Fréttatíminn - 03.06.2011, Qupperneq 16
S
toðtækjaframleiðandinn
Össur fékk enn eina rós-
ina í hnappagatið þegar
maraþonhlauparinn Sa-
rah Reinertsen hljóp 10
kílómetra í Kínamúrsmaraþoninu,
21. maí síðastliðinn, á gervifæti frá
fyrirtækinu. Hún er fyrsta konan
með slíka fötlun sem tekið hefur
þátt í hlaupinu á hinum heimsfræga
múr, „The Great Wall Marathon“,
en það hefur verið hlaupið frá árinu
1999.
Afrek Söru hefur vakið mikla
athygli enda Kínamúrinn erfiður
hlaupurum; undirlagið er gróft og
víða tröppur, auk þess sem sitt á
hvað er hlaupið upp og niður enda
fylgir múrinn hæðóttu landslaginu.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Verð á mann í tvíbýli
119.800 kr.
Nánari upplýsingar
á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum,
akstur til og frá flugvelli og gisting í fimm nætur í
Montmartre-hverfinu á Hotel Carlton með morgunverði.
26.–31. júlí
Sumarferð
til Berlínar
Verð á mann í tvíbýli
94.500 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum,
gisting í fimm nætur á Leonardo Hotel með
ríkulegum morgunverði og íslensk fararstjórn.
Njóttu lífsins í
Berlín og París!
Borgarferðir
Hin óviðjafnan-
lega París
Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir
Fararstjóri: Erik Sördahl
30. ágúst– 4. sept.
Á heimsmeistaramóti
fatlaðra, sem haldið
var á Nýja-Sjálandi
í janúar, notuðu til
dæmis allir verðlauna-
hafarnir í 100 og 400
metra hlaupi vörur frá
okkur.“
Tók þátt í
Kínamúrs-
maraþoninu
á gervifæti
frá Össuri
Bandaríska íþróttakonan Sarah Reinertsen hljóp tíu kíló
metra í Kínamúrsmaraþoninu á gervifæti frá stoðtækja
fyrirtækinu Össuri, fyrst kvenna með slíka
fötlun. Kína múr inn er erfiður hlaupurum,
ófötluðum jafnt sem fötluðum.
Hlaupið er áskorun
Sarah Reinertsen er bandarísk,
36 ára gömul, og segir hlaup hafa
breytt lífi sínu en taka þurfti af
henni fótinn ofan við hné þegar hún
var sjö ára vegna truflunar í bein-
vexti. Önnur börn stríddu henni
vegna fötlunarinnar en hún breytti
stöðunni með því að fara að hlaupa
ellefu ára gömul, þrátt fyrir aflim-
unina. Hún varð fljótust kvenna með
slíka fötlun til að hlaupa 100 metra
og á enn metið í flokki þeirra sem
misst hafa fót fyrir ofan hné, 17,99
sekúndur.
Sarah lítur á hlaup sem áskorun
og það að keppa að því að bæta tím-
ann. Hún keppir bæði við fatlaða og
ófatlaða, sigrar ýmist eða tapar en
takmarkið er að hlaupa hraðar en
hún gerði áður. Tími hennar í tíu
kílómetra hlaupinu á Kínamúrnum
á dögunum var ein klukkustund, 49
mínútur og 46 sekúndur.
Áfangi í sögu Kínamúrshlaupsins
„Hún er með svokallaðan Flex-
Run-fót sem er sérhannaður fyrir
hlaup,“ segir Edda Heiðrún Geirs-
dóttir, markaðsstjóri Össurar um
gervifót Söru. „Þetta er eftirgef-
anleg koltrefjafjöður, eins og C í
laginu, og veitir spyrnu. Fóturinn
er með sílíkonhulsu sem sett er á
stúfinn fyrir ofan hné. Við hulsuna
er tengt gervihné sem búið er til úr
títani. Það er líka okkar framleiðsla
og kallast Total Knee. Síðan er það
koltrefjafóturinn. Þetta eru þrír
lykilþættirnir,“ segir Edda Heiðrún
um fótinn sem gerir Söru Reinert-
sen kleift að stunda afrekshlaup –
og raunar aðrar íþróttagreinar líka.
Edda Heiðrún segir að þátttaka
Söru í hlaupinu á Kínamúrnum hafi
verið ákveðinn áfangi í sögu þess.
„Meirihluti allra þeirra fötluðu
íþróttamanna með stoðtæki sem
fremstir standa í heiminum nota
vörur frá okkur, það er koltrefja-
fætur. Það eru hins vegar færri sem
eru aflimaðir fyrir ofan hné,“ segir
Edda Heiðrún. Hún segir að slíkt
valdi gríðarlegu álagi á heila fót-
inn, mjaðmir og bak, ekki síst við
svo erfiðar aðstæður sem á Kína-
múrnum. „Sarah hleypur svolítið
út á hlið en beitir sinni tækni. Hún
hefur tekið þátt í mörgum erfiðum
þrekraunum og var til dæmis fyrsta
konan með slíka fötlun sem kláraði
Ironman-keppnina þar sem skiptast
á hjólreiðar, hlaup og sund. Það var
gríðarlegur sigur fyrir hana að
klára það,“ segir Edda Heiðrún.
Forysta Össurar
Koltrefjatækni hefur verið nýtt við
gerð gervifóta allt frá árinu 1986,
þótt búnaðurinn komi að sjálfsögðu
ekki í stað allra þeirra vöðva sem
vantar. Edda Heiðrún segir að með
vissu megi halda því fram að Össur
sé í forystu í þessari framleiðslu fyr-
ir íþróttamenn. „Á heimsmeistara-
móti fatlaðra, sem haldið var á Nýja-
Sjálandi í janúar, notuðu til dæmis
allir verðlaunahafarnir í 100 og 400
metra hlaupi vörur frá okkur.“
Edda Heiðrún segir þó megin-
hluta stoðtækjaframleiðslu Össur-
ar fara til annarra en íþróttamanna,
en fyrirtækið einbeitir sér að fram-
leiðslu gervifóta. „Menn halda að
flestir þeirra sem misst hafa útlimi
hafi særst í stríði eða orðið fyrir
slysi en svo er ekki. Aðallega er
um að ræða eldra fólk, yfir sextugt,
sem misst hefur útlimi vegna æða-
sjúkdóma, sykursýki eða slíkra
sjúkdóma en einn fylgifiskur þeirra
er aflimun. Það fólk er langstærsti
kúnnahópurinn okkar,“ segir Edda
Heiðrún.
Líf án takmarkana
Sarah Reinertsen hefur frá ellefu
ára aldri kynnst fjölmörgum gerð-
um gervifóta allt til hins sérhann-
aða Flex-Run-fótar frá Össuri. Í við-
tali eftir hlaupið á Kínamúrnum,
þar sem ófatlaðir þurftu að sýna
sérstaka aðgæslu vegna aðstæðna,
hvað þá fatlaðir, sagði Sarah að fót-
urinn frá Össuri hefði gert sér kleift
að hlaupa miklu lengri vegalengdir
en hún hefði getað ímyndað sér þeg-
ar hún byrjaði að hlaupa sem lítil
stúlka. Á ferlinum hefur hún meðal
annars hlaupið sjö heil maraþon-
hlaup og yfir þrjátíu hálfmaraþon,
meðal annars í Reykjavík, á Kúbu,
Havaíeyjum, New York og San
Francisco. Þá hefur hún oft keppt
í þríþraut.
„Þegar ég hleyp finnst mér ég
virkilega vera á lífi; ég sveifla örm-
unum, svitna og hjartað hamast í
brjóstinu,“ segir Sarah. Hún segist
lengi hafa haft hug á að hlaupa á
Kínamúrnum og verið afar stolt af
því að hlaupa í bol með merki Öss-
urar. „Ég vil breyta skoðunum fólks
á getu hinna fötluðu og jafnframt
sýna öðru fötluðu fólki hvaða erfið-
leika það getur yfirstigið í lífi sínu.
Ég hef fyrir löngu tileinkað mér
slagorð Össurar: „Líf án takmark-
ana“. Þótt tíminn í 10 kílómetra
hlaupinu á Kínamúrnum hafi ver-
ið minn lakasti í slíku hlaupi hef
ég aldrei verið stoltari af að ljúka
hlaupi.“
Takmarkið að keppa á Ólympíu-
leikum fatlaðra 2016
Sarah er menntuð í blaðamennsku
og vann sem íþróttafréttamaður
í nokkur ár en einbeitir sér nú að
íþróttaferlinum. „Íþróttir eru mín
ástríða,“ segir hún og í þrígang hef-
ur hún unnið heimsmeistaratitil í
þríþraut í sínum flokki. Næsta tak-
mark hennar er að sigra í þríþraut
á heimsmeistaramótinu í Peking í
september næstkomandi. „Ég vann
árið 2009, tapaði árið 2010 svo að ég
ætla að ná titlinum aftur í ár,“ segir
afrekskonan.
Enn metnaðarfyllra takmark er
að keppa á Ólympíuleikum fatlaðra
árið 2016 en þá verður þríþrautin,
hjólreiðar, sund og hlaup, í fyrsta
sinn meðal keppnisgreina. „Tak-
mark mitt er að komast í bandaríska
liðið þá,“ segir Sarah Reinertsen
sem vonast til að komast á verð-
launapall þar, hvort sem hún vinnur
til gull-, silfur- eða bronsverðlauna.
„Hvaða litur sem er dugir mér,“ seg-
ir hún, „en það er eins í íþróttunum
og lífinu; við mætum mótlæti og
verðum fyrir vonbrigðum. Maður
verður því að búa sig undir ferða-
lagið, jafnvel þótt áfangastaður náist
ekki. En að sjálfsögðu reyni ég að
ná gullinu.“
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Sarah Reinertsen varð fyrst aflimaðra kvenna til að taka þátt í Kínamúrsmaraþoninu. Þar hljóp hún tíu kílómetra á FlexRun
koltrefjagervifæti frá Össuri en hann er sérhannaður fyrir hlaup. Fóturinn samanstendur af sílíkonhulsu utan um stúfinn, hné úr
títani og Claga koltrefjafjöður.
Edda Heiðrún Geirsdóttir,
markaðsstjóri Össurar
Tvö þúsund hlauparar
kaupa aðgang að Kínamúrs
hlaupinu ár hvert, ungir jafnt
sem gamlir. Keppt er í 5 og
10 kílómetra hlaupi, hálfu
maraþoni og maraþonhlaupi.
Sarah Reinertsen hljóp 10
kílómetrana á gervifæt
inum frá Össuri. Hlaupið er
erfiðara en mörg hliðstæð
hlaup vegna aðstæðna á
Kínamúrnum. Hlaupið er
upp og niður og við bætast
þrep og mjög ójafnt undirlag.
Hlaupari á gervifæti þarf
því að skipuleggja hlaupið í
smáatriðum og vanda sig í
hverju skrefi. Sarah sagði í
viðtali að hlaupið á múrnum
hefði verið ein mesta áskorun
sín á íþróttaferlinum. „Ég
þurfti að taka á honum stóra
mínum á ákveðnum köflum í
hlaupinu, t.d. niður tröppur
þar sem komið var niður á
mjög gróft svæði. En þetta
var mjög gefandi og ákaflega
gaman,“ segir Sarah. jh
Erfitt hlaup á hinum fræga Kínamúr
16 íþróttir Helgin 3.5. júní 2011