega inn á landið. Þó á laugardag
og þá er reiknað með allt að 15 til 17 stiga
hita suðaustanlands eftir miðjan daginn, en
síðan er eins og svalara loft úr norðri ætli
aftur að ná yfirhöndinni. Um
helgina verður strekkingur af
vestri meira og minna viðloðandi.
ekki beinlínis úrkomusamt um
vestan- og suðvestanvert
landið, en samt talsvert um
skúraleiðingar.
8
7 8 59
11 9
10 12
15
14
9
9 13
16
14
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Föstudagur laugardagur sunnudagurveður
Öflugur greiðendavefur með hagnýtum
upplýsingum s.s.
• Yfirlit mála
• Samkomulög
• Greiðslur með korti
• Góð ráð og margt fleira
Þjónustuver 440 7700
www.ekkigeraekkineitt.is
4 fréttir helgin 3.-5. júní 2011