Fréttatíminn - 03.06.2011, Page 26
aðstoða Pierre Littbarski, aðalþjálfara liðsins,
í þrjá mánuði. Ég leit á það sem smá reynslu;
var ekki til í þetta í byrjun en hann lagði hart
að mér og þá ákvað ég að prófa. Það stóð mun
skemur en til stóð en var mjög gaman. Ég
skemmti mér konunglega við þetta í þennan
rúma mánuð sem ég var úti.“
Þú hlýtur að hafa kynnst mörgu eftirminnilegu
fólki á undanförnum árum. Hverjir eru eftir-
minnilegastir?
„Það er kannski mest fólk úr knattspyrnuheim-
inum. En maður er endalaust að kynnast nýju
og skemmtilegu fólki, það er erfitt að gera upp
á milli.“
Mér skilst að ykkur Einari Kársyni rithöfundi
hafi orðið vel til vina í Berlín.
„Já, við Einar Kára kynntumst í Berlín. Við
urðum miklir mátar, hittumst mjög reglulega
og ræddum málin og gerum enn. Einar er á
þeirri skoðun að ég hafi hjálpað honum við
að skrifa söguna Storm og hann hafi komið
Herthu Berlín á beinu brautina. Eftir að hann
kom til Berlínar gekk liðinu mun betur. Hann
eignaði sér algerlega heiðurinn af því. Ég efast
ekkert um að það sé rétt hjá honum. Ég held að
hann hafi lagt sitt af mörkum,“ segir Eyjólfur
og hlær.
Hvernig hjálpaðir þú honum að skrifa Storm?
„Það er mér hulin ráðgáta ennþá!“
Þetta er ekki ein af Sturlungasögunum úr Skaga-
firði, er það?
„Nei, þetta er vafasamur heiður. Bókin fjallar
nefnilega um iðjuleysingja sem lifir á kerfinu í
Danmörku. Ég veit ekki hvernig ég fléttast inn
í það og hversu mikill heiður það er,“ segir Eyj-
ólfur og glottir. Húmoristinn greinilega kominn
upp í honum.
Þjálfar soninn
Eyjólfur fæddist 3. ágúst 1968 og ólst upp á
Sauðárkróki. Hann vakti fyrst athygli erlendra
knattspyrnuliða með frammistöðu sinni í U21-
landsleik á Akureyri en hann var
þá leikmaður Tindastóls á Sauðár-
króki. Í framhaldi af því fór hann
út til Stuttgart í atvinnumennsku,
þá tuttugu og eins árs að aldri.
Nú er elsti sonur hans, Hólmar
Örn, einnig orðinn atvinnumaður
í knattspyrnu en hann var sautján
ára þegar hann fór út til West Ham
í Englandi. Þá leikur Hólmar Örn
undir stjórn pabba síns í U21-liðinu.
Hvernig er að þjálfa son sinn?
„Fyrir mér erum við leikmaður
og þjálfari. En ég hugsa að það
sé mjög erfitt fyrir hann að vera
sonur pabba síns.“
Að hvaða leyti?
„Það er alltaf pressa á öllum leik-
mönnum. Hann er kannski opnari
fyrir gagnrýni gagnvart pabbanum
og öðru. En hann hefur höndlað
það virkilega vel. Hann er alveg
ískaldur í þessu, einbeitir sér bara
að sínum leik og hefur verið að
spila vel fyrir okkur.“
Áttirðu ráð í pokahorninu handa
honum þegar hann fór af stað?
„Já, já. Aðallega að vera einbeittur
í því sem hann er að gera og því
sem þarf að gera til að verða betri
leikmaður. Vera duglegur að æfa,
taka aukaæfingar, hugsa vel um
sig og hvílast vel á milli. Ekki vera
ánægður og saddur, eins og komið
sé á leiðarenda, þótt menn séu
komnir út í atvinnumennsku. Þá
er þetta rétt að byrja. Líkaminn
er verkfærið, þinn peningur og
kapítal. Það verður að hugsa vel
um hann. Svo þarf að hafa mikla
þolinmæði til að bera, til dæmis ef
menn komast ekki í liðið og eiga
erfitt með að sanna sig. Þá þarf
að halda áfram að æfa, hugsa um
að taka framförum og horfa fram
á veginn. Einnig er mikilvægt að
halda áfram í skóla. Hólmar Örn
hefur gert það. Hann hefur verið
utanskóla og ætlar sér að ljúka
námi. Svo auðvitað það mikil-
vægasta: að halda sig á jörðinni
og tapa ekki áttum í einkalífinu.
Muna hvaðan maður kemur, hvar
ræturnar eru.“
Laukst þú stúdentsprófi áður en þú
fórst út sjálfur?
„Ég rétt náði að klára það. Ég
fór út um áramót, hlaðinn fögum
í skólanum. Það var með ólík-
indum! Ég var einmitt í tveimur
þýskuáföngum en ég held að ég
hafi aldrei fengið betri einkunnir
en einmitt þá, þegar pressan var
svona mikil. Ég náði að klára það
og hefði örugglega lært meira ef
netið og tækifæri til að stunda nám
utanskóla hefðu verið komin til
sögunnar. Nú er þetta mjög auðvelt
og aðgangur að utanskólaefni
greiður. Fólk getur menntað sig í
því sem það hefur áhuga á.“
Hvaða fag hefðirðu valið þér?
„Ég hafði mikinn áhuga á sálfræð-
inni. Ég efast ekki um að ég hefði
farið í þá áttina.“
Íþróttasálfræði þá?
„Já. Svo hafði ég mikinn áhuga
á viðskiptum almennt. Þegar ég
hætti í atvinnumennsku og kom
heim fór ég í MBA-nám í Háskól-
anum í Reykjavík.“
Hafði það blundað lengi í þér að
setjast á skólabekk?
„Já, að fara í skóla og mennta mig
aðeins. Ég hafði alltaf haft mikinn
áhuga á því. Ég sé aldeilis ekki
eftir því að hafa farið í þetta nám.
Það var mjög erfitt að setjast á
skólabekk eftir tuttugu ár – gríðar-
lega erfitt – en ég er mjög ánægður
með það núna að hafa tekið þessari
áskorun og skellt mér af stað.“
Af hverju valdirðu þetta nám?
„Ég hafði verið mikið í viðskiptum,
til dæmis á verðbréfamörkuðum
erlendis. Þar var ég bara að fjár-
festa og vinna með mína eigin
peninga. Ég hafði svolítinn áhuga
á þessu og ákvað því að taka meira
nám þessu tengt. Þetta var mjög
hentugt. Ég gat stundað námið
með vinnu, verið með þjálfun og
með puttana í fyrirtækinu mínu
hérna heima líka.“
Sorgin er eilífðarverkefni
Eyjólfur og kona hans, Anna Pála
Gísladóttir, eiga fjóra syni; Hólmar
Örn, Trausta Má, Sverri Rafn og
Kára Rafnar en Sverrir Rafn lést
17. nóvember 2008, aðeins sex
mánaða að aldri. Um var að ræða
svokallaðan ungbarnadauða, dán-
arorsök sem læknavísindin standa
enn ráðþrota gagnvart. Hinn 4.
nóvember í fyrra kom yngsti son-
urinn, Kári Rafnar, í heiminn og er
óhætt að segja að fæðing hans hafi
vakið mikla gleði í fjölskyldunni.
Hvernig hefur ykkur gengið að
vinna úr því áfalli að missa barn?
„Það hefur svo sem gengið vel,
þannig, en þetta er ekkert sem
hverfur eða fer. Við eigum fallegar
minningar um Sverri Rafn. Þetta
var mjög erfitt fyrir fjölskylduna.
Hann var bara sex mánaða þegar
við misstum hann og þetta var
gríðarlegt áfall fyrir okkur. Við
stóðum vel saman, fjölskyldan,
og reyndum að koma sterk út úr
þessu. Það er það sem skiptir máli.
Að hafa vini og vandamenn í kring-
um sig sem hjálpa manni í gegnum
þetta. Það var mikið átak. Sverrir
Rafn lifir hjá okkur sem yndisleg
minning,“ segir Eyjólfur.
Fyrir hálfu ári birti til í lífi fjöl-
skyldunnar á ný þegar sonurinn
Kári Rafnar leit dagsins ljós.
„Hann er algjör engill og við erum
þakklát fyrir hann. Þetta er spenn-
andi tími og virkilega gaman,“
segir Eyjólfur og bætir því við að í
þeirra huga komi Kári Rafnar alls
ekki í staðinn fyrir Sverri Rafn.
„Kári Rafnar er einstaklingur út
af fyrir sig og Sverrir Rafn lifir í
minningu okkar sem sérstakur
einstaklingur.“
Þér hefur tekist að halda þínu striki
í námi og vinnu þrátt fyrir þetta?
„Já, við Anna Pála ákváðum það
í sameiningu að reyna að halda
Við ætlum að ráða stóran hóp af hressu
fólki á aldrinum 18-25 ára í Vinnu
2-4 kVöld í Viku í sumar.
og
tal
a f
rít
t
í ge
msa
nn
í al
lt s
uma
r?
Viltu Vinna þér
inn 7.000 kr.
á 3 tímum
ums
ókn
arf
res
tur
er
til k
l. 2
3:59
mán
ud.
13. j
úní
2011
. sæ
ktu
um
nún
a á
tal
.is/a
uka
Vinn
a
Við eigum
fallegar
minningar
um Sverri
Rafn. Þetta
var mjög
erfitt fyrir
fjölskylduna.
Hann var
bara sex
mánaða
þegar við
misstum
hann og
þetta var
gríðarlegt
áfall fyrir
okkur.
Eyjólfur, sem hefur náð frábærum árangri með U-21 árs landsliðið, hefur ekki áhuga á því að taka við A-landsliðinu á nýjan leik.
26 viðtal Helgin 3.-5. júní 2011