Fréttatíminn


Fréttatíminn - 03.06.2011, Blaðsíða 60

Fréttatíminn - 03.06.2011, Blaðsíða 60
Helgin 3.-5. júní 2011 Vesturvör 30c S:575-1500 Aldur skiptir ekki máli en heiðarleiki og trú á Nýja Tíma er skilyrði. Góð laun eru í boði fyrir rétta fólkið. Sendu upplýsingar á kvikkfix@kvikkfix.is ef þú telur ofangreind störf henta þér. Ef þú ert einstaklingur sem villt taka þátt í að breyta, bæta og tryggja sanngjarnt verð á þjónustu við bíleigandann, og vilt vinna með fólki sem er á sömu skoðun þá hafðu samband því við önnum ekki eftirspurn lengur. Viljum ráða í eftirtalin störf: 2 bifvélavirkja. 1 vanan smurmann. 1 manneskju í móttöku.  Plötuhorn Dr. Gunna You Can Be as Bad as You Can Be Good  Ferlegheit Á röngum áratug Hljómsveitin Ferlegheit er skipuð sex krökkum á þrítugsaldri, en þótt liðsmenn séu ungir er tónlistin gamaldags. Þessi plata hefði getað komið út svona tíu árum áður en elsti meðlimur sveitar- innar fæddist. Ferlegheit er hippaleg hljómsveit og rokkið blúsað. Mikil Hammond-notkun minnir á Trúbrot, munnhörpu- blástur á Bó í essinu sínu með Ævintýri og Ferlegheit fer oft á ágætis flug í djamminu, sem minnir á þær tónhrærur sem stundaðar voru af síðhærðum hljómsveitum, m.a. af Óðmönnum, sem kölluðu djammið „Frelsi“. Lögin eru misgóð og söngkonan, Margrét Guð- rúnardóttir (dóttir Ásgeirs Óskarssonar Stuðmanna- trommara), leiðir þau af skörungsskap. Þetta er ágæt frumsmíð en hljóm- sveitin mætti gjarna víkka sjóndeildarhringinn fyrir næstu plötu. Sjómenn íslenskir erum við  60 vinsæl sjómannalög Saltur pakki Sena hefur safnað saman 60 þekktustu sjómannalögunum í þriggja diska pakka. Þessi lög gerðu sjó- mannslífið mun róman- tískara en það er í raun og veru og fáum hefur dottið í hug að syngja ný svona lög eftir að Bubbi reif glans- myndina niður á fyrstu plötunum sínum. Engin önnur atvinnugrein hefur átt sína eigin tón- listarstefnu, það voru ekki einu sinni „banka- mannalög“ í góðærinu. Þá hefðu lög eins og Tær snilld, Græðgi er góð og Eyddu þessum pósti tröll- riðið listunum. Í salta sjómannapakkanum eru allar lummurnar í upprunalegum eða nýrri útgáfum, ef lögin hafa verið endurgerð á slípaðri hátt. Hér er þessum hluta tónlistar- sögunnar pakkað inn í handhægan pakka og útgáfan er fín sem slík. 101  Keren Ann Fágað og flott Íslenskir tónlistar- áhugamenn þekkja söngkonuna Keren Ann vegna samstarfs hennar við Barða Jóhannsson (Lady & Bird). 101 er sjötta sólóplatan hennar og sú fyrsta síðan 2007. Keren er engin loftfim- leikasöngkona, heldur jarðbundin og blátt áfram. Lögin eru sett fram í fjölbreyttum hljóðheimi. Mörg eru verulega grípandi. Ég heyrði opnunarlagið, My Name is Trouble, á Rás 2 og ánetjaðist umsvifalaust. Það lag er eitursvalt í Gold- frapp-fílingi, önnur eru í ætt við svalandi gáfu- mannapopp Gainsbo- urg, St. Etienne og Beth Orton. Það er rólegt yfirbragð á plötunni, en stundum sýður í pottinum eins og í hinu „girl-group“-lega Sugar Mama. Þessi plata er virkilega fín, fágað evrópskt popp fyrir vandláta. Á ferðum sínum um land og fjöll skráir hún undrin sem verða á vegi hennar og alls staðar skín í gegn að þessi veröld er hverful og brothætt; að innan skamms sé sumarið liðið. „Þetta eru augnablik sem ég reyni að fanga,“ segir Harpa Árnadóttir. „Það má segja að þarna séu hugleiðingar um síkvika andrá.“ Hún heldur um þessar mundir sýningu í Listasafni ASÍ þar sem hún sýnir afrakstur sumardvalarinnar undir heitinu Mýrarljós. „Sýningin sem ég er með hérna hverfist um upplifun mína í júní í fyrrasumar á meðan ég dvaldi í gestavinnu- stofunni Bæ,“ segir Harpa, „en í raun má segja að sýning- in hafi runnið yfir í bókina Júní sem er ansi hreint sérstakt verk. Hún líkist innbundnu safni nýgerðra vatnslitamynda og textablaða sem smeygt hefur verið inn í möppu.“ Verkin á sýningunni voru ýmist unnin í hendingu úti í náttúrunni í Skagafirði, útfærð nánar í gestavinnustof- unni þar, þaulunnin á lengri tíma í vinnustofu Hörpu í Reykjavík eða hugsuð beint inn í rými sýningarsalanna í Listasafni ASÍ. Harpa teiknaði og skrifaði hjá sér úti í nátt- úrunni og hengdi síðan blöðin með upplifunum sínum upp á vegg í vinnustofunni á Bæ. „Þegar veggurinn var orðinn alþakinn og ég tók þetta niður og raðaði saman var þetta orðinn myndarlegur bunki sem nú er orðinn að bókverki.“ Harpa segir því hugmyndina að bókinni hafa komið eftir á. „Þetta er bara eitthvað sem ég vann, hugsaði beint á blöðin og var mjög spontant þarna úti. Á þessum stað var bara eitthvað sem streymdi fram áreynslulaust og það endaði á þessum blöðum. Það er svo seinni tíma ákvörðun að þetta eigi erindi á bók.“ Harpa fæddist árið 1965 á Bíldudal í Arnarfirði. Eftir háskólanám í sagnfræði og bókmenntum fór hún í Mynd- lista- og handíðaskóla Íslands og lauk framhaldsnámi við listaháskólann Valand í Gautaborg. Harpa hefur sýnt víða og eru verk hennar í eigu ýmissa opinberra safna og einkasafnara á Íslandi og í Svíþjóð. Hún hefur hlotið verð- laun fyrir teikningar hjá Þjóðlistasafni Svíþjóðar.  Blóm oG texti renna Saman Náttúruupplifun bundin í bók Hinn fyrsta þessa mánaðar kom út hjá Crymogeu bókin Júní en í henni spila saman vatnslitamyndir og ljóðræn dagbókarbrot Hörpu Árnadóttur. Það er svo seinni tíma ákvörðun að þetta eigi erindi á bók. Harpa Árnadóttir Á þessum stað var bara eitthvað sem streymdi fram áreynslulaust og það endaði á þessum blöðum. Getur þú styrkt barn? www.soleyogfelagar.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.