Fréttatíminn - 03.06.2011, Blaðsíða 8
Framleiðsluverð hækkaði í apríl
Verð á framleiðsluvörum til sölu
innanlands hækkaði um tæpt
prósentustig í aprílmánuði og
hækkuðu slíkar vörur um nærri
3% á fyrsta þriðjungi ársins.
Þetta skýrir hluta af mikilli
hækkun vísitölu neysluverðs
á tímabilinu, og er meðal þess
sem lesa má úr vísitölu fram-
leiðsluverðs til og með apríl sem
Hagstofan hefur birt. Vísitalan
hækkaði um 1,6% í aprílmánuði og hækkuðu allar undirvísitölur hennar
nokkuð nema vísitalan fyrir stóriðjuverð, sem lækkaði um hálft prósentustig.
Frá apríl í fyrra til sama mánaðar þetta árið hækkaði vísitala framleiðsluverðs
um 6%. Vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 6,2%, en reiknað á föstu
gengi nam hækkunin ríflega 11%. Sú þróun endurspeglar hagstæða verðþróun
á helstu útflutningsafurðum Íslendinga. Verð sjávarafurða hækkaði um 13,5%
og verð á afurðum stóriðju um 9%. -jh
Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík
Sími 590 2100 · askja.is
Toyota Corolla 1.8, 7 sæta
árg. 2006, ekinn 39 þús. km
1800cc, bensín, beinsk.
Verð kr. 2.290.000
Opið virka daga
frá kl. 9-18
Subaru Forester 2.0, 4x4
árg. 2009, ekinn 25 þús. km
2000cc, bensín, beinsk.
Verð: kr. 3.690.000
notaðra bíla
ÚRVAL
Allt að 70%
fjármögnun
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
Niðurföll
Renna, verð pr. meter
kr. 3.900
Einnig fáanlegt með
Pott-rist
100x100x118
1.290 kr. 100x100x125
1.290 kr.
100x100x188
1.490 kr.
Effitan flugnafæluúði er með mikla
virkni en á sama tíma náttúrulegur
og án DEET. Rannsóknir* sýna að
Effitan verndar í allt að 8 tíma.
Öruggt fyrir ófrískar konur og börn
frá þriggja mánaða. Einungis þarf
að passa að bera ekki efnið þar
sem hægt er að setja í augu
og munn.
Virku innihaldsefnin í Effitan
eru ma. kókosolía, Eucalyptus
Citriodora (sítrónu júkalyptus)
og citronella (grastegund
sem er notuð í ilmolíur).
Effitan er 98,88% náttúrulegur
og án allra Paraben efna.
Láttu ekki flugnabitin
eyðileggja fríið
EITUREFNALAUST
*Rannsóknir frá Swiss tropical institute í Basel og Dr. Dautel Institut í Berlin.
PREN
TU
N
.IS
Væntingar neytenda glæðast
Svo virðist sem væntingar neytenda hafi heldur
betur glæðst nú í maí ef marka má væntingavísitölu
Gallup. Að þessu sinni hækkaði vísitalan um tæp 11
stig á milli mánaða og mælist gildi hennar nú 66,3
stig. Er því um að ræða mikinn viðsnúning á þróun
vísitölunnar sem hefur lækkað stöðugt síðustu þrjá
mánuði, og í raun hefur gildi hennar aðeins þrívegis
mælst hærra frá því á haustdögum 2008. Það var í
júlí, ágúst og september í fyrra en hæst fór vísitalan
upp í 69,9 stig sem var í ágústmánuði. Þó er ljóst að
enn er nokkuð í land með að landinn geti talist vera
bjartsýnn, segir Greining Íslandsbanka, þar sem fleiri
neytendur eru svartsýnir en bjartsýnir þegar gildi
vísitölunnar er undir 100 stigum. Allar undirvísitölur
væntingavísitölunnar hækkuðu á milli apríl og maí.
Svo virðist sem nýgerðir kjarasamningar hafi aukið
væntingarnar. -jh
A uðvitað er maður svekktur yfir aðstöðunni í bílastæða-málum hjá okkur hérna í
Víkinni. Það segir sig sjálft. Það er
óskiljanlegt hvernig borgin hefur
dregið lappirnar í þessum málum
undanfarin ár,“ segir Haraldur Har-
aldsson, framkvæmdastjóri knatt-
spyrnudeildar Víkings, um hörmu-
lega bílastæðaaðstöðu félagsins
við svæði þess í Fossvogi. Á sama
tíma hefur lögreglan keyrt áfram af
mikilli hörku átak sitt gegn stöðu-
lagabrotum í tengslum við viðburði
í borginni.
Hann segir þó aðeins vera að
rofa til í málinu. „Við erum búnir
að funda með Reykjavíkurborg og
mér sýnist að það geti eitthvað gerst
í málinu á næstunni. Það er reitur
á deiliskipulagi svæðisins sem er
merktur sem bílastæðareitur og
okkur var gefið vilyrði fyrir því að
það yrði farið í þetta á næstunni.
Við vonumst til að þetta verði fram-
kvæmt í sumar enda veitir ekki af,“
segir Haraldur.
Félagið hefur ekki farið varhluta
af sektarátaki lögreglunnar, að sögn
Haraldar, og hann telur að sorgleg
bílastæðaaðstaða og hræðsla við
sektir lögreglunnar hafi áhrif á að-
sókn að leikjum Víkings. „Ég held
að það sé nokkuð ljóst. Við fengum
KR-inga í heimsókn um daginn og
reiknuðum með um tvö þúsund
manns. Á endanum skiluðu sér
ekki nema 1.600 áhorfendur á leik-
SkipulAgSmál BílAStæði við íþróttAvelli
Víkingar vonast eftir 70
nýjum stæðum í Fossvogi
Hertar aðgerðir lögreglunnar við stöðulagabrotum í tengslum við knattspyrnuleiki valda erfið-
leikum hjá félögum og reiði meðal knattspyrnuáhugamanna. Aðstaða Víkinga í Fossvogi er
sérlega þröng.
Á endanum skiluðu sér ekki nema
1.600 áhorfendur á leikinn. Þetta
hlýtur að hafa áhrif.
inn. Þetta hlýtur að hafa áhrif,“ segir
Haraldur.
Kristinn Ólafur Guðnason hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
segir í samtali við Fréttatímann að
lögreglan hafi fundað með fram-
kvæmdastjóra KSÍ 27. apríl, þremur
dögum fyrir fyrsta leik í Pepsi-deild
karla, og óskað eftir samstarfi KSÍ
og knattspyrnufélaganna á höfuð-
borgarsvæðinu í efstu deild til að
taka á þeim vanda sem stöðubrot
væru.
„Lögreglan hefur glímt við
stöðubrot á höfuðborgarsvæðinu
í talsverðan tíma, ekki bara við
íþróttaleikvanga heldur í miðborg
Reykjavíkur á uppákomum eins og
Menningarnótt, Gay Pride og 17.
júní, svo dæmi séu tekin. Bílum
hefur þá verið lagt á auð grasivaxin
svæði, á umferðareyjum, á gang-
stéttum, gangbrautum og öllum
þeim stöðum sem til greina hafa
komið sem stöðureitir fyrir bifreið.
Þetta hefur valdið skemmdum á
eigum sveitarfélagsins, hættu fyrir
akandi og gangandi vegfarendur,
auk þess sem neyðaraksturstæki
eins og slökkvibifreiðar, sjúkra-
bifreiðar og lögreglubifreiðar hafa
ekki komist um sökum þrengsla.
Þá hafa óþægindi hlotist af þar sem
almenningsvagnar hafa lent í vand-
ræðum af sömu sökum. Á svona
stöðubrotum hefur lögreglan verið
að taka síðustu ár, meðal annars í
samstarfi við Reykjavíkurborg, og
orðið nokkuð ágengt. Mikið hefur
þá verið lagt upp úr kynningu til öku-
manna áður um að leggja löglega og
eftir atvikum hvar gera má ráð fyrir
auðum stæðum. Þetta hefur verið
gert með það að markmiði að koma
megi í veg fyrir vandræða- og hættu-
ástand og jafnframt að koma í veg
fyrir beitingu sekta af hálfu lögreglu
eða Bílastæðasjóðs. Svipuð verkefni
hafa verið í gangi síðustu ár vegna
stöðubrota við íþróttasvæði og þá
knattspyrnuvelli sérstaklega þar
sem mikið hefur verið lagt upp úr
kynningu í fjölmiðlum til að hvetja
ökumenn til að leggja ökutækjum
sínum löglega,“ segir Kristján Ólafur
og bætir við að félögin hafi, í fram-
haldi af aðgerðum lögreglu, verið
í sambandi við hana og óskað eftir
fundi með lögreglu og Reykjavíkur-
borg um lausnir. „Sá fundur verður
haldinn fljótlega.“
Óakar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Haraldur Haraldsson við reitinn í Fossvogi þar sem vonast er eftir 70 bílastæðum.
Ljósmynd/Hari
8 fréttir Helgin 3.-5. júní 2011