Fréttatíminn - 03.06.2011, Blaðsíða 10
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
Garðyrkja Tilraun Gerð með rækTun ávaxTaTráa
Epli, perur, plómur og kirsuber í íslenskum görðum
Um 160 félagar í Garðyrkjufélagi Ís-
lands fengu afhent tæplega 1.800 ung
ávaxtatré í gær og fyrradag. Um er að
ræða epli, perur, plómur og súr og sæt
kirsuber sem gerðar verða tilraunir með
undir umsjón Landbúnaðarháskólans.
Alls er um 100 mismunandi yrki að ræða.
Nokkrir félagar í Garðyrkjufélaginu
hafa unnið brautryðjendastarf á þessu
sviði, að því er fram kemur í tilkynningu
þess. Nú hefur félagið fylgt þessu starfi
félagsmanna eftir og haft forgöngu um
innflutning á mjög breiðu úrvali af áður
lítt þekktum yrkjum sem talin eru afar
harðger og ættuð frá Rússlandi, Finn-
landi og Eystrasaltslöndunum. Félagið
leitaði til Landbúnaðarháskóla Íslands
um samstarf um formlegar tilraunir með
þennan efnivið. Samstarfið byggist á því
að hópur félaga kaupir tiltekinn fjölda
yrkja og plantar þeim í garðlönd sín og
annast þau. Landbúnaðarháskólinn veitir
ráðgjöf.
Viðbrögð og áhugi félaga við þessu út-
spili félagsins fór fram úr öllum vænting-
um. Um 160 manns frá öllum landshorn-
um buðu sig fram til þátttöku; félagar frá
veðursælum vildarsvæðum Suðurlands
vestur til Bjarnarfjarðar á Ströndum og
Ísafjarðar og norður til Húsavíkur .
„Merkilegt er hve Íslendingar hafa ver-
ið lengi að taka við sér í ræktun ávaxta-
trjáa. Við nánari skoðun kemur í ljós að
t.d. epli hafa lengi verið ræktuð norður
um allar byggðir Noregs, Svíþjóðar, Finn-
lands og Rússlands á svæðum þar sem
sumur eru sannarlega ekki lengri en hjá
okkur, vor og haustáföll ekki óalgeng
en vetur þó mun mildari hér á landi.
Af hverju vorum við ekki byrjuð löngu
fyrr?“
Félagar í Garðyrkjufélagi Íslands hafa tekið
við um 1.800 ávaxtatjám til tilraunarækt-
unar í samstarfi við Landbúnaðarháskólann.
VELKOMIN Á BIFRÖST
- stjórnun og rekstur í menningarumhverfi -
Nám í menningarstjórnun býr nemendur undir viðamikil
og oft vandasöm störf á sviði menningar og menntunar.
Námið byggir jafnt á fræðilegri og hagnýtri nálgun og gerir nemendum kleift
að þróa gagnrýna sýn á menningu og menningarpólitík um leið og þeir öðlast
þjálfun í rekstri, stjórnun og skipulagningu.
Bifröst er eini háskólinn hér á landi sem býður upp á þessa samsetningu náms
sem hefur sérstaklega verið lagað að íslensku menningarumhverfi.
Menningar-
stjórnun MA
Opið fyrir umsóknir
til 15. júní á bifrost.is
G ríðarleg ásókn er í námskeið í hagnýtri norsku fyrir heilbrigðisstarfsfólk sem Endurmenntunarstofnun Háskóla Ís-
lands hefur staðið fyrir. Byrjað var með nám-
skeiðin um síðustu áramót vegna þrýstings frá
áhugasömu heilbrigðisstarfsfólki en stofn-
unin hefur staðið fyrir námskeiðum í hagnýtri
sænsku fyrir fjölmiðlafólk frá árinu 2008. Ekki
hefur staðið á viðbrögðum – heilbrigðisstéttir
landsins hafa flykkst á námskeiðin.
Thelma Jónsdóttir, markaðs- og kynningar-
stjóri Endurmenntunarstofnunarinnar, segir
í samtali við Fréttatímann að fullt hafi verið
á þeim tveimur námskeiðum sem haldin hafa
verið á þessu ári. „Við héldum námskeið bæði í
febrúar og apríl og það var fullt á þeim,“ segir
Thelma en um 25 manns komust að á hvort
námskeið. Thelma segir jafnframt að þegar
séu komnar bókanir á nýtt námskeið sem hefst
í haust.
Spurð hverjir það séu sem sæki þessi nám-
skeið segir Thelma að það séu allar tegundir
heilbrigðisstarfsfólks. „Þetta eru læknar og
hjúkrunarfólk. Það er líka misjafnt hvað fólk
ætlar sér með þessa þekkingu. Flestir eru
komnir með vinnu úti eða eru að fara í fram-
haldsnám í Noregi og vilja bæta orðaforðann í
þessum mjög svo sérhæfða hluta tungumáls-
ins,“ segir Thelma og bætir því við að nú sé
svo komið að norskan sé miklu vinsælli en
sænskan. Sem þarf kannski ekki að koma á
óvart þar sem fjöldinn allur af íslenskum heil-
brigðisstarfsmönnum hefur brugðið hér búi í
lengri eða skemmri tíma og þá yfirleitt fært sig
til Noregs.
„Það verður bara að segjast eins og er að á
meðan norskunámskeiðin fyllast fljótt hefur
okkur ekki tekist að fylla þau sænsku,“ segir
Thelma.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Flestir eru
komnir með
vinnu úti
eða eru að
fara í fram-
haldsnám
í Noregi
og vilja
bæta orða-
forðann
í þessum
mjög svo
sérhæfða
hluta tungu-
málsins.
endurmennTun norskan vinsæl
Heilbrigðisstarfs-
menn flykkjast á
norskunámskeið
Thelma Jónsdóttir,
markaðs- og kynning-
arstjóri Endurmennt-
unarstofnunar HÍ,
segir hagnýta norsku
fyrir heilbrigðisstarfs-
menn hafa slegið í
gegn. Ljósmynd/Hari
Þrýstingur frá heilbrigðisstarfsmönnum var hvatinn að
námskeiðahaldinu.
Fjársöfnun meðal fyrirtækja í landinu
vegna eldgossins í Grímsvötnum fer vel af
stað en eins og fram kom í Fréttatíman-
um fyrir viku fer söfnunin fram í samráði
við Samtök atvinnulífsins. Stofnaður
hefur verið sjóður til að veita bændum,
og þeirri starfsemi sem fram fer á þessu
svæði, fjárhagslegan stuðning eftir því
sem söfnunarfé hrekkur til og hægt er að
bæta með fjárstyrkjum. Lagt verður upp
með að taka á með fólkinu á gossvæðinu
í því sem út af stendur hjá Bjargráða-
sjóði og Viðlagatryggingu, að því er
fram kemur á síðu SA. Þegar hafa 25-30
milljónir króna safnast meðal fjölda fyrir-
tækja sem lagt hafa málinu lið. Fjögurra
manna verkefnisstjórn hefur umsjón með
söfnuninni, skipuleggur hana og mótar
reglur, en tengiliður er Guðni Ágústsson,
fyrrverandi ráðherra og framkvæmda-
stjóri Samtaka afurðastöðva í mjólkur-
iðnaði, en fram kom hjá honum í viðtali
við Fréttatímann á föstudaginn var að vel
hefði verið tekið í erindið. -jh
Fyrirtækjasöfnunin vegna gossins gengur vel
10 fréttir Helgin 3.-5. júní 2011