Fréttatíminn - 03.06.2011, Blaðsíða 14
O ffita þjóðarinnar er svo alvarleg að kostnaðurinn sem henni fylgir verður margfaldur Icesave-reikn-
ingurinn. Þetta er skoðun Steinars sem
telur að fastar þurfi að taka á vandanum.
Hann hefur verið ötull við að skrifa greinar
og vekja athygli á hættunni við offitu og
oftar en ekki hefur hann uppskorið sterk
viðbrögð. „Ég er undrandi á því hvernig
fólk bregst við þegar bent er á dæmi um hve
feit þjóðin er orðin. Erum við farin að sam-
þykkja ferlið? Erum við búin að samþykkja
að offita og ofþyngd sé orðin hluti af lífs-
gæðum Íslendinga?
Því hafna ég,“ segir Steinar og bendir á
að það sé einmitt að gerast í Bandaríkjunum
þar sem stöðlum er breytt, til dæmis í fata-
stærðum, til að falla betur að meðaltalinu.
„Þar eru flíkur merktar einni stærð minni
en þær eru í Evrópu því að við viljum jú að
sem flestir passi í normalkúrvuna. Ég vona
að sá dagur komi aldrei á Íslandi að stærð L
(large) verði breytt í M (medium).“
Steinar hefur áhyggjur af börnum í of-
þyngd sem alast upp hjá of feitum foreldrum
og veltir því fyrir sér hvað hægt sé að gera
til að koma í veg fyrir að krakkar fari sömu
leið og foreldrarnir. „Við verðum að gera
okkur grein fyrir því að lífsgæði þessara
barna eru skert og munu halda áfram að
skerðast, verði ekkert að gert. Og kostnað-
inn við slíka lífsgæðaskerðingu verður ekki
hægt að meta í peningum. Hver er munur-
inn á því hvort börn eru vanrækt eða ofalin?
Í mínum huga er enginn munur þar á og ef
ég þyrfti að segja að annað væri hættulegra
en hitt þá segði ég ofeldi. Foreldrar kenna
börnunum sínum gildi sem fylgja þeim til
lífstíðar.“
Steinar segir sáran skort á íhlutunarúr-
ræðum þegar heilu fjölskyldurnar glíma
við offitu. „Barnaverndaryfirvöld verða að
hafa sömu úrræði til að bregðast við hvoru
tveggja. Þau þurfa að fá að nota sömu leiðir
til að skoða þessi mál eins og vanrækslu.
Það þarf að vera hægt að bjóða foreldrum
upp á fræðslu svo að þau geti lært að gefa
börnunum sínum hollari mat.“
Steinar segir það vandamál að ekki séu
allir tilbúnir að breyta matarvenjum sínum.
„Að vel ígrunduðu máli og þegar öll önnur
úrræði hafa verið reynd án árangurs, tel ég
rétt að taka börn af foreldrum sem ekki vilja
breyta sínu mynstri. Það yrði að sjálfsögðu
algjört neyðarúrræði.“
Næringarfræðingar þyrftu að koma inn í
skólana og veita bæði börnum og kennurum
fræðslu til að sporna gegn offituvandamál-
inu. „Því á sama tíma og umræðan um heil-
brigðan lífsstíl verður meiri, er þjóðin enn
að fitna. Ég tel að hér þurfi samstillt átak
allra að hefjast. Það þarf að koma þeim ein-
földu skilaboðum áleiðis að maturinn veitir
okkur orku sem við þurfum að brenna og ef
við brennum ekki lendum við í því að fitna.
Fólk þarf líka að vita meira um hvernig
matur er samsettur.“
Steinar segir vel markaðssettar
„heilsuvörur“ vera hluta af vandanum og
fólk kaupi orkudrykki, megrunarkúra
og fæðubótarefni til að auka árangurinn.
„Oftar en ekki skemmir það fyrir fólki. Við
að drekka orkudrykk á borð við Euros-
hopper, Red Bull eða Monster, fær maður
skammtímaáhrif en dettur svo jafnvel neð-
ar í orkustigi en maður var fyrir drykkinn.
Fyrirtækin sem markaðssetja skyndi-
lausnir bera mikla ábyrgð á vandanum.
Þeir hafa fjárhagslegan ávinning af því
að slíkar vörur séu notaðar og við það eitt
ættu allar viðvörunarbjöllur að hringja.
Flest loforðin eru of góð til að standast. Og
á sama tíma og meðvitund um heilbrigt líf-
erni eykst, tvöfaldast nammibarinn í Hag-
kaupum.“
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Ofeldi hættulegra en vanræksla
Steinar B. Aðal-
björnsson hefur
áhyggjur af börnum
sem alast upp í of
feitum fjölskyldum.
Barnaverndaryfirvöld
verði að skerast í
leikinn. Ljósmynd/Hari
Barna verndar
yfirvöld verða
að hafa sömu
úrræði til að
bregðast við
þegar börn
eru of feit og
þegar þau eru
vanrækt. Að
mati Steinars
B. Aðalbjörns
sonar, nær
ingarfræðings
hjá Matís, ætti
það neyðar
úrræði að vera
fyrir hendi að of
feit börn væru
tekin af for
eldrum sínum
þegar allt annað
hefði verið
reynt.
Hver er munurinn á því
hvort börn eru vanrækt
eða ofalin? Í mínum
huga er enginn munur
þar á og ef ég þyrfti
að segja að annað
væri hættulegra en
hitt þá segði
ég ofeldi.
14 viðtal Helgin 3.5. júní 2011